Þjóðviljinn - 21.03.1975, Qupperneq 12
Föstudagur 21. marz 1975.
Fischer
neitar
BERGEN AAN ZEE 20/3 —
Bobby Fischer neitaði i dag að
verja heimsmeistaratitil sinn i
skák fyrir Anatóli Karpof frá
Sovétrikjunum, sem á hann
hefur skorað. Alþjóðlega
skáksambandið (FIDE) hefur
samþykkt þá tillögu sovét-
manna að fresta fyrirhugaðri
skákkeppni um fjóra mánuði.
Samkvæmt þvi hefst keppnin i
Manila fjórða eða fimmta
október. Framkvæmdanefnd
FIDE visaði hinsvegar á bug
tillögu Edmundsons, forseta
bandariska skáksambandsins,
um að lengja frestinn, sem
Fischer hefur verið gefinn til
að ákveða hvort hann mæti
Karpof, um mánuð. Frestur-
inn rennur út fyrsta april.
Reuter.
Saigon-herinn flúinn
frá Quang Tri
Thieu segist œtla að verja Hue
SAIGON 20/3 — Hersveitir
Saigon-stjórnar hafa yfir
gefið Quang Tri, höfuð-
borg samnefnds héraðs og
nyrsta staðinn, sem Sigon-
herinn hef ur til þessa hald-
ið í Víetnam. Borgin er
sögð ennþá að mestu leyti í
rústum eftir að mest var
barist um hana 1972. Flótti
Saigon-hersins úr miðhá-
lendinu heidur áfram, og
hefur aðalstjórnarstöð
hersins fyrir miðhálöndin
verið flutt frá Pleiku til
hafnarborgarinnar Nha
Trang.
Á fréttum frá Talsmönnum
Saigon-stjórnar er að heyra að
öflugar sveitir Þjóðfrelsisfylking-
arinnar séu staddar suðaustur af
Quang Tri og séu möguleikar á
þvi að sá her rjúfi vegasamband-
ið á milli Hué og Danang. Saigon-
stjórnin rær nú að þvi öllum árum
að fá fólk til að flýja Hué, og er
hermt af hálfu Saigon-manna að
fjöldi flóttafólks sé kominn þaðan
til Danang, allnokkru sunnar.
Fréttum frá Hué ber ekki saman,
en Thieu forseti i Saigon segir að
það sé af og frá að her hans ætli
að flýja borgina. Hué var forðum
höfuðborg keisaradæmisins
Annams og hefur löngum verið
talin miðstöð vietnamskrar þjóð-
ernishyggju. Talið er að missir
Hué yrði þvi gifurlegt sálrænt
áfall fyrir Saigon-herinn. —
Barist er viðsvegar i Suður-
Vietnam og benda fregnir til þess
að þjóðfrelsisliðum veiti stöðugt
betur.
Tveir Lon Nol-hermenn styðja særðan félaga — 10—15.000 hermenn eru
sagðir fallnir og særðir af her bandarlsku leppstjórnarinnar siðan um
áramót.
„Tiðindalaust” á Kambódiuvigstöðvunum
Breska sendi-
ráðinu lokað
PHNOMPENH 20-4-3 — Veruleg
eldflaugahríð stóð á Phnompenh I
dag og voru hús Long Borets for-
sætisráðherra og yfirmanns flota
Lon Nol-stjórnarinnar meðal
þeirra staða, sem hæfðir voru.
Hvorugur þessara höfingja slas-
aðist þó. Eldflaugar komu einnig
niður nærri sendiráðum Bret-
lands og Bandarikjanna. Breska
sendiráðið tilkynnti i dag að þvi
væri hér með lokað „til bráða-
birgða”, og flugu þeir sex starfs-
menn sendiráðsins, sem eftir
voru I borginni, þaðan i morgun.
Þjóðareiningarmenn skjóta enn
eldflaugum á Pochentong-flug-
völl, en ekki er vitað hvaða tjóni
þær hafa valdið upp á siðkastið.
