Þjóðviljinn - 15.09.1974, Blaðsíða 13
Sunnudagur 15. september 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
Aðalgeir
Framhald af bls. 9.
En þegar Brynjólfur kemur Is-
landi út úr dönsku grundvallar-
lögunum, þá er þvi litill gaumur
gefinn, enda þótt það sé liklega
það besta, sem hann gerði fyrir
okkur. En þar vantar hina
dramatisku umgjörð. Það er sitt-
hvað að bera fram mótmæli eins
og Jón gerði með vopnaðá her-
menn baksviðs, reiðubúna að
skakka leikinn ef með þyrfti, eða
beita menn fortölum á nefnda-
fundum úti i Danmörku eins og
Brynjólfur.
Hve mikil áhrif?
En það má segja, að hann hafi
ekki haft svo ýkja mikil áhrif á
stjórnmál okkar. Meðal annars
vegna þess, að ýmsar hugmyndir
sem hann ber fram eru i raun á
dagskrá enn i dag. Eins og Björn
Þorsteinsson minntist á i and-
mælum sinum, þá verður hann
fyrstur manna til að vekja máls á
þvi óréttlæti, að ekki sé jöfn kjós-
endatala á bak við hvern þing-
mann. Og hann er jafnvel að tala
um landið sem eitt kjördæmi til
að skapa öllum jafnan rétt, —
þetta er svona gamalt. Og hann er
að berjast fyrir sem al-
mennustum kosningarétti, að
eignarréttur og staða ráði þvi
ekki, hvort menn hafi kosninga-
rétt eða ekki. Og við vitum að það
tók sinn tima hér á landi að þessi
sjónarmið væru virt. Ýmis bar-
áttumál hans fá ekki undirtektir
fyrr en löngu seinna og þá ekki
fyrir áhrif frá honum, heldur
vegna þess fyrst og fremst, að
menn eru þá komnir lengra á leið
sjálfir.
Það er erfitt að skýra þetta, en
það er svo með Fjölni, að hann er
ákaflega óvinsæll og áhrifalitill
þau árin, sem hann er aðkoma út.
Vinsældir hans koma löngu
seinna.
— Viltu bæta nokkru við tal
okkar um hlutverk Brynjólfs.
— Hann lendir þarna inn á
stjórnarskrifstofurnar, og það er
erfitt að festa hendur á þvi, hvað
hann i raun og veru gerir. Ég hef
t.d. sterkan grun um það, að hann
ráði afstöðu Rentukammersins
varðandi skipulag Alþingis.
Kammerið skrifar ákveðið bréf,
álitsgerð, þegar málið er lagt
fyrir það, sem gengur á móti bæði.
Embættismanna-samkomunni og
Hróarskelduþinginu. Og það er
mikið samræmi milli þess, sem
Brynjólfur skrifaöi um alþingi i
Fjölni, og þess, sem Balthazar
Christensen beitti sér fyrir á
Hróarskelduþingi, enda voru þær
hugmyndir komnar frá Brynjólfi.
Þannig er þetta um margt fleira,
þaö er erfitt að vita, hvað Bryn-
jólfur hefur til mála lagt, þvi það
er ekki skráð beinlinis.
Það er greinilegt, að Brynjólfur
hefur haft mikið lag á að ná hylli
manna og telja þá á sitt mál.
Hann hefur haft einhverja per-
sónutöfra, sém menn hafa fallið
fyrir. Það sést t.d. vel á bréfum
Páls Melsteðs, að hann breytir
mjög i jákvæða átt skoðun sinni á
Brynjólfi eftir að hanrt hefur
kynnst honum persónulega 1848
og vírðist verða alúðarvinur
hans. Og það er greinilegt að
danskir stjórnmálamenn hafa
haft mikla trú á honum. Þegar
þeir velja starfsmenn i Rikis-
þingið, þá er hann strax tekinn,
islendingurinn. Og það er kannski
enn merkilegra, að hann er settur
til þess að semja álitsgerð um
samskipti hertogadæmanna og
Danmerkur þegar Slésvikur-
striðið er á dagskrá, fenginn til að
hrekja ásakanir hertogadæm-
anna um að þau hafi verið skatt-
pind af Danmörku, og hver sem
væri hefði ekki verið settur i það
verk, þegar svo mikið var i húfi.
