Þjóðviljinn - 05.03.1975, Page 12
E
WÐVIUINN
Næsti kapítuli í rækjustríðinu:
Miftvikudagur 5. mars 1975
Sátta-
semjari
meðfund
í dag
Sáttasemjari hefur
boðað fund með samn-
inganefndum í kjara-
deilunni klukkan 4 síð-
degis í dag.
Lorenz enn
ekki sloppinn
VESTUR-BERLÍN 4/3 — Hein-
rich Albertz, sem varð samferða
valdleysingjunum fimm, sem
rændu Peter Lorenz, til Suður-
Jemen að kröfu þeirra, kom aftur
til Vestur-Berlinar i dag, en Al-
bertz var áður borgarstjóri þar i
borg. Albertz las þegar eftir kom-
una i hljóðvarp og sjónvarp ávarp
frá valdleysingjunum, þar sem
þeir lýsa þvi yfir að þeir muni
halda áfram viðleitni sinni til að
fá látna lausa þá félaga úr
Baader-Meinhof-samtökunum,
sem enn eru i fangelsi i Vestur-
Þýskalandi.
1 ávarpinu frá valdleysingjun-
um fimm segir ennfremur, að
stjórn Suður-Jemen hafi heitið
þeim hæli i landinu sem pólitisk-
um flóttamönnum, gegn þvi að
Peter Lorenz verði látinn laus.
Hefur þá að sögn verið gengið að
öllum skilyrðum þeirra fimm-
menninga, en ekki var þó vitað til
þess að þeir hefðu sleppt Lorenz
Halda skagstrendingar
áfram rækjuveiðum
þegar fullveitt er samkvæmt veiðiheimild?
Að sögn Kristins Jóhannssonar,
hafnarvarðar á Skagaströnd, er
helst á rækjuveiðimönnum þar að
heyra, að þeir muni halda áfram
rækjuveiðum I Húnaflöa eftir að
það magn, sem sjávarútvegs-
ráðuneytið heimilaði að veitt yrði
er á land komið, vegna þess sam-
komulags, sem sjávarútvegsráð-
herra gerði við rækjuveiði- og
vinnslumenn á Biönduisi á dögun-
um.
A laugardaginn var staðfest
réttarsátt i landhelgisbrotamáli
skipstjórans á Nökkva frá
Blönduósi. Asmundur Grétars
Jónssonar, að tilhlutan sjávarút-
vegsráðherra. Játaði skipstjórinn
sekt sina, og 10 veiðibrot innan
landhelginnar. Var hann dæmdur
1200 þúsund króna sekt, en ekkert
minnst á veiðarfæri né heldur
upptöku afla, sem þó er til siðs I
landhelgisbrotadómum og siðan
fengið leyfi til að stunda rækju-
veiðar á Húnaflóanum. Hefur
hvert brot þvi lagt sig á 10 þúsund
krónur, og mun það vera einhver
lægsti landhelgisbrotadómur,
sem lengi hefur verið kveðinn
upp, og er vænlegt fyrir væntan-
lega landhelgisbrjóta að leggja
sér þá niðurstöðu á minnið.
Sjávarútvegsráðherra,
Matthias Bjarnason, hefur lýst
þvl yfir, að dómsáttin hafi verið
gerð i óþökk þeirra sem á Húna-
flóaverstöðvum hafa stundað
rækjuveiðar og vinnslu.
Verðlaun
handa lögbrjóti.
Sveitarstjórinn á Hólmavik,
Jón Kristinsson, sagði að þeir
hefðu ekki enn fengið tæmandi
upplýsingar um málið norður
þangað, en þætti þó furðuleg sú
ráðstöfun ráðherrans, að gangast
fyrir dómsátt I málinu.
— Ég get ekki betur séð, en
verið sé að réttlæta rækjuvinnslu
á Blönduósi, og á næstu rækjuver-
tlö hlýtur að verða að skapa henni
rekstrargrundvöll með þvl að
veita fleiri rækjuveiðileyfi I flóan-
um, sagði Jón. Hjá bátunum héð-
an eru nú ekki eftir nema einn eða
tveir róðrar þar til þeir hafa aflað
það sem þeir hafa leyfi til og þá
verður aö binda bátana. Svo gæti
farið, að meðan okkar bátar eru
bundnir verði Blönduóssbáturinn
enn aö veiða upp I þau 30 tonn,
sem ráðherra hefur gefið leyfi til
að hann megi veiða, og þar með
er verið að verðlauna bátinn, út-
gerðina og skipstjórann fyrir
landhelgisbrot.
