Þjóðviljinn - 24.12.1974, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 24.12.1974, Qupperneq 8
* SÍPA ÞJOÐVILJINN — Jólablaft 1974 Einhvern veginn komust menn ah þvi heima á Islandi, að útvarp- að var á islensku frá útvarpsstöð- inni í Berlin á styrjaldarárunum siöari. Margir hafa þóst heyra i mér. Ýmislegt sem menn þóttust hafa heyrt kannaðist ég alls ekki við, fylgdist reyndar ekki með nema á timabili. Aðallega var út- varpað fréttum sem þjóðverjar útbýttu hinum erlendu sam- verkamönnum sinum, og hafa sennilega fæstir lagt eyru við þeim. Frægasta setningin sem menn þóttust hafa heyrt á Is- lensku er fyrirsögn þessarar frá- sögu. Sumir hafa jafnvel eignað mér hana, sennilega af þvi að ég var allþekktur heima. Ég hefi hvorki sagt hana né heyrt nema af vörum fólks heima eftir strið. En einmitt þess vegna þykir mér hlýða að lýsa að nokkru útvarps- starfsemi af Islendinga hálfu i Berlin á þessum árum. Mér er ekki kunnugt um, hvenær sendingar hefjast á Is- lensku, þvi frá 1940 til 1942 sit ég við hljóðmælingar suður i Brúns- vlk. En þá um sumarið, eftir að ég kom til Berlinar, frétti ég fyrst af þeim. Það munu i fyrstu hafa tekist samningar við Þórarinn Jónsson tónskáld um að senda út fréttir og hann siðar fengið sér einn og tvo menn eftir atvikum til aöstoðar. öll Norðurlönd höfðu slika starfshópa og voru herbergi þeirra staðsett hlið við hlið, en yf- irmaður þessara- norrænu deilda var þýskur, Schmidt að nafni. Þórarinn, sem ég þekkti ekki áður persónulega, en reyndist góður drengur I hvivetna, mun hafa lifað á einkakennslu á hljóð- færi. En i striðinu mun hann af eðlilegum ástæðum hafa litið haft að gera I þeirri grein og þvi tekið áð sér þessar útvarpsfréttir, sem stóöu yfir 15 minútur dag hvern. Hin Norðurlöndin höfðu lengri tima. Þórarinn var algerlega ópólitiskur maður og þvi varla hægt að leggja honum þetta til lasts eins og á stóð, einkum þegar tekið er tillit til þess hve litið var gert við slikar fréttir á íslandi, sem hersetið var af Englending- um, sem höfðu þar allt i hendi sér. Auk þess réði hann engu um þaö, hvaða fréttir voru fluttar. Það var merkt við þær klausur af hr. Schmidt. Um fyrstu sam- verkamenn hans veit ég litið en mjög snemma mun hafa unnið með honum maður að nafni Óskar Bjarnason. r Amorgun komum við aftur á sama tíma með sömu * Göbbels. Útvaroshúsiö f Berlin. Myndin er tekin 1939. lygarnar Eftir Svein Bergsveinsson Óskar Bjarnason Hann var garðyrkjumaður að menr.tun og hafði gefið út bók á islensku. Óskar var ekki ógeð- felidur I viðkynningu en einrænn og fór eigin götur. Helsti brestur hans var þó kæruleysi. Hann hafði verið giftur danskri konu i Höfn en skilið við hana. Þegar ég kynntist honum i Berlin var hann giftur þýskri konu sem var hölt. Faöir hennar taldist til góðborg- ara. óskar mun hafa sagt hina frægu setningu sem fyrr um get- ur, það var likt honum. Hann hætti við útvarpið, fékk starf hjá garðyrkjufyrirtæki, en lenti á villigötum og endaði ævi sina með ósköpum. Hann lést sumarið 1944 I fangabúðum i Sachsenhausen og var einn Islenskur stúdent hjá honum til siðustu stundar. Leifur Möller. Þvi er ekki ástæða til að rekja þá lifssögu lengra, en þess má þó geta, að pólitiskar orsakir lágu ekki fyrir handtöku hans. Eftir dauða Óskars kom kona hans til min með tilkynningu frá Sachsenhausen, að hann hefði lát- ist úr lungnabólgu i báðum lung- um. En þar sem þetta var venju- legasta dauðaorsökin á slikum stöðum bað hún mig um aðstoð við að rannsaka þetta nánar, sem reyndist ekki mögulegt. Eina örugga heimildin er þvi frásögn Leifs.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.