Þjóðviljinn - 24.08.1974, Side 3

Þjóðviljinn - 24.08.1974, Side 3
Laugardagur 24. ág«(t 1(74. MÓÐVILJINN — 8tÐA S Lágmarks- verð á síld ákveðið Verölagsráö sjávarútvegsins hefur ákveöiö eftirfarandi lág- marksverö á sild veiddri i reknet til söltunar frá byrjun rekneta- veiöa til 31. desember 1974. A) Stór sild (32 cm og stærri) hvert kg. kr. 30.00 B) Smærri sild (undir 32 cm) hvert kg. kr. 25.00 Stæröarflokkun framkvæmist af Fiskmati rikisins. Veröiö er miöaö viö sildina upp til hópa komna á flutningstæki við hlið veiöiskips. Verðið er uppsegjanlegt hvenær sem er eftir ágústlok, og skal þá nýtt verö taka gildi 7 dög- um eftir uppsögn. Reykjavik, 22. ágúst 1974. Verðlagsráö sjávarútvegsins. Englend- ingur heimsmeist- ari ung- linga í skák London 23/8: Anthony John Miles var i kvöld formlega yfir- lýstur heimsmeistari unglinga i skák áriö 1974 i borginni Manilla á Filipseyjum. Miles gerði jafntefli við Hollendinginn Dieks i siöustu um- feröinni og sigraði með 7 vinning- um, en Dieks varö i öðru sæti með 5,5 vinning. 1 þriðja sæti varð Marjanovic Júgóslaviu og i fjórða sæti Sviinn Lars Ake Schneider. Fimmti varð Vestur-Þjóöverjinn Peter Mack, en hann sigraði m.a. Sviann og Sovétmanninn Kochiev og geröi þar með drauma þeirra um fyrsta sætiö aö engu. Miles, sem er 19 ára stærð- fræðistúdent viö Sheffield-háskól- ann i Englandi, hlaut i verðlaun gullpening og 200 dollara, og þar að auki titilinn alþjóðlegur meist- ari. (Reuter) Armeníu- menn snúa aftur Minsk, (APN). Sovéskar drátt- arvélar af tegundinni Belarus — 80 frá dráttarvélaverksmiðjunni i Minsk eru nú fluttar út til 50 landa. Þær hafa fengið nokkur verðlaun á alþjóðasýningum og reynst vel i tilraunakeyrslu, sem fór fram i Nebraska i Bandarikj- unum. Þetta eru alþjótar vél- ar, sem hægt er að tengja 150 mis- munandi tæki við. V/N. V *v W WN-VK.W Þrátt fyrir umsóknir getur borgin ekki hjálpað þeim Húsið sem þau búa í óíbúðarhæft síðan 1965. í Blesugróf, rétt við nýju Reykjanesbrautina og Breið- holtsveg, stendur heldur nið- urlútur kofi. Þessi kofi ber það fallega nafn Lækjarbrekka, og i honum búa fjórar manneskj- ur. Þjóðviljamenn voru á ferð þar i Blesugróf nýlega, og urðu undrandi að sjá, að fólk skuli hafast við i jafn nötur- legu skýli sem Lækjarbrekka verður að kallast. Þarna búa fullorðin hjón ásamt syni og tengdadóttur. Húsnæðið er i eigu Andrésar Valbergs, og sagði sonurinn á heimilinu, Ingvar Már, að leigan væri 5000 krónur á mánuði. „Okkur bauðst húsið til kaups — það varð ekki af þeim viðskiptum, verðið átti að vera tvær og hálf miljón.” Lýst óíbúðarhæft fyrir 9 árum Lækjarbrekka var lýst óibúðarhæf 1965. Það voru heilbrigðisyfirvöld borgarinn- ar sem það gerðu — og vart hefur ástand hússins skánað siðan. Ingvar Már, kona hans og aldraðir foreldrar eru öll sjúklingar. Faðirinn, Páll Valdimarsson, þjáist af kransæðastiflu, Ingvar af magasári, kona Ingvars er nýrnasjúklingur — ekkert þeirra er vinnufært. Báðir hafa feðgarnir sótt um húsnæði hjá Félagsmálastofn- un. ,,Ég lit svo á að umsókn eldri mannsins sé mjög að- kallandi,” sagði Gunnar Þor- láksson, fulltrúi hjá Félags- málastofnun borgarinnar. „Það sem um er að ræða að úthluta föðurnum, Páli Valdi- marssyni og konu hans, er ibúð fyrir aldraða við Norður- brún eða Austurbrún. Það eru tugir manna á biðlista.” (öllum íbúðakaupaum- sóknum synjað Ingvar Már fullyrti, að Páll faðir sinn hefði nú um 15 ára skeið haft umsóknir i gangi hjá borgaryfirvöldum. „Pabbi var verkamaður. Hann hefur sótt um bygginga- leyfi, og hann hefur sótt um ibúð hjá Framkvæmdanefnd, en öllum umsóknum hefur verið synjað. Nú getur ekkert okkar unniö lengur, og þvi get- um við ekki leigt á frjálsum markaði,” sagði Ingvar Már. Ingvar og kona hans eiga tvö börn. En þar sem ibúðin hefur verið lýst óibúðarhæf, er þeim bannað að hafa börnin hjá sér, að þvi er hann sagði okkur. Börnin tvö dveljast nú hjá ættingjum móður sinnar úti á landi. Rottur og mýs Það er óþarfi að lýsa þessu leiguhúsnæöi, Lækjarbrekku, með mörgum orðum. Kofinn er einfaldlega ónýtur. Þar væri