Þjóðviljinn - 17.11.1974, Síða 17

Þjóðviljinn - 17.11.1974, Síða 17
Sunnudagur !7. nóvember 1974 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17 Katrín Guðjónsdóttir velur gítargrip við vinsæl lög TÖKUM LAGIÐ! Lagið, sem Katrín hefur valið gítargripin við í dag, virðist alltaf jafn vinsælt, en það er Colours, sem Donovan syngur. Donovan COLOURS D G D Yellow is the colour of my true love’s hair G D In the morning when we rise, G D In the morning when we rise. A7 G That’s the time, taht’s the time D I love the best. Blue is the colour of the sky In the morning when we rise, In the morning when we rise. That’s the time, that’s the time I love the best. Green is the colour of the sparkling corn In the morning when we rise, In the morning when we rise. That’s the time, that’s the time I love the best. Mellow is the feeling that I get When I see her u-hm When I see her a-ha. That’s the time, that’s the time I love the best. Freedom is the word I really use, Without thinking u-hm Without thinking u-hm. Of the time, of the time When I’ve been low. G-hl jómiir. D-hl jómur. 7 A -hljómur. Auglýsingasíminn er 17500 VOÐVIUINN i\ | Nú eru vandræði mikil i borgarstjórn: Hvar áað U koma fyrir brunnsnrænu i landi Geysis? Góðar þykja mér gjafir þínar... Sælla er aö gefa en að þiggja, segir ritningin, og má útleggja sem svo, að hverri gjöf fylgi asskotans ekki sens eigingirni. — Vitaskuld er sá miklu sælli, sem á þess kost að gefa, heldur en hinn, sem neyðist til þess að þiggja, Þetta vissi Gunnar vel, þegar mann mælti: „góðar þykja mér gjafir þinar, en...” hafði hann þó ekki lesið bifliuna. Oft ríða gjafirnar baggamun- inn á torfarinni lestarferð manna um táradalinn og hallar þá oftast á ógæfuhlið. Annar hver maður, sem ég veit til hafi hlotið stóra vinninginn i happ- drættinu, hefur við það gjör- samlega villst af réttri braut, annað tveggja stokkið út undan sér og sökkt sér á kaf i svall og svinari, ellegar saumað að sér gervi maurapúkans og dregið sig I hlé frá allri glaðværð lifs- Kaupmaður nokkur gaf hveitipoka á tombólu. Þetta var mikill , kaupmaður og gaf þess vegna ekki sitt besta hveiti, heldur afgangspoka frá i fyrra ellegar hitteðfyrra. Bóndi nokk- ur úr þeirri sveit dró pokann. Hann hrósaði heldurenekki happi og blessaði, bæði pokann og kaupmanninn. Kona bóndans var myndarkona til munns og handa. Ekki lét hún það um sig spyrjast að henni brúkaðist ekki vel þetta búslflag. Skorti nú aldrei bakkelsi þar á bæ og var bóndi stórlega öfundaður bæði af hveitipokanum og konunni. En með þvi að gamalt hvita- hveiti er gersneytt allri hollustu og með þvi bóndi var ekki alls kosta hraustur til heilsunnar, þá þoldi hann illa þessa siðbúnu hveitibrauðsdaga og missti heilsuna áður en pokinn tæmd- ist. ■ Ævinlega skyldu menn forð- ast gjafir, ef þess er nokkur kostur,- taka þeim að minnsta kosti alla jafna með nokkurri tortryggni. Hvernig fór ekki fyrir Adam, þegar hann lét glepjast á eplinu? Jólagjafir eru nánast orðnar óviðráðanlegur kækur hjá þjóð- inni. Þannig stjórnast til að mynda bókaeign almennings mikið til af þessari jólagjafa- martröð. öll bókaútgáfa er fyrir bragöið tilreidd likt og konfekt- kassar. En það er kapituli út af fyrir sig. ■ Þingvallamyndir Péturs og Páls, sem hanga innrammaðar á veggjum velflestra húsa hér um slóðir, vitna ekki fortaks- laust um slæman smekk al- mennings, sem i húsunum býr, heldur gefa þær öllu fremur vis- bendingu um smekkleysi tengdamömmunnar, sem gefur allt þetta reiðinnar humbúkk af elsku sinni. Fáir hafa kjark til þess að varpa slikum gjöfum fyrir róða. Flestir sætta sig mótþróalitið við listneysluvenj- ur ættmenna sinna, enda bætist stöðugt i safnið hjá fólki, eftir þvi sem það eldist. Viða er fisk- ur undir steini. Fjöldi málara framleiða verk sin eftir forskrift tækifæris- gjafarinnar og mála myndir sinar út frá knöppu sjónhorni afmælismyndlistarinnar. Þarna eru menn i öllum verðflokkum, allt frá drátthögum pakkhús- mönnum upp i akademiuskól- aða listamannalaunþega. ■ Fólk og félög eruauðvitaðmis- jafnlega tryggð