Þjóðviljinn - 22.12.1974, Page 5
Sverrir
Kristjánsson
Sunnudagur 22. desember'l974. ÞÍJÓÐVILJINN — SIÐA 5
Ævisaga Skúla Thoroddsen
Jón Guðnason:
Skúli Thoroddsen — siðara
bindi.
Reykjavik, Heimskringla 1974.
Með hinu siðara bindi ævisögu
Skúla Thoroddsens hefur Jón
Guðnason sagnfræðingur og lekt-
or skilað riflega eitt þúsund blað-
siðna verki og lokið lifsögu
manns, sem hefur ekki aðeins
legið óbættur hjá garði eins og svo
margir aðrir i sögu okkar, heldur
hefur orðið undarlega hljótt um
hann i vitund þjóðarinnar allt frá
þvi hann andaðist 1915 til þessa
dags og var hann þó án alls vafa
gustmestur allra islenskra
stjórnmálamanna frá miðjum nl-
unda áratug siðustu aldar til
dauðadags. í afburðasnjöllum
lokakafla ævisögunnar getur Jón
Guðnason þessarar gleymsku
söguþjóðarinnar með réttmætum
þykkjuþunga:
„Hjá siðmenntuðum þjóðum
tiðkast að halda á lofti minningu
þeirra manna, sem skarað hafa
fram úr á einhverju sviði, og er
það gert með ýmsum hætti. Þeim
eru ristir minnisvarðar, mann-
virki eru látin bera nöfn þeirra,
afrekssaga þeirra er færð I letur,
mynd þeirra er sleginn á málm-
peninga eða greypt á bankaseðla
og frimerki og þannig fram eftir
götunum... Hann efldi isfirðinga
til margra góðra verka og gaf
þeim rödd, sem heyrðist um allt
land. Málefnum kvenna var hann
drýgri liðsmaður en nokkur ann-
ar karlmaður. Hann minnti á
hlutskipti verkamanna og ann-
arra öreiga, er þeir voru skoðaðir
sem kolbitar i islensku þjóðfélagi.
Hann fylkti bændum undir merki
kaupfélagsskapar heima i héraði,
þar sem selstöðuverslun var
einna öflugust á landinu. Siðan
þetta gerðist hafa isfirðingar,
kvennasamtök, verkalýðshreyf-
ing og samvinnuhreyfing komið
Skúli Thoroddsen
þokkalega undir sig fótunum, en
ekki hefur þeim enn enst timi til
að minnast Skúla með neinum
eftirtektarverðum hætti, og sama
sagan er á öðrum bæ sem er enn
rikmannlegri”.
Það mátti þegar glögglega
Hjúkrunar-
félag Islands
Jólatrésskemmtun félagsins
verður haldin i Otgarði, Glæsi-
bæ, 27. desember kl. 15 (ekki 27.
janúar eins og misritaðist i fyrri
auglýsingu).
Miðar seldir á skrifstofu félags-
ins og við innganginn.
NEFNDIN
r r
JOLATRES-
FAGNAÐUR
Skipstjóra- og stýrimannafélagið Aldan og
Stýrimannafélag íslands halda sameigin-
legan jólatrésfagnað i Glæsibæ sunnudag-
inn 29. desember kl. 3 e.h.
Aðgöngumiðar fást á eftirtöldum stöðum:
Guðjóni Péturssyni, Þykkvabæ 1, Simi: 85034 — 84534
Guðmundi Konráðssyni, Grýtubakka 4, Simi: 71809
Þorvaldi Árnasyni, Kaplaskjólsvegi 45, Simi: 18217
Ólafi ólafssyni, Miðbraut 24, Slmi: 10477
og skrifstofum félaganna.
Vinasamlegast pantið aðgöngumiða tím-
anlega.
Auglýsingasíminn er
17500
PIOÐVIUINN
greina af fyrra bindi ævisögunn-
ar, að Jón Guðnason kunni auð-
veldlega þá list að greiða úr
flóknu efni og er þar skemmst að
minnást frásagnar hans af Skúla-
málinu fræga, og hefur þó sann-
arlega ekki allt verið neinn
skemmtilestur að kanna heimild-
ir þess málavafsturs. Sjálft var
málið I öllum greinum og blæ-
brigðum einhver sá aumasti
titlingaskitur og smásmugl sem
um getur i Islenskri dómsmála-
sögu, en það er ljósasta dæmið
um islenska lágkúru, að einmitt
fyrir þá sök hve lágt var risið á
málsrannsókn og málsmeðferð,
skyldi Skúlamálið verða blátt á-
fram stórmál islenskrar sögu á
siðasta áratug 19. aldar. Og þvi
varð Jón Guðnason að gera þvi
svo full skil i ævisögunni og hann
gerði það með miklum ágætum.