t.d. ekki hægt að hýsa hross. Gólfið er fúið og götótt. Hænsni færu fljótlega út um veggina, þvi klæðning að inn- an er að detta af spýturæksn- unum sem bera húsið uppi. Þar á milli valsa mýs, og á salerninu hittir heimilisfólkið fyrir rottur. A vetrum blæs vindur i gegnum kofann, og hitinn fer niður fyrir frost- mark. Ingvar Már sagði að um nætur frysti vatn i bollum þar inni. Félagsmálastofnun hefur enn ekki getað leyst vanda þessa fólks. Þegar Þjóðviljinn hafði samband við Þórhall Hall- dórsson einn af heilbrigðisfull- trúum borgarinnar, sagði hann, að sennilega væri nú bú- ið i um fimm ðibúðarhæfum i- búðum i borginni. Fulltrúinn sem við ræddum við, var þessum málum ekki fyllilega kunnugur, en hann reiknaði með, að fjöldi þess- ara ibúða væri ekki meiri en fimm. Það er ekki há tala. Og þess vegna hljóta borgaryfir- völd að geta leyst þennan vanda. Eða hve lengi á fólkið að hýrast svona? Páll Valdimarsson og hans fólk hefur búið i húsi Andrésar Valbergs i þrjú ár. Arin þar áður bjó fólkið i skárri leigui- búðum. Fyrir mörgum árum árri Páll hús á Sel- tjarnarnesi, sem hann seldi þegar hann fór að vinna hjá Reykjavikurborg, á Korpúlfs- stöðum. Frá þeim tima hefur hann leitað eftir húsnæði hjá borginni, en ekkert fengiö. Borgaryfirvöld láta stundum að þvi liggja, að borginni sé vel stjórnað. Varla eru ibú- arnir i Lækjarbrekku á sömu skoðun. —GG Lækjarbrekka gamli kofinn, sem leigður er á 5000 krónur, stendur alveg við Breiðholtsveg og á myndinni sést að byrjað er að mæla fyrir nýju Reykjanesbraut- inni sem iiggja mun við kofa- hornið. Þarna búa fjórar, veikar manneskjur i húsnæði sem langt er siðan lýst var óibúðarhæft. — Mynd gsp. Þau hýrast í greni Námsmenn erlendis Hafa tapað að fimmtungi lífeyris sins á gengissiginu frá áramótum í brimróti gjaldeyris- málanna hafa eflaust margir tapað ’drjúgum skildingi. í þeim hópi eru námsmenn sem stunda sitt nám erlendis. Við gerðum smáathugun á því hversu mjög lifeyrir þeirra hefur rýrnað frá áramótum og tókum dæmi af fimm lönd- um. Sviþjóð: Við fyrstu gengis- skráningu ársins, þann 3. janúar, stóð sænska krónan fyrir 17,88 islenskum en við siðustu skrán- ingu, þann 21. ágúst, var hún komin upp i 22,23 islenskar. Há- marksyfirfærsla námsmanns fyrir þrjá mánuði hefur þennan tima verið óbreytt eða 72 þúsund krónur sé maður við nám i Stokk- hólmi. Við áramót fékk náms- maðurinn 4027 sænskar krónur yfirfærðar en nú hefur krónunum fækkaðniðuri 3238. Námsmaður i Stokkhólmi hefur þvi tapað 789 sænskum krónum frá áramótum. Danmörk: Um áramót var gengi dönsku krónunnar 13,17 is- lenskaren á miðvikudaginn 16,28. Þriggja mánaða hámarksyfir- færsla til námsmanns i Dan- mörku er 64 þúsund isl. kr. Um áramót fékk námsmaðurinn 4860 danskar krónur fyrir þá upphæð en á miðvikudaginn 3931. Hann hefur þvi tapað 929 dönskum krónum frá áramtum. Noregur: Um áramót var gengi norskrar krónu 14,45 islenskar en á miðvikudaginn 17,91. Hámarks- yfirfærslan er sú sama og i Dan- mörku, 64 þúsund ísl. kr. Fyrir þá upphæð fékk námsmaður i Noregi 4429 norskar krónur um áramót en 3573 á miðvikudaginn. Hann hefur þvi tapaö 856 norskum krónum á tæpum niu mánuðum. Vestur-Þýskaland: Gengi þýska marksins var um áramót 30,44 isl. kr. en á miövikudaginn var það komið upp i 37,55 Isl. kr. Hámarksyfirfærslan er sú sama og i Noregi og Danmörku, 64 þús- und isl. kr. Fyrir þær fékk náms- maður i V.-Þýskalandi 2102 mörk um áramót en á miövikudaginn 1704 mörk. Hann hefur þvi tapað 398 þýskum mörkum frá áramót- um. Bretland: Gengi enska punds- ins var 193 isl. kr. um áramót en var komið upp i 230 kr. á miðviku- daginn. Hámarksyfirfærsla i Bretlandi er 60 þúsund isl. kr. Námsmaður þar i landi fékk fyrir það 311 pund um áramót en 261 pund á miðvikudaginn. Hann hef- ur þvi tapað 50 pundum siðan um áramót. Lifeyrir námsmanna i þessum löndum hefur þvi rýrnað um allt að 19,3%. Mest er rýrnunin i Nor- egi eða 19,3%, i Danmörku er hún 19,1%, i Vestur-Þýskalandi 18,9%, i Bretlandi rúm 16% og i Sviþjóð 12,1%. — ÞH

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.