Að velja og hafna
— Hvað segir þú um þann
vanda, sem þvi fylgir að setja
saman ævisögu manns sem hefur
hlutverki að gegna i stjórnmála-
sögu, hvaða ramma á að setja
sliku verki, hverju á að sleppa og
hvað að taka með?
— Þetta var óskaplega mikill
höfuðverkur fyrir mig, og ég ætla
auðvitað ekki að halda þvi fram
að ég hafi ratað þá einu réttu leið i
þessu. En það er ekki nema rétt,
að ævisagan er erfið viðureignar;
— hve langt á að fara i samtiðar-
lýsingunni, i þvi að skipa viðkom-
andi i sæti i limanum? Hvað af
framlagi hans er frumlegt og hvað
miðlun á hugmyndum annarra?
Þetta eru erfiðar spurningar, en
um leið skemmtileg heilabrota-
vinna. En eins og ég sagði þér
áðan, þá fannst mér heldur slök
útkoma á minum tilgátum og
hugmyndalegu vangaveltum, svo
að ég hefi heldur haldið mig á
jörðinni. Það má vel vera að það
þyki banal sagnfræði að halda sig
við staðreyndir. En maður er þá
ekki að koma errores á flot. Arni
Magnússon varaði menn við
þeirri atvinnubótavinnu að koma
á stað vitleysum, sem aðrir þurfa
svo að kveða niður, og hafi þá
allir nokkuð að starfa.
Sannleikurinn er sá, að tilgáta,
sem ekki á sér stoð í veruleikan-
um getur orðið furðulega lifseig,
þegar hún einu sinni er komin á
flakk. Það þarf alveg gifurlegt
högg til að rota hana. Hún lifir
kannski miklu meira lifi i sögunni
en staðreyndirnar. Enda eru til-'
gátur alltaf tengdar vissri ósk-
hyggju, menn vilja fá eitthvað
ákveðið fram, og þá byrja þeir að
spinna ivöf til að fá óskir sinar
inn i samhengið. Það þarf vissan
setning til að láta þetta ekki leiða
sig af réttri leið, og ég vil ekki
segja að það hafi alltaf tekist
— en ég reyndi allavega
að hafa stift taumhald á
þessum freistingum. Ég er
alveg viss um að ýmsum
finnst það galli á bókinni, að ég
skuli ekki koma með fleiri stað-
hæfingar um hlutina, skuli ekki
nota sterkari liti. En það er alltaf
hægtað setja þá inn. Fyrst verður
að draga upp skissuna — og það
verður hún, sem ræður myndinni,
litirnir koma siðar. Og ég held að
ég sé þá altént búinn að rissa upp
mótifið.
Þegar ég kom til Hafnar til að
gefa út bréf Brynjólfs, var
Sverrir Kristjánsson þar fyrir við
skrásetningu bréfa. Hann leið-
beindi mér á margan hátt og
veitti mér ómetanlega aðstoð viö
rannsóknir á 19du öld. Hann er
manna best að sér i Fjölni.og mér
hefur fundist hann skilja þessa
tima öðrum betur. Það vildi svo
illa til, að ég get þess hvergi orð-
rétt né stafrétt, sem ég hef frá
Sverri i bókinni, en ef ég hefi gert
mig sekan um ritstuld, þá er það
að ég hafi tekið frá honum án þess
að geta þess. Ég hefi mjög verið i
sambandi við hann.og Lúðvik
Kristjánsson, og báðir hafa bent
mér á ótal margt,og ég vil þakka
þeim samfylgdina i 19du öldinni.
