Þjóðviljinn - 17.11.1974, Page 23
Sunnudagur 17. nóvember 1974 ÞJöÐVILJINN — SÍÐA 23
Palli
músadrengur
Það var eitt sinn gömul kona
sem átti fallegt litið hús
i húsinu bjó lika mús.
Músin hún hét bara Malla
og átti prakkarann hann Palla.
Eitt sinn vildi Palli út
en það mátti Malla ekki heyra
þvi úti leynast hættur og fleira
en prakkarinn hann Palli vældi
og framan i Möllu hann sig skældi.
En að siðustu varð hún Malla vond
og lokaði Palla inni i skoti
og i öllu þessu poti
hún skildi við gluggann galopinn
en Palli komst út á bandi
og byrjaði strax á randi.
Palli vildi ei skemma neitt
þó kæmi það stundum fyrir.
Hann mætti finu mýslu
sem finust músa var.
Hann sprautaði á hana vatni.
Hún æpti: ,,Ertu snar!”
Hún grenjaði og æpti
,,Ó, fini kjóllinn minn!
Ég klaga i pabba þinn.
Ó, litli prakkarinn.
Og út kom pabbi Palla
og öskraði á hann
en Palli bara hló
þá pabbi á bossann sló.
Nú er Palli eldri
og besti músadrengur
og það er enginn lengur
betri en Palli mús.
Mæsa, Seyðisfirði.
Viö þökkum Mæsu fyrir þetta langa kvæöi. Gaman væri aö fá
fréttir frá Seyöisfiröi. Hvaö eru mörg börn I skólanum? Er nokkuö
félag barna- og unglinga starfandi þar? Hvernig skemmta
krakkarnir sér? Hvaöa vinnu stunda þau? Svo auövitaö skáldskap
og myndir þaöan.
Mikki mús
byggði hús
Húsið brann
og Mikki rann
þú ert hann.
ÞÚ
ERT
HANN!
Steini 11 ára, sendi
okkur þessa þulu,
Frænka hans kenndi
honum hana. Hann
kann lika: Ugla sat á
eyju. Sendið Kompunni
þulur, sem þið notið i
leikjum ykkar.
Kæra Kompa!
Ég hef ort tvær visur
sem eru:
Á Grettisgötu
gretti ég mig
Grettisgata
grettir sig.
og
A Laugavegi
eru laugarnar.
Laugarnar eru kaldar.
Vertu sæl Kompa,
Jón Birgisson 6 ára,
Hvassaleiti 28.
Kompan þakkar Jóni
fyrir þetta góða bréf og
myndina sem fylgdi.
Það væri gaman að fá
fleiri bréf svona
skemmtileg.
Á FLÓAMARKAÐI
t CLU-lDJ 2.0TD-
.3. m í1 n rm
n
KTeyptw.m;
111 m i
Nýlega fórum viö á flóamarkaö þar sem hægt var
að kaupa allt mögulegt gamalt fyrir litla peninga.
Þetta er mynd af torginu, þar sem markaöurinn var
haldinn, en i hverjum hluta hennar er faliö eitt dýr.
Ef þiö finnið þau og færiö nöfn þeirra inn i reitina
eftir þvi sem við á og lesiö siöan úr oröinu sem
stafirnir i þykku römmunum mynda, getiö þiö séð,
hvaö viö keyptum á markaönum.
Ráöning i næsta blaði.