Þjóðviljinn - 17.11.1974, Qupperneq 24

Þjóðviljinn - 17.11.1974, Qupperneq 24
MOÐVIUINN Sunnudagur 17. nóvember 1974 Þegar Giscard d’Estaing var kosinn forseti Frakklands með naumum meirihluta i mai leið, fylgdu honum frekar bjartsýnar spár i ýmsum borgaralegum málgögnum. Hvert blaðið eftir annað lagði áherslu á að hann væri hress og óformlegur, eins- konar Kennedy Frakklands, vel heima i efnahagsmálum, straum- linumaður i starfsstil. Blöðin hafa siðan tiundað ýmisleg afrek Giscards i þessa veru: Hann hef- ur skroppið aleinn inn á krá og i bió og eins og Harún al Rasjid, orðið fyrstur til að halda rikis- stjórnarfund utan Parisar, sofið næturlangt niðri i atómkafbáti neðansjávar, mælt með frjáls- lyndri fóstureyðingalöggjöf og umbótum I fangelsismálum. Og hann hefur einnig reynt að hressa upp á félagslega þjónustu og skattalöggjöf, svo að vikið sé að allþungvægum hlutum. Sjálfhelda En engu að siður ber blöðum saman um að staða Giscards sé mun veikári nú en þegar hann tók viö völdum. Hluti af þvi hægriliði sem fylkti sér um hann I sumar er óánægður með ýmisl. sem hann hefur gert, og honum hefur ekki tekist að auka traust launþega á sér. Verkföllum hjá einstökum hópum hefur fjölgað mjög að und- anförnu og nú siðast berast fregn- ir af þvi að helstu verklýðssam- GISCARD og franskur veruleiki Giscard d’Estaing: lofsyrðum fækkar... meira en verkamenn). Insce hef- ur gert athugun fyrir árið 1970 sem byggist á samskonar saman- buröi og i skýrslu SÞ og fékk þá út 28,5 á móti einum — en þetta var byggt á skattskýrslum, sem verða þeim mun óáreiðanlegri sem hærra dregur i þjóðfélags- stiganum. Skattasvindlið Hér við bætist, að skattakerfið leiðréttir ekki þessa herfilegu tekjuskiptingu (sem menn hafa ekki einu sinni sæmilegar upplýs- ingar um vegna bókhaldsvéla- bragða hinna riku.) Hlutur ó- beinna skatta hefur aukist á tiu árum og nemur nú 70% skatta- byrðarinnar. Og hátekjumenn hafa sýnu fleiri möguleika en i grannlöndum Frakklands til að smeygja sér undan tekjuskatti. Chaban-Delmas, fyrrum forsæt- isráðherra og einn af keppinaut- um Giscards i mai, hann greiddi t.d. I r.eynd enga skatta, vegna þess að hann gat dregið hluta- skattlagöur — en það nemur um 50—60 miljörðum franka á ári. Þegar allt þetta er saman tekið má ljóst verða, að umbætur Giscards, sem gera ráð fyrir 5—15% hærri sköttum á þá riku muni ekki breyta miklu. Forystudraumar Stjórnendur Frakklands hafa lagt mikið kapp á að gera landið að forysturiki i Vestur-Evrópu. Þeir hafa getað huggað sig við það, að hagvöxtur hefur verið all- mikill i Frakklandi og meiri en i Vestur-Þýskalandi — 5,6% á ári á móti 4,7% i Þýskalandi næstliðinn áratug, 5,9% fyrstu þrjú ár þessa áratugar á móti 3,6%. Verðmæti fransks útflutnings mun um fjór- um sinnum meira nú en 1962. Samt er æ minna talað um möguleika frakka til að ná hinum vesturþýsku keppinautum. Enn eru gjaldeyristekjur fransks iðn- aðar aðeins helmingur af þvi sem hinn vesturþýski aflar. Ýmisleg glæsiáform gleypa miljarði Hveitibrauösdögunum lokið bönd landsins, CGT og CFDT hafi ákveðið að efna i sameiningu til allsherjarverkfalls á fimmtudag- inn kemur. Verklýðshreyfingin er að bregöast við atvinnuleysi og verðbólgu, sem mun nú I um 18% á ársgrundvelli. Það er ekki auð- velt fyrir Giscard að bregðast við þessum vandamálum með hefð- bundnum hætti; hann má að öðru óbreyttu búast við þvi að um 30 miljarða franka greiðsluhalla á þessu ári. „L’Expansion” segir um þetta að ,,ef Giscard vill hressa upp á ástandið, þá verður hann að fylgja stefnu sem beinist gegn honum sjálfum”. Með öðr- um orðum: hann yrði að þrengja mittisól hinna riku en ekki hinna fátæku. En það er einmitt hinn efnaöri helmingur frakka sem hefur kosið Giscard og ætlast til annars en að hann leysi vandann á þeirra kostnað. Herfileg tekjuskipting „Ojöfnuður” og „mismunun” eru orð sem oft eru notuð þegar frönskum aðstæðum er lýst. Menn segja t.d. að það tefji mjög framfarir i landinu, hve einstök héruð megi sin litils gegn hinu sterka miðstjórnarvaldi i Paris. Af þessu leiði háskalegt misræmi i þróun einstakra landshluta. En miklu alvarlegra mál er hin mikla félagslega mismunum sem hlýtur að skerpa andstæður milli verklýðshreyfingar og allra hægristjórna. Árið 1969 birtist á vegum Sam- einuöu