Lon Nol-herinn hefur verið að
reyna að knýja þjóðareiningar-
liða til undanhalds norður af flug-
vellinum, en.mun hafa orðið litt
eða ekki ágengt. Loftbrú banda-
rikjamanna er haldið áfram. Her
Lon Nol-stjórnar i Neak Luog,
ferjuborginni við Mekong fyrir
neðan Phnompenh, hefur ekki
enn gefist upp, en ástandið i borg-
inni er hið hörmulegasta, þar eð
þar er fjöldi særðra manna og
sjúkra og ægilegur skortur á
læknishjálp og matvælum.
Útflutningur iðnaðarmanna að hefjast
Taka járniðnaðar-
menn þátt í norska
olíuævintýrinu?
„Við munum ekki stuðla að
þvi að járniðnaðarmenn fari til
Noregs i hópum, vegna þess að
enn er atvinna fyrir hendi hér
heima, hópur járniðnaðar-
manna við vinnu á Norðfi'rði og
fyrirsjáanlegt að talsvert verð-
ur að gera i virkjunum i sumar.
Hinsvegar viljum við náttúrlega
gæta hagsmuna þeirra, sem
þrátt fyrir þetta hyggjast ráða
sig i Noregi, ef einhverjir
verða.”
Þetta sagði Guðjón Jónsson,
formaður Félags járniðnaðar-
manna i gær, en hann hafði þá
um morguninn rætt við Thor
Holmgren, fulltrúa sænsks
fyrirtækis, sem falast hefur eft-
ir rafsuðumönnum á hálfs árs
samning i Noregi á kjörum, sem
i krónutölu eru þrefalt hærri en
hér tiðkast hjá járniðnaðar-
mönnum, að viðbættum fæðis-
og húsnæðispeningum, sem
nægja eiga fyrir uppihaldskost-
aði. Guðjón sagði að i viðtali
hans við Holmgren hafi komið i
ljós að fullt samráð yrði haft við
stéttarfélag járniðnaðarmanna
og gengið frá samningum við
járniðnaðarmennina á sama
hátt og gert var i samningum
við Kockums i Sviþjóð 1969 og
70.
Sænska fyrirtækið, sem hér
um ræðir, hyggst ráða rafsuðu-
menn til starfa i sambandi við
skipasmiðar, i Stavanger og
Þrándheimi i Noregi og i
Helsingjaborg i Sviþjóð. Full-
trúi þess er hingað kominn til
þess að kanna undirtektir og
skrá nöfn þeirra manna, sem
hug hafa á þessu starfi, en ekki
verður farið að ræða um ráðn-
ingu fyrr en að tiu dögum liðn-
um, og þegar hann hefur rætt
við stéttarfélög og viðkomandi
yfirvöld. Verk þau sem vinna á
i Noregi eru tengd norska oliu-
ævintýrinu.
Fær þann f jölda
sem hann þarf
Járniðnaðarmenn fjölmenntu
á fund Holmgrens i gærdag og
spurðu hann spjörunum úr um
kaup og kjör á væntanlegum
vinnustöðum i Noregi, þar sem
islensku járniðnaðarmennirnir
munu væntanlega starfa.
Hann fær eins marga menn
■með sér út og hann þarf, sögðu
nokkrir iðnverkamanna, sem
Þjóðviljinn hitti á Loftleiða-
hótelinu I gærdag, en þar ræddi
Holmgren við islensku járniðn-
aðarmennina.
Hann býður þrefalt hærra
kaup en hér er borgað og þess-
utan 100 nroskar krónur á dag i
uppihaldskostnað. Okkur finnst
hinsvegar svolitið loðið það sem
hann segir okkur um skattamál-
in. Hann talar um 60—80 tima
vinnu á viku, og spurningin er
þá sú, hvort norsku fagfélögin
séu ekki mótfallin slikri vinnu.
Nóg að gera hér
Það er ekki vegna atvinnu-
leysis, sem járniðnaðarmenn
virðast áhugasamir um vinnuna
i Noregi, heldur sú staðreynd að
fyrirtæki Holmgrens þessa
býður miklu hærra kaup en hér
fæst.
