Þjóðviljinn - 27.02.1975, Qupperneq 12
DJÚÐVIUINN
Fimmtudagur 27. febrúar 1975
59
Það verður að stoppa
þessa
Nú hafa samningaviö-
ræður atvinnurekenda og
forystu verkalýðssamtak-
anna siglt í strand og allt ó-
vist um framhaldið. Ríkis-
stjórnin hefur boðað efna-
hagsráðstafanir sem ma.
innihalda 2 þúsund króna
//láglaunabætur" og á
mánudaginn kemur for-
ysta verkalýðssamtakanna
saman til að ræða næstu
skref í kjarabaráttunni.
í ljósi þessa þótti Þjóðviljanum
rétt að kikja ofan i hafnarverka-
menn og inna þá eftir þeirra við-
horfum til kjaramálanna. Birtast
svör nokkurra slikra hér að neð-
an.
Mikill samdráttur
i vinnu bílstjóra
— Fyrstan hittu blaöamenn
fyrir bilstjórann Skarphéðinn
Guðmundsson sem beið eftir að
komast að viö uppskipun úr Fjall-
fossi. Við spurðum hvaö væri
brýnast i kjarabaráttunni.
— Það þarf að losna við þessa
menn sem stjorna. Þeir hafa sett
á óskaplegar álögur og gera ekki
annað en að fára i vasana okkar.
Skarphéðinn Guðmundsson.
Sigurður Sveinsson
menn”
Rætt við nokkra hafnarverka-
menn um horfur i kjaramálum
Þórður Eyjólfsson
— Er rétt aö fara i verkfall?
— Ég veit ekki hvaö hefst upp
úr verkfalli en eitthvað verður að
gera til að stööva þessa menn.
— Hefur vinnan dregist eitt-
hvað saman hjá þér?
— Já, það er mikill samdráttur
i vinnu, maður hefur varla snert
við akstri siðan i desember. Það
gefast svona 1-2 túrar i viku. Ég
skrapp i aðra vinnu i tvær vikur
um daginn og það hafa margir
horfið til annarra starfa, t.d. á
sjóinn. Og svo heyrir maöur að
ekki sé ástandiö betra i bygg-
ingariðnaðinum...
Verðum að
brýna raustina
— Inni i eittskála Eimskips
hittum við Sigurð Sveinsson að
máli. yið spurðum hvaö bæri að
gera.
— Það er eina ráðiö að við
brýnum raustina. Við getum ekki
látið formenn iðnrekenda og for-
menn útvegsmanna og aðra at-
vinnurekendur eina um að væla.
— Verkfall?
— Það hefst kannski eitthvað
upp úr löngu og eitruðu verkfalli
en maður veit svosem hvað á eftir
kemur.
Verkamenn
vilja verkfall
— Það er svart útlitið og má
ekki verða svartara, sagði Páll
Kristjánsson sem viö hittum við
Tollvörugeymsluna. — Það þýöir
ekki annað en að stoppa þessa
menn af og þaö verður ekki gert
nema með verkfalli.
— Hvaö finnst þér um lág-
launabætur stjórnarinnar?
— Þær eru nú bara móðgun við
verkalýðinn.
— Hvernig er hljóðið i mönnum
hér við höfnina?
— Ég held að verkamenn vilji
verkfall. Það er e.t.v. enginn
gróði að verkfalli en það þýðir
ekki annað. Það verður að stoppa
þessa menn.
Láglaunabæturnar
mættu vera lægri
— 1 skemmu Rikisskip hittum
við Böðvar Indriðason og Þórð
Eyjólfsson. Við spurðum fyrst
hvort láglaunabæturnar væru
fullnægjandi kjarabót að þeirra
mati.
— Við trúum nú ekki á þær fyrr
en við sjáum þær. En um þær sem
settar voru á i haust mætti
kannski segja að það hafi ekkert
gert til þótt þær væru lægri!
— Hefur vinnan dregist saman
hjá ykkur?
