Þjóðviljinn - 22.12.1974, Síða 10

Þjóðviljinn - 22.12.1974, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. desember 1974. RÁÐSTEFNA UM VERKALÝÐSBÓKMENNTIR: Erlingur Viggósson, skipasmiður, og Vésteinn Lúðvíksson, rithöfundur, voru fulltrúar Islands á ráðstefnu um verkalýðs- bókmenntir, sem haldin var í Noregi síðast í nóvember. „Það var fræðslustofnun alþýðusambandsins i Noregi, sem hélt ráðstefnuna og bauð til hennar fulltrúum alþýðusam- bandanna á hinum Norður- löndunum. Ráðstefnan var haldin i Osló og stóð i viku”, sagði Erlingur Viggósson i samtali við Þjóðviljann, en við báðum Erling að segja frá ráðstefnunni. „Fundir voru daglega. Eitt kvöld hlustuðum við á tvo norska rithöfunda lesa úr verkum sinum annað kvöld fórum við i leikhús, en á daginn var unnið I vinnu- hópum, sem siðan gerðu grein fyrir niðurstöðum sinum. Umræðuefnin voru margvisleg, tam. um „Fagurbókmenntir i námshópunum”, „Miðlun bók- menntanna”, „Vilja verkamenn lesa um eigin vandamál”, „Hvað geta verkalýðsfélögin gert?”. Á ráðstefnunni voru blaða- menn, gagnrýnendur, skrifstofu- menn og rithöfundar, en ég var hinsvegar eini puðarinn þarna. Þetta var hreint út sagt krataráð- stefna — og það var ósköp eðli- legt, þar sem kratar ráða öllu innan alþýöusambanda hinna Norðurlandanna. Heims um ból... Edda óskarsdóttir hefur teiknað jólamyndina á forsið- unni, sem hún kallar „Heims um ból....” Edda, sem stund- um hefur teiknað áður fyrir Þjóðviljann og Alþýöubanda- lagið, stundaði myndlistar- nám i Myndlistarskólanum við Freyjugötu og siðan Myndlista- og hándföaskól- anum auk náms við listaskóla i Englandi um tima. Edda hefur bæði fengist við vefnað og keramikgerð, en aðallega starfað sem myndlistarkenn- ari og er nú með tilrauna- kennslu i myndið. HVAÐ VILJA MENN LESA? Alþýðusambönd hinna Norður- landanna hafa rithöfunda á sinum snærum, reka bókaútgáfur,og það er ljóst, að kratarnir vilja ekkert hafa með mjög róttæka höfunda. Róttækirrithöfundar fá ekki gefið út eftir sig hjá þessum verka- lýðssambanda-forlögum. Eitt af þvi sem við ræddum um, var sú spurning, hvernig rit- höfundur sé fær um að skrifa um lif verkamanna, þegar hann sjálfur hefur varla komið út af háskólalóðinni, hefur aðeins lesið nokkuð um vinstripólitik. Það kom fram þarna, að hér áður, á árunum fyrir strið, voru fleiri rit- höfundar og blaðamenn virkir i hreyfingu verkalýðsins. Nú er áberandi tengslaleysi milli fólksins og forystunnar, og fólksins og rithöfunda. Þrátt fyrir þetta, þá voru krat- arnir þarna mjög undrandi, þegar þeir fréttu að ASl hérna stjórna menn úr öllum flokkum. Málgagn ASÍ „Vinnan”, ber þess merki. Margt bendir til þess, að Norðurlandakratarnir séu jafnvel virkari, en samsuðan hér. Bókmenntir sem koma mönnum viö Hverjir lesa verkalýðsbók- menntir? „Nú kom það fram þarna, það var daninn sem ræddi um það, að millistéttarfólk vildi ekki lesa róttækar bækur. Einhver annar benti á, að fólk, sem er pólitiskt upplýst, fólk, sem vill kynna sér og skipta sér af pólitik, það hefði yfirleitt áhuga á þeim bókmennt- um sem fjalla um lif fólks. Nú — varðandi tengslaleysi rit- höfunda og fólksins, þá var tals- vert um það rætt, að nauðsyn bæri til að rithöfundar, blaða- menn