Þjóðviljinn - 05.01.1975, Side 11
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 5. jantíar 1975.
Sunnudagur 5. janúar 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Eygló Eyjólfsdóttir
kennari/ sem nú er
búsett í Kenya,
hefur sent jafnrétt-
issíðunni grein þá
sem hér birtist um
stöðu kvenna í
Kenya, en hún sat
nýlega ráðstefnu
kenyanskra og
sænskra kvenna um
þetta efni.
í bók sinni „Fólk mitt,
Kikuyuarnir”, rekur Jomo
Kenyatta goðsögnina um uppruna
Kikuyuanna og skyldra ætt-
flokka. Guðinn Mwene leiddi
fyrsta manninn, Gekoyo eða
Kikuyu upp á snævi þakta tinda
Kenyafjalls, benti honum á hið
gróskumikla.land umhverfis fjall-
ið og bauð honum að yrkja það
og uppfylla með konunni Mumbi,
sem hann gaf honum. Kikuyu
settist þarna að og eignaðist niu
dætur með konu sinni en engan
son. Samkvæmt ráðum guðsins
færði Kikuyu fórn sina og birtust
þá niu ungir menn, forfeður hinna
ýmsu ættflokka. Mörgum öldum
siðar tókst konunum að ná völd-
um af karlmönnunum og stjórna
af hörku um alllangan tima. En
þar sem þær sýndu litla ábyrgð og
skynsemi I græðgi sinni I forrétt-
indi og völd og voru bæði grimm-
ar og miskunnarlausar, gátu
karlmennirnir ekki unað við slikt
lengur og náðu stjórn mála aftur i
slnar hendur. Þeir fóru lævlslega
að, gerðu þær allar barnshafandi
á sama tlma og notuðu svo tæki-
færið, meðan konurnar voru að
fæða.
1 hegningarskyni við konur var
fjölveri afnumið þegar f stað og
fjölkvæni komið á. Gömlu
mennirnir gátu þá rétt sinn hlut
og kvænst mörgum ungum kon-
um og var þá af, sem áður var, áð
konurnar nytu lifins I félagsskap
ungra manna sinna en létu eldri
menn vinna myrkranna á milli-
Hjónabönd
Enn I dag tiðkast f jölkvæni hér i
Kenya. Flestir ganga i hjónaband
samkv. kristnum hjúskaparlög-
um, en þá gildir einkvæni og eru
önnur hjónabönd viðkomandi
manns ólögleg. Engu að síður
taka menn sér gjarnan fleiri kon-
ur. Lagalegur réttur þeirra er
enginn. Við fráfall mannsins eða
skilnað fá þær og börn þeirra ekk-
ert i sinn hlut, nema maðurinn
hafi gert erfðaskrá.
Onnur tegund hjúskaparlaga
eru hin almennu lög um hjúskap.
Algengt er, að stofnað sé til
hjónabanda skv. þessum lögum i
dreifbýlinu. Jafnskjótt og karl-
maðurinn hefur greitt foreldrum
konuefnis sins umsamið verð,
sem ýmist er greitt I kvikfé eða
reiðu fé telst konan gift. Lög þessi
heimila fjölkvæni og eru allar
konurnar jafnar fyrir lögum, t.d.
við skiptingu erfðaf jár. Þess hafa
nýlega verið örfá dæmi, að kona
sem skilur við mann sinn, hljóti
einhvern hlut eigna þeirra, en
börnum sinum, landi og fasteign-
um heldur maðurinn nánast allt-
af. Þykir hin mesta hneisa að
hlaupastburt frá manni sinum og
taka foreldrar slikrar konu ekki á
móti henni með neinni ástúð og
engan rétt á hún til eigna þeirra.
Fleiri lög um hjúskap eru i
gildi. Vegna þekkingarleysis og
einnig þess, hversu flókin löggjöf-
in viröist vera, eru konur almennt
mjög fákunnandi um réttindi sin
á þessu sviði. Er nú I ráði að gefa
út bækling um þessi mál og dreifa
meöal unglinga I skólum.
