Þjóðviljinn - 27.02.1975, Page 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. febrúar 1975
Samnorræna sundkeppnin
háö í níunda sinn
keppnin mun standa í 4 mánuði
Á laugardaginn kemur, 1.
mars, hefst Samnorræna sund-
keppnin i 9. sinn. Hún var fyst háö
1951 og þá sigruðu islendingar en
siöan ekki aftur fyrr en síðast,
þegar hún var háð 1972, og þá með
einstökum giæsibrag.
Að þessu sinni verður sama
sniö á keppninni og siðast, hver
maður má synda einu sinni á dag.
Keppnin mun standa i fjóra mán-
uði frá 1. mars til 30. april og frá
1. júní til 31. júlí. í mai verður
gert hlé á keppninni.
íslendingar sigruðu i keppninni
1972, hlutu 12.171.000 stig, finnar
furðu i 2. sæti meö 3.017.000 stig,
sviar hlutu 2.077.000 stig, danir
1.590.000 stig og norömenn ráku
lestina með 1.272.000 stig. Nú
verður farið eftir eftirfarandi
margvelditölum, þ.e. fjöldi sunda
á i hverju landi að margfaldast
með þessari tölu til að finna út
stig hvers lands: Sviþjóð 1.00,
Finnland 1.64 Island 1,94, Noreg-
ur 3,97 og Danmörk 9,20.
Að venju verða gefin út sérstök
merki hér á landi I tilefni keppn-
innar og geta menn keypt brons-
merki eftir eitt sund, silfurmerki
eftir 20 sund og „trimmmerki —
eftir 50 sund. Þá verða menn að
kaupa sérstakt þátttökukort með
áföstum stofni sem ber að skila
útfylltum i fyrsta sinn sem synt
er.
A stofninum verður tala sem
gildir sem happdrættismiði og
verður dregið tvisvar um fjórar
utanlandsferöir. Þetta þátttöku-
kort þarf aðeins einu sinni að
kaupa þótt menn hyggist synda
daglega. Nánar verður skýrt frá
keppninni siðar.
—S.dór.
Theodór Guðmundsson:
Knattspyr nuþjá Ifa ra
spjall
Mig langar að ræða nokkuð
um þjálfaramál okkar
islenskra knattspyrnumanna.
Nú er svo komið að aðeins 1
islendingur er talinn nógu
hæfur til að þjálfa 1. deildar-
liö. Aö visu eru tveir islenskir
með annað 1. deildarlið og tel
ég það lofsverða nýjung sem
ég vona að sé spor i rétta átt.
Ég held aö i framtiöinni verði
tveir menn sem þjálfa og
stjórna okkar bestu liðum.
Fyrir nokkrum árum voru
eingöngu islenskir þjálfarar
með öll okkar lið. Hvað hefur
gerst?? Það sem gerst hefur
er það að nú telst ekkert lið
hafa möguleika nema ráða er-
lendan þjálfara. Þetta væri
gott og blessað ef á þessum
ráöningum væru ekki nokkrir
stórir gallar. Alvarlegast tel
ég vera að félögin munu borga
um tvær og hálfa miljón i laun
og kostnaö við hvern þjálfara.
Þetta er allt of mikið og
verður að teljast óverjandi á
sama tlma og Islensk þjálf-
aramál eru látin sitja á hak-
anum.
Félögin hafa þvi enga
peninga til að sinna unglinga-
starfinu. Má i þvi sambandi
nefna að menn eru ráðnir til
að þjálfa yngri flokkana
aðeins vegna þess að litið eða
ekkert þarf að borga þeim
fyrir. Ekkert er spurt um
menntun, hæfileika eða
reynslu.
Fyrir fjórum árum var
stofnað hér i Stór-Reykjavlk
eins og það var orðað félag
sem hlaut nafnið Knatt-
spymuþjálfarafélag Islands.
Aðal markmið félagsi'ns er að
auka áhuga á knattspyrnu-
þjálfun og stuðla að þvi að
allir þeir er við þjálíun fást
hafi hlotið undirstöðu-
menntun. Ég hef fylgst meö
störfum félagsins frá stofnun
þess og tel að það hafi farið vel
af staö. Allir okkar helstu
þjálfarar voru i stjórn eða
stofnfélagar og verkefnin voru
óþrjótandi. Siðan hefur það
komið i ljós að félagið hefur
átt i miklum erfiðleikum. Þó
hafa veriö haldin 4 til 5
þjálfaranámskeið og gefin út
fréttabréf. Aðal vandamálið
er það að knattspyrnufélögin
hafa sýnt félaginu algert
áhugaleysi ef ekki beina óvild.
Eins og sést á þvi að þau
hvorki styðja það né virða. Af
þessari afstöðu leiðir svo að
menn geta þjálfað hjá félög-
unum án þess að vera i þjálf-
arafélaginu og fara þessvegna
á mis við þá fræðslu sem þar
fer fram. Hér með skora ég á
forustumenn knattspyrnu-
félaganna aö taka þjálfara-
Theodór Guðmundsson
málin föstum tökum. Væru
ekki knattspyrnuráðin heppi-
leg til að koma á framfæri til-
lögum um úrbætur? Að lokum
vil ég svo þakka Knattspyrnu-
sambandinu fyrir þann
stuðning og velvilja sem það
hefur sýnt Knattspyrnu-
þjálfarafélaginu en miklu
meira þarf til að koma þessum
málum i lag.