— Það hefur aöeins boriö á þvi
undanfarinn hálfan mán. En þar
sem Rikisskip er svo nauðsynleg
þjónustustofnun verðum við siöur
varir við samdrátt i vinnu en þeir
hjá Eimskip og Togaraafgreiðsl-
unni. Hér kemur lika færöin til
sögunnar þvi þegar færðin á veg-
unum versnar eykst vinnan hjá
okkur.
Og hér létu blaöamenn staðar
numið.
—ÞH/GG
Páll Kristjánsson
Frestuðu
ályktun
Bæjarstjórn Hafnar-
f jarðar frestaði afgreiðslu
ályktunar þeirrar sem
bæjarráð hafði samið og
samþykkt um hitaveitu-
mál, og birt var hér i Þjóð-
viljanum á dögunum.
Árni Grétar Finnsson fulltrúi
Ihaldsins i bæjarstjórn sagði á
bæjarstjórnarfundinum, að hann
heföi vissu fyrir þvi frá borgar-
stjóranum i Reykjavik og for-
sætisráðherra, að málið væri að
komast I heila höfn, og þvi væri
samþykktin óþörf.
Þrir bæjarfulltrúar voru and-
vigir frestun á afgreiðslu álykt-
unarinnar, þar á meðal bæjarfull-
trúi Alþýðubandalagsins, Ægir
Sigurgeirsson. —“þ
24% hækkun hitaveitugjalda
samþykkt í borgarráði
Á ábyrgð ríkisstjórnar, segir Sigur-
jón Pétursson borgarráðsmaður
Borgarráð samþykkti í
fyrradag að heirmla Hita-
veitu Reykjavíkur 24%
hækkun á gjaldskrá. Þjóð-
viljinn hefur það eftir á-
reiðanlegum heimildum,
að forsætisráðherra hafi
gefið loforð um það að
ríkisstjórnin muni af-
greiða þessa hækkunar-
beiðni nú í vikunni.
Samþykktin var gerð með fjór-
um af fimm atkvæðum borgar-
ráðsmanna. Fulltrúi Fram-
sóknarflokksins i borgarráði mun
hafa viljað 21% hækkun gjald-
skrárinnar.
Þjóðviljinn hafði tal af Sigur-
jóni Péturssyni borgarráðsmanni
Alþýðubandalagsins og spurði
hann hvers vegna hann hefði ver-
ið samþykkur slikri hækkun á
gjaldskránni.
Sagöi Sigurjón, að ljóst væri nú,
að bein áhrif af gengisfellingunni
á dögunum til hækkunar á skuld-
um Hitaveitunnar væru 335 mil-
jónir króna. Gengisfelling rikis-
stjórnarinnar i september hefði
hækkað skuldir Hitaveitunnar um
200 miljónir króna. Þá hefði þessi
siðari gengisfelling hækkað efnis-
pantanir, sem Hitaveitan ætti er-
lendis um 48 miljónir og áhrif
gengisfellingarinnar á ógreiddar
eriendar innheimtur og ávísanir
eru þær, að þær hækka um 5 mil-
jónir. Samtals hefur þvi rikis-
stjórnin hækkaö skuldir Hitaveit-
unnar með gengisfellingum um
hvorki meira né minna en 600
miljónir. Afborganir Hitaveit-
unnar hækka um 102 miljónir á
þessu ári vegna gengisfellingar-
innar, og ofan á allt þetta bætist
10% hækkun rekstrarkostnaöar
veitunnar á þessu ári vegna sömu
gengisfellingarinnar.
Sigurj[ón lét bóka eftir sér við af-
greiðslu málsins I borgarráði og
sagði hann, að I þeirri bókun fæl-
ist m.a. sú skoðun sín, að miðað
við framantaldar upplýsingar,
væri ljóst að nýjar framkvæmdir
verða ekki settar af stað að ó-
breyttri fjárhagsstöðu Hitaveit-
unnar og jafnvel gætu fram-
kvæmdir stöðvast algjörlega.
— Meðan hundruð fjölskyldna
búa við það að þurfa aö kynda hús
sin með oliu, sem er talin allt að
fjórum sinnum dýrari en kynding
Bókamarkaður hafinn
Alþýðubandalagiö:
Miðbæjar- og Melaskólahverfi — I.-deild.
