Þjóðviljinn - 17.11.1974, Qupperneq 11
Sunnudagur 17. nóvember 1974 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
■sisilllll
Umsjón:Ingólfur Hannesson og Sverrir Sverrisson
POTTÞÉTTIR
HLJÓMLEIKAR
Eins og fleiri góðir ís-
lendingar brugðu Klásúlur
sér á Slade-hljómleikana
s.l. þriðjudagskvöld. Því
verður ekki neifað að við
mættum á staðinn mjög
neikvæðir gagnvart hljóm-
sveitinni og er ekki ólíklegt
að svo haf i einnig verið hjá
fleirum. En þegar upp var
staðið að hljómleikunum
loknum, voru Klásúlur
sammála um að þetta hafi
verið einhverjir bestu
popphl jómleikar sem
haldnir hafa verið hér á
landi.
Aldrei þessu vant hófst dag-
skráin á réttum tíma, en samkv.
isl. venju er það i hæsta máta ó-
venjulegt. Upphitunarhljóm-
sveitin Pelikan hóf leikinn, og
gerðu þeir fjórum lögum mjög
góð skil þvi þar fór saman yfir-
vegaður og vandaður flutningur.
Þótti okkur þó heyrast helst til lit-
ið i gitar Björgvins, og leiðinlegt
járnhljóð var i trommum Ás-
geirs, sérstaklega i hinu langa og
annars góða trommusólói hans.
Hvað um það, Pelikan stóð vel
fyrir sinu, þrátt fyrir það að þeir
væru hálfgerð tilraunadýr rótara
Slade.
Kortéri eftir leik Pelikan birt-
ust goðin sjálf á sviðinu, og hófu
þeir leik sinn á laginu ,,Hear Me
Calling” (Ten Years After). Sið-
an sagði Noddy Holder nokkur vel
valin orð og fékk hann lýðinn til
að öskra aðeins, svona rétt til að
fá stemmningu i salinn. Þá fylgdu
i kjölfarið lögin „The Banging
Man” og „Good By To Jane”,
hörku stuðlög sem féllu vel i
kramið hjá áheyrendum og virt-
ust Slade þegar i, byrjun vera
búnir að standa við orð sin, en þau
voru að fá islenska áheyrendur til
að láta heyra almennilega i sér.
Eftir tvö næstu lög voru menn
farnir að syngja hástöfum með,
og við sviðið var þrýstingurinn á
þá fremstu orðinn svo mikill, að
farið var að draga hálfmeðvit-
undarlausa krakka upp úr þvög-
unni, og áður en yfir lauk var búið
að bera 15 stykki burtu. Afram
liðu hljómleikarnir, klappað og
stappað, öskrað og æpt, og Dave
Hill og Jimmy Lea hoppuðu um
allt sviðið, uppi á hátölurum og út
um allt, og var gaman að sjá hve
sviðsöruggir þeir voru. 1 lokin var
allt á suðupunkti og eftir siðasta
lagið voru þeir klappaðir tvisvar
upp og tóku tvö aukalög.
Þannig lauk þessum bráö-
skemmtilegu hljómleikum og
hefðum við óskað þess að fleiri en
þessar rúmlega 3000 hræður
hefðu mætt, en fyrir allan þann
fjölda sem ekki var á staðnum,
birtum við fáeinar myndir frá
hljómleikunum til að veita þeim
nokkra innsýn I það sem gerðist.
Raöhillusett í Tekk
og Palesander
Gamla Kompaníið hf.
Síðumúla 33, sími 36500.
Auglýsingasiminn
er 17500
E
WDVIUINN
Á