Þjóðviljinn - 24.08.1974, Síða 9

Þjóðviljinn - 24.08.1974, Síða 9
Laugardagur 24. ágdst 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 • ' 2—- •2 Prýðilegur árangur í Svíþjóð Blindirog bæklaðir háðu keppni í frjálsum íþróttum Christer Gillfors stökk l,50m. í hástökki án atrennu, en gat ekki séð rána sakir blindu Fyrir skömmu var i Gautaborg háð keppni i frjálsum iþróttum og er slikt vissulega ekki nema daglegt brauð þar i borg. En þessi keppni var þó frábrugðin flest- um öðrum að þvi leyti, að hún var eingöngu fyr- ir fatiað fólk, blinda, lamaða o.s.frv. Árangurinn varð í einu orði sagt undra- verður. Ég verð a.m.k. að játa það, að það kem- ur mér á óvart hve mikl- um árangri þetta fólk hefur náð með þrotlaus- um æfingum og óbilandi kjarki. Viða um heim er stöðugt meiri áhersla lögð á aðstoð við fatlað fólk og verður ekki ann- að sagt, en að árangur- inn sé farinn að koma glögglega i ljós. Sennilega efast enginn um hver átti bestan árangurinn á móti þessu i Gautaborg. Christer Gill- fors frá Skáni stökk þá 1.50 metra i hástökki án atrennu, og bætti þar sitt persónulega met um 12 sentimetra. Allir iþróttamenn gætu verið yfir sig ánægðir með 1.50 i atrennulausu hástökki en fyrir blindan mann, sem ekki get- ur séð hvar ráin er, né hvenær þarf að lyfta bol eða fótum yfir, er þetta stórkostlegur árangur. A mótinu voru þátttakendur alls um 170 og kepptu þeir i 89 greinum. Þessi mikli fjöldi keppnisgreina stafar af þvi, að þátttakendum er ekki skipt ein- göngu i aldursflokka, heldur einn- ig með hliðsjón af þvi, hvað hver og einn er mikið fatlaður. Allir urðu að hafa jafna möguleika á sigri og þá án tillits til mikillar eða litillar fötlunar. Aðalflokkar voru fjórir, blindir og illasjáandi, bæklaðir, vangefn- ir og fólk með vaxtarbæklun. Þar fyrir utan var svo skipt eftir aldri, ekki i „sveinar, piltar, drengir, strákar, menn og kallar” eins og gert er hér á landi, heldur var eingöngu skipt um fertugsaldur- inn, keppendur voru annað hvort yfir eða undir 40 ára. Ýmsar keppnisgreinar Flestar keppnisgreinarnar voru þær sömu og við þekkjum i venjulegum frjálsiþróttamótum. En þó var nokkuð um annars kon- ar keppni, s.s. i „hjólastólakapp- akstri” og öðru sliku. Nokkuð er farið að bera á milli- landakeppni i iþróttum fyrir fatl- aða. Fyrir skömmu var t.d. hald- ið stórt mót með þátttöku ýmissa þjóða og urðu Sviar þar i 4. sæti. Þar var ekki einungis keppt i frjálsum iþróttum, heldur einnig i sundi, lyftingum og öðrum iþróttagreinum. Fædd ósjáandi, en fékk þó 4 gullverðlaun Til skamms tima störfuðu i Svi- þjóð nokkur iþróttafélög, sem eingöngu voru ætluð fötluðum, og voru þau þá öll i Stokkhólmi. En nú er farið að bera meira á félög- um úti á landsbyggðinni og i öðr- um bæjum. Má sem dæmi um það nefna árangur Ann Britt Ander- son sem er 21 árs gömul. Hún sigraði i þremur hlaupagreinum, 60 m 200 m og 800 metrum, auk þess að hún sigraði glæsilega i langstökki. Ann Britt er fædd al- blind á báðum augum. Hér kemur Ann Britt Anderson I markið eftir 800 metra hiaupiA. MeA henni er þjálfari hennar, sem jafnframt er „leiðsögumaður” og verður að hlaupa við hlið hennar allan timann, þvi Ann er algjöriega blind. (Ann er t.h. á myndinni). 1 800 metra hlaupinu átti Anderson Sviþjóðarmetið 2.51.1. 