Þjóðviljinn - 22.12.1974, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 22.12.1974, Qupperneq 4
4 StÐA - ÞJ6ÐVILJINN Sunnudagur 22. desember 1974. DJQÐVHHNN MÁLGAGN SÓSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Otgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Ritstjórar: Kjartan Ólafsson, Skólavöröust. 19. Slmi 17500 (5 llnur) Svavar Gestsson Prentun: Blaöaprent h.f. ÞJÓÐVILJEVN A þessu hausti hefur orðið vart við vax- andi tilhneigingu til þess með stjórnar- völdum að banna umræðu um ýmis mál, og embættismenn þeir, sem handgengn- astir eru stjórnarherrunum, hafa sent út algerlega dæmalaus umburðarbréf til undirmanna sinna þar sem þeim er vin- samlegast sagt að þegja. Til upprifjunar skulu hér nefnd nokkur þeirra dæma sem gefa tilefni til ofan- greindra fullyrðinga: Þegar Einar Ágústsson gerði samninginn um dollarana við bandarisk stjórnarvöld var sá samn- ingur leyniplagg um margra vikna skeið. Þegar sendinefnd rikisstjórnarinnar — með samþykki Geir Hallgrimssonar, Einars Ágústssonar og Matthiasar Bjarnasonar — gerði samninga við vest- ur-þjóðverja um landhelgismálið var bannað að segja frá efnisatriðum samn- ingsins opinberlega. Þegar umræður um raforkumál hófust nú á haustdögum, sem jafnan fyrr, sendi Valgarð Thoroddsen, forstjóri Rafmagnsveitna rikisins, út um- burðarbréf þar sem hann bannaði undir- mönnum sinum að svara spurningum fréttamanna um raforkumál. Mjög um sama leyti var flutt á alþingi stjórnar- frumvarp — sérstakt óskabarn ólafs Jóhannessonar—um að loka rikisstofnun- um algerlega fyrir upplýsingaleit fjöl- miðla. Nú siðustu dagana sást svo kórónan á sköpunarverkinu; stjórnarflokkarnir fluttu á alþingi frumvarp um að reka nú- verandi útvarpsráð, til þess, að sögn stjórnarherranna, að alþingi geti speglað sig i útvarpsráði og til þess — það segja stjórnarherrarnir ekki, en Morgunblaðið kvað upp úr með — að beygja rikisútvarp- ið undir pólitik stjórnarflokkanna. Allt gerist þetta á sama tima og blaða- kostur stjórnar og stjórnarandstöðu er ó- jafnari en nokkru sinni fyrr. Daglega eru prentaðar 2,4 miljónir blaðsiðna af stjórn- aráróðri, sem kastað er inn á hvert ein- asta heimili I landinu. Stjórnarandstöðu- blöðin eru prentuð i samtals um 14.000 ein- tökum á dag, en stjórnarblöðin i um 70 þúsund eintökum. Fyrir hvert eitt blað stjórnarandstöðunnar eru gefin út 5 blöð stjórnarinnar. En ekki eru allir drættir I þessari mynd dökkir. Almenningur hefur i vaxandi mæli skilið nauðsyn þess að efla beri mótvægi við skoðanavél afturhaldsaflanna. Þess vegna hefur Þjóðviljinn bætt við sig á- skrifendum jafnt og þétt næst liðin þrjú til fjögur árin; sunnudagsblað Þjóðviljans hefur fengið ákaflega góðar undirtektir, og upplag blaðsins fikrar sig smám saman upp eftir tiunda þúsundinu. Þjóðviljinn knýr nú enn einu sinni á dyr stuðningsmanna sinna og fer fram á fjár- hagslegan stuðning. Barátta þúsunda al- þýðufólks um áratugaskeið til þess að koma út Þjóðviljanum hefur verið fórn- frek barátta. Og sú barátta hefur verið látlaus, og hún verður það. Sjaidan eða aldrei er þó brýnna en einmitt nú að efla Þjóðviljann. Það stafar ekki einasta af þvi að afturhaldsöflin hafi sýnt meiri viðleitni