Róa skagstrendingar
áfram?
Við höfðum tal af Kristni
Jóhannssyni, hafnarverði á
Skagaströnd. Sagði hann að það
væri ekkert samkomulag við
skagstrendinga um svona mála-
lok, heldur væri einungis samið
við annan aðilann með þessu,
bara lögfræðingana.
— Þetta þýðir minnkandi afla-
hlut fyrir okkur hér, sagði Krist-
inn. Það bætist þarna ein verk-
smiðja við, og þvi sem áður var
skipt I fjóra staði verður nú skipt I
fimm staði.
Það varð samkomulag um það I
vetur milli staðanna hérna, og
ráöuneytið staðfesti það sam-
komulag síðan, að veiðanlegu
magni af rækju var skipt til
helminga hér við flóann, þannig
að Hólmavik og Drangsnes fengu
50% þess sem veiða mátti og
Skagaströnd og Hvammstangi
50%. Þetta samkomuíag var
bundið þvi skilyrði að ekki kæmu
fleiri verksmiðjur til með að
vinna rækjuna. Nú hefur þetta
samkomulag vérið brotið.
Mér hefur heyrst það á sjó-
mönnunum hér, að þeir ætli að
halda áfram við veiðiskapinn og
láta öll leyfi lönd og leið. Hversu
lengi þeir munu stunda veiðarnar
eftir að veitt hefur verið upp fyrir
það magn, sem veiða mátti sam-
kvæmt samkomulaginu, sem ég
gat um áðan, veit ég ekki. En sllk
viöbrögð væru bara I samræmi
við það sem gerst hefur i þessu
máli hingað til, því menn virðast
vera verðlaunaðir fyrir að brjóta
lög, og þvl skyldum við þá ekki
reyna við verðlaunin lika? — úþ
Þjóðnýting alls jarð-
nœðis í Eþíópíu
Alþýðubandalagið
Viötalstími
Þorbjörn Broddason, borgarfulltrúi, verður til
viðtals á skrifstofu Alþýðubandalagsins, að
Grettisgötu 3, frá kl. 17-18 á morgum Siminn er
28655.
Suöurlandskjördæmi — árshátið
Arshátið Alþýðubandalagsins I Suðurlandskjördæmi verður haldin I
félagsheimili ölfusinga Hveragerði laugardaginn 8. mars kl. 21.
Skemmtiatriði og dans. Húsið opnaðkl. 20.30. — Stjórnin.
Alþýðubandalag Akranesi og nágrenni
Góugleði Alþýðubandalagsins verður haldin i Rein kl. 20.00
laugardaginn 8. mars. Heitur og kaldur matur. Skemmtiatriði, dans.
Aðgöngumiðar á kr. 1.200.-seldir kl. 20-22á fimmtudag. — Félagsmála-
nefnd.
Umræðufundur um Þjóðviljann
Fyrsti almenni umræðufundur Alþýðubanda-
lagsins I röð sex funda verður haldinn annað
kvöld, miðvikudag kl. 20.30. Fundurinn verður
að Grettisgötu 3. Að þessu sinni verður umræðu-
efnið: Þjóðviljinn. Mun Svavar Gestsson, rit-
stjóri, hafa framsögu og svara fyrirspurnum.
Svavar
Almennur fundur
um umhverfismál
Alþýðubandalagið I Borgarnesi heldur almenn-
an fund um umhverfismál I Snorrabúð kl. 8.30 á
miðvikudagskvöld. Haukur Hafstað fram-
kvæmdastjóri Landverndar flytur framsögu-
ræðu. Jón Viðar Jónmundsson, Hvanneyri, verð-
ur umræðustjóri.
Haukur
Félagsfundur Borgarnesi
Alþýðubandalagiö I Borgarnesi heldur félagsfund I Snorrabúð kl. 2 eh.