og forystumenn fræðslu- stofnana kæmu á vinnustaði og ræddu við menn. Kannski eru þarna Ijón á veginum. Það er t.d. algengt að verkamenn lita þessa utanaðkomandi aðila hornauga, lita á þá sem flibbamenni, en þessu verður að breyta. Það verður að rjúfa sambandsleysi þeirra sem vinna að fræðslu- og bókmenntastarfi og þeirra sem eru á vinnustöðunum. Mér dettur i hug I þessu sam- bandi, að einhver var um daginn að skrifa i Þjóðviljann um málefni Listasafns Alþýðusam- bandsins hérna. Greinarhöfund- Erlingur Viggósson: — Þessi ráðstefna um verkalýðsbók- menntir var fróðieg, og ég er feginn að það norska ASÍ skyidi boða til hennar. urinn sagði að ótækt væri að hafa safnið opið um miðjan daginn þegar menn væru að vinna. Safnið ætti að vera opið á kvöldin eftir almennan vinnutima. Að öðrum kosti yrði safnið bara sunnudagasafn. Ég verð nú að segja það, að ég fer ekki á lista- safn, nema þá á frídegi, á sunnu- degi. Ég vil ekki, og ég hef ekki þrek til, að fara á safn að skoða myndlist, nema afþreyttur, vel upplagður. Ég vil helst ekki fara i leikhús nema á sunnudagskvöldi. Gömlu rithöfundarnir meira lesnir Lágu einhverjar upplýsingar fyrir ráðstefnunni, t.d. um það, hvort róttækir rithöfundar væru lesnir? „Það var samdóma álit allra þarna, að rithöfundarnir sem skrifuðu fyrir strið, væru meira lesnir en þeir sem nú skrifa. Og þá komum við aftur að þessu með sambandsleysið: Það er kannski innlegg i barátt- una gegn sambandsleysinu, að það var samþykkt þarna, að nauðsynlegt væri að koma á fót stöð sem þýddi bókmenntir fyrir alþýbuhreyfinguna — jafnframt samþykkt að upplýsingu verka- fólks yrði að auka. Og að siðustu vil ég geta mins afreks þarna meðal norrænna krata: Ég fékk þvi framgengt að hreyfingin á Norðurlöndum mun koma sér upp sameiginlegri söngbók. Söng- urinn sameinar menn og opnar. Þegar menn hafa blásið hressi- lega út i söng, þá fást þeir frekar til að ræða málin opinskátt á fundum”. —GG Fjölskrúðugur hópurá Mokka Það er fjölskrúðugur hópur- inn á Mokka þessa dagana, þvi við fastagestahópinn hafa nú bæst prestar og betlarar, matrónur og gleðikonur, blað- sölustrákar, sótarar og fleiri persónur — I strengjum að vlsu og hangandi i loftinu. Það er ung kona, Anna Sverr- isdóttir, sem heldur sýningu á brúðunum sinum, en hún hefur fengist við þessa brúðugerð I hálft annað ár. Upphaflega áttu þær ekki ab hanga i strengjum, heldur standa til skrauts, en ýmsir annmarkar reyndust á þvi og þess vegna valdi Anna þessa lausn. En hún tekur fram, að ekki megi rugla þeim saman við strengjaleikbrúöur, sem eru mun flóknari að gerð og miklu meiri vinna, segir hún og það kemur fram i viðtalinu, að hug- ur hennar stendur einmitt til náms i leikbrúðugerð og brúðu- leikhúsi. Anna er dóttir Sverris Har- aldssonar listmálara og Sigrún- ar Gunnlaugsdóttur teiknikenn- ara og segist vera alin upp við allskyns föndur og alltaf hafa langað til að búa til dúkkur. Og nú hefur hún látið það eftir sér fullorðin, meðfram húsmóður- Anna Sverrisdóttir sýnir á Mokka störfúnum, og tekið fyrirmynd- irnar ýmist úr daglega lifinu eða sögum eða þá þær hafa hoppað beint úr hennar eigin hugarheimi. —vh

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.