Þjóðviljinn - 13.12.1974, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 13.12.1974, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 13. desember 1974. Hvaö áttu eiginlega viö? — Ekki neitt, ég spurði bara. Taktu það rólega. — Hann heimsótti mig að minnsta kosti ekki. Og þótt hann hefði gert það — — Þá kæmi það mér ekki við. Nei, það er alveg rétt hjá þér. Þeir héldu áfram yfir brúna. — Þú ert i hálfgerðu uppnámi i kvöld, sagði læknirinn meðan þeir gengu áfram i rigningarúðanum. Taugarnar eru vist ekki i besta lagi. Þú leggur of mikið að þér i starfinu býst ég við. Það var meira en ágiskun. Erkendorf borgarstjóra skorti hæfileikann til að taka mönnum og málefnum með rósemi. Hann skorti sjálfsöryggi og var si- hræddur um að gera einhverja skyssu. Hann tautaði eitthvað óskiljan- legt. — Littu upp til min einhvern daginn, og ég skal athuga þig. Kannski þarftu að taka þér fri og hvila þig smátima. Og gerðu þér ekki rellu út af Bottmer — hann verður trúlega ekki lengi hér i bænum. — Hvar býr hann? — Hann gaf mér upp heimilis- fangið á Litla hótelinu við Uxa- götu. — Hjá frú Nohrström? spurði hinn tortryggnislega. Læknirinn hló við. — Já, og á slikum stað held ég að náungi eins og Bottmer dvelj- istekki lengur en nauðsyn krefur. Þeir nálguðust læknishúsið þar sem klasarnir á ribsrunnunun i glóðu i skini götuljósanna. Undi • ljóskerinu stóð framandi bill. — Sjúkravitjun, sagði læknii - inn. Þá er úti um nætursvefninr. Maður steig út úr bilnum þegar þeir nálguðust. Um leið og hann heilsaði þekktu þeir hann báðir. Hann var bóndi úr nágrenni bæjarins. — Konan var að fótbrjóta sig, sagði hann. Og þær sögðu á sim- stöðinni að læknirinn væri á heimleið, og mér datt i hug — — Auðvitað. Ég þarf bara að sækja áhöldin og svo skal ég koma. Góða nótt og mundu það sem ég sagði um að lita inn ein- hvern daginn og láta mig skoða þig'. Erkendorf bauð góða «6tt i stað þess að svara og rölti til €aka i átt að brúnni I súldinni. ósæmileg hegðím hótelgests 1 Kona sýslumannsins stóð við 9 H. K. Rönblom: Að nefna snöru— rúm eiginmannsins klædd flón- elsnáttkjól og inniskóm. Eiginmaðurinn var með dálit- inn stút á munninum þar sem hann lá steinsofandi. Hún fylltist móðurlegri umhyggju gagnvart honum þegar hún horfði á hann liggja þarna, rjóðan og hvithærð- an með stút á munninum eins og krakki. Henni var meinilla við að vekja hann svona af værum blundi, en hún vissi að það var ill nauðsyn. Varlega tók hún i öxlina á honum og hristi hann eilitið til aö fá hann til að losa svefninn. — Strömberg er i simanum, sagði hún. Það er eitthvað árið- andi. Framúr með þig. Emmerich Ek sýslumaður opnaði augun ringlaður á svip. — Strömberg, endurtók frúin. — Hann er i simanum. Þá áttaði hann sig, settist upp og sveiflaði fótunum fram fyrir rúmstokkinn. Oti var orðið bjart en samt fann hann af birtunni að ekki var kominn venjulegur fóta- ferðartimi. Hann leit á arm- bandsúrið og sá að klukkan var ekki nema hálfsex. Urrandi rak hann tærnar niður i inniskóna og gekk að simanum. Frúin var ýmsu vön I sambandi við svona útköll. En klædd nátt- kjólnum gekk hún fram i eldhúsið til að setja yfir kaffið. Strax og hún var búin að kveikja undir katlinum fór hún að hlusta á það sem eiginmaðurinn var að segja i simann. — Þú ættir að taka myndavél- ina með þér. Hringdu til