Þjóðviljinn - 17.11.1974, Page 16

Þjóðviljinn - 17.11.1974, Page 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. nóvember 1974 Allt fyrir hundana Bandaríkjamenn eru dýravinir miklír, ekki síst hinar æðri stéttir sem hafa nóg fé handa á milli. Meðal fólks af háu standi þykir fint að vera þeim mun meiri dýravinir sem and- styggð þess er meiri á lág- stéttalýð, indjánum, svert- ingjum og víetnömum. Óeigingjarn kærleikur tii dýr- anna fer nú mjög vaxandi i bandarisku viðskiptalifi. Sérstak- lega beinist umhyggjan að hund- um. Komið er upp veitingahúsum fyrir hunda.snyrtistofum hunda, hundahótelum og dagvistunar- stofnunum fyrir kjölturakka. Nýlega hót fyrsti verulega tim hundabarinn starfsemi sina I New York undir nafninu „Animal Gou- met” sem útleggst dýrasælker- inn. Fegrunarsalurinn „Petti Paws” (lapparskarnið?) er svo finn og eftirsóttur að þar er að- eins tekið við þeim hundum sem hafa tilvisun frá hundalækni. I Chicago er eins konar dýra- mótel þar sem herbergin eru búin gervigrasi og látúnsrúmum. Dag- vistunarstofnun i New York sækir skjólstæðinga sina heim á hverj- um morgni, farið er með þá i þriggja stunda gönguferð i Central Park, og siðan er þeim skilað endurnærðum heim um hálf-sjöleytið. I Margaretsville, einni af út- borgum New York, eru sumar- búðirfyrirhunda. Til afþreyingar er m.a. leit að niðurgröfnum beinum og gitarmúslk við varð- eld. Meðal tiginna gesta var ný- lega Bedlingtonrottuhundur sem orðinn er sjónlaus. Hann kom i fylgd með hundi sem hafði verið vaninn við að aðstoða blinda. Mikil fjölbreytni í skápagerðum og útliti Stuttur afgreiðslufrestur. HAGSTÆTT VERÐ Sœnsk gœðavara. Sýningarinnréttingar komnar af eldhússkápum og baðherbergisskápum. Baðherbergi Vinsamlegast sendið mér KALMAR litmyndabækiing, sem er 100. síður, af innréttingahugmyndum. Nafn:------------------------------------------- Skrifið með prentstöfum H e i m i 1 i s - fang:-------------------------------------------- KALMAR innréttingar, Miðbœ, Háaleitisbraut 58-60. Simi 83590. ÁRNI BJÖRNSSON: ÞJÓÐFRÆÐAGUTL Vetrarfagnaður A hverju vori verða menn þess varir, að ýmis félög halda sinn sumarfagnað eða vorblót. Hitt er mjög sjaldgæft, að sjá auglýstan vetrarfagnað, þótt slikt hafi reyndar borið við á allrasiðustu timum. Þessu sýnist hafa verið annan veg farið áður fyrr. Það kemur naumast fyrir I fornritum, að getið sé um sumarblót eða vor- fagnað hérlendis nema þá mjög óljóst. Hinsvegar er nokkrum sinnum minnst á veturnáttablót eöa haustboð, og má þar minna á gagnkvæm heimboð Ólafs Pá i Hjarðarholti og Ósvifurs á Laugum, svo og veisiu Gisla Súrssonar. Ekki er þó verið að nefna þessa vetrarfagnaði sjálfra þeirra vegna, til þess hafa þeir þótt of sjálfsagðir, heldur sök- um þess, að i þeim eða i sam- bandi við þá eru látnir gerast örlagarikir atburðir, sem hafa mikil áhrif á gang sagnanna. Þó segir svo i Gisla sögu: „Það var þá margra manna siður að fagna vetri i þann tima og hafa þá veislur og vetur- náttablót, en Gisli lét af blótum, siðan hann var i Vébjörgum I Danmörku, en hann hélt þó sem áöur veislum og allri stór- mennsku.” Liklegra er, að hér sé um arf- sagnir að ræða, fremur en sögu- ritarar séu að lýsa eigin sam- tima, þvi að ekki er getið um nein veturnáttaboð i samtiðar- sögum frá 12., 13. eða 14. öld. 1 sjálfu sér er ofurskiljanlegt, hversvegna fremur hefðu verið haldin haustblót en sumarboð. Þá var til gnótt matar eftir slát- urtiðina, þvi að þá sem nú var nauðsynlegt að lóga sláturfé, áður en það færi að leggja af. Og þar sem menn á þeim tima hafa átt i miklum erfiðleikum með að geyma kjöt vegna mikils salt- leysis og algerrar vöntunar á frystikistum, þá reið enn meir á að neyta kjötsins I sem rikust- um mæli, meðan það var nýtt og óskemmt. Þá má geta þess, að I korn- ræktarlöndum var uppskeru lokið um þetta ieyti, og þvi gnægð korns til bruggunar öls, sem sýnist hafa verið drjúgur þáttur I veisluhaldi þeirra tima. Enda þótt kornrækt hafi aldrei verið mikil hér á landi, þá var hún einhver á fyrstu öldum byggðarinnar, og hvort sem kornið var heimaræktað eða innflutt, þá