Þjóðviljinn - 24.12.1974, Síða 13
Jólablað 1974 — ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 13
I.
Húsið var hvitt með svörtu
þaki. Svörtu þaki gerðu af stein-
flögum sem gljáðu i rigningu.
Gluggaumgjarðir voru lika
svartar, en þær voru úr viði.
Otihurðin var afar skrautleg.
Otskorin og á henni miðri var
svartur, gamaldags dyrahamar.
En þeir sem þurftu að knýja dyra,
notuðu yfirleitt dyrasimann. Til
þess var ætlast.
Framhlið hússins, sú hliðin sem
útidyrnar voru á, var eiginlega
bakhlið, þótt hún sneri að götunni.
Götumegin var reyndar aðal-
inngangur undir skyggni, litað
ljós á stöng og malarsalli
meðfram gangstéttinni, en stolt
arkitektsins sneri I hina áttina út
yfir dalinn.
Götumegin var eldhús,
geymsla.sorptunna, og bilskúrar
Yfir dalinn horfði hinsvegar
veröndin framan við stófuflötinn
og um miðjan daginn á sumrin,
þegar sólin skein, þá endur-
varpaði stóra stofurúðan
sólargeislunum þannig að fólkið
sem átti heima i blokk I öðru
hverfi langt handan viö dalinn
fékk ofbirtu i augun.
Hvlta húsið með svarta þakinu
stóð efst á brekkubrún. Niður um
hliðina undir fótum Ibúa hvita
hússins var glæsileg byggð. Ot og
suður eftir hlíöinni höfðu menn
reist yfir sig vönduð hús og dýr og
það lá i augum uppi, að fólkið sem
i þessari dalbyggð bjó, var ekki
hiröingjar. Þetta fólk ætlaði að
búa þar sem það var komið til
æviloka.
Fólkið I Glæsibrekku, eins og
margir borgarbúar þeir sem
annars staðar bjuggu, voru farnir
að kalla þetta hverfi, var þó
nokkuö samhent. Það undi hag
sinum vel, heilsaðist þegar það
mældi gangstigana á heilsubótar-
göngum, kallaðist á milli afgirtra
garðanna, þegar það var að slá
grasið eða lagfæra túlipanana eða
stjúpmæðurnar I beðunum, og
stundum lét það undirskriftalista
ganga milli húsanna og allir
letruðu nöfn sin, börn og
fullorönir, enda var oftast um að
ræða áskorun til borgarstjórnar
um að gera úrbætur i einhverju
aðkallandi máli. Til dæmis var
lagður upplýstur gangstigur um
miðja hlíðina skömmu eftir eina
slika undirskriftasöfnun. Þannig
notfærðu ibúar hllðarinnar sér
jafnt mátt samtakanna og eigin
mátt og framtak við að byggja
hver sitt hús. Samtökin i hliöinni
urðu til þess, að íbúar Glæsi-
brekku bundust enn sterkari
böndum heldur en þeim sem i
fyrstu höfðu knýtt þá saman:
húsbyggingarnar á þessum stað.
Nú tóku þeir höndum saman um
að vernda byggðina sina, einsog
af sjálfu sér varð til félag vel-
stæðra húseigenda á einum
fegursta bletti borgarinnar.
Félagið þeirra, sem átti sér
ekkert nafn, efldist smám saman
og fékk eigin persónuleika.
Félagið varð til að sveipa Glæsi-
brekku og ibúa hennar verndar-
hjúp. Félagið dró hring um
byggðina, og sagði við aðra menn
i borginni og önnur félög: Komið
ekki lengra. Innnan þessa striks
býr mitt fólk i minni hllð I minum
húsum.
Félagið átti sér engar skrifaðar
reglur og enga stjórn. Samt var
það til. Stundum sannaði það
öðrum borgarbúum tilveru sina,
en aldrei þó eins áþreifanlega og
þegar sá atburður gerðist sem
siðan greinir frá.
En vikjum aftur að hvita
húsinu.