Nokkur breyting hefur orðið á
hlutverki konunnar á undanförn-
um árum. Ættflokkakerfið hefur
riðlast mjög með tilkomu nútima-
legra lifshátta og breyttra
framleiðsluhátta. Aður fyrr
ræktaði konan matjurtir heima á
Julia Ojjiambo aftstobarrðAherra I reftuatól I Hlutverkaaklptiagin hefst snemma — ungar telpur vift vatnsburft Danshópur kikuyukvenna vift hátfftlegt tækifæri
Umsjón: Vilborg Harftardóttir
sinum shamba til eigin nota og
seldi það sem aukreitis varð. Hún
var þvl oft sjálfstæður framleið-
andi og hafði ráðstöfunarrétt yfir
þvl fé, sem hún aflaði. Karl-
maðurinn hjálpaði dálltið til við
ræktunina, sá um viðhald húsa,
tók þátt I sameiginlegri vinnu
samfélagsins, aflaði kjöts og
klæða og fræddi ungviðið um lif
forfeðranna. Nú hefur hið hefð-
bundna lifsform orðið að vikja
fyrir nútlmalífsháttum, sem slður
en svo bæta kjör kvenna.
Karlmaðurinn sækir nú vinnu
fjarri heimili slnu eða framleiðir
seljanlega vöru, s.s. kaffi, te,
slsal, sem hann selur með hjálp
slns samvinnufélags. Kona hans
er nú oftast verkakona hjá manni
slnum og vinnur mestu erfiðis-
vinnuna. Launin fyrir erfiðið
renna inn á hans reikning hjá
samvinnufélaginu.
011 vinna innan heimilins er
mál kvenna, ræktun matjurta til
eigin nota, dagleg umsjón með
geitum, hænsnum og auðvitað öll-
um barnafjöldanum, og siðast en
ekki sist er það þeirra verk að
bera vatn, eldivið og aðrar
nauðsynjar til heimilis um lang-
an veg á höfðinu eða bakinu.
Vatnsburðurinn einn getur tekið
hálfan dag, sérstaklega um
þurrkatimann. Það er undarleg
sjón að sjá þær hálfbognar og rið-
andi undir ótrúlega þungri byrði
af eldiviði eða bárujárni og sjá
svo manninn ganga á undan laus-
beislaðan og léttan I spori.
Börn sin bera þær á bakinu allt
frá fæðingu og þar til þau eru fær
um að trltla á eftir þeim. Efnis-
ræmu er brugðið undir afturenda
barnsins og bak og bundin fram
yfir öxl móðurinnar, þannig að
barnið húkir I sitjandi stellingu
við bak móður sinnar. Mann-
fræðingurinn Margaret Mead,
sem dvalist hefur langdvölum
meðal afriskra þjóða, telur, að
taktfestasú og léttur limaburður,
sem einkennir Afrikubúa, eigi
rætur sínar að rekja til þeirra
hreyfinga sem barnið tekur þátt I
með móður sinni fyrstu árin.
Fjölskylduáætlanir
Fólkinu fjölgar ört og er talið,
að fólksfjöldinn I landinu tvöfald-
ist á 20 árum. Fjölskylduáætlanir
gengu illa I byrjun og töldu menn,
aðallega karlmen'n, getnaðar-
vörnum allt til foráttu og töldu
þær af hinu illa. Ástæður þessa
eru llklega aðallega tvær. Annars
vegar er þörfin fyrir mörg börn
vegna öryggisleysis I ellinni, þvi
að eina liftrygging almennings I
þessu landi er stór hópur afkom-
enda. Hins vegar þykir nokkur
skömm að þvi að eignast ekki
mörg börn og er litið niður á slik-
ar konur. Þá þykir mér liklegt, að
fólki þyki hér verið að trufla eöli-
legan gang náttúrunnar; honum
þótti það manninum, sem skrifaði
nýlega I lesendabréf dagblaðs, að
getnaðarvarnir væru ágætar fyrir
Evrópubúa, en þeir skyldu ekki
vera að þröngva almenningi i
Kenya til að nota þær. Hér væri
landrými nóg, ólikt þvi sem væri I
Evrópu, og Kenya þyrfti stóra og
sterka þjóð. Og náttúran hefur
sinn gang, I norðurhéruðum
landsins stækka þurrkasvæðin,
stuttu regnin brugöust I fyrra og
ræktað land skortir. Eftir þvl sem
þekking manna eykst, viður-
kenna fleiri nauðsyn takmarkana
barneigna og notfæra sér ókeypis
getnaðarvarnir, sem heilsu-
gæslustöðvar láta I té.