1 riðlahlaupinu á þessu móti var það slegið um heilar 6 sekúndur, en Ann Britt var ekki á þeim bux- unum, að láta titilinn af hendi svo hún gerði sér litið fyrir og bætti met sitt um rúmar 8 sekúndur og hljóp á 2.43.5 — glæsilegu Sviþjóðarmeti. „Ég hef æft hlaup i 5 ár og félag mitt hefur æfingar tvisvar i viku” segir Ann. „En 2 æfingar eru allt- of litið og þess vegna hleyp ég miklu oftar og þá ýmist ein eða i fylgd með þjálfara minum eða öðrum þeim, sem er sjáandi og getur þvi sagt mér til”. Síöasti dagur undan- úrslita ( dag verða siðustu leikir undanúrslitanna í 3. deild leiknir. I A-riðli leika á Kaplakrikavelli klukkan 2,00 Stefnir og Austri og á Melavelii leika klukkan 4.00 Reyn- ir Ár og Þróttur N. í B-riðli leika síðan á Melavelli klukkan 2.00 KS og Víkingur OL og á Kaplakrikavelli kl. 4.00 leika Stjarnan og Reynir úr Sandgerði. Það verður siðan strax á morgun, að úrslitaleikirnir sjálfir hefjast og á mánudags- kvöld er ráðgert að hreinn úr- slitaleikur um 2. deildarsæti fari fram. Verður ekki annað sagt, en að mótanefnd KSÍ hafi staðið sig með miklum sóma i 3. deildinni og raunar alls staðar. Aætlun hefur haldist nákvæmlega i öllum flokkum og deildum og er það meira en oft áður. FH í I. deild sigraði Þrótt í fyrrakvöld 1-0 1 fyrrakvöld sigraði FH Þrótt með einu inarki gegn engu og tryggði sér þar með endanlega sæti i 1. deild á næsta ári. Eina mark leiksins og sigurmark FH skoraði Helgi Ragnarsson. Engum dylst, að Hafnfirðingar eru vel að þessum sigri komnir. Þeir hafa verið afgerandi i sumar hvað styrkleika snertir, áhuginn i algjöru hámarki og baráttu- viljinn eftir þvi. Verður fróðlegt að sjá hvernig liðinu vegnar i 1. deildarbaráttunni á næsta sumri. FH-strákarnir eru ungir og sumir e.t.v. nokkuð óharðnaðir, en þeir eiga svo sannarlega framtiðina fyrir sér. Leikurinn gegn Þrótti mótaðist óneitanlega mjög af taugaspennu leikmanna beggja liða. Knatt- spyrnan var stórkarlaleg, leikur- inn harður og sennilega erfiður að dæma. Guðmundur Haraldsson dómari virtist þó sem fæddur i hlutverkið og gaf sig hvergi. Hafnfirðingar voru betri aðilinn allan leikinn þótt ekki yrðu mörk þeirra fleiri. Undir lokin var svo nánast um einstefnu að marki Þróttara að ræða, en þeir vörðust þó af hörku og fengu ekki á sig fleiri mörk þótt oft skylli hurð nærri hælum. Óvænt úrslit í 3. deild Það verftur ekki annað sagt en aft úrslitin á fyrsta leik- kvöldi i lokakcppni 3. deildar- innar hafi orftift óvænt. Þannig má nefna aft á Mela- velli léku Þróttur frá Nes- kaupstað og Austri frá Eski- firfti, og koinu þeir siftar- nefndu mjög á óvart og sigr- I uftu 2-0. Fyrirfram voru Þrótt- | arar taldir sigurstranglegast- ir, en nú hefur svo sannarlega dregift ský fyrir sólu. Reynir frá Arskógsströnd lék gegn Stefni frá Súganda- í firfti, og einnig urftu úrslit I óvænt, er Reynir sigrafti meft j oinu marki gegn engu. Stjarnan frá Garftahreppi mátti þakka fyrir sigur gegn | KS frá Siglufirfti, en þar uröu lokatölúr 2-1. Vikingur 61. og Reynir j Sandgerði gerftu jafntefli 1-1. FH tap- aði kæru A sinum tima kærftu FH- ingar leik sinn gegn Haukum i i 2. deildarkeppninni, vegna þess, aft Haukar höfftu 6 annarsflokkslcikmenn á ieik- j skrá sinni. Lauk leiknum meft | 1-1 jafntefli. Þau úrslit hefðu getaft orftiö örlagarik fyrir FH-liftift, og tók þaft þvi þaft til bragfts, aft kæra leikinn. Dóm- ur er nú fallinn i kærunni, og var leikurinn og úrslit hans úrskurftuft löglcg. A-þýskir leiga nær öll metin Austur-þýsku sundkonurnar | hafa náð frábærum árangri á | Evrópumótinu, sem fram fer i| Vin og eiga þair nú öll heims-l metin nema i 800 in. og 400 m. I bringusundi. A mótinu hafa verðlauna-l peningar skipst á eftirfarandi | hátt: Gull Silfur Brons I Austur- Þýskaland Vestur- Þýskaiand Sovétrikln Ungverjaland Holland Bretiand Sviþjóft Frakkland ítalia 10 3 2 2 0 0 0 0 0 Umsjón: Gunnar Steinn Pálsson

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.