Gatan var á brekkubrúninni og
af brúninni var gengið inn i húsið.
Frá götunni virtist hvita húsið
með svarta þakinu ekki sérlega
stórt. Það minnti helst á skála.
Þakið að visu nokkuð hallandi að
götunni og með munúðarfullri
sveigju I miðju, sem gaf húsinu
sérkennilegan munaðarblæ.
Stæði maður I brekkunni neðan
við húsið, þá var einsog þar væri
allt annað hús. Það var byggt
niður i brekkuna, bæði horn þess
lengdust ótrúlega langt niður i
móti, þar eð súlur báru húsið uppi
þarna megin og það var ekki
einnar hæðar skáli, eins og menn
villtust á að halda stæðu þeir á
götunni og horfðu á það, heldur
var það þriggja hæða glæsihýsi
með langri verönd, og sveigju
þannig að viö borð lá að húsið
væri byggt I hálfhring.
Þegar ókunnugir komu að
húsinu I fyrsta sinn þarna
brekkumegin, geröu þeir ýmist
að blistra lágt i aðdáun, skella sér
á lær og segja jahérna hvilikt
hús! eða þeir gáfu frá sér
öfundarandvarp eins og segðu
þeir: hver á þetta voðafina hús?
mikið held ég mér llði vel I sálinni
ef ég ætti svona hús. Og ungir
menn og metnaðargjarnir hertu
sig við námsbækurnar er þeir
minntust hússins i Glæsibrekku
og i draumum þeirra um riki-
dæmi I framtiöinni, völd og fé, þá
var hvfta húsið ósjálfrátt áhrifa-
valdurinn. Svona vel hafði arki-
tektinum tekist.
Nú er að athuga hverjir það eru
sem búa I þessu fina húsi.
II.
Hann þótti alla tlð heillandi
maður. Ekki of feitur, ekki of
mjór, heldur I hærra lagi, blakkur
á hörund og hárið mikiö, svart.
Reyndar var þaö nokkuð farið að
grána i vöngum þegar þessi saga
gerðist, en það jók aðeins á glæsi-
leika persónunnar, og svört
leiftrandi augun, ófyrirleitin á
köflum, nutu sln enn betur i
andliti hans i þessari nýju
umgjörð.
Sjarmör, sagði fólk um hann,
og flokksbræður hans voru stoltir
af þessum foringja slnum. Þegar
hann hélt ræöur á fundum,
hlustuöu þeir með eftirvæntingu
eftir hverju orði, þvi að
maðurinn kunni að tala, og þeir
voru jafnan tilbúnir að klappa
kröftuglega þegar hann lauk máli
sinu. Og hann baðaöi sig i
fagnaðarlátunum, sendi konu
sinni leiftrandi hornauga og
hneigði sig fyrir vinum sinum i
salnum.
Hann var alltaf skemmtilegur.
Þótt hann talaði um efnahagsmál
og rikisreikninga, þá hafði hann
ótrúlegt lag á að krydda mál sitt
hnyttnum dæmisögum, mark-
sæknum skritlum og orðavali,
sem dillaði fagnandi sálum
flokksbræðranna.
Talaði hann i kapp við and-
stæðinga sina, flækti hann þá i
mótsögnum, rökum og fyndni,
þannig að fólk veltist um af hlátri
og gat ekki annaö en vorkennt
seinheppnum ræðumönnum sem
lentu milli tannanna á honum
Hávarði. Hávarði okkar, sögðu
flokksbræður hans, og konurnar i
kvenfélaginu horföu á konuna
eins og menn horfðu á húsið
þeirra I Glæsibrekku: mikið vildi
ég vera gift þessum manni sem
þú átt, sögðu konurnar með aug-
unum.
Hún fann hvernig þær horfðu á
hana og skildi hvað þær hugsuðu
og stolt rétti hún úr sér, dró að sér
andann og kastaði til höfðinu
þannig að ljós makkinn féll fram
með vanga hennar niður á bringu
og þá litu nú karlmennirnir við,
þvi hún var vel vaxin. Hún snerist
á hæli, stóö gleið framan við
áhorfendur sina, brosti smitandi
til karlmannanna og vissi að nú
dreymdi suma þeirra einum of
villimannlega drauma.