Viöar Simonarson fékk blómvönd frá HSt áður en slöari leikur Islend-
inga og júgósiava hófst i tilefni þess aö hann átti þritugs afmæli þennan
dag. (Ljósm. GSP)
Ekkert óvænt
í körfunni
Baráttan um íslandsmeistara-
titilinn á milli ÍR, KR og Ármanns
Ekkert óvænt gerðist I körfu-
knattleiksmótinu um siðustu
helgi, öll úrslit samkvæmt upp-
skriftinni. UMFN sigraði HSK
86:81 eftir að hafa haft yfir i
leikhléi 39:38, KR sigraði Snæfell
93:79 og hafði KR yfir I leikhléi
42:34 og Ir sigraði Snæfell 90:72
en Snæfell hafði yfir i leikhléi eins
og stundum áður 41:40.
Sá leikur sem jafnastur var og
Ágúst
ágóðu
Agúst Asgeirsson hinn kunni
langhlaupari stundar sem kunn-
ugt er nám i Englandi i vetur og
hefur hann tekið þátt i nokkrum
hlaupum i háskólakeppni þar I
landi með góðum árangri.
Fyrir skömmu fór fram hið ár-
lega —Hyde park— viðavangs-
hlaup ensku háskólanna og varð
skóli sá sem Agúst stundar nám i
skemmtilegastur á að horfa var
leikur Armanns og 1S á sunnudag.
Hann var æsispennandi og lauk
með sigri Ármanns 81:80. í leik-
hléi hafði Armann yfir 42:41.
Nú eru linur teknar að skýrast
nokkúð i 1. deildarkeppninni i
körfu og ljóst að það verða aðeins
IR, KR og Armann sem berjast
um titilinn, önnur lið blanda sér
ekki i þá baráttu héðan af.
hljóp
mtíma
Durham-skólinn I 4. sæti. Ágúst
hljóp fyrsta sprettinn fyrir sveit
sina og hljóp 3 milurnar á 14:20,0
min, sem er frábær tlmi og 19
sekúndum betri timi en Agúst
náði i hlaupinu árið áður.
Annar kunnur islenskur hlaup-
ari stundar einnig nám i Durham,
Sigfús Jónsson. Honum gekk eiki
eins vei, hljóp á 14:38.0 min.
Úrslit úr
þriðja
hlaupi ÍR
Hljómskáiahlaup IR fór
fram i 3ja sinn sl. sunnudag
23/2 i ágætis veðri, en mikill
snjór á brautinni haföi mikil
áhrif á tima hlauparanna.
Þrátt fyrir aö sjá mátti þetta
fyrir hlaupið mættu 50 áhuga-
samir ungir piltar og stúlkur
til hlaupsins og luku þvi öilu
með sóma.
Arangur flestra varð nú,
vegna snjóalaga, nokkru lak-
ari en i fyrri hlaupunum
tveim, og þvi vakti hlaup Hin-
riks Stefánssonar mikla at-
hygli, en hann hljóp á 7. besta
timanum, sem náðst hefur i
hlaupunum i vetur, þrátt fyrir
að brautin var svo erfið til
hlaupa. Bestan áragnur telpna
hlaut Inga Lena Bjarnadóttir.
Keppendur i þessum 3 fyrstu
hlaupum eru nú orðnir 120, 38
stúlkur og 82 piltar. Verður nú
gert nokkurt hlé á hljómskála-
hlaupunum, en i millitiðinni
verður Breiðholtshlaupið
hlaupið 3svar sinnum.
Urslit 3. hlaupsins uröu sem
hér segir:
Stúlkur f. ’60.
1. Inga Lena Bjarnad. 3,17
f. ’6i
1. Ingibjörg Ingimundard. 3,46
2. Heba Helgadóttir 4,41
f. ’62
1. Sólveig Pálsd. 3,41
2. Heiða Sverrisd. 4,36
f. ’64
1. Bryndis Óskarsd. 4,44
f. ’65
1. Nanna Sigurdórsd. 3,42
2. MargrétBjörgvinsdóttir4,19
3. Erna Gisladóttir 4,21
f. ’66
1. Anna K.Einarsd. 4,12
2. Jóhanna K. Guömundsd.4,12
3. Arnheiður Bergsveinsd. 4,23
f. ’67
1. Sigrún Þorsteinsdóttir 5,21
Piltar f. ’58
1. Gunnar Orrason 3,07
f. ’59
1. Óskar Guömundsson 2,50
f. ’60
1. Hinrik Stefánsson 2,44
2. Jörundur Jónsson 3,03
3. Kjartan Hjálmarssn 3,20
F. ’61
1. Magnús Haraldsson 2,56
2. Kári Bryngeirsson 2,56
3. Yngvi óöinn
Guömundss. 3,27
f. ’62
1. Atli Þor Þorvaldsson 3,09
2. Guðmundur Þorsteinss. 3,38
3. Birgir Þ. Jóakimsson 3,40
f. ’63
1. GuömundurSigurjónss. 3,15
2. GunnlaugurM.
Simonars. 3,19
3. Jóhannes Helgason 3,32
f. ’64
1. Guðjón Ragnarsson 3,18
2. Friðsteinn S. Stefánsson 3,55
3. Geir Þorsteinsson 4,01
f. ’65
1. Sigurjón H. Björnss. 3,42
2. Höskuldur Þór
Höskuldss. 4,37
f. ’66
1. Helgi Laxdai 4,09
2. Aöalsteinn R. Björnsson 4,20
3. Ragnar Baldursson 4,23
f. ’67
1. HrafnkellGuðnason 4,36
KSÍ veitlr
tækniaðstoð
Stjórn og tækninefnd KSl hefur
ákveöiö ab veita félögunum og
þjálfurum þeirra leiöbeiningar og
aöra aöstoö viö æfingakerfi. Hef-
ur sambandið fengiö Karl Guð-
mundsson iþróttakennara til aö
taka þetta aö sér og veröur hann
til viötals á skrifstofu KSl á miö-
vikudögum milli kl. 14 og 16,
skrifstofusiminn er 84444.