Þjóðviljinn - 10.11.1974, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 10.11.1974, Blaðsíða 13
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunniidagur 10. nóvember 1974. Sunnudagur 10. nóvember 1974. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13 Klett. Amma vtnkar bless — Guöbjörg Runólfsd. og gefinn morgun-matur I einum logandl. Sjálf borftar hdn á leibinni. Börnunum skilaö I Króasel Fyrsta morgunverkið Mætt HVER ER VINNUTÍMI MÓÐUR? FRÁ MORGNI Hver er vinnutími móð- ur? var kona að spyrja á jaf nréttissíðu Þjóðviljans um dagir.n í tilefni eyðu- blaðs frá Sumargjöf. Hef- ur sá vinnutími nokkurn- tíma verið reiknaður út og þá miðað við hvað? Hvað af störfum konu á heimili telst til móðurstarfa og hvað til þjónustu við hana sjálfa og bónda hennar? Og hvenær á móðir, sem bundin er yfir ungum börnum, frí? Útfrá þessum spurningum datt okkur i hug að fylgjast meö störf- um einnar venjulegrar ungrar móður einn venjulegan vinnudag, frá morgni til kvölds. Með tilliti til þeirrar staðreyndar að meiri- hluti giftra kvenna á Islandi aflar nú orðið tekna með atvinnu utan heimilis völdum viö konu sem bæði vinnur úti og er húsmóðir, Eddu Agnarsdóttur 24 ára móður þriggja barna. Edda vinnur á skrifstofu Borgarspitalans og er gift Hann- esi Gislasyni, sem stundar nám i viðskiptafræði við háskólann, en vinnur nú jafnframt um stundar- sakir hálfan daginn hjá Fram- kvæmdastofnuninni. Þvi verður hann brátt að hætta ef hann á ein- hverntíma að geta lokið námi og þá verður fjölskyldan aö treysta á námslán, þvi af tekjum Eddu einnar lifa þau ekki, hún fær um 44 þús. kr. i mánaðarkaup. Börnin þrjú, Heiöa 5 ára, Hrund Vr 3ja ára og Högni 2ja ára, eru á barnaheimili á daginn. Ekki á einu af heimilum Sumargjafar, þvi þar komust þau ekki að, held- ur hafa Edda og Hannes gengið i félagsskap viö fleiri unga for- eldra og stofnað dagheimilið Króasel I Arbæjarhverfi. Gjaldið fyrirhvert barn á mánuði er 8.500 krónur eða samanlagt 25.500 krónur. Miðað við kaup Eddu kann að vera spurning, fjárhags- legs eðlis, hvort það borgi sig fyr- ir hana að vinna úti og greiða svo mikið fyrir umönnun barnanna á meðan. Einn veturinn tóku þau hjónin það til bragös til að ná end- um saman, að hún réð sig sem ráðskona i sveit með börnin með- an hann var i skólanum. Sl. vetur sleppti hann námi og vann allan daginn. Einn stærsti kostnaðarliður ungrar fjölskyldu i dag er hús- næðið. í haust voru þau Edda og Hannes húsnæðislaus. Hvernig sem þau auglýstu og svöruðu auglýsingum bauðst þeim ekkert ódýrara til leigu en fyrir 20 þús- und krónur á mánuði fyrir utan hita og rafmagn. Oftast var kraf- ist meiri og minni fyrirfram- greiðslu og oft var húsnæðið boðið aðeins til skamms tlma. Ef Hannes á að ljúka námi og hætta aö vinna á meðan geta þau ekki greitt svo háa leigu til við- bótar við barnaheimiliskostnað- inn. Þessvegna hafa þau nú feng- iö litla 2ja herbergja ibúð I húsi móður hans leigulaust, en... hún er austur i ölfusi. Þau eiga bil, en bensinkostnaðurinn reiknast þeim að sé 13—14 þús. krónur á mánuði. Þrátt fyrir allt ódýrara en húsaleiga i bænum, segja þau. Hitt er svo annað mál hversu þreytt þau sjálf — og börnin eiga eftir að verða á ferðalögunum og hvernig það verður að komast á milli I vetur. — 0 — Dagurinn sem viö fylgdumst með Eddu og fjölskyldu hennar byrjaði illa. Þau sváfu yfir sig! Þessvegna varð að klæöa sig og gefa börnunum að boröa I logandi hvelli og keyra i spretti I bæinn. Edda á að mæta kl. 8.20 i vinn- unni, en á barnaheimilinu er ekki opnaö fyrr en kl. hálfnlu. Hún kemur þvl yfirleitt of seint, en nú stendur til að breyta opnunartima dagheimilisins. Hannes átti aftur að mæta kl. 8 i skólanum. Hann varð að sleppa fyrsta timanum. Dagheimili barnanna er i Ar- bæjarhverfinu, vinnustaður Eddu i Fossvoginum, skóli Hannesar á Melunum, vinnustaður á Rauöar- árstig. Að vinnutlma loknum, kl. 4.15 sd. hjá Eddu, kl. 5 hjá Hannesi, hefst sami spretturinn milli staða að viðbættum matarinnkaupun- um. Börnin eru þreytt og óróleg I bllnum á leiðinni heim i Auðsholt. Það yngsta er sofnað þegar þang- að kemur. Þá er klukkan hálfsjö og eftir að elda matinn, borða hann, hátta börnin, þvo þeim og koma I rúmið, taka smávegis til, þvo upp. Þau hjálpast að sem bet- ur fer. Og slðan: kaffibolli og sigaretta saman. Þetta kvöld var horft á mynd i sjónvarpinu hjá tengdamömmu, en önnur kvöld þarf Hannes að læra, Edda að þvo eða sinna öðrum þjónustustörf- um við fjölskylduna. Hlaup og flýtir finnst okkur hafa verið einkenni dagsins hjá þessari útivinnandi þriggja barna móður. Nema kannski helst i vinnunni. En hvað telst vinnutimi móður? Aðeins sá sem hún tekur laun fyrir eða allur dagurinn, frá morgni til kvölds? Er hún ekki alltaf að? —vh Sfðan að sækja börnin þrjú ss Heima er byrjaö að elda... og svo borða aliir saman — nema einn? Liklega er vinnan úti rólegri en heima Dásamlegt að fá hádegismatinn framreiddan á vinnustað! Fft\. . ' '*l» . . I i. .Hiiitli Eftir vinnu: matarinnkaup I Gunnlaugsbúð Samhjálp við uppþvottinn Tekiö til .. sumir hafa sitt fram: rúm pabba og mömmu! Loksins: slappað af smástund saman. Mjólk I annarri verslun Myndir og texti vh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.