Þjóðviljinn - 22.12.1974, Side 17

Þjóðviljinn - 22.12.1974, Side 17
Sunnudagur 22. desember 1974. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17 Nýlega er komin út hjá Bókaút- gáfunni Þjóðsögu bókin „Árið 1973 — stórviðburðir liðandi stundar i myndum og máli með islenzkum sérkafla”. Þetta er ni- unda bókin i annálaflokknum og sú áttunda með islenzkum sér- kafla. Að þessu sinni kcmur ár- bókin óvenju seint út hér á landi vegna tafa á afgreiðslu frá prent- smiðju i Danmörku. Þjóðsaga gefur árbókina út i samvinnu við fyrirtækið Welt- rundschau AG i Sviss. Þjóðsaga var fyrsta útgáfufyrirtækið sem bætti við sérkafla um atburði i eigin landi, en siðan hafa útgáfur i mörgum löndum tekið þann hátt upp. Arbókin er 320 blaðsiður að stærð að þessu sinni og skiptir myndafjöldi hundruðum og er mikill hluti myndanna i litum að venju. Myndirnar i islenska sér- kaflanum eru um 80 talsins, all- margar i litum. Árið 1973 var ó- venju rikt af stórviðburðum á Is- landi og sem skil eru gerð i bók- inni. Má þar m.a. nefna Vest- mannaeyjagosið, þorskastriðið, fund Pomdpidous og Nixons og heimsókn Margrétar Dana- drottningar. Auk þess eru myndir frá Vestmannaeyjagosinu og Nix- on-Pompidou fundinum i alþjóð- lega kaflanum. Islensku útgáfu árbókarinnar hafa annast þeir Gisli Ólafsson, ritstjóri, sem sér um alþjóðlega kaflann, Björn Jóhannsson, fréttastjóri, sem sér um islenska Mishermi Það mishermi varð i grein um islenskan matvælaiðnað I siðasta sunnudagsblaði Þjóðviljans, 15. desember, að Gunnar Finnlaugs- son mjólkurfræðikandidat hjá Mjólkurbúi Flóamanna var sagð- ur Finnbjörnsson. Leiðréttist þetta hérmeð um leið og beðist er afsökunar á þessum mistökum. Við höfum ekki bilastæði við búðardyrnar, en það gæti samt borgað sig að fá sér heilsubótargöngu til okkar. Kvenfatatískan f úr- vali! Alltaf eitthvað nýtt. Opið til 11 annað kvöld, Þorláksmessu. Sendum í póstkröfu. Sími 12284 eoco 1973 sérkaflann og Hafsteinn Guðmundsson, forstjóri Þjóðsögu sem hannað hefur sérkaflann. Arbókin er ekki tæmandi við- burðaannáll en þar er samt að finna flestu merkustu viðburði innanlands og utan i máli og myndum. Arbókin er þvi ómiss- andi uppsláttarverk og gildi hennar vex með hverju árinu sem liður. Til að auðvelda sem flest- um að eignast árbækurnar býður Þjóðsaga kaupendum afborg- unarkjör sé þess óskað. Þjóðsaga er nú til húsa að Lækjargötu 10A, Reykjavik. Árbókin er nú gefin út i 16 lönd- um, þ.á.m. öllum Norðurlöndum, og hefur verið prentuð i tæpum 4 miljónum eintaka. Nokkrir ár- gangar eru uppseldir. STORVIOBURÐIR LIÐANDl STUNDAR í MYNDUM OG MÁLI MED ÍSLENZKUM SÉRKAFLA GLENS Hann var ofsa töff, i leður- jakka, bláum, niðþröngum galla- buxum með breitt leðurbelti, I kú- rekaklossum og með sitt hár. Sem sagt hinn persónugerði gæi. Hann kemur upp i strætó, litur hryssingslega á bilstjórann og segir: — Tóti töff borgar ekki. Bilstjórinn þorir ekki svo mikið sem að ræskja sig, heldur ekur áfram. En daginn daginn eftir endur- tekursagan sig. Náunginn kemur upp i vagninn: — Tóti töff borgar ekki! Þriðja daginn biður bilstjórinn um tvo menn sér til aðstoðar, ef ske kynni að firinn kæmi enn einu sinni. Og mikið rétt. Enn kemur hann: — Tóti töff borgar ekki! Þá ganga kraftajötnarnir tveir fram og annar þeirra segir ógn- andi: — Jæja, svo Tóti töff ætlar ekki heldur að borga núna? — Nei, sagði náunginn, — Tóti töff borgar ekki, þvi hann er með frimiða! Danskurinn lætur ekki að sér hæða Hvert mannsbarn veit, að Island er land mikillar verðbólgu, svo mikillar, að síðustu tólf mánuði hef- ur engin þjóð á vestur hveli jarðar komist með tærnar, þar sem við höfum hælana, í þessum efn- um. Flestir vita líka, að þetta er okkur til heldur lítillar sæmdar. Við höfum þvi stundum verið að hugga okkur við það, að frændur okkar, Danir, séu litlu betri (að visu eru þeir næstum helmingi skárri, greyin, en hvað um það). — Sú samstæða, sem hér er boðin, kemur að mestu leyti frá Dan- mörku, en eins og kunnugt er, eru SCANÐYNA verksmiðjurnar i því ágæta verðbólgulandi. Það eina, sem ekki kemur þaðan, er plötuspilarinn, en hann er frá BSR í Englandi, en það er reyndar lika nokkuð gott verðbólguland. — Það undarlega við þetta allt saman er það, að þrátt fyrir alla þessa verðbólgu, er verðið á þessari samstæðu með ólikindum lágt. Með tveimur stóru hátölurunum kostar hún kr. 114.400,00 og kr. 132.400,00 með fjórum hátölurum og fullkomnum fjórviddarbúnaði, og ber þá að hafa í huga, að útvarpsmagnarinn, SCANDYNA 2000, er 2 x 25 sínus/RMS wött, plötu- spilarinn, BSR HT-70, er vandaður og fullkominn i öllu tilliti og með Shure M75-6S segulþreif og, að hátalararnir stóru, SCANDYNA HT-35F, flytja allt að 80 wöttum og hafa tónsvið frá 35 upp í 20.000 rið. — iá, Danskurinn (og þá kannske um leið Eng- lendingurinn) lætur ekki að sér hæða. NESCO HF Leidandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og hljómtækja. Verziun Laugavegi 10 Reykjavík. Símar: 19150-19192-27788

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.