gagnvart þess- ari gjafafikn þjóðarinnar. Fimmtugir — sextugir heiðurs- menn standa til dæmis afar illa að vigi og fá illa varist ásókn þessarar áráttu. Þannig veit ég sjötuga sómakonu vestur i bæ, sem situr uppi með kynstrin öll af slikum skilirium i guörúnarfrálundi stil, auk komfektmynda, bifliumynda og eftirprentana, allt má rekja til merkisafmæla, ekki er henni heldur vant plattaútgáfu þjóð- hátiðarinnar. — Aður fyrr átti þessi kona enga mynd utan „Drottin blessi heimilið” og Hallgrim sáluga Pétursson. Ýmsar opinberar stofnanir sitja uppi með ótal „portrait” af forstjórum, stjórnarformönn- um, skrifstofustjórum og allra handa stjórum öðrum, mynd- irnar gefnar af skólafélögum og ættingjum, forkostulegar ásýhdum flestar hverjar. Engri stofnun er þó eins hætt i þessum efnum sem kirkjunni. Þar sem ekki hefur verið spyrnt við fæti, tröllriða neonljós og litagler virðulegum guðshúsum, svo að þau verða áþekk billeg- um leiktjöldum. Litaglaðir menn hafa jafnvel ráðist á af- skekktar kirkjur og skreytt þær að smekk sinum — i gustuka- skyni. Arkitekt nokkur teiknaði eitt sinn hús, það var guðshús, hið stærsta, sem nokkru sinni hefur sést á pappir hér um slóðir og þó vlöar væri leitað. Hann skenkti þjóðinni húsið. Þetta hefði nú verið gott og blessaö, ef kirkj- unnar þjónar hefðu látið sér nægja teikningarnar og varð- veitt þær til minningar um miklar hugsjónir og stóran draum, i stað þess að ætla sér að gera þennan loftkast- ala að veruleika, — Siðan eru mörg ár, þjóðkirkjan er þrælsliguð undan drápsbyrð- um þessarar ógnarlegu bygg- ingar. Gjafir streyma til hennar frá kirkjuvinum hvaðanæva að, þó sér varla högg á vatni. Kirkj- an er ekki að fullu reist enn. Mörgum þykir hins vegar skapnaður hennar þeim mun ógurlegri, sem hann vex meira. Nýlega var okkur gefinn dýraspitali. Það þótti höfðingleg gjöf. Hins vegar reyndu yfir- völdin i lengstu lög að koma sér undan að þiggja þennan spitala, vegna þess að hann ruglaði fjárhagsplönin, stóð aldrei til að svona spitali kæmist inn á þau plön. Stofnkostnaður sliks spitala er auðvitað bara brot af reksturskostnaðinum, þegar frammi sækir. Og nú er búið að gefa okkur gosbrunn. Svoleiðis bunur eru haföari borgferlikjum til pess að minna fólk á náttúruna, likt og gerviblóm eru höfð, þar sem ekki þrifast túlipanar. Fransk- menn eru miklir hagleiksmenn á svona brunna og hafa hjá sér mikið af þeim, alls lags figúr- ur. Bunan stendur hvarvetna af þeim, bæði út um nasir og klobba. Þetta er skrautleg sjón, þó mér hafi alltaf fundist þekki- legra að horfa á belju setja upp halann og spræna skáhallt i þerrigoluna. Það er stórfurðu- legthve þær skepnur geta migið mikilfenglega. Gosbrunnar hafa aftur á móti aldrei þrifist hér á landi. Þetta hefur sendiherra nokkur sem hér var um skeið, vorkennt okk- ur og þvi sendir hann okkur nú einn svona brunn. Og „Nú eru vandræði i Vinarborg” — Hvar á að setja niður svona brunn- sprænu i landi Geysis: Auk þess myndi óðara frjósa á henni. Borgarstjóri impraði á þessu feimnislega á fundi sinum einn daginn, hvort ekki mætti setja brunninn i tjörnina, ekki fastan heldur fljótandi á fleka, og ekki allt árið, heldur bara yfir sumartima (og bara eitt sumar, siöan yrði það látið farast fyrir). — Auðvitað blossaði rómantikin upp i reykvikingum og þeir tóku að verja tjörnina sina öllum ljótum brunnum. ■ Þetta var auma uppákoman hjá borgarstjóra. Ekki getur hann sagt sveiattan, þegar hon- um er gefinn gosbrunnur. Lik- lega labba” hann sig með hann einn daginn út i einhvern af- kima tjarnarinnar með einvalalið, lætur sig bara hafa það, setur meira að segja á sig borgarstjórakeðjuna þungu (þessa sem embættinu var eitt sinn gefin og fylgir einatt þján- ingasvipur, þá sjaldan hún er viðruð) og lætur á sig orðuna nýfengnu lika. Þar holar hann niður brunnómyndinni og fær svo liðtæka stráka einhvern- tima seinna til þess að sprengja hana i loft upp. Þá er málið úr sögunni og allir geta vel við un- aö. Hvernig fór ekki fyrir bless- aðri hafmeyjunni!

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.