þjóðanna eina samantekt- in um tejuskiptingu i aðildarrlkj- unum sem hingað til hefur borist. Þar voru t.d. bornar saman tekj- ur þeirra 10% ibúa hvers lands sem mestar tekjur höfðu og tekj- ur þeirra 10% sem minnst fengu. t Frakklandi urðu hlutföllin sjötiu og sex á móti einum og var það reyndar heimsmet. Þróunarlönd þar sem arfur lénsveldis er talinn sterkur, eins og Indland og Brasi- lfu sýndu hlutföllin 36 og 25 á móti einum. Frönsku hagskýrslustofnanirn- ar Cerc og Insce hafa komist að svipuðum niðurstöðum. Cerc hef- ur reiknað það út að i Frakklandi fái yfirmenn á vinnustöðvum 4,6 sinnum meira kaup en verka- menn (í Vestur-Þýskalandi fær stjórnunarliðiö 3,7 sinnum meira og i Bandarikjunum 3,3 sinnum popubhon »'oc*ens,o$j| Póstmenn ( verkfalli: fleiri ætla út á göturnar Skattahöll Chiracs: við stefnum að félagslegu stórsiysi bréfakaup sin frá tekjum. Chirac, núverandi forsætisráðherra, greiddi árum saman enga skatta — og var það i fyllsta samræmi við lög. Aðferð Chiracs var ein- faldlega sú að draga kostnað við endurnýjun hallar sinnar i Mið- Frakklandi frá tekjum. Hvar er ágóðinn? Enginn eignarskattur er greiddur i Frakklandi, enda þótt blaðið Le Monde hafi reiknað það út, að eignaskiptingin sé þrisvar sinnum óréttlátari en tekjuskipt- ingin. Auðæfi hinna riku sjást t.d. i alls 1,7 miljón sumarbústöðum (og eiga Parisarbúar helming þeirra), og eru þeir allmiklu fleiri tiltölulega en sumarbústaðir i þeim riku Bandarikjunum. Og svo i hundruðum veiðihalla, sem felast á bak við háar girðingar og aögöngubannskilti i Sologne, sem er um 150 km. fyrir sunnan París. Skattaráð franska rikisins hef- ur reiknað það út, að fimmtihluti Ibúanna fái i sinn hlut helming allra tekna, en borgi aðeins fjórð- ung allra skatta. Þriðjungur um það bil 200 þúsund fyrirtækja, sem greiða eiga ágóðaskatt, lýsa þvi yfir á hverju ári að ágóðinn sé enginn — en aðeins örfá hundruð þeirra fara i reynd á höfuðið. Tal- iö er að 56% af þeim ágóða sem til verður I iðnaði og verslun sé ekki franka, eins og til dæmis smiði hinnar óseljanlegu Concorde- þotu. Á meðan er vegakerfi Frakklands fjórum sinnum lak- ara en það vesturþýska. Sima- kerfið er hið næstlakasta i löndum Efnahagsbandalagsins. Almenn- ingssamgöngur hafa verið mjög vannæröar. Franskur útflutning- ur hvilir á mjög þröngri undir- stöðu — aðeins 65 fyrirtæki fram- leiða heilming þess varnings sem út er fluttur. Þetta gerir utanrik- isviðskiptin mjög viðkvæm fyrir hnjaski — bilaiðnaðurinn var til að mynda eitt helsta tromp frakka á alþjóðavettvangi (i fyrra voru fluttir út bilar fyrir rúmlega 18 miljarði franka). En verðhækkun á oliu leikur einmitt þessa grein sérstaklega grátt. Vinstri fylkingin Að öllu samanlögðu er þvi ekki að undra þótt frönsk verklýðs- hreyfing, sem i kosningunum i vor fylkti sér um Mitterand, frambjóðanda vinstrifylkingær- innar, hugsi sér til hreyfings gegn Giscard d’Estaing; innan hinnar pólitisku samfylkingar hefur reyndar orðið vart miskliðar og tortryggni. En þegar til lengdar lætur eru það miklu sterkari þættir sem tengja saman sósial- ista, kommúnista og aðra vinstri Framhald á 22. siðu. Eftir 30 ára þögn: Hvernig Bretar réðu dulmál þýska hersins Bretar hafa alveg nýverið skýrt frá mesta njósnasigri sinum. Eft- ir 30 ára þögn hefur F.W. Winterbotham sem áður var yfir- maður flugmáladeildar bresku leyniþjónustunnar skýrt frá þvi, hvernig Bretar með aöstoö Pól- verja réöu dulmál þaö, sem notaö var I æðstu herstjórn þjóöverja þegar áriö 1940. Dulmálskerfi þetta, sem kallað var Enigma, treystu þjóðverjar á allt striðið. Upplýsingar þessar geta m.a. gert verulegt strik i reikninginn að þvi er varðar útreikninga á snilld einstakra hershöfðingja. Það kemur t.d. á daginn i bók sem Winterbotham hefur skrifað um málið, að Montgomery hers- höfðingi vissi um öll áform Rommels, allan hans liðssafnað, fjölda skriðdreka, bensinbirgðir, þegar áður en orustan um E1 Ala- mein byrjaði. Breska gagnnjósnakerfið, sem kallað var Ultra, gat og skýrt Omar Bradley, hinum þekkta bandariska hershöfðingja, frá þvi með fjögurra daga fyrirvara, hvenær Hitler ætlaði að gera úr- slitatilraun sina til að reka heri bandamanna I sjóinn eftir inn- rásina I Normandie. (IHT).

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.