Þjóðviljinn - 22.12.1974, Blaðsíða 24
DJODVIUINN
Sunnudagur 22. desember 1974.
FLOSI SVARAR TIL SAKA FYRIR:
HINNFARSÆLA
TVÍVERKNAÐ
Aðsóknarleikhúsiö eins og Árni og
Flosi hugsa sér þaö: „Leyni-
vopniö leikhús á — ef léttur gerist
kassinn — aö hátta sæta
seimagná — og sýna á henni
rassinn.
Flosi Olafsson hefur
gefið út aðra bók sína og
heitir hún Hneggjað á
bókfell og er lýst af Árna
Elfar. í pistlum bókarinn-
ar er lagt út af ýmsum ef n-
um: stefnuyfirlýsingum
ríkisstjórna, íþróttareis-
um, kosningaslag, barna-
tímum útvarps, óperu-
flutningi og er þá fátt eitt
talið.
Við spyrjum Flosa
hvernig hann vilji sér-
kenna þessi gamanmála-
skrif sín.
— Allt eru þetta alvörumál,
þótt vel megi segi aö fram séu
sett i formi gamanmála. Mér
finnst þaö nokkuö vænlegt til
árangurs aö koma skoöunum á
framfæri undir yfirskini grins.
Þaö sem best á viö mig eru
paródiur, sem ég kalla hermur og
fylla raunar helminginn af bók-
inni.
— Hverjum pistli lýkur á
einskonar Æratobbavisu er hafa
til aö bera ótviræða veröleika.
Hefuröu reynt aö yrkja i alvöru?
— Ég hefi aldrei sett saman
ferskeytlu eða ljóökorn til birt-
ingar nema i alvöru, eða til að
koma einhverskonar alvöru á
framfæri.
— Hver er alvaran i þessari
visu:
Gróa hefur góðan haus
þegar Gróa er i puði
en Gróa á ekki að ganga laus
þegar Gróa er i stuði.
— Þaö er augljóst hvaða boð-
skap þessi visa hefur aö færa. Hér
fer hnitmiöuö og krefjandi gagn-
rýni á Islenskar sendinefndir sem
halda utan til frjáls leiks á vett-
vangi heimsmálanna.
— En þessi hér:
0 ég vildi aö I bráö
ykist hagur presta
og kæmi annaö útvarpsráð
sem öllu mundi fresta.
— Hér segir Flosi, hefi ég
brugðið mér i gerfi spámannsins
og spádómurinn hefur greinilega
ræst hálfu ári eftir að visan var
kveöin út af rifrildi um morgun- -
bænir i útvarpinu, og geri aðrir
skilvitlegir höfundar betur.
— Mér sýnist aö alvöruþunginn
sé einna mestur i þeim skrifum
sem lúta aö listasnobbi. Hvernig
stendur á þvi?
— Það er ekki nema eölilegt,
máliö er mér nokkuö skylt vegna
starfsins. En satt að segja hefi ég
ekkert á móti þvi aö snobbað sé
fyrir þvi sem er list. En þaö vill
slæöast svo ákaflega margt meö,
sem ekki á skylt viö neina list.
Ekkert er fjarri þvi að vera list en
gagnrýni um list, sem þegar best
lætur getur orðiö broslegur mis-
skilningur. En hlægilegust af öllu
eru viðbrögð listampnna viö
gagnrýni á list, aö ekki sé talað
um viðbrögö gagnrýnenda viö
gagnrýni listamanna á sig. Og
svo gætum viö rakiö okkur
áfram lengi ef timi vinnst til og
brotið máliö til mergjar i eitt
skipti fyrir öll.
Flosi Olafsson
og ÁmiElfar
cand.
phil.
hneprgjað
á bókf ell
— Matthias Johannessen hefur
látið þau orð falla, að þú farir
með gálgahúmor. Ertu sammála
þvi?
— Mér finnst ástæöulaust aö
setja nokkuö á þrykk eftir mig
nema það sem mér finnst i raun
og veru, og siöan er aö nota þær
aöferðir sem mér finnast farsæl-
astar hverju sinni fyrir land og
lýð. Og þar hefur gálgahúmorinn
sem Matthias kallar svo oft kom
ið aö góöum notum. Gálgahúmor
er reyndar ákaflega rikur þáttur i
islenskri frásagnarhefö. Saman-
ber þjóðsögur. Ég ætlaöi niöur
hvort sem var, sagði kerlingin Um
leið og hún húrraði niöur stiga og
hálsbraut sig. Eöa svo maöur
vitni til Snorra, þegar hann fór
um Kaldadal: Þat var ok. .
— Myndir Arna Elfars hafa
vakið athygli aö vonum . . .
— Ég bar gæfu til þess að vera
æskuvinur Árna Elfars og þaö er
fátt sem við höfum ekki
brallaö saman. Þessvegna rlkir
milli okkar fullkominn skilningur
á eðli málsins og nefna má mörg
dæmi hliðstæð úr listasögunni:
Edgar og Sullivan, Sesar og Kleó-
patra, Gög og Gokke, Silli og
Valdi. Allt eru þetta dæmi um
farsælan tviverknað. Margir hafa
raunar orðað þaö viö mig, hvort
að Arni, sem er tónlistarmaður að
atvinnu, sé nýtekinn upp á þvi aö
teikna, en sannleikurinn er sá, aö
hann hefur varla sleppt dráttstaf
úr hendi siðan hann lyfti fyrst
höföi og bera teikningarnar þvi
gleggstan vott.
— Þú gefur út sjálfur . . .
— Já, ég er einlægur aðdáandi
einkaframtaksins þegar ég sjálf-
ur á i hlut og treysti helst engum
fyrir jafn viökvæmu verkefni og
útgáfa hugverka minna.
— Auglýsingar sjónvarpsins
segja að bókin sé uppseld?
— Hún er vafalaust ennþá til i
einhverjum bókabúöum, en hjá
forlaginu er ekki til einn stafkrók-
ur' áb.
Dregið
á morgun
f
HAPPDMTTI
ÞJÚflVILJANS
1974
r
Skrifstofa
Grettisgötu 3,
Reykjavik.
Simar 28655
^og 17500
Umboðsmenn og aðrir sem hafa happdrættismiða
undir höndum eru hvattir til að gera skil sem allra
fyrst. — Skrifstofan að Grettisgötu 3 er opin í allan
dag — sunnudag — Sími 28655.