Fyrra bindinu lauk með sigri
Skúla Thoroddsens. 1 siðara bind-
inu vikkar sviðið allt, allt verður
stærra i sniðum. Nú seitla ekki
lengur fram lækjaseyrur sem
enda i stöðnuðum og mórauðum
pollum réttarrannsókna Skúla-
málsins. Nú flæðir loksins fram
saga Islands til hafs og Skúli
Thoroddsen stigur fram sem
hinn viðsýni og margvisi
stjórnmálamaður, er lætur sig
skipta öll lifsvandamál lands og
þjóðar, fitjar upp á málefnum,
sem samtiðarmönnum hans fund-
ust ýmist hlægileg eða fáránleg,
en þýkja nú svo sjálfsögð, að við
getum ekki hugsað okkur islenskt
nútimaþjóðfélag án þess að þau
væru leyst. Langsýnn og við-
faðma er Skúli Thoroddsen sá
stjórnmálamaður islenskur sem
lætur ekki baslið samtiðar sinnar
beygja sig, koðnar ekki niður i
pólitisku nostri liðandi stundar,
en horfir jafnan fram á veginn,
dreymir stóra drauma og sér
miklar sýnir i framtið Islands og
þess fólks, sem það byggir. Það
er sannarlega furðulegt hve fljótt
hefur fölnað minning þessa
manns og hve annarlegar pólit-
iskar goðsögur hafa getað mynd-
ast um hina pólitisku baráttu og
framvindu þessa timabils og
lagst yfir það eins og sveppagróö-
ur á mykjuhaug. Það var sannar-
lega kominn timi til að hæfileika-
mikill sagnfræðingur skipaði at-
vikum og viðburðum i rétta rás
þróunarinnar svo sem Jón
Guðnason hefur gert i þessu
mikla og merkilega sagnfræðiriti.
Það er á marga lund vanda-
samt verk og erfitt að skrifa sögu
þessa timabils, sem ævi Skúla
Thoroddsens tekur til. Höfuðmál
þessara ára, stjórnfrelsismálið,
þróaðist i æriö flóknum lögfræði-
legum formum, nálgaðist stund-
um háspekilega guðfræði.
Flokkaskiptingin var reikul i rás-
inni, flokkarnir lausir i reipunum
og einstaklingarnir sem gengu til
hins pólitiska leiks kunnu litt til
stjórnmálaaga, skoðanaskipti
þeirra eða stefnubreytingar virt-
ust oft svo persónubundnar og til
viljunarkenndar að erfitt er að
átta sig á þeim eða greina stefnu i
straumi stjórnmálanna að baki
metingi, persónulegu naggi og af-
brýði. Þetta stafar framar öðru af
gerð hins islenska þjóðfélags á
þessu timabili: þroskaleysi stétt-
anna i bændaþjóðfélagi sem var i
sama mund nýlenda háð erlendu
riki svo vel efnahagslega sem
stjórnmálalega. En þetta þjóðfé-
lag var smám saman að leysast i
sundur. Þvi fór auðvitað fjarri að
þetta islenska bændaþjóðfélag
hafi verið án stétta: hjú, lausa-
menn og þurrabúðarfólk voru hin
•fjölmenna og réttindalausa al-
þýða lsl„ stöpullinn er búandi
bændastétt hvildi á, embættis-
menn og kaupmenn. En þessi lág-
stétt var án vitundar um sjálfa
sig og sinn vitjunartima. Hana
skorti það sem við köllum nú
stéttvisi. Skúli Thoroddsen varð
fyrstur islenskra stjórnmála-
manna er gerðist fulltrúi þessa
fólks — tribunus plebis, alþýöu-
foringi I orðsins klassisku merk-
ingu. Hann var ekki aöeins venju-
legur stjórnmálamaður heldur
einnig pólitiskur hugsuður. Hann
skildi allra manna best sinna
samtiðarmanna gerð og alla skip-
an hins islenska þjóðfélags, en
fræðilegur skilningur hans var
laugaður mannúð og réttlætis-
kennd. Hann varð fyrstur is-
lenskra stjórnmálamanna til að
tengja þjóðfrelsi og stjórnfrelsi
baráttunni fyrir félagslegum
mannréttindum hinna réttlausu
lágstétta og allt fram á andláts-
stund hopaði hann aldrei né hik-
aði á þeim hólmgönguvelli er
hann hafði ungur haslað sér.
