Þjóðviljinn - 24.12.1974, Page 29

Þjóðviljinn - 24.12.1974, Page 29
Jólablaft 1974 — ÞJÓÐVILJINN SIÐA 29 Hreingerningar Framhald af bls. 2 7. boltinn drengsins hennar i fram- sætinu. Það var ansi efnilegur krakki, — þessi drengur. Hann hafði reynt að stofna til kynna við hann og boðið honum sælgæti, en hann þáði ekki sælgæti, — munur eða aðrir krakkar í blokkinni, þessi óaldarflokkur, sem var við- búinn að snikja, ef á þau var litið. Og sjálfur átti hann svo sem dreng... Kristinn var afbrigðilegur, — já.bjálfi, —best að segja það eins og það var. Eins og gengur hafði ekki borið á neinu i fyrstu, þegar hann var smærri. En svo kom þetta allt smátt og smátt i ljós. Já, og var það ekki til marks um hvers konar manneskja Steinunn var, að hún hagaði sér við hann, eins og hann kæmi henni ekki við. Þó vissi hann að mæðrum ætti að þykja vænst um þau börnin, sem bágasta áttu æfina. En ekki Steinunn... Þess vegna var það hann sem fór með hann i göngu- ferðirnar. Hann hafði sannarlega lagt á sig... En Kristinn var lika hændur að honum og leit upp til hans. Það vantaði ekki. En hon- um var ofraun að gefa sig að hon- um, — lengi. Það gerði þessi kjánasvipur. Það gat sett að manni svo undarlega tilfinn- ingu... að ekki sé minnst á þessa uppgötvun um daginn. Auðvitað mátti vita að að sliku hlaut að koma, — orðinn fjórtán ára. En svona hlutir urðu svo óhugnan- legir, þegar fáráðlingur eins og Kristinn átti i hlut... Regnvatnið var farið að leka niður um hálsmálið á honum. Honum datt byggingin aftur i hug. Hann ætlaði að koma við á heimleiðinni og vita hvernig gengi þar uppfrá. Hann hafði sagt henni frá byggingunni þarna um kvöldið, — að hann ætlaði að stækka við sig, — einbýlishús. Hún hafði spurt og verið full áhuga, — eins og hún ætti að flytj- ast þangað sjálf. Ekki sást á Steinunni að henni þætti mikið til um stórhug hans, þótt hún væri sú sem ætti að flytja i einbýlishús. Annars var ekki að vita hver flytti hvert á endanum, máttu þau vita, systkinin! Hann hrökk upp úr hugleiðing- um sinum. Jú, ekki bar á öðru! Þarna kom hún aftur. Hvaða ferðalög voru þetta á henni? Fólk gat leyft sér svona á skrifstofun- um, — gat sifellt verið að hlaup- ast frá. Til allrar hamingju var hann kominn nokkurn spöl frá bflnum og var á leið að húsdyrun- um á ný. Óumflýjanlega mundu þau mætast. Hann gekk niðurlút- ur og hlustaði spenntur á fótatak hennar nálgast. — Hvernig geng- ur? spurði hún kumpánlega. —■ Vel, bara vel, svaraði hann og leitaði að einhverju til að bæta við, en datt ekkert I hug. — Maður er mest í byggingunni, sagði hann loks, en hún heyrði það ekki, var komin of langt frá honum. Kann- ski hafði hún ekki einu sinni heyrt, þegar hann sagði að það gengi „bara vel”. Marinó og þeir hinir sátu enn á bekknum, og þótt honum væri skapi næst að ganga fram hjá þeim, hætti hann við það og stans- aði. Undir niðri stóð honum beyg- ur af Marinó. Nú, — hann var þá að reykja einn af lyktvondu vind- lingunum. Þvi I andsk... hafði hann þurft þess einmitt nú. Hún hlaut að hafa fundið bræluna af honum, þegar hún gekk framhjá. En I sjálfu sér kom honum