var það helst til um þetta leyti, einnig á íslandi. Kringum sumarmál var hins- vegar hvorttveggja þorrið að mestu, kjötmeti og korn, og þvi ekki annað en óráðsia að efna til veisluhalda um það leyti. Þá verður sú spurning fyrir, hversvegna þessi veturnáttaboð hafi lagst niður, að lfkindum snemma á þjóðveldisöld. Það framgengur af áðurnefndri frá- sögn Gisla sögu, að þetta hafi upphaflega verið heiðin athöfn. Þótt frumorsök sliks veislu- halds sé e.t.v. gnótt matar og öls, sem þarf að torga og bjarga frá skemmdum, þá er trúarlegu Ivafi einatt blandað inn i svosem til bragðbætis. Þvi eru allar lík- ur til, að i þessum boðum hafi einhverjar heiðnar vættir verið blótaðar, jafnvel einhverjir per- sónugervingar vetrarins, vita- skuld til þess að blíðka þær og biðja um gott ár. En nú kemur kristnin til sög- unnar, og þá máttu menn ekki blóta nema á laun. Og ef ekki mátti reyna að fórna vetrar- vættunum neinu, þá gat sýnst litil ástæða til að fagna Vetri konungi sem slikum, þvi að hann hefur sjaldnast þótt neinn aufúsugestur. Þvi má bæta við, að veðurfar mun hafa tekið að skipast mjög til hins verra, þeg- ar leið á þjóðveldisöld og fór ekki að batna, fyrr en kom fram á þessa öld. Svo mjög hafa menn óttast veturinn, að i vísu einni frá 17. öld hefur upphaf- lega staðið: öllu verri er veturinn en Tyrkinn, og miklu lengra varð ekki kom- ist I óhugnaði en að telja nokk- urn hlut verri en sjálfan hund- tyrkjann. Þó var tekið á móti vetri með þeim hætti, að fyrsti vetrardag- ur var messudagur allt fram til 1744. En i það mund komu hing- að Umbar þess tima til að rann- saka kristnihald á landinu, og þá fundu þeir m.a. of marga messudaga, en ekki of fáa eins- og hjá Jóni Prímusi. Einhver kynni að halda, að þessir heit- trúarmenn Lúðvfk Harboe og Jón Þorkelsson hefðu glaðst yfir slikri guðrækni, en svo var ekki. Þvert á móti lögðu þeir til, að þessir messudagar væru afskip- aðir, hvað og var gert með kon- unglegri fororðningu. Þetta voru nefnilega menn kerfisins. Það var hvorki messað á fyrsta vetrardegi né sumardeginum fyrsta annars staðar I rikjum Danakonungs, þó ekki væri af öðru en þvi, að þessir dagar voru ekki til i þeirra timatali. íslendingar bjuggu nefnilega við sitt gamla tímatal öldum lengur en aðrir og gera að vissu leyti enn, og raunar er óvist, hvort það hefur á nokkrum öðr- um stað verið við lýði i þeirri mynd, sem okkur er kunn. Þetta voru þvi ódanskir messudagar, og bar að útrýma þeim úr kerf- inu. Eftir sem áður var þó lesinn húslestur á fyrsta vetrardag fram á þessa öld. Það vekur hinsvegar nokkra furðu, ef haustfagnaður hefur með öllu fallið niður hérlendis við tilkomu kristins siðar. t fyrsta lagi lætur almenningur ekki svo glatt hafa af sér brauð sitt og leiki, og kirkjan var naumast svo voldug hér fyrstu hundrað árin, að henni væri það neinn hægðarleikur. Hvort sem rétt er með farið eður ei, þá seg- ir um harðjaxlinn Ólaf Tryggvason, að „hann felldi blót og blótdrykkjur, en lét I stað koma i vild við lýðinn há- tiðadrykkjur jól og páska, Jóns- messumungát og haustöl að Mikjálmessu”. Þannig er reynt að koma til móts við fólkið. í annan stað hlýtur að hafa verið jöfn ástæða til að nýta sem mest af nýmetinu, hvort sem hér átti að heita kristinn lýður eða heiðinn. Það fer mér vitan- lega engum sögum af haustboði á Mikjálsmessu 29. september, sem Ólafur Tryggvason er sagður hafa reynt að koma á i Noregi. Þó var margt miðað við þann dag áður fyrr. Hitt væri at- hugunarefni, hvort allraheil- agramessa og allrasálnamessa 1. og 2. nóvember hefðu að ein- hverju leyti tekið við þessu hlut- verki I katólskum sið. Þessir dagar voru mjög helgaðir fá- tækum og eru skammt frá fyrsta vetrardegi. Sagnir um „sviðamessuna” frá siðustu öld og þessari herma flestar, að hún væri haldin á allraheilagra- messu, og hugsanlegt er, að smám saman hafi verið skipt um nafn eftir siðaskiptin, þegar ekki mátti lengur halda allra- heilagramessu að katólskum sið. En allar heimildir núlifandi fólks um sviðamessu eða annan vetrarfagnað væru vel þegnar.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.