Þjóðviljinn - 06.12.1974, Page 10
10 StÐA — ÞJÓÐVILJINiy Föstudagur 6. desember 1974.
Loks komst
Valur á blaö
í 1. deildar-
keppninni
— Þetta var að vísu eng-
in glans-sigur, en ég er að
vona að sigurinn verði til
þess að menn fái sjálfs-
traustið aftur, en það var
gersamlega horfið hjá
mannskapnum eftir 3 tap-
leiki í röð, sagði Gunn-
steinn Skúlason fyrirliði
bikarmeistara Vals eftir
sigur liðsins yfir Gróttu
17:15 í fyrrakvöld.
Já, það er rétt hjá Gunn-
steini, það var enginn
meistarabragur yfir Vals-
liðinu í þessum leik og eng-
inn glans yfir sigrinum.
Rétta orðið er að Valur
hafi marið sigur og þá
fyrstog fremstvegna mik-
illar leikreynslu leik-
manna. Leikurinn í heild
var slakur og mistök leik-
manna beggja liðanna
mörg, einkum þó Vals-
manna sem langtímum
saman sendu boltann útaf
eða í hendur Gróttumönn-
um. Það sem bjargaði Val
var eins og áður segir leik-
reynslan og það að vörnin
er nú loks aftur að komast í
sitt fyrra form, og við
hana réðu Gróttumenn litið
undir lokin þegar mest reið
En það er frá gangi leiksins að
segja, að Grótta hafði alltaf
frumkvæðið i fyrri hálfleik, 2:1,
3:3, 4:2, 6:4 og i leikhléi 8:7. Vals-
menn náðu að jafna 2:2 og 6:6.
Snemma i siðari hálfleik kom-
ust Valsmenn loks yfir, 9:8, og
þegar 17 minútur voru liðnar af
siðari hálfleik var staðan orðin
13:10 Val i vil. Þá var Ólafi H.
Jónssyni visað af leikvelli, og á
meðan minnkaði Grótta bilið nið-
ur i 12:13. Síðan byrjaði ólafur á
að skora 14. mark Vals er hann
kom aftur inná, en þegar 22 min-
útur voru liðnar hafði Grótta náð
að jafna 14:14 og aftur 15:15 en
tvö siðustu mörkin skoraði Valur
og sigraði 17:15.
Ólafur H. Jónsson bar af I Vals-
liðinu, sá eini sem þorði að reyna
eitthvað i sókninni. Jón bróðir
hans kom einnig vel frá leiknum i
siðari hálfleik, svo og þeir Stefán
Gunnarsson og Gunnsteinn
Skúlason i vörninni.
Hjá Gróttu voru það þeir
Magnús Sigurðsson, sem er að
verða besti maður liðsins, Björn
Pétursson og Atli Þór sem mest
bar á, svo og hinn ágæti mark-
vörður liðsins Guðmundur Ingi-
mundarson, sem er að komast i
hóp okkar bestu markvarða.
Mörk Vals: Jón P. 4, Stefán 3,
Ólafur 3, Bjarni 2, Jón K. 2, Agúst
2, og Steindór 1.
Mörk Gróttu: Björn 5, Krist-
mundur 2, Axel 2, Arni 2, Magnús
2, Atli 1 og Sigurður 1.
—S.dór
Bjarni Guðmundsson, hinn ungi iandsiiðsmaður úr Val
Einar.)
er þarna kominn I gegn og skorar. (Mynd
á.
Þótt Grótta hafi gert margt
óvænt og laglegt i leikjum sinum
það sem af er mótinu, vantar
meiri festu og meiri hugsun hjá
leikmönnum þegar þeir hafa náð
afgerandi forskoti. En einmitt þá,
þegar mest riður á, virðast
leikmenn missa alla stjórn á sér
og taka til við að skjóta i tima og
ótima. Þaðer ekkert lið svo lélegt
i deildinni að Gróttumenn geti
leyft sér þetta og sist af öllu gegn
jafn leikreyndu liði og Vals-liðinu,
þótt i öldudal sé.
Eins og áður segir er vörnin hjá
Valsmönnum orðin góð, bæði i
þessum leik og gegn Fram var
varnarleikurinn frábær og mark-
varslan ágæt. En höfuðverkurinn
er sóknin. Þar stendur vart steinn
yfir steini. Þó var sóknarleikur-
inn gegn Gróttu sá skásti sem
verið hefur hjá Val i mótinu, en
mikið vantar uppá að hann sé i
lagi, og þar verður mikil breyting
að verða á ef Valur ætlar sér ein-
hvern hlut i mótinu, en kannski er
það orðið of seint fyrir liðið að
láta sig dreyma um slikt, 6 töpuð
stig i svona hörðu móti er senni-
lega of mikið.