á laugardag. Dagskrá: Inntaka nýrra félaga. — Hreppsmál. — Þegn-
skyldu- og útgáfunefnd skilar áliti. — Ráðstöfun Hamarslands. — önn-
ur mál.
lénsskipulag lagt niður
ADDIS ABABA 4/3 —
Bráðabirgðastjórnarráð
herforingjanna í Eþíópiu
lýsti í dag yf ir þjóðnýtingu
alls jarðnæðis í sveitum
landsins og er þar með lok-
ið mörghundruð ára léns-
skipulagi í landbúnaðinum
þar. Er litið á þessa ráð-
stöfun herforingjanna sem
róttækustu aðgerð þeirra
til þessa i þá átt að breyta
Eþíópíu i sósíalískt ríki.
1 yfirlýsingu frá stjórnar-
ráðinu, sem lesin var i útvarpið,
sagði meðal annars: „Allt nýti-
legt land i sveitum landsins skal
vera sameiginleg eign eþiópsku
þjóðarinnar. Engin jörð skal hér-
eftir verða i einkaeign, hvorki i
eigu einstaklinga, kaupsýslu-
fyrirtækja eða annarra fyrir-
tækja. „Vakti yfirlýsingin mikla
athygli og tróðst fólk inn á
veitingahús, þar sem útvarpstæki
voru opin. Þúsundir skólanema
fóru um götur höfuðborgarinnar,
veifuðu rauðum fánum og
hrópuðu slagorð eins og: „Valdið
til alþýðunnar!”
Samkvæmt lénsskipulaginu
gamla urðu leiguliðar að afhenda
landsdrottnum allt að þremur
fjórðu hlutum uppskeru sinnar i
jarðarafgjald. Samkvæmt opin-
berum skýrslum býr rúmur
helmingur sveitafólks i Eþiópiu á
jörðum i eignarhaldi lands-
drottna, sem flestir búa viðsfjarri
landsetum sinum. 1 yfirlýsingu
herforingjaanna sagði að allir,
sem sjálfir vildu erja jörðina,
gætu fengið jarðnæði úthlutað,
þar á meðal hinir fyrri lands-
drottnar sjálfir.
Samkvæmt hinni nýju jarð-
næðisreglugerð, sem sögð er sú
róttækasta á sósialiskan mæli-
kvarða sem til þessa hefur þekkst
i Afriku, getur engin fjölskylda
fengið stærri jörð en sem nemur
tiu hektörum. Þá er óheimilt að
kaupa vinnukraft, og ekki mega
menn heldur selja eða leigja jarð-
ir þær, sem þeir fá úthlutað.
Reglugerðin gildir frá deginum i
dag að telja.
Slitnað upp úr kjara-
viðræðum hjá dönum
KAUPMANNAHÖFN 4/3 — Við-
ræður danska alþýðusambands-
ins og atvinnurekenda um nýja
kjarasamninga fóru út um þúfur i
dag. Sáttasemjari danska rikis-
ins beitti þá öðru sinni heimild
sinni til aö fresta verkföllum, en
þau áttu að hefjast I gær.
Sáttasemjari hafði áður frestað
þeim um hálfan mánuð, og I dag
aftur um viku, þannig að verkföll
og verkbönn geta fyrst hafist I
Danmörku 22. mars, þótt sam-
komulag takist ekki I áframhald-
andi viðræðum.
Taílandsstjórn vill:
Herinn burt!
BANGKOK — Hin ný-
myndaða stjórn Taílands
hefur lýst því yfir að
stefna hennar sé sú að
bandaríski herinn í landinu
hverf i þaðan á næsta hálf u
öðru ári. Bandaríkin hafa
nú nokkra tugi þúsund her-
manna í herstöðvum í
landinu og mikilvægar
flugstöðvar, sem þau
hafá óspart notað 1il árása
á Víetnam og Laos. Frétt
þessi bendir til þess að
taílenska stjórnin hafi litla
trú á að leppstjórnin
Bandaríkjanna í Saigon og
Phnompenh eigi langt líf
fyrir höndum og vilji því
losa um tengsli sín við
Bandaríkin með tilliti til
framtíðarsambúðarinnar
við nágrannaríkin.
BLAÐ-
BURÐUR
Þjóðviljann vantar blað-
bera í eftirtalin hverfi:
Kleppsveg
Skipasund
Múlahverfi
Vinsamlegast hafið
samband við afgreiðsl-
una.
ÞJÓÐVILJINN