Jón Guðnason hefur skráð alla
þessa sögu með miklum ágætum.
Hann hefur kannað sögu tima-
bilsins af skarpskyggni og elju, i
rannsókn sinni horfir hann til
allra átta, tekur mið af erlendum
áhrifum og innlendum aðstæðum,
vegur og metur hina ýmsu þætti i
sögulegri framvindu timabilsins.
Honum tekst ekki siður að beina
sálfræðilegu kastljósi á dramatis
personae, sem taka þátt i þessu
sjónarspili sögu okkar, öll frá-
sögnin gædd kaldri hófstillingu.
Málið á bókinni er jafn látlaust og
það er vandað. Það er mikill
fengur Islenskri sagnfræði að
þessari bók.
Sverrir Kristjánsson
UMBOÐSMENN
HAPPDRÆ TTIS
ÞJÓÐ VILJANS
Reykjanes:
Kópavogur: Alþýðubandalagið form. Asgeir Svanbergsson 43357
Hafnarfjörður: Alþýðubandalagið form. Erna Guðmundsdótt-
ir 51429
Garðahreppur: Hilmar Ingólfsson 43809
Mosfellssveit: Runólfur Jónsson 66365
Garöi Geröar: Sigurður Hallmannsson 927042
Keflavlk, Grindavik, Sandgerði, Njarðvik: Alþýðubandalagið
form. Karl Sigurbergsson 922180
Vesturland:
Akranes:Alþýðubandalagiðform. Sigrún Gunnlaugsd. 931656
Borgarnes og Borgarf j.:Halldór Brynjólfsson 937355
Hellissandur:Skúli Alexandersson 936619
Ólafsvik: Kristján Helgason 936198
Grundarfjörður:Matthildur Guðmundsdóttir 938715
Stykkishólmur: Birna Pétursdóttir 932175
Dalasýsla Búðardalur :Kristján Sigurðsson 952174
Vestfirðir:
tsafjörður: Þuriður Pétursdóttir 943057
Hólmavik, Strandir: Sveinn Kristinsson Klúkuskóla
Dýrafjörður: Guðm. Friðgeir Magnússon Þingeyri
Súgandaf jörður: GIsli Guðmundsson 946118
Barðastr.sýslur: Unnar Þór Böðvarsson Tungumúla
Flateyri: Guðvarður Kjartansson
Norðurland vestra:
Skagaströnd: Kristinn Jóhannsson 954668
BIönduós:Helga Þórðardóttir 954363
Hvammstangi: Ragnar Agústsson, Laugabakka
Sauðárkr. Skagafjörður:Haukur Brynjólfsson 955376
Siglufjörður: Kolbeinn Friðbjarnarson 9671271
Norðurland eystra:
Akureyri:Skrifstofa Alþýðubandalagsins 9621875
Dalvik:ÓttarProppé 9661471
ólafsf jörður: Sæmundur Ólafsson 962267
Húsavik:Snær Karlsson 9641397
Þingey jarsýslur: Þorgrimur Starri, Garði
N-Þingeyjarsýsla:Angantýr Einarsson, Raufarhöfn 9651125
Austurland:
Höfn, Hornafirði:Benedikt Þorsteinsson 978243
Djúpivogur: Eysteinn Guðjónsson
Breiðdalsvik: Guðjón Sveinsson
Fáskrúðsfjörður: Baldur Björnsson
Eskif jörður: Alfreð Guðnason 976216
Reyöarfjörður: Björn Jónsson
Seyðisf jörður: Guðmundur Sigurösson 972197
Vopnafjörður: Gisli Jónsson
Borgarfj. eystri, Hérað, Egilsstaðir: Guðrún Aöalsteinsdóttir
Neskaupstaöur-.Bjarni Þórðarson 977178
Suðurland
Eyrarbakki, Stokkseyri: Frimann Sigurösson 993215
Hveragerði: Sigmundur Guðmundsson 994259
Árnessýsla: Guðm. Kristjánsson 991318
Selfoss:IðunnGislad. 991689
Þorlákshöfn: Þorsteinn Sigvaldason 993745
Iiella, Hvolsvöllur, Rangárvallasýsla: Guðrún Haraldsdóttir
Vfk i Mýrdal, Skaftafellssýsla: Magnús Þórðarson 997129
Vestmannaeyjar: Jón Traustason