læknisins meðan þú biður — nei, annars, leyfum honum að sofa smástund enn. Ég kem yfirum strax og ég er kominn i fötin. A leiðinni inn i svefnherbergið aftur, rak sýslumaðurinn höfuðið inn i eldhúsið. — Það er gestur á Nohrström . hótelinu sem hefur hengt sig i nótt. Ég verð að fara þangað und- ir eins. — Góði minn, sagði frúin. Getur ekki Strömberg séð um þetta? Ég er með tilbúinn kaffisopa handa þér alveg undir eins. Hann átti von á þvi. Það til- heyrði útkallinu. Það var svo sjálfsagður hlutur að hann þakk- aði ekki einu sinni fyrir. Jæja, hugsaði hún, á Nohr- ström hótelinu. Já, það lá að. Hótelið við Uxagötu hefur ekki sérlega gott orð á sér. Það er svo- sem alveg eftir gestunum þar að hengja sig. Finni gestir gista á Bæjarhótelinu og þeir skjóta sig. Tja, auðvitað gera þeir það ekki alltaf.en ef þeir kála sér á annað borð. Kaffið og brauðsneiðarnar stóðu á bakkanum og biðu eftir sýslumanni þegar hann kom fram, klæddur og nýrakaður með hvita hárið snyrtilega greitt. Hann leit út fyrir að vera það sem hann var: rúmlega sextugur em- bættismaður, vel heima i öllu sem að embættinu sneri og á leið að sinna slikum málefnum. Hann át allar brauðsneiðarnar og gaf sér tima til að fá sér aftur i bollann en hristi aðeins höfuðið, þegar frúin vildi fræðast meira um það sem gerst hafði á litla gistihúsinu. 2. Embættisumdæmi Eks sýslu- manns náði yfir Ábroka-bæ og fá- einar nærliggjandi sóknir. En bærinn hafði notað rétt sinn til að stofna sjálfstætt lögregluumdæmi og halda uppi eigin lögregluliði, sem samanstóð af yfirlögreglu- þjóni og fimm lögregluþjónum. útvarp FÖSTUDAGUR 13. desember 7.00 Morgunútvarp. Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for- ustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunleikfimi kl. 7.35 og 9.05. Morgunstund barn- anna kl. 9.15: Sigurður Grétar Guðmundsson les „Litla sögu um litla kisu” eftir Loft Guðmundsson (9). Tilkynningar kl. 9.30. Þing- fréttirkl. 9.45. Létt lög milli liða. Spjallað við bændurkl. 10.05. „Hin gömlu kynni”kl. 10.25: Sverrir Kjartansson sér um þátt með tónlist og frásögnum frá liðnum ár- um. Morguntónleikar kl. 11.00: Christian Larde, Claude Maisonneuve og Parisarhljóðfæraflokkurinn leika Sinfóniu nr. 4 I e-moll fyrir flautu, óbó og strengjasveit eftir Scar- latti/ Johannes Hoefflin og fleiri flytja ásamt kór og hljómsveit „Sjá morgun- stjarnan blikar blið” kant- ötu eftir Kuhnau. Lestur úr nýjum barnabókum kl. 11.25. 12.00 Dagskráin. Tónleikar. Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Við vinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: tJr end- urminningum Krúsjeffs. Sveinn Kristinsson les þýð- ingu sina (5). 15.00 Miðdegistónleikar. Her- mann Prey og Anneliese Rothenberger syngja með hljómsveitum dúetta úr óperunum „Madama Butt- erfly” eftir Puccini og „Arabellu” etir Richard Strauss. Hljómsveitarstjór- ar: Guiseppe Patané og Kurt Graunke. Þjóðar- hljómsveitin i Belgiu leikur „Judith”, ballettsvitu eftir Renier Van Der Velden, Leonce Gras stjórnar. 15.45 Lesin dagskrá næstu viku. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.25 Popphornið. 17.10 Útvarpssaga barnanna: „Hjaiti kemur heim” eftir Stefán Jónsson. GIsli Hall- dórsson les (21). 17.30 Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.40 Þingsjá. Umsjón: Kári Jónasson. 