Þjóðviljinn - 05.01.1975, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 05.01.1975, Blaðsíða 19
Sunnudagur 5. jarníar 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 19 I' Góblanhverfinu í París var einu sinni gömul norn, ofboðs- lega gömul og Ijót. En hana langaði til að vera fallegasta stúlkan í heiminum! Einn góðan veðurdag er hún að lesa í Nornamogga og rekst þar á þessa tilkynningu: KÆRA FRÚ! Ef þér eruð gömul og Ijót getið þér orðið ung og fögur! Og það með því: Að borða litla stelpu með tómatsósu! Og þar neðanundir stóð með smáletri: En gætið vel að! Nafn þessarar litlu stelpu verður endilega að byrja á stafnum N! Og einmitt í þessu sama hverfi var lítil stelpa sem hét Nadja. Þetta var eldri stelpan — Mér þykir fyrir því, sagði Nadja og roðnaði, en pabbi bannaði mér það. Hann segir að þér eigið að koma sjálf. — Ágætt, sagði sú gamla, ég kem. Og undireins þann sama dag kom hún í nýlenduvörubúðina: — Góðan daginn, herra Saíd. — Góðan dag, frú mín. Hvað var það fyrir yður? — Ég ætla að fá Nödju. — Ha? — Æ, forlátið! Hvað ég vildi sagt hafa: f lösku af tómatsósu. — Jú, akkúrat! Stóra eða litla? — Stóra, það er út á Nödju... — Hvað þá? — Nei, nei! Hvað ég vildi sagt hafa: það er út á spaghettí... — Jú, einmitt! Ég á spaghettí hérna líka.... sem hefur tekið hana, ég verð að fara og frelsa hana. Hann tók nú gítarinn sinn og hélt í Múfftargötu. Þegar sölu- kellingarnar 267 (sem allar voru ein og sama nornin) sáu hann þá tóku þær til að öskra. — Hvert ertu eiginlega að fara, Basír? Basír lokaði augunum og svaraði: — Ég er fátækur, blindur söngvari og ég ætlaði að syngja smásöng til að fá nokkra aura. — Hvaða söng þá? spurðu sölukelliiigarnar. — Mig langar að raula söng sem heitir Hvar ertu Nadja? — Nei, ekki þann söng! Syngdu eitthvað annað! — En ég kann ekkert annað! — Jæja, syngdu hann þá ofur lágt! NORNIN í Mufftárgötu EFTIR PIERRE GRIPARI FYRRI HLUTI hans Papa Saíd (sem þið máske þekkið) en hann á nýlenduvöru- búðina í Brokkagötu. — Éq þyrfti að éta Nadiu, sagði Nornin við sjálfa sig. Éinn daginn þegar Nadja var að fara út í bakarí kom gömul kelling og stoppaði hana: — Góðan dag, Nadja litla! — Góðan daginn! — Viltu gera dálítið fyrir mig? — Hvað? — Að fara fyrir mig og sækja flösku af tómatsósu hjá honum pabba þínum. Þá þarf ég ekki að fara sjálf, ég verð svo þreytt! Nadja var hjartagóð og gerði þetta undireins. En hún var ekki fyrr horfin en nornin — því þettavarhún —fóraðhlæjaog núa saman höndunum: — Æ, vonskan í mér! sagði hún. Nadja litla ætlar sjálf að sækja handa mér sósuna til að éta með henni. Þegar Nadja kom heim með brauðið fór hún beint og tók tómatsósuflöskuna úr hillunni. Hún var á leiðinni út þegar pabbi hennar stansaði hana: — Og hvert ætlarðu með þetta? — Það er gömul kelling sem bað mig að færa sér þessa tómatf lösku. — Vertu kjur, sagði Papa Said. Ef þessi kelling þarf eitt- hvað þá getur hún komið eftir því sjálf. Nadja var afskaplega hlýðin og gegndi þessu. En daginn eftir stoppaði kellingin hana aftur þar sem hún var að sendast. — Jæja, Nadja mín? Hvar er tómatsósan? — Ö, en það er óþarfi, ég hef Nödju... — Hvað þá? — Afsakið, hvað ég