Skóla- atvinnu-
og launamál
Þegar landið varð sjálfstætt árið
1963 voru til 3 framftaldsskólar
fyrir stúlkur i landinu,en nú hefur
sú tala tlfaldast. Þó eru fleiri
drengir en stúlkur við nám, þvi að
skólagjöld eru nokkur og geta
orðið erfið barnmörgum fjöl-
skyldum. Þó hafa margar konur
aflað sér æðri menntunar og kosið
sér starf á ýmsum sviðum visinda
og mennta. Olæsi er enn algengt I
dreifbýlinu, en þvi ætlar stjórnin
að útrýma fyrir árið 1980.
Opinberir starfsmenn fá laun
skv. opinberu launakerfi. Skv. þvl
fá menn sömu laun fyrir sömu
vinnu án tillits til kynferðis, og
konur fá tveggja mánaða launað
barnsburðarfri. Um starfsfólk
einkafyrirtækja gilda mismun-
andi reglur, allt eftir þvi, hversu
sterk samtök starfsfólksins eru.
En þar sem þau geta verið harla
bágborin, er sú regla gjarnan I
gildi, að karlmenn eldri en 18 ára
skulu fá hærri laun en yngri karl-
menn og kvenfólk, þótt um sömu
vinnu sé að ræða. Konur eiga vlða
rétt á tveggja mánaða leyfi á
launum vegna barnsfæðingar, en
fæstar hafa hugsun á að leita þess
réttar.
Þar sem atvinnuleysi er mikið I
landinu, eiga konur oft erfitt með
að fá launaða vinnu. Tímabund-
inn vinnuaflsskortur verður þó I
sumum atvinnugreinum, t.d. þeg-
ar kaffiberja- og telaufatinslan
stendur sem hæst. Þá eru konur
að sjálfsögðu velkomið vinnuafl
og fara laun þeirra, eins og karl-
mánnanna eftir afköstum við
vinnuna. Annars eru mánaðar-
laun verkakvenna hérna á kaffi-
ekrunum I kririgum mig um 100
Kenyashiflingar á mánuði eða um
1800 Isl. krónur.
Kvennaárið 1975.
Nú er manni spurn. Hefur al-
þjóölega kvennaárið 1975 nokkra
merkingu meðal kvenna, sem svo
illa eru settar vegna fáfræði, mis-
mununar, fátæktar og þrældóms,
kvenna, sem til skamms tlma
bjuggu við tvleflda undirokun,
sem Ibúar nýlendu og sem óæðri
Ibúar I þokkabót?
Jú, hér á að minnast kvenna-
ársins á margan hátt. Málefnin,
sem forgang hafa, eru að sjálf-
sögðu önnur en i þróaðri löndum.
Hér er lögð áhersla á þörf dreif-
býliskvenna fyrir hreint og nægt
vatn,heilsugæslu svo skammt frá
hverri byggð, að þangað megi
fara fótgangandi. og fleiri barna-
skóla. Þá eru konur hvattar til að
taka meiri þátt I uppbyggingu
landsins, þróun samvinnufélag-
anna og hinum ýmsu sjálfs-
hjálparáætlunum. Hér eru llfs-
nauðsynjar nefnilega ennþá aðal-
atriðið og kenyanskar konur
brosa I kampinn, þegar þær heyra
um vandamál Evrópukvenna, t.d.
kröfuna um frjálsar fóstureyð-
ingar. Þeirra vandamál eru auð-
vitað langt að baki I okkar samfé-
lagi.
Þá skyldi maður ætla, að þeim
þætti hlutskipti okkar eftir-
sóknarvert og reyndu að feta I
sömu fótspor eftir mætti. Það má
lika með sanni segja, að svo er.