Nú voru árin að baki þeim farin
að nálgast fimmtiu. En aldurinn
hvildi á engan hátt á herðum
þeirra. Þau voru eldri, þroska-
legri en fyrrum, en glæsileg.
Hann var reyndar farinn að
grána. Og dekurleg bumban var
jafnan fegin að sleppa úr vestinu.
Hann var lika farinn að þrútna
nokkuð I andliti, en það stafaði
framur af vaxandi vindrykkju en
elli.
Hún leit út fyrir að vera
talsvert yngri en árin gáfu til
kynna. Vöxturinn næstum eins og
áður. Svolitið var hún farin að
fitna um mjaðmirnar, en mittið
var enn á sínum stað og brjóstin.
En hún var ekki eins teinrétt og
áður, axlirnar farnar að siga.
Hann stóð við stofugiuggann,
horfði út yfir veröndina.
Heimurinn var eyðilegur þetta
kvöld. Kalt, dimmt þrátt fyrir öll
kllóvöttin sem áttu að bregða
birtu yfir bardús manna* og
tungliö óð I skýjum einhvers
staðar ótrúlega langt I burtu.
Vindur og gnauð.
Hávarður var þrútinn og þung-
lyndislegur og skyrtan ógyrt,
axlaböndin héngu aftur af honum,
buxurnar i fellingum eins og væru
þær mörgum númerum of stórar,
berar tær, úfið hár, andskotinn
hugsaði hann. Og hafði ærna
ástæðu til að biðja þann vonda sér
til hjálpar.
Nú er hún eflaust sofnuð,
hugsaði hann, einkennilegt hve
hún tekur þessu létt. Gerir sér
ekki rellu út af hlutunum. Fer að
sofa.
Hann snerist á hæli, náði i
vindil úr krús, beit i hann og hélt
áfram að horfa á tóma veröldina
og tunglið I skýjunum fékk
heiftarlegt tillit þar sem það
glotti heimskulega til foringjans i
hvita húsinu. Ég læt ekki bjóða
mér þetta, hvæsti hann inn i
vindilinn, þetta er einum of langt
gengið.
Og Hrafnhildur sefur. Vaknar
seint á morgun, fer i kvenfélags-
kaffi seinnipartinn og kjaftar öllu
saman á sinn rólega geðprýðis-
lega hátt. Hún hugsar ekki! Það
er eins og hún hafi ekki til-
finningar, þessi kona.
Æ, taktu þvi ekki svona, sagði
hún. Taktu þvi ekki svona, sagði
hún og setti plötu á fóninn, náði i
simtæki, setti i samband og þegar
hann sá að hún hringaöi sig upp i
sófann og gerði sig blaöurskjóðu-
lega i framan, þá vissi hann að nú
átti að fara að stjórna
kvenfélaginu.
Og nú var hún sofnuð. Dreymdi
eflaust um stórkostlega sigra i
næstu kókóorrustu félagsins, eða
sveif á draumskýi sem fararstjóri
sjötiukerlingahóps til Mæjorku.
Þessi kona!
Nú skyidi enginn ætla, að
Hávarður væri I fyrsta sinn að
hneykslast á rólyndi konu sinnar.
öðru nær.
A sumrin hafði hún varla fyrir
þvi að tina á sig spjarir, þegar
hún sveiflaði sér fram úr á
morgnana og æddi út i sólbað.
Strákarnir i Glæibrekku fengu að
glápa sina lyst.
Æ — hrjóti hún þá, hugsaði
Hávarður, leitaði um stofuna eftir
eldspýtum.og þegar farið var að
rjúka úr vindlinum, gekk honum
betur að koma hugsunum sinum,
reiðibylgjunum, i farveg, sem
hann réð við. Harin kom skyrtunni
ofani buxurnar, fann sokka, skó
og vesti og ákvað að berja upp
bakdyramegin neðar i brekkunni.