20.00 Tónleikar Sinfóniu- 0 sjónvarp 20.00 Fréttir og veöur. 20.30 Dagskrárkynning og auglýsingar. 20.40 Eldfuglaeyjarnar. Fræðslumyndaflokkur um dýralif og náttúrufar á Trinidad og fleiri eyjum i Vestur-Ind.Ium. t regnskógum Trinidads. Þýðandi og þulur GIsli hljómsveitar tslands i Há- skólabiói kvöldið áður. Hljómsveitarstjóri: Páll P. Pálsson. Einleikari á pianó: Dagmar Simonkova frá Tékkóslóvakiu. a. „Flower Shower” eftir Atla Heimi Sveinsson (frumflutning- ur). b. „Soireé musicale” eftir Benjamin Britten. c. Pianókonsert nr. 1 i b-moll eftir Pjotr Tsjaikovský. — Jón Múli Arnason kynnir tónleikana. 21.30 Ctvarpssagan: „Ehren- gard” eftir Karen Blixen. Kristján Karlsson íslensk- aði. Helga Bachmann leik- kona lýkur lestri sögunnar (5). 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir. Frá sjón- arhóli neytenda. Hrafn Bragason borgardómari flytur erindi. 22.35 Bob Dylan. Ömar Valdi- marsson les úr þýðingu sinni á ævisögu hans eftir Anthony Scaduto og kynnir hljómplötur, — sjöundi þátt- ur. 23.20 Fréttir I stuttu máli. Dagskrárlok. Sigurkarlsson. (Nordvision — Sænska sjónvarpið) 21.20 Kapp með forsjá.Bresk sakamálamynd. Þýðandi Kristmann Eiðsson. 22.15 Kastljós. Fréttaskýr- ingaþáttur. Umsjónarmað- ur Svala Thorlacius. Dagskrárlok um eða laust eftir kl. 23.00. #ÞJÓ0LEIKHÚSIÐ KARDEMOMMUBÆRINN i dag kl. 16. Uppselt laugardag kl. 15 sunnudag kl. 15. ÉG VIL AUÐGA MITT LAND i kvöld kl. 20. HVAÐ VARSTU AÐ GERA t NÓTT? laugardag kl. 20. Leikhúskjallarinn: ERTU NÚ ANÆGÐ KERLING? sunnudag kl. 20.30. Siðustu sýningar fyrir jól Miðasala 13.15 — 20. Simi 1-1200. Simi 22140 Áfram erlendis Carry on abroad -KTBiROGBS— Nýjasta „áfram” myndin og ekki sú lakasta. ISLENSKUR TEXTI. Sýnd kl. 5, Ath. Það er hollt að hlægja I skammdeginu. Tónleikar kl. 8.30 Simi 18936 Easy Rider ISLENSKUR TEXTI verðlaunakvikmynd i litum með úrvalsleikurunum Peter Fonda, Jack Nicholson, Denn- is Hopper, Antonie Mendoza. Sýnd kl. 6, 8 og 10. siðasta sinn. Bönnuð börnum. MWm Indversk undraveröld Jólavörurnar komnar, m.a. bali-styttur, útskorin borð, hillur, lampafætur, gólf-vas- ar, reykelsi, reykelsisker, perlu-dyrahengi, gólfmottur, veggmyndir, bókastoðir, stór gaffall og skeið á vegg, könnur, öskubakkar, skálar, kertastjakar og margt fleira I nýtt. J Einnig indversk baðmull, \ batik-kjólaefni og Thai-silki i l úrvali. / JASMIN, 1 LAUGAVEGI 133, J (VIÐ HLEMMTORG)? ÖKUKENNSLA Æfingatímar, ökuskóli og prófgögn. Kenni á Volgu 1973. Vilhjálmur Sigurjónsson, simi 40728 20th CENTURY FOX PKCMNTS A lAWRENCf TURMAN Hin sprenghlægilega gaman- mynd með George C. Scott. Endursýnd kl. 5, 7 og 9. JSÍmi 11540 Hrekkjalómurinn ISLENSKUR TEXTI Sjö hetjur enn á ferð Mjög spennandi, ný bandarlsk kvikmynd úr villta vestrinu með hinum vinsæla leikara: LEE VAN CLEEF. Aðrir leikendur: Stefanic Powers, Mariette Hartley, Michael Callan. Leikstjóri: George McGowan. Bönnuð börnum yngri en 16 ára. Sýnd kl. 5, 7, og 9. ÍSLENSKUR TEXTI. Simi 32075 Maður nefndur Bolt Thath Man Bolt Bandarisk sakamálamynd i sérflokki. Myndin er alveg ný, frá 1974, tekin I litum og er með Islenzkum t'exta. Titil- hlutverkið leikur: Frek Wiili- amson. Leikstjórar: Henry Levin og David L. Fich. Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð börnum innan 16 ára.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.