Þjóðviljinn - 17.11.1974, Page 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. névember 1974
cyWyndir
úr sögu verkalýðshreyfingar og sósíalískra samtaka
ATVINNULEYSI
Atvinnuleysi. Eftir atvinnu-
uppbyggingu vinstri stjórnar-
innar og alltaöþvf of mikla
vinnu víða um land f nokkur ár,
virðast margir hafa gleymt
jafnvel þeim atvinnuleysistim-
um sem yfir gengu fyrir ekki
nema 5-6 árum i tíð viðreisnar-
stjórnarinnar hvað þá fyrri at-
vinnuleysisárum. Þó er fátt jafn
uggvænlegt verkamönnum og
vofa atvinnuleysisins og aldrei
reynir meira á trausta sam-
stöðu verkalýðsstéttanna en
þegar menn byggja afkomuna á
vinnusnapi og atvinnuleysisbót-
um, jafnvei ekki I vinnudeilum
og verkföllum.
Stóra myndin sem við birtum
i þættinum i dag, nr. 14, er að-
eins merkt einu orði: „Atvinnu-
leysið”. Við sjáum að hún er
tekin við höfnina i Reykjavik og
er komin nokkuð til ára sinna, —
kolakraninn er þarna ennþá, þó
I getur hún varla verið eldri en
! frá uþb. 1950 miðað við lag bil-
anna og klæönað mannanna.
Snjórinn sýnir, að myndin er
tekin um vetur, en hvenær var
þetta? Hversvegna hópast
menn að skipinu? Var þar etv.
einhverja vinnu að hafa fyrir
fáa? Þekkið þið menn á mynd-
inni? Kannski sjálf ykkur? Við
skorum á lesendur að veita þær
upplýsingar sem þeir geta um
þessa mynd og aðrar sem birst
hafa i þessum þáttum. Talið við
Eyjólf eða Vilborgu i sima
17500.
Minni myndirnar tvær sýnast
'okkur teknar i Verkamanna-
skýlinu gamla og á þeim þekkj-
um við tvo menn, Kristján
Hjaltason til hægri á mynd nr.
15 og Jón Asgeirsson, núverandi
formann Alþýðusambands
Norðurlands, lengst til hægri á
mynd nr. 16.
Við höfum ekki hugmynd um
hvenær þessar myndir voru
teknar og af hvaða tilefni. Var
þarna um að ræöa venjulega bið
eftir vinnu eða var atvinnu-
leysi? Voru þessar myndir
kannski teknar um likt leyti eða
i sama skipti og mynd nr. 14? Og
hinir mennirnir á þessum
myndum — þekkið þið þá?
Þekkið þið sjálfa ykkur.?
Kórinn
Við höfum fengið heilmiklar
upplýsingar um myndir nr. 8 og
9 (birtust i þættinum 3. nóvem-
ber frá lesendum, m.a Guð-
mundi Vigfússyni, Pétri Péturs-
syni, Alfreð D. Jónssyni, Eliasi
Valgeirssyni, Stefáni Ogmunds-
syni , Hallgrimi Jakobssyni,
og Bjarna Guðmundssyni.
En ekki ber öllum saman um
allt og ekki einu sinni þeir, sem
sjálfir eru með á myndunum
eins og þeir Stefán og Hallgrim-
ur, treysta sér til að nafngreina
alla félaga sina með vissu. Og
einn maður, sem giskað var á að
væri með á myndinni og við
höfðum þvi samband við, var
ekki einu sinni viss um að
þekkja sjálfan sig, þótt hann
þekkti flesta hina. Sýnir þetta
best hve ótrúlega fljótt fyrnist
yfir hlutina.
Eftir þvi sem við höfum kom-
ist næst mun Karlakór verka-
manna hafa verið stofnaður
vorið 1932 og þessi ferð til
Stokkseyrar, þar sem myndin
er tekin af honum, verið farin
haustiö 1932. A myndinni þekkj-
ast, talið frá vinstri, Adolf Pet-
ersen Einar Jórmann Jónsson
rakari (faðir Björns R. og Guð-
mundar R.) Stefán ögmunds-
son, Jóhannes Ólafsson. Stjórn-
andinn er talinn vera Benedikt
Elvar, sem byrjaði með kórinn,
en slðar tók Hallgrimur Jakobs-
son við, en hann gekk lika mikið
með alpahúfu og varð það til að
rugla ýmsa, sem héldu að hann
væri stjórnandinn. En liklega er
Hallgrimur söngvarinn sem
glittir i kollinn á milli Jóhannes-
ar og Benedikts.
Um manninn næst til hægri
við stjórnandann er enginn viss,
en giskað hefur verið á ýmsa,
t.d. Guðbjörn Ingvarsson,
Magnús Guðbjörnsson og Gunn-
ar Sigurmundsson, svo og, að
þetta sé einhver frá Eyrar-
bakka osfrv. Við náðum I Gunn-
ar, en hann treysti sér ekki að
skera úr um þetta, en sagðist
hafa verið i kórnum. Maðurinn
með dökku gleraugun er Sigur-
vin Ossurarson og siðan kemur
Guöjón Benediktsson með staf-
inn, en hver stendur fyrir aftan
hann, vitum við ekki. Lengst til
hægri er svo Sigurður Arin-
bjarnarson, bróðir Snorra.
Félagarnir
á hnyðjunni
Og svo eru það félagarnir
fjórir á rótarhnyðjunni. Hall-
grimur Jakobsson er fremstur,
Ivar Sigurbjörnsson fyrir aftan
hann og efstur Arni Guðnason
verkstjóri. En um manninn til
hægri, sem sést mjög óglöggt,
ber mönnum ekki saman. Er
giskað á ýmsa, en llklegastir
þykja annaðhvort Guðmundur
Þorkelsson verkamaður eða
Sæmundur Sigurðsson málara-
meistari. Okkur tókst ekki að ná
I Sæmund, en gaman væri að fá
úr þessu skorið. Myndina telur
Hallgrimur liklegast tekna i
sömu ferð og kórmyndina.
Um stelpurnar, ungherjana, á
mynd nr. 10 höfum við ekki
fengið frekari upplýsingar,
nema að Metúsalemsdæturnar
heita Unnur og Ragnhildur, en
ekki Ragnheiður, einsog skrifað
var á bak myndarinnar. —vh
NÝKOMIN DÖNSK BORÐ-
STOFUBORÐ OG STÓLAR
Við höfum
einkaumboð
fyrir hina
níðsterku og
fallegu
dönsku
Anderstrup
stóla
Verð frá kr. 21.900
^Wé
Verð frá kr. 8.900
Góö vara - hagstætt verö.
Skoöiö, og spyrjist fyrir um greiösluskilmála
i i i
H I BYLAPRYÐ I
Lo Hallarmúla,
símar 31400 og 38177