Smásaga
eöa
öllu
heldur
fréttaskýring
eftir
Gunnar
Gunnarsson
III.
Kristófer gægðist út um rifu.
Þegar hann sá hver barði, bað
hann Hávarð að biða, lokaði
meðan hann náði keðjunni af, og
hleypti flokksforingjanum inn.
Kristó, eins og vinir hans kölluðu
hann, var skipamiðlari, og þótt
hann dáði Hávarð og fylgdi
honum dyggilega i flokknum, þá
var hálfgerð ólund i honum fyrst i
stað, enda kominn i náttföt og
búinn aö taka út úr sér tennurnar.
Hann horfbi spyrjandi á Hávarð.
Við verðurn að kalla saman
nokkra úr Brekkunni, sagði
Hávarður, ég hef frétt af leiðinda-
máli og ég held að við getum
komiö i veg fyrir slys ef við
köllum saman hverfisráð
flokksins núna. Getum við ekki
fengið mennina hingað? Má ég
hringja?
Kristó var fýlulegur. Hann náði
sér i tennur og slopp i svefnher-
bergið.
Mæja sefur svo fjári laust, þeir
vekja hana án efa. Getum viö
ekki hringt i Friðfinn?
Kristó gaf foringjanum koniak I
glas meðan hann klæddi sig og
náði svefninum úr andlitinu.
Þeir smugu svo út i nóttina,
settu i herðarnar i kuldanum,
brettu upp frakkakragann og
voru i framan eins og seinheppnir
innbrotsþjófar á flótta.
Þú veist um Ellivinafélagið,
sagði Hávarður á leiðinni.
Ellivinafélagið hefur fest kaup á
húsi hér i hverfinu. Það er ætlunin
að hafa hér hæli fyrir gamalt fólk,
og ég er.hræddur um að það verði
aðallega um að ræða fólk sem
þarf mikla umönnun, fólk ruglað
af elli, þú veist.
Hávarður talaði i hvislingum.
Kristó leit kviðafullur á hann:
Ertu alveg viss um þetta. Þetta
hverfi er skipulagt sem einbýlis-
húsahverfi og var talað um að hér
yrði aldrei haft fyrirtæki af neinu
tagi.
Borgarstjórinn segist ekki geta
stöðvað þessi kaup. Ellivina-
félagið hefur leitað stift eftir að fá
hús hérna.
Hvers vegna I ósköpunum
hérna?
Þetta er rólegt hverfi. Börn eru
hér fá, göngustigar á milli húsa
og engin hætta af bilaumferð. Svo
þykir húsið sjálft vist hentugt og
garðurinn umhverfis er stór.
Hvaða hús er það sem þeir ætla
að kauna?
Húsið rúbluprestsins, þú veist,
hann var gerður að presti austur
á landi.
Andskotans komminn!
Þeir komu að girðingunni
umhverfis lóð Friðfinns.
Hávarður greip I efsta lang-
bandið, sveiflaði sér yfir, blés
mæðinni þunglega og horfði á
Kristó paufast klaufalega yfir: ég
ætla mér að stöðva þessi kaup,
sagði hann festulega.
IV.
Þeirsettust i stofu hjá Friðfinni
ritstjóra, hringdu i vini sina i
hverfinu, og bráðlega höfðu
þrettán húseigendur úr Glæsi-
brekku safnast saman i stofunni.
Friðfinnur veitti þeim i staup og
gaf vindla.
Við hljótum að geta komið I veg
fyrir þetta Hávarður, sagði rit-
stjórinn, en rödd hans hljómaði
ekki sannfærandi, og þeir litu tólf
með spurn i augum til foringjans.
Eg hef rætt þetta við borgar-
stjórann. Hann getur ekkert gert.
Við vorum þeir asnar, þegar
hverfið var skipulagt, að gera
ekki skriflegan samning um að
hér mættu aðeins búa fjölskyldur
i eigin húsum. Það fór einhvern
Frh. á bls. 4 4