Hroðaleg dómgæsla kom í
veg fyrir sigur Ármanns
Dómararnir tóku 5 mörk af Ármenningum, og FH sigraði 20:15
Maður hafði haldið, að
ekkert gæti lengur komið
manni á óvart f dómgæslu í
handknattleik eftir að hafa
sem fréttamaður fylgst
með íslenskum handknatt-
leik í nær 10 ár, en það er
vfst áreiðanlegt að aldrei
hef ur maður séð allt. Dóm-
gæslan í leik Ármanns og
FH í fyrrakvöld var ein-
hver sú lélegasta, já hroða-
legasta, sem maður hefur
nokkru sinni séð, og er þá
miklu við jafnað. Þeir
Sigurður Hannesson og
Gunnar Gunnarsson,
yngstu dómararnir í 1.
deild, misstu svo algerlega
tök á leiknum að þar stóð
ekki steinn yfir steini. Og
að mestu leyti bitnuðu mis-
tök þeirra á Ármenning-
um. Það var eins og þeir
væru hræddir við „stóru
nöfnin" hjá FH og leyfðu
þeim hvað sem var, en
Ármenningarnir máttu
Valur Reykjavíkurmeistari
í meistaraflokki kvenna
I fyrrakvöld fór fram úrslita-
leikurinn i Reykjavikurmóti
kvenna i handknattleik, og léku
Valur og Armann til úrslita.
Leiknum lauk með sigri Vals 6:5,
og hefur Valur þar meö endur-
heimt titilinn sem félagiö missti
til Fram i fyrra, en Valur hefur
orðið Reykjavikurmeistari i mfl.
kvenna 9 sinnum á siðustu 12 ár-
um.
Eins og markatölurnar gefa til
kynna var leikurinn mjög jafn
lengst af, og i leikhléi var staðan
2:2.1 siðari hálfleiknum náði Val-
ur tveggja marka forskoti 6:4 og
það var meira en Ármannsstúlk-
urnar gátu unnið upp. Leiktiminn
er styttri I Reykjavikurmótinu en
i Islandsmótinu.
Vals-liðið hefur nú endurheimt
allar sinar bestu handknattleiks-
konur og er þá um leið orðið okk-
ar sterkasta lið, en Armanns-liðið
sækir sifellt á, og það er aðeins
timaspursmál hvenær það nær á
toppinn.
varla blaka hendi, þá var
dæmt. En það Ijótasta var,
að þeir dæmdu 5 mörk af
Ármenningum og aukakast
ístaðinn. Sem sagt FH-ing-
arnir högnuðust á brotum
sinum, og ef þetta er það
sem koma skal, til hvers
eru þá dómarar?
Þar að auki má nefna að þri-
vegis vörðu varnarmenn FH með
fótunum og boltinn rétt datt inn i
teiginn og markvörður greip bolt-
ann, en viti menn, ekkert var
dæmt. Ég er lika alveg viss um aö
þeir Sigurður og Gunnar viður-
kenna að hafa átt slakan leik, þvi
svo gersamlega voru þeir orðnir
ruglaður undir lokin að menn
voru reknir út af fyrir smávægi-
leg brot, sem koma kannski
hundrað sinnum fyrir I leik og oft-
ast er varla dæmt á. Það má
kannski afsaka þá eitthvað með
ungum aldri og reynsluleysi, en
ef svo er þá eiga menn ekki aö
taka að sér slikt verkefni sem
dómgæsla 11. deild er; menn eiga
þá að æfa sig enn um sinn i yngri
flokkunum, þar sem leikir eru
viðráðanlegri. Og verra getur
vart komið fyrir dómara en að
þeir ráði úrslitum leiks, en það
gerðu þeir Siguröur og Gunnar
svo sannarlega að þessu sinni.
Frábær vörn og markvarsla
auk varnarmistaka hjá FH (tóku
tvo Ármeninga úr umferð til að
byrja með) færði Ármenningum
góða forystu i fyrri hálfleik. Ar-
mann komst i 5:3, 6:3, 9:5, 10:6 og
Frh. á bls. 15
Hneyksli
í sovésku
knatt-
spyrnunni
Mikið hneyskli hefur komið |
upp I sovésku 2. deildar-knatt- .
spyrnunni. Leikmenn eins af'
2. deildarliðunum hafa verið I
með kröfur um auknar pen-
ingagreiðslur en þeim kröfum
hefur ekki verið ansað. Þá
tóku leikmcnnirnir sig til og |
lögðu áherslu á kröfur sinar
með þvi móti að tapa næsta
leik 0:9. Þá fyrst hrukku for-
ráðamenn liðsins við og allt ,
var gert uppiskátt.
^