Arni Bergmann
Allende
Framhald af 5. siðu.
lendes heföi heppnast hefði það
þvi vel getað ráðið úrslitum i
Frakklandi, komið vinstri stjórn
að völdum og Mitterrand i for-
setastól, og kannski haft svipuð á-
hrif á Italiu, og jafnvel miklu við-
ar.
,,Láta peruna
rotna!”
Þetta sá Kissinger fyrir þegar
16.-17. september 1970 — og var
ekki furða þótt hann yrði ótta-
sleginn! Brýnustu hagsmunamál
bandariska heimsveldisins voru i
veði: tilraun Allendes mátti ekki
heppnast. En það var tilgangs-
laust að reyna að koma i veg fyrir
það með beinu valdráni eða ,,lög-
regluaðgerð”, þvi að tilraun, sem
er kyrkt i fæðingu með ruddalegri
valdbeitingu, misheppnast ekki.
Slikt valdarán hefði einfaldlega
svipt grimunni af ihaldsflokkum
Chile og bandarikjamönnum
sjálfum og sýnt að þeir hikuðu
ekki við að fótumtroða þær lýð-
ræðisreglur, sem þeir sjálfir
boða, um leið og hagsmunir
þeirra væru i veði.
Þess vegna var nauðsynlegt að
láta tilraun Allendes renna smám
saman út I sandinn eins og af
sjálfsdáðum, búa þannig i haginn
að hún hlyti að misheppnast og
láta lita svo út að hefði alltaf ver-
ið dæmd til að misheppnast — hún
hefði verið óframkvæmanleg.
Það varð að nota tilraun Allendes
til að búa til nýja goðsögn — sem
styrkti vitanlega þær sem við höf-
um áður nefnt — goðsögnina um
„mistök hins marxiska draum-
óramanns”. Til þess þurfti vitan-
lega að fara hægt i sakirnar, en
það var lika þess virði.
Strax og ráðamenn Banda-
rikjanna höfðu gert sér grein
fyrir þessu, var hætt við áætlanir
um að koma i veg fyrir að Allende
gæti tekið við völdum. 1 stað þess
var búin til önnur áætlun, sem
miðaði að þvi, eins og sagt var,
,,að láta peruna þroskast þangað
til hún rotnaði” — og má e.t.v. sjá
bergmál af þessu orðalagi i at-
hugasemd Merriams sem áður
var nefnd.
En á meðan þessi áætlun var að
virka, fékk Allende vitanlega
tækifæri til að framkvæma hluta
af stefnuskrá sinni: það kom i ljós
hvað hann ætlaði að gera og
hvaða undirtektir það fékk. Það
hefur sennilega verið þetta sem
Kissinger óttaðist þegar hann
vildi láta til skarar skriða sem
fyrst — og má vera að ótti hans
hafi haft við rök að styðjast.
e.m.j.
Grikkland
Framhald af bls. 11.
Grikkland. En stjórn Karaman-
lisar hefur, frá þvi hún komst til
valda, m.a. unnið að þvi að koma
á a.m.k. aukaaðild Grikklands að
EBE.
Papandreú var að þvi spurður,
hvaða augum hann liti það sam-
starf sem nú væri að hef jast milli
Frakklands og Grikklands, en
þessi riki hafa i Nato bæði þá sér-
stöðu, að þau hafa sagt heri sina
úr hernaðarsamstarfi við Nato.
Papandreú taldi, að slikt ,,sam-
starf” gæti orðið hættulegt þegar
til lengdar léti, vegna þess að það
gæti auðveldlega þróast i átt til
þess að Grikkland yrði frökkum
háð.
„Undirrót hins illa hefur i
Grikklandi allan þennan tima
verið einmitt sú, að landið var
háð Bandarikjunum, og þetta eig-
um við að láta okkur verða til
varnaðar og vara okkur á nýjum
herrum.
Papandreú svaraði þvi með
nokkurri varfærni, hvar hann
setti hreyfingu sinni mörk til
vinstri, en i landinu eru nú tveir
kommúnistaflokkar. Hann sagði
að hann hafnaði kommúnisku
valdakerfi, þar eð það fæli skrif-
finnum völdin, en hann legði þess
I stað áherslu á dreifingu valdsins
og rétt fólks til að velja og hafna.