I kvöld, fimmtudag kl. 8.30
halda flokksfélagar I Miðbæjar-
og Melaskólahverfi fund i Lindar-
bæ til að ákveða starfsemi sína
samkvæmt nýrri reglugerð frá
stjórn Alþýðubandalagsins i
Reykjavik um skipulag flokks-
starfsins i borginni.
Dagskrá: 1. Kosning stjórnar i 1.
deild ABR. 2. Inntáka nýrra fé-
laga.
Bóksalar bjóða um 5000 bókatitla að Hallveigarstig 1
Bókamarkaður Bóksala- það er fimmtándi bóka-
félagsins hófst í morgun að markaðurinn sem nú
Hallveigarstíg 1. stendur, og eru nú hátt á
f immtán þúsund bókatitlar
í boði.
Magnús
Benedikt
3. Samningamálin. Benedikt Daviðsson hefur stutta framsögu og svar-
ar tyrirspurnum. 4. Magnús Kjartansson hefur stutta framsögu um
stjórnmálaviðhorfið og svarar fyrirspurnum.
„Þetta er næststærsti salurinn
sem við höfum haft fyrir markað-
inn og við höfum likast til aldrei
áður boðið fram annað eins magn
af bókum”, sagði Lárus Eggerts-
son, forsprakki bóksalanna, sem
að markaðinum standa.
1 boði eru bækur frá 50—60 for-
lögum, en Helgafell og ísafold
munu eiga flesta titlana aö Hall-
veigarstöðum.
Flestar bækurnar eru orönar
nokkuð gamlar, engin yngri en
tveggja ára og sú elsta er frá 1896,
en það er „Lútersminning” eftir
Helga Hálfdánarson.
Gamla krónan heldur ekki sínu
gildi I það óendanlega, jafnvel
bækurnar á bókamarkaðinum
hafa aðeins hækkað i verði og
„Lútersminning” hefði varla
selst á 22 krónur, en það er verð
hennar nú. Yfirleitt mun verð á
nokkurra ára gömlum skáldsög-
um vera á bilinu frá 300 krónum
upp I 600 — en dýrari bækur er
auðvelt að finna.
Bóksalar bjóða ritsöfn sem
kosta 10.000 krónur eöa meira
með 10% staðgreiðsluafslætti.
Ef miðað er við 5000 bókatitla
og kringum 30 eintök af hverri
bók er eintakafjöldinn á markað-
inum 150.000, en sennilega eru
eintökin þó enn fleiri.
Bókamarkaðurinn verður opinn
frá kl. 9 fyrir hádegi til klukkan
18, nema á þriðjudögum og föstu-
dögum, en þá er opið til klukkan
22. Á laugardögum verður opið til
kl. 18.
Ekki er ákveðið hve lengi
markaðurinn stendur, „en þó er
ákveðið að hafa opiö a.m.k. út
næstu viku”, sagði Lárus
Eggertsson, talsmaður bóksal-
anna.
—GG
með hitaveitu finnst mér, sagði
Sigurjón, — að hækkun, þó hún
komi illa við notendur hitaveitu,
sem gæti oröið til þess aö hundruð
fjölskyldna fengju ódýrari hita-
gjafa, sé réttlætanleg.
En ég itreka þaðog undirstrika,
sagði Sigurjón að lokum, — að
þessi hækkun er bein afleiðing af
gengislækkununum og þvi beint á
ábyrgð rikisstjórnar tveggja
fyrrverandi borgarstjóra, Gunn-
ars Thoroddsens iðnaðarráðherra
og Geirs Hallgrimssonar for-
sætisráðherra, en ekki á ábyrgö
borgarstjórnarinnar.
-úþ
BLAÐ-
BURÐUR
Þjóðviljann vantar blað-
bera í eftirtalin hverfi:
Kleppsveg
Laugaveg
Múlahverfi
Álftamýri
Vinsamlegast hafið
samband við afgreiðsl-
una.
ÞJÓÐVILJINN
Kópavogur
Blaðberar
óskast í
Traðir
Sími 42073