það ekki við, þótt svo Marinó væri vinnufélagi hans... Ekki var pest- in af honum! — Hún spurði eftir þér sagði Marinó. Hann var með fullan munninn og hefði greinilega vilj- að segja meira, en honum var of örðugt um tungutak. Hinir kink- uðu kolli, eins og þeir hefðu sjálfir ætlað að verða fyrstir til að segja honum tlðindin. Svo hún hafði þá spurt um hann. Þaö var ekki nema um eina „hana” að ræða. Hann átti fullt I fangi með að sýnast rólegur. — Hún bað þig að fara inn til fulltrúans. Marinó hafði komið niður munnfyllinni. Til fulltrúans? Hann fann til vonbrigða. Hvers vegna hafði hún ekki sagt honum það sjálf, þegar þau hittust úti fyrir? — Ætli við förum ekki að hafa okkur að verki, sagði hann þurr- lega og gladdist, þegar hann sá á þeim vonbrigðasvipinn. Þeir höfðu vlst haldið að hann hlypi upp til handa og fóta! — hann skyldi ekki láta sér liggja á að finna þennan fulltrúa. Nógur yrði timinn... Hvað var annars með hana? Þóttist hún ekki geta talað við hann nema með skilaboðum? Einhverntima skyldi hann taka hana tali, Augljóslega þurfti að ýta dálítið við henni. Hún hafði llka stigið fyrsta skrefið, — sann- gjarnt að hann stigi það næsta. Bara að hann hefði ekki hætt I tollinum. Það var svo allt öðru vlsi starf en hreingerningarnar. Hreinlegt, — og hægt að útvega ýmislegt. Allir voru ginnkeyptir fyrir slíku. Auðvitað hefði Stein- unni ekki þurft að gruna neitt. Og hefði Marinó farið að gruna eitt- hvað, — óneitanlega var hann slægvitrari en Steinunn, — hefði hann einfaldlega lagt spilin á borðið, — velt þvi of an af sér,- öllu hyskinu. Hann keppist við vinnuna. Það var mál til komið að flytja stig- ann. Hann hóf fötuna af naglan- um og tók að feta sig niður þrepin. Marinó var að troða sér I pípu. Það var ekki fyrsta plpan, sem sá maður tróð sér I á deginum! Það var notalegt að taka góð laun fyr- ir slik vinnubrögð, öruggur i skjóli Steinunnar! Steinunn þáði lika að hafa hann eins og vörð yfir honum, vakandi hvert hans spor og hlerandi eftir hverju hans orði. Hann hafði svo sem reynt að það skilaði sér til hennar, — það sem henni var fengur i að frétta. Þarna kveikti hann í pipunni. Hvfllk sallarólegheit! Og ekki hafði stiginn verið færður aftur! Hvernig stóð á að hann lét bjóða sér þetta? Ef það væri einhver mannsbragur að honum, léti hann Marinó heyra það, næst þegar hann þættist ekki einfær um að flytja til stigann: — Það tekur þvi ekki, Marinó, — ætti hann að segja. — Það liggur ekki svo mikið eftir þig hvort sem er! — Hvernig ætli strákarnir brygðust við? Skyldu þeir standa með Marinó, eða yfir- gæfu þeir hann, þegar þeir fyndu alvöruna? Það var þó hann, sem stjórnaði verkinu, en ekki Marinó. En ef flokkurinn snerist gegn honum, með Marinó i broddi fylkingar? Hver vissi nema þeir tækju sig bara saman og færu. Auðvitað gátu vanir hreingern- ingamenn spilað upp á eigin spýt- ur, — og án hans. Annars dugði ekki að láta þetta yfir sig ganga öllu lengur. Hann varð að herða sig upp og breyta um stefnu, gera það öllum ljóst, hver stjórnaði, —ekki bara henni, — öllum! Já, þótt þeir tækju sig saman og færu, — þetta