En þeim eru, þótt undarlegt megi
virðast, ljósir ýmsir vankantar á
fordæmi okkar og benda óhikað á
það öngstræti, sem lifshættir
margra á norðurslóðum hafa rat-
að I. Félagsleg einangrun smá-
fjölskyldunnar og upplausn fjöl-
skyldullfsins I stórborgum eru
víti, sem hérlendar konur ætla að
varast, hver svo sem ráðin verða.
Konur i sókn.
Kvennasamtök starfa viða i
landinu, þar af ein, Maendaleo ya
wanawake („Konurí sókn”) með
um 100.000 félagskonur og karla.
Aðalhlutverk samtakanna er að
fræða konur, kenna þeim nær-
ingarfræði, ræktun matjurta,
meöferð ungbarna og heilsu-
gæslu, takmarkanir barneigna
o.s.frv. Einnig reyna þau að
þjálfa konur i handiðnaði og selja
siöan framleiöslu þeirra til fjöl-
býlissvæða.
Staða borgarkvenna er mjög
frábrugðin stöðu kvenna úti á
landsbyggðinni. Stássdrósir
Nairobiborgar llkjast meira kyn-
systrum sinum I borgum Evrópu
en sveitakonum Kenya, sem eru
að sligast undan þungum byrðum
meðfram vegum landsins.
Mörg vandamál kvenna hér á
landi eru vandamál vanþróaðs
lands og snerta alla ibúa þess.
Önnur eru beinlinis tilkomin
vegna þess að karlmenn halda
um stjórntaumana. Ég segi
kannski ekki, að hjörtum karla
svipi saman I Kenya og Kópavogi,
en þó þekkjum við mörg þessara
vandamála heima og eigum enn
við þau að etja.
Af 158þingmönnum, sem kosnir
voru I þingkosningunum i okt s.l.
voru 5 konur. Hún var hnarreist
og hýr hún Julia Ojiambo að-
stoðarráðherra, sem sór þjóð
sinni trúnaðareið i Frelsisgarðin-
um I Nairobi seint I október. Hún
er fyrsta konan, sem hlýtur slikt
embætti hér á landi og sýnir út-
nefning hennar, að konur sækja
fast fram, þótt heimaland þeirra
teljist vanþróað.
Frá 1. mal samkomunni, sem iangbrekur stáftu fyrir. AsifBæi ræftustól
Leikræn stæling þekktra augiýsinga vakti miklnn klátur (og vonandi umhugsun) áhorfenda
LANGBRÆKUR
Jafnréttishópur íslenskra kvenna í Osló
Um 100 íslendingar eru
við nám í Osló. Þessi hópur
hefur látið talsvert til sin
takaog er þar mikil félags-
starfsemi og skemmst að
minnast herferðar þeirra í
landhelgismá linu, sem
reyndar aflaði þeim óvin-
sælda hjá yfirmönnum
Nató í Noregi.
Jafnréttismálin hafa
verið ofarlega á dagskrá
hjá íslensku nýlendunni í
Osló, ekki síst siðan konur
þar bundust samtökum og
stofnuðu jafnréttishópinn
„Langbrækur" í fyrravet-
ur. i eftirfarandi grein
segir Ágústa Stefánsdóttir,
sem er við nám i hug-
myndasögu í Oslóarhá-
skóla, frá starfi langbrók-
anna.
Jafnrettisbaráttan I Noregi er
oröin mikilvægur þáttur I stjórn-
málum þarlendis. Konur þar eru
aimennt nokkuft meftvitaftar um
stöðu sina, og er þaft tii marks, að
I Noregi (Oslo) er minni kyn-
skipting I störfum en vlöast hvar.
En þetta má ekki skilja svo, að
jafnréttisþjóðféiagið sé að finna
þar. t Noregi heldur baráttan
áfram af krafti, og m.a. þess
vegna fæddist félagið Langbræk-
ur. Foreidrar Langbróka eru is-
lenskar námskonur I Osló. Við er-
um þó ekki allar í námi, nokkrar
eru húsmæður, aðrar vinna önnur
störf.
Ég fór út I byrjun mars. Ekki
leið á löngu, þar til ég varð vör vift
starfsemi Langbróka, en ekki fór
ég beint inn I neinn starfshóp-
anna, þvi veturinn var að enda.