vildi sagt hafa: spaghettíið, ég hef það heima... — Fyrst svo er... flaskan gjörið svo vel. Sú gamla tók flöskuna, borgaði hana. En hún fór samt ekki út heldur stóð og hampaði f löskunni: — Humm! Kannske er hún dálítið þung.. Gætuð þér ekki.. — Hvað? — Sent Nödju með hana til mín? En Papa Saíd var ósveigjan- legur. — Nei, frú mín, við sendum aldrei heim. Og Nadja hefur líka annað að gera. Ef þér loftið þessari flösku ekki þá verðið þér bara, því miður, að skilja hana eftir! — Þá það, sagði nornin, ég tek hana. Verið þér sælir, herra Saíd! — Sælar, frú! Og nornin fór með tómat- sósuna. Þegar hún var komin heim sagði hún við sjálfa sig: — Mér dettur nokkuð í hug: í fyrramáliðfer ég í Múfftargötu og bý mig eins og sölukellingu. Þegar Nadja fer í sendiferð fyrir foreldra sína þá næ ég í hana. Daginn eftir var hún í Múfftargötu og þóttist vera að selja kjöt þegar Nadja fór þar hjá. — Góðan daginn, stúlka mín. Vantar þig kjöt? — Nei, frú, ég átti að kaupa hænu. — Skrambinn! hugsaði nornin. Daginn þar á eftir bjó hún sig út eins og hænsnasölukellingu. — Góðan daginn, væna. Ætlarðu að kaupa af mér hænu? — Önei, frú. ( dag á ég að kaupa kjöt. — Fjárans! hugsaði nornin. Þriðja daginn bjó hún sig enn og seldi nú bæði kjöt og hænsni. — Góðan daginn, Nadja, góðan daginn stúlka litla! Hvað viltu fá? Sko í dag er ég með allrahanda: nautakjöt, kinda- kjöt, hænsni, héra.. — Einmitt, en nú vantar mig f isk! — Fari það og veri! Þegar nornin var komin heim fór hún að hugsa og hugsa og á endanum datt henni nokkuð hug: — Ágætt, fyrst þetta er svona, þá verð ég í fyrramálið ein og sjálf, ALLAR sölu- kellingarnar í Múfftargötu! Og það f ór svo að daginn ef tir þá voru allar sölukerlingarnar í Múfftargötu (nákvæmlega voru þær 267) engin önnur en einmitt hún. Nadja kom eins og vant var og grunlaus nálgaðist hún græn- metissöluna til þess að versla, hún átti að kaupa grænar baunir og ætlaði einmitt að fara að borga þegar sölukellingin greip um úlnliðinn á henni og bang! lokaði hana ofan í peninga- kassanum. En til allrar hamingju átti Nadja yngri bróður sem hét Basír. Þegar systir hans kom ekki aftur þá sagði Basír við sjálfan sig: — Ábyggilega er það nornin — Það skal ég gera! Ég syng bara afskaplega lágt! Og Basir fór að syngja hástöf um: Hvar ertu Nadja? Hvar ertu, Nadja? Þú svarar ef heyrirðu til mín! Nadja, hvar ertu? Nadja, hvar ertu? Ég sé ekki hvar þú ert! — Ekki svona hátt! öskruðu sölukellingarnar 267. Þú ærir okkur. Hvar ertu, Nadja? Hvar ertu, Nadja? Og þá var svarað ofurlágt. Basír, ó Basír, ó, leystu mig nú! svo nornin drepi mig ekki! Þegar Basír heyrði þetta opnaði hann augun og sölukerl- ingarnar 267 stukku allar á hann æpandi: — Hann þykist bara vera blindur! Hann þykist bara vera blindur! En Basír, sem var enginn aukvisi, brá gítar sínum og steinrotaði næstu sölukellingu með einu höggi. Hún steyptist á hausinn og hinar 266 duttu um leið og hún, steinrotaðar lika. Nú fór Basir búð úr búð syngjandi: Hvar ertu, Nadja? Hvar ertu, Nadja? Og aftur svaraði ofurveik rödd: Basír, ó, ó Basír, ó, leystu mig nú, svo nornin drepi mig ekki!

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.