Þjóðviljinn - 22.12.1974, Qupperneq 18

Þjóðviljinn - 22.12.1974, Qupperneq 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 22. desember 1974. Bjarni Þoroddsson heitir þessi roskni heiöursmaöur og er llkiega elsti póstmaöur á iandinu. Hann er reyndar hættur almennum störfum en kemur alltaf um hver jól. Reynir sagöi okkur aö hann heföi byrjaö á póstinum sem unglingur áriö 1912, siöan hafa einungis tvenn jól faliiö úr, þannig aö þau eru oröin 60 talsins. Flokkun jólapósts i gömlu iögreglustöðinni. Til hægri er Jón Páisson, en á honum hvlla allar áhyggjur af jólapóstinum. NÝTT PÓSTHÚS Óskadraumur póstmanna Ástandiö á pósthúsinu hefur þó aðeins skánaö meö tilkomu gömlu lögreglustöövarinnar Þessir vösku piltar voru aö handlanga sjópóstpoka inn um glugga lögreglustöövarinnar er okkur bar aö. Til hægri situr Ásgeir Höskuldsson og skráir samviskusamlega hvern poka sem inn kemur. — Hér vant- ar tilfinnanlega færiband, sagöi Reynir um þennan staö. Þetta fólk sat viö flokkun pósts I kjallara pósthússins en Flosi hefur gert þennan kjaliara ódauöiegan I islenskum bókmenntum meö pistli sinum, sem upphailega birtist hér I Þjóöviljanum. Hér var þaö sem hasshundurinn gafst upp fyrir ólofti eftir aö hafa snuöraö af pósti i kortér. Það er að komast hefð á að Þjóðviljinn heimsæki aðalpósthúsið í Reykjavík fyrir hver jól^og svo var einnig gert nú. Þar hittum við að máli Reyni Ármannsson formann Póstmannafélags Islands og spurðum hann um jóla- póstinn og aðstæður pósts- ins til að taka þvi aukna á- lagi sem hann hefur í för með sér. — Ég vil nú byrja á að svara þeim ágæta manni biskupnum þvi til aö jólapósturinn er engin fjár- hagsleg vertíð fyrir póstinn. Hann þarf að bæta við sig miklum mannafla og að þessu sinni er aukafólkið á þriðja hundrað, 160 unglingar við útburð og um 60 viö flokkun á bögglum, bréfum og tollpósti. — Hve mikill er jólapósturinn? Fegurri fuglahræöur Franski landbúnaðarsér- fræðingurinn Corinne Labelle hefur lagt til, að hinum hefð- bundnu fuglahræðum verði breytt, þar sem fuglarnir hafi með timanum vanist útliti þeirra og taki ekki mark á þeim. 1 staðinn leggur hún til, segir franska blaðið „Combat”, að settar veröi upp litfagrar kven- myndir. — Skyldu fuglarnir hræðast þær? — Við höfum vigtað hann hér og hann vegur yfirleitt um tiu tonn sem við áætlum aö séu um ein miljón jólakorta. Þetta er svipað frá ári til árs og ekki miklar — Þetta er eiginlega eina tækni- væöingin hjá okkur, sagöi Reynir um þessa stimpilvél, sem annaö getur 10 þúsund bréfum á klukku- stund. sveiflur. Við þetta starfa um 400 manns i allt hér i borginni og frá 16. desember fram á Þorláks- messu er unnið á tveimur vöktum frá 7.30 á morgnana til miönættis. — Hvernig er svo aðstaðan hér á pósthúsinu til að taka við þessu aukna álagi? — Hún er nú með besta móti núna eftir að viö tókum gömlu lögreglustööina i notkun en samt ekki nándar nærri góð. Lögreglu- stöðin er bara bráðabirgöalausn. Ég vona að brátt verði hafist handa við nýja pósthúsið sem er óskadraumur okkar póstmanna. Arið 1976 eru liðin 200 ár siðan fyrsta tilskipun danakonungs um póstþjónustu á Islandi var gefin út og þá vonum við að hornsteinn nýja hússins veröi lagður. — Hvernig standa byggingamál þess núna? — Það er arkitekt aö vinna að teikningu þess og búið er að finna þvi stað i nýja miðbænum. Svo hefur nefnd farið til Norðurlanda og kynnt sér ný pósthús þar. 1 nýja húsinu mun væntanlega verða til húsa öll flokkun og dreif- ing á pósti fyrir borgina, tollpóst- ur, bögglapóstur og blaðadeild. Útibúin munu svo sjá um fri- merkjasölu og ýmsa séraf- greiðslu, svo sem afgreiðslu á- byrgöarbréfa. Þess má reyndar geta að á næsta ári er fyrirhugaö að opna nýtt útibú i Arbæjar- hverfi. — En svo við snúum okkur aftur að starfinu hér innan veggja, hvaö er gert hér við jólapóstinn? — Hér á gömlu lögreglustööinni fer öll frumflokkun póstsins fram en siöan er hann flokkaður i götur i aðalhúsinu eöa sendur út i útibú- in. Við þurftum að breyta stöövarhúsinu mikiö til aö það hentaði okkur, t.d. eru öll gólf um hálfum metra lægri en i pósthús- inu. En aöstaöan er mjög frum- stæð, það er t.d. ekki til eitt ein- asta færiband I móttökunni þar sem póstpokarnir koma inn. En það var nú samt til bóta að fá hús- iö. — Hvað verður um lögreglu- stöðina þegar nýja pósthúsið er risið? — Það hefur komið fram sú hugmynd að hún veröi gerð að minjasafni pósts og sima. Þar er hugmyndin að verði frimerkja-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.