til skoðanakúgunar en oft áður, samanber réttarofsóknir VL-manna. Það stafar sér- staklega af því, að nú fara i hönd timar harðnandi stéttabaráttu, látlausra stétta- átaka, þar sem enginn árangur næst nema menn sameinist um það að breyta sjálfri grundvallargerð þjóðfélagsins. Þá þarf fólk að hafa dagblað sem fylgir málefnum þess eftir að myndarskap og festu. Það mun Þjóðviljinn reyna að gera hér eftir sem hingað til — en þeim mun meira verður afl blaðsins sem stuðningur vel- unnara þess verður eindregnari nú þessa dagana þegar leitað er liðsinnis. Þjóðviljinn heitir á alla stuðningsmenn sina að bregðast vel við. Adda Bára Sigfúsdóttir, borgarfulltrúi: MÁLEFNI ALDRAÐRA —FYRIR KOSNINGAR, EFTIR KOSNINGAR Adda Bára Sigfúsdóttir hefur flutt marga tillöguna i borgar- stjórn um endurbætur á málefnum aldraöra. Þrátt fyrir daufar undirtektir hefur ihalds- meirihlutinn iöulega oröiö aö láta undan þrýstingi, og einkum er þaö fyrir kosningar. Þá eru gefin fögur loforö, sem vilja gleymast þegar til kastanna kemur. A borgarstjórnarfundi 19. desember fluttu borgarfulltrúar minnihlutaflokkanna tillögu um aögeröir I málefnum aldraðra. Adda Bára Sigfúsdóttir mælti fyrir tillögunni, og fer ræöukafli hér á eftir, sem lýsir ákaflega vel vinnubrögöum Ihaldsins I málefnum borgarinnar og I þessu tilfelli I málefnum aldraöra. Óleyst vandamál aldraðra hrannast i sifellu upp i borginni og blasa ljóslega við hverjum þeim sem ekki kýs að loka aug- unum, Jafnframt heldur það áfram að vera staðreynd að borgarstjórn lætur erfiðasta hluta þessara vandamála lönd og leið. Hún gerir ekkert til þess að byggja upp heimili fyrir þá sem ekki eru færir um að annast éigið heimilishald án þess að vera þó rúmliggjandi sjúk- lingar og engin hjúkrunardeild á vegum borgarinnar er til- tæk til þess að sinna sérstaklega gömlu fólki sem hef- ur takmarkaða eða enga fóta- vist. Þannig standa málin nú —og þannig stóðu þau einnig fyrir ári siðan þegar borgarstjórn sam- þykkti tillögu sem hefði getað valdið straumhvörfum, ef henni hefði verið framfylgt. Það var hins vegar ekki gert. — Þeir öldruðu voru sviknir Ég efa ekki að tillögumaðurinn sjálfur, Albert Guðmundsson flutti tillögu sina um uppbyggingu stofnana i þágu aldraðra og knúði fram 85 miljón króna framlag i fjárhagsáætlun þessa árs af þvi að hann vildi aðgerðir i málinu, en af langri reynslu er ég jafn sannfærð um að hinir hagvanari borgarfulltrúar sjálfstæðismanna sáu fyrst og fremst hvað það gat farið ljómandi vel i ræðu að geta þess að héðan I frá ætlaði borgin að verja 7,5% af útsvörunum til stofnana i þágu aldraðra, þar til þvi marki væri náð að enginn þyrfti að kvlða þvi að verða athvarfslaus i ellinni. Svo glæsi- legt er þetta fyrirheit að þrátt fyrir þá skammarlegu staðreynd að hinir öldruðu voru sviknir um mestan hluta hinna 7.5% I ár (Þeir fengu innan við 2%). finnur Morgunblaðið ekki heppilegri titil á framsöguræðu borgarstjóra með fjárhagsáætlun komandi árs en einmitt þetta: „Stofnanir i þágu aldraðra fá 7,5% af útsvör- unum”. Og auðvitað tekur þessi fyrirsögn yfir þvera siðu á mynd- arlegu letri. Saga um hús En hvað gerðist þá i málefnum aldraðra á árinu 1974 eftir að samþykkt var að verja i þeirra