(áb tók saman)
r
Utvarpsannáll
Framhald af bls. 7.
Þessir þættir hafa verið nokk-
urskonar sálrænn skæruhernað-
ur, ákveðin tilraun til þess að fá
þjóðina til þess að sætta sig við
hið óumflýjanlega.
Til viðtals hefur Baldur kvatt
ýmiskonar hagfræðinga, sem
sumir hafa verið auglýstir sem
miklir visindamenn, er verulegt
mark væri á takandi. En hann
hefur jafnan haft svo mikið taum-
hald á visindamönnunum, að
hann hefur jafnan fengið það út úr
þeim, er hann óskaði eftir.
Að lokum skal svo drepið á þrjú
erindi um dag og veg, sem eru
mér öðrum fremur minnisstæð.
Fyrst skal nefna erindi Aslaug-
ar Ragnars, blaðamanns.
Það má teljast merkilegt fyrir
þær sakir, að þar ultu upp úr
manneskjunni blóðhrá kosninga-
slagorð frá liðnu sumri,svo sem
eins og miðstjórnarvald, byggða-
stefna og dúsa fyrir Alþýðu-
bandalagið, og átti hún þar við
lokun Keflavikursjónvarpsins.
Það er ekkert við þvi að segja,
þótt flytjendur dags og vegar
túlki hverjar þær skoðanir sem
þeim eru efstar i huga. Það er
heldur ekkert við þvi aö segja,
þótt þeir boði skoðanir þess
stjórnmálaflokks, sem þeir telja
sig fylgja. En þeir ættu helst að
nota sin eigin orð, en forðast að fá
þau að láni hjá þeim flokkum, er
þeir þjóna.
Þeir Hlöðver Sigurðsson og
Andrés Kristjánsson túlkuðu báð-
ir ákveðin sjónarmið og lifsvið-
horf i sinum erindum.
Þó að skoðanir þeirra og lifs-
viðhorf hafi verið og séu allmjög
á dagskrá með þjóðinni, höfðu
þeir báðir það fram yfir blaða-
manninn, sem áður var nefndur,
að þeir þurftu ekki að fá orð og
hugtök að láni hjá skoðana-
bræðrum sinum. Þeir áttu báðir
nægan orðaforða til þess að tjá
skoðanir sinar á sjálfstæðan og
persónulegan hátt.
Hlöðver talaði aðallega um vel-
ferðarsamfélagið og hugleiddi,
hversu mætti bæta úr þeim göll-
um, sem gera vart við sig innan
þess.
Andrés ræddi hinsvegar um
herstöðvamálin og þá kúvend-
ingu, sem þau virðast nú vera að
taka I höndum ndverandi vald-
hafa.
Þó aö margt hafi verið um þessi
mál rætt, bæði með og móti.minn-
ist ég ekki, að nokkrum manni
hafi tekist betur upp en Andrési i
þetta sinn. Orð hans voru meitluð,
og auðheyrilega svo þaulhugsuð,
að engu orði var ofaukið og ekkert
vantaði, er máli skipti. Og auk
þess voru þau flutt af svo trega-
full sannfæringarþunga, að
manni hlaut að volgna innanrifja.
Og margur maðurinn, sem
kominn er á gamals aldur, en hef-
ur á langri ævi þráð það umfram
aðra hluti, að ættjörð hans yrði i
raun og veru frjáls, meðan hann
væri enn ofar moldu, mun taka
undir þá persónulegu játningu
Andrésar, að kollsteypan sem nú
er framundan verði hans sárasta
lifsreynsla.
8. sept. 1974.
Skúli Guðjónsson.
25%
Framhald af bls. 1.
hækkunarinnar. I ágúst var talið
að sambærileg tala væri 119,6.