gekk ekki! Marinó hafði stungið pipunni I vasann og var að flytja stigann til, — upp á eigin spýtur! Honum létti. Hann sat um stund I bílnum, eftir að hafa drepið á honum og stungið lyklinum í vasann. Það var kveikt uppi. Þau biðu þá eftir honum. Ekki var billinn hennar sjáanlegur neins staðar! Honum leyfðist vist ekki að geta sér til um hvar hún mundi vera, fyrst hún var ekki komin heim! Annars varðaði hann ekki um hvar hún hélt sig, — nema hann taldi víst að einstæðar mæður ættu nóg með að sinna sinu'm krökkum, ha, ha. Og svo þóttist hún ekki geta vis- að honum inn á skrifstofuna, nema með að senda honum skila- boö. Jú, ekki bara á öðru, hún var vlst fulltrúi. Það fannst llka á. Hún hafði farið að spyrja hann um hreingerningastarfið, eins og hún hefði bara heilmikinn áhuga á þvl. Þó hafði hann reynt að minnast á bygginguna. Hann hafði sagt að meira væri upp úr hreingerningum að hafa en tollin- um, en hún heyrði það vist ekki, — sýndist of upptekin að ráðgast við skrifstofustrákinn um hvert ætti að senda þá næst, — spurði ekkert um tollinn. Einkennilegt, hvernig hún lagði sig fram um að heyra ekki, þegar hann reyndi að beina talinu frá hreingerningum. Kvenfólk mátti bókstaflega ekki fá nein áhrif, — þá umturnaðist þaö I hroka. Og svo sat þessi strákur aö henni, — unglingsdjöfull. Já, já hann hafði séð hvernig hann virti hana fyrir sér, þegar hún leit á hann, til að spyrja hvert ætti að senda HANN næst, HANN, — mann á besta skeiði. Hún spurði þennan krakka að þvi! Sjálfsagt var þetta hámenntað kvikindi, kannski verslunarlærður eins og hún, —og fallegur, maður lifandi, Vangarnir eins og flauel og svört skeggló á hökunni, Hann sá þau fyrir sér saman. Hvað skyldi hún hafa sagt um hann, þegar hann var farinn út? . . . sennilega ekki neitt. Annars mátti vist mala saman I svona kompu, — hefði fullt eins getað verið svefnher- bergi. Hann blés mæðinni I stiganum fyrir framan Ibúðina hennar. Hann verkjaði I hendurnar. Hann hafði komið við I byggingunni á heimleiðinni. Dælan hafði ekki undan. Þaðhafði rignt of mikið og allur kjallarinn fullur af forar- vatni. Auk þess var dælan á sið- asta snúning, það lak með spennu á slöngu, hún skalf öll og skókst, — hö, hö, sagði hún. Hö, hö, — eins og Marinó. Marinó, — ha, ha! Hann hló, — eða öllu heldur ætl- aði að hlæja, en hláturinn varð að reiði. — Komdu þér inn fyrir, óeðlisrokkurinn þinn, sagði hann viö drenginn, sem stóð á dyra- þrepinu og breiddi við honum faðminn. Hvar hafði . . . hver hafði látið hann fá einkennishúf- una? Hann roðnaði, eins og hann hefði verið niðurlægður. Annars skipti þetta ekki máli. Hann hljóp til og kitlaði strákinn undir höndunum, svo hann hló og hló og snerist um. í látunum náði hann af honum húfunni, án þess að hann yrði þess var. — A eftir förum við I leik, sagði hann og leit snöggt yfir öxl sér til son- arins, sem stóð ráðvilltur og *fór höndum um bert höfuð sér. s GARÐAHREPPI. — SIMI: 51900 BRAUTRYÐJENDUR í SMÍÐI SKUTTOGARA Á ÍSLANDI. 0 P V o 1 D féSe ^ y r£°S&*. <^s' /s^ s / r *'ryT>s h * krs ‘Vy

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.