En undirbúningsstarf að 1. mai
var vcrkefni, sem allir hóparnir
ætluðu að sjá um i sameiningu.
Margir fundir voru haldnir þá til
að ræða um dagskrá og skipulag
dagsins, siðan skiptum við niöur
verkefnum. Við Aslaug Agnars-
dóttir fengum t.d. það verkefni að
sctja upp síultar leikrænar stæl-
ingar á þekktum auglýsingamó-
tivum. Allir þekkja það vafalaust,
hvernig fallegur kvenmannsli-
Agústa Stefánsdóttir.
kami er notaður til að auglýsa
hvaða vöru sem er, áfengi, hrein-
lætisvörur, tóbak, bila o.s.frv.
Starfsemin byrjaði aftur strax I
haust. Við hófum starfið með
sameiginlegum fundi til að ræða
vcrkefnaval vetrarins og niður-
röðun I hópa. Við létum tilviljun
ráða hverjar lentu saman, en
starfandi eru nú þrir u.þ.b. sjö
manna hópar. Við vorum allar
sammála um, að brýnasta verk-
efnið væri að gera stefnuskrá fyr-
ir hreyfinguna, en svo skyldum
við halda málfund, opinn fyrir
alla þá islcndinga, sem áhuga
hefðu á jafnréttismálum. En af
þvi að flestar okkar höfðu aldrei I
pontu stigið, ákváðum við að
halda tvo fundi, fyrst einn bara
fyrir okkur, þar sem rætt yröi um
stefnuskrána. Enga frummæl-
endur höfðum við, en ritara og
fundarstjóra. Þegar að fundinum
kom, var búið að ræða stefnu-
skrána i hópunum. Það kom i Ijós,
að flestar höfðu eitthvað að segja,
svo umræöur urðu bæði frjóar og
skemmtilegar.
Eitt helsta deiluefni fundarins
var hvort bæöi kynin ættu að
starfa saman i baráttunui, eða
Hver á aft ráða, konan efta læknirinn, — og hvafta tilviljun skyidi ráfta
ákvörftun hans?
hvort við þyrftum meiri undir-
búnings- og uppbyggingarstarf
okkar sjálfra áður en körlum væri
hleypt inn i hópana. Allar vorum
við þó á einu máli um það, að
karlmenn eru engu síður kúgaðir
en við, þeir eiga t.d. aldrei neinn
valkost, hvort þeir vilja vinna úti
eða heima, þeir eiga að vera fyr-
irvinnurnar. Deilan snerist um
það, hvort við værum búnar að
átta okkur nægilega vel á okkar
sérstöðu sem kvenna til að geta
starfaö þannig við hlið karlmann-
anna að jafnrétti i þjóðfélaginu.
Cr þessu varð ekki skorið, en
hver hópur varð að ákveða sjálf-
ur, á hvaða grundvelli hann vildi
starfa.
Seinni málfundurinn, sem var
öllum opinn, fjallaöi um hverjar
afleiðingar yrðu af þvi, ef allar
konur færu að taka jafn mikinn
þátt i atvinnulifinu og karlar.
Þessi málfundur var ekki eins
skemmtilegur og hinn, a.m.k.
Iivað fjörugar umræður snerti.
Verkefni eftir áramót eru ekki
endanlega ákveðin, en einn hóp-
urinn ætlar að þýða greinar úr
norskum blöðum og timaritum og
senda hingað heim þær sem best-
ar þykja. Annar hópur ætlar að
undirbúa leshring fyrir nýkomna
næsta vetur. En fyrir utan eigin-
leg afkastastörf lesum við saman
bækur og ræðum saman um jafn-
réttismálin og persónulega
reynslu okkar af misréttinu rnilli
kynjanna.
Sem komið er, eru Langbrækur
samtök án flokkspólitlskrar linu.
1 cðli sinu geta samtökin aldrei
verift annað en opin I báða enda,
þvi fólk er alltaf að koma og fara.
En i litlu samfélagi virftast fleiri
taka þátt i félagsstarfi, og við
vonum, að það sem við gerum
sem Langbrækur i Osló sé gott
undirbúningsstarf fyrir átökin
sem verða hér heima á næstu ár-
um.
Agústa Stefánsdóttir