Framfærsluvisitalan
Þá hefur verið rætt um þau
áhrif sem ákveðnar og þegar
komnar eða væntanlegar
hækkanir hafi á visitölu fram-
færslukostnaðar Hún var reiknuð
út 296,8 stig 1. ágúst sl. Taiið er að
ráðstafanirnar hækki hana í 333
stig á timanum fram að 1. nóvem-
ber. Þar er um að ræða um 12%
hækkun, en prósentin talin
skiptast þannig milli hækkunar-
tiiefna : Vegna eldri tilefna og er-
lendra hækkana 4,7. I þessari tölu
eru talin áhrif hækkana hitaveitu,
rafmagnsveitu og strætisvagna.
Vegna búvöruverðhækkana
(11,9% hækkun verðlagsgrund-
vallar, þar af komin til fram-
kvæmda 9,5%) 2,0 prósentustig.
Vegna gengislækkunarinnar er
talið að hækkanir verði 3,7
prósentustig. Vegna hækkunar
bensingjalds 0,4 stig, vegna
hækkunar raforkusjóðsgjalds 0,1
stig, og vegna söluskatts-
hækkunar 1,3 stig. Þessar tölur
hafa verið á dagskrá viðræðn-
anna — en sumir telja að þær séu
of lágt áætlaðar og að þær verði i
rauninni allt að fjórðungi hærri
þegar öll kurl komi til grafar.
Síldin fryst
Framhald af 16. siðu
sem leiguibúðir. Byrjað var á
byggingu þessara fjölbýlis-
húsa i fyrrahaust. Annað
þeirra er nú uppsteypt og hitt
að hálfu leyti.
— I sumar var unnið að þvi
að leggja oliumöl á helstu um-
ferðaræðarnar i bænum og
mun möl hafa verið lögð á 2ja
km. vegarkafla. Aður hafði
nokkur hluti aðalgötunnar
verið steyptur en þetta er það
fyrsta sem lagt er af oliumöl.
Það hefur orðið mikil bót að fá
þetta ekki sist fyrir þær sakir
að aldrei fyrr i sögu Hafnar
hefur önnur eins umferð verið
um þorpið og i sumar eftir að
hringvegurinn var opnaður.
—S.dór.
VELDUR,HVER
0 SAMVINNUBANKINN^
m
ERUM 3
í námi og vantar 3ja til
4ra herbergja íbúð sem
fyrst. Má þarfnast lag-
færingar. Fyrirfram-
greiðsla.
Upplýsingar i síma
73864 næstu kvöld.
almenni MÚSIK skólinn
Kennsia hefst 23. september n.k.— Upplýsingar og innrit-
un nýrra nemenda alla virka daga i skrifstofu skólans,
Stakkholti 3, simi 2-54-03, kl. 10-12, og 18-20.
Kennslugreinar: Harmonika, Melodica, Guitar, Bassi,
Fiðla, Flauta, Madolin, Saxophon og trommur.
Athugið: Aðeins 1. min. gangur frá Hlemmtorgi. — Simi
2-54-03.
almenni MÚSIK skólinn
GARÐAHREPPUR
Samtök sveitarfélaga i Reykjanesum-
(læmi óska að taka á leigu i Garðahreppi
húsnæöi fyrir fræðsluskrifstofu kjör-
dæmisins.
Upplýsingar veitir Axel Jónsson, Goða-
túni 2, simi 43222.
Kórskólinn
í Kópavogi
Haustnámskeið eru að hefjast. Kennslu-
greinar verða: Raddþjálfun, nótnalestur,
heyrnarþjálfun, öndun og slökun, kórisk
söngþjálfun, ljóðasöngur og kórsöngur.
Sigriður E. Magnúsdóttir heldur fyrir-
lestra um söng og taltækni. Aðrir kennar-
ar verða: Snæbjörg Snæbjarnardóttir,
Einar Sturluson og Guðmundur Gilsson.
Kennt verður bæði i hóptimum og einka-
timum. Unglingar undir 18 ára aldri fá
50% afslátt frá kennslugjaldi.
Upplýsingar og innritun i sima 42039.