þágu 85 miljónum auk þeirra 52 miljóna sem byggja átti fyrir 74 ibúðir við Furugerði? Ég byrja á sögunni um húsið i Furugerði þvi að hún er ekki löng. Sjálfstæðismenn eru stundum með ólikindum ófyrirleitnir við samningu afrekaskráa sinna. Þannig báru borgarráðsmenn þeirra fram langa . tillögu um húsnæðismál i borgarráði 30. nóv. 1973. Tillagan hófst á skrá um allt það sem borgarstjórn væri að gera i húsnæðismálum — en þær framkvæmdir eru mislangt á veg komnar stóð þar. Orðrétt var einn liðurinn þannig. „Nú um ára- mótin verður hafist handa um byggingu 74 ibúða fyrir aldraða við Furugerði, en hönnun þeirra er á lokastigi”. Ég skal játa að ég trúði þvi langt fram eftir vetri að þetta væri satt, en staðreyndin er að enn þann dag i dag hefur ekki verið hafist handa um þessa byggingu. Það hefur ekkert annað gerst en að ákveðið virðist vera að væntanlegt hús skuli teljast til Stóragerðis en ekki Furugerðis, og framlagið I fram- kvæmdaáætlun fyrir 1975 á að vera 50 miljónir, en I áætluninni fyrir 1974 voru miljónirnar 52. — Fyrir kosningar Um stóra málið sjálft, nýtingu 7,5% útsvaranna er sagan ofur- litið lengri. Það var sett nefnd i málið og hún vann kappsamlega, enda brýnt að hún lyki störfum fyrir kosningar. Nefndin taldi sig eiga að glima við þrenns konar verkefni: 1) Byggingu ibúða fyrir aldraða 2) Byggingu vistheimila 3) Byggingu hjúkrunarheimila Niðurstaðan varð sú að á næstu 10 árum þyrfti að byggja 350 ibúðir fyrir aldraða og ný vist- og hjúkrunarheimili fyrir samtals 500 manns. Þá gerði nefndin einnig ákveðnar tillögur um, hvernig þeim 85 miljónum sem voru á fjárhagsáætlun skyldi varið. Tillögur nefndarinnar voru samþykktar I borgarstjórn 16. mai — og það mátti ekki tæpara standa þvi að borgarstjórnar- kosningar voru 26. mai. Þessa 10 daga var áætluninni miklu óspart hampað — en siðan var kosninga- vorið liðið, og endurnýjað- ur ihaldsmeirihluti virðist ekki hafa rekist á fundargerð borgar- stjórnar frá 16. mai. — Illur gnunur Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir 1975 hefur hins vegar verið munaðeftir samþykktinni frá þvi i desember i fyrra um 7,5% og i frumvarpinu stendur myndarleg tala eða 163 miljónir auk þeirra 50 sem eiga að fara i Stóragerðis- ibúðirnar. Reynslan af þvi hvernig fór fyrir tölunum i siðustu fjárhagsáætlun læðir þó að mér þeim illa grun að ætlunin sé að nota sem allra minnst af þessu fé og láta gamla fólkið bjargast einhvern veginn hér eftir sem hingað til. Það er vegna þessarar hættu sem við borgarfulltrúar þriggja flokka flytjum ályktunartillögu við afgreiðslu fjárhagsáætlunar um eftirfarandi aðgerðir: 1) Þær 74 ibúðir, sem hefja átti byggingu á um áramótin 1973- 1974, samanber samþykkt borgarstjórnar 20. desember 1973, verði boðnar út eigi siðar en i lok janúar 1975. 2) Gerðar verði ráðstafanir til að tryggja nýja hjúkrunaraðstöðu fyrir minnst 40 sjúklinga, fyrir lok ársins 1975. 3) Heilbrigðisráði og félags- málaráði verði falin umsjón með framkvæmd áætlunarinnar frá 16. mai s.l. Þetta er viðleitni okkar til þess að torvelda meirihlutanum að hlaupast frá öllum fram- kvæmdum árið 1975 eins og gert var árið 1974.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.