Jónas Hallgrimsson, trúnað-
armaður starfsmanna I Vél-
smiðjunni Héðni, tjáði Þjóð-
viljanum i gær, að járniðnaðar-
menn hefðu amk. sem stendur
næga vinnu.
„Þeir tóku reyndar eftirvinn-
una af okkur hér fyrir um þrem-
ur vikum, en þaðstóð ekki nema
í tvo daga, þvi við mótmæltum
þessu allir af illri nauðsyn. Það
ætlar enginn úr Héðni til Noregs
i vinnu,” sagði Jónas.
t Héðni er vikukaup járniðn-
aðarmanns um 11.000 fyrir dag-
vinnuna. Sumir eru yfirborgaðir
sem nemur 10—20%, og með
20% yfirborgun og tveggja
tima eftirvinnu á dag getur
vikukaupið verið um 18.000
krónur.
Þess má að lokum geta, að I
Noregi er bannaður innflutning-
ur vinnukrafts frá öðrum lönd-
um en Norðurlöndum, þannig að
ljóst er að ekki er mikill skortur
á vinnuafli þar. — EKH/GG.
Tíu CIA-njósnarar í USA-
sendiráðinu í Lundúnum?
34 verkamannaflokksþingmenn krefjast brottvikningar þeirra úr landi
LUNDÚNUM 20/3 — Þrjátiu og
fjórir þingmenn breska Verka-
mannaflokksins ákærðu.. I gær-
kvöldi tiu starfsmenn ban'dariska
sendiráðsins i Lundúnum fyrir
að vera njósnara i þjónustu
CIA, bandarisku ieyniþjónust-
unnar. Krefjast þingmennirnir
þess að máiið sé rannsakað og
sendiráðsstarfsmönnunum vikið
úr landi, nema þvi aðeins að þeir
geti sannaö sakleysi sitt.
Gert er ráð fyrir að þingmenn-
imir muni fylgja málinu betur
eftir i dag. A þriðjud., þegar Wil-
son forsætisráðherra var að þvi
spurður, hvað hæft væri i orðrómi
um að CIA ætti hauka i horni i
bandariska sendiráðinu, sagðist
hann ekki mundu hika við að
fýrirskipa gagngerða rannsókn ef
sannanir fengjust fyrir þvi að CIA
starfaði i Bretlandi með sendi-
ráðið sem felustofnun.
1 tillögunni, sem þessir
34
stjórnarflokksþingmenn lögðu
fram I neðri málstofunni, sögðust
þeir vera þess vitandi að CIA ætti
langa sögu að baki i Bretlandi og
hefði stundað þar njósnir og ólög-
legar aðgerðir. — Bandariska
sendiráðið hefur neitað að láta
hafa nokkuð eftir sér um málið,
og af hálfu CIA var lika neitað að
gefa nokkur svör, þegar frétta-
stofur höfðu samband við leyni-
þjónustuna út af máli þessu.
Flugvallargjald og skyldusparnaður
Eins og Þjóðviljinn skýrði frá
i gær að til stæði var frumvarp
rikisstjórrtarinnar um ráðstaf-
anir i efnahagsmálum lagt fram
á alþingi i gær.
Auk þeirra atriða, sem Þjóð-
viljinn greindi frá i gær felur
frumvarpið i sér ýmis fleiri at-
riði, meðal annars þessi:
Flugvallargjald. Allir þeir,
sem ferðast flugleiðis' frá Is-
landi til annarra ianda skulu
greiða sérstakt flugvallargjald
að upphæð kr. 2.500,—. Aætlað
er að þetta gjald gefi rikissjóði
225 miljónir króna.
Skyldusparnaður. Gert er ráð
fyrir, að þeir sem tekjuskatts-
skyldir eru og ekki hafa náð 67
ára aldrei greiði 5% af skatt-
gjaldstekjum siðasta árs, að
frádreginni nokkurri upphæð
þó, sem t.d. er 1.250 þús. fyrir
samsköttuð hjón og að auk kr. 75
þús. fyrir hvert barn. Þetta seg-
ir að hjón með 2 börn lenda ekki
i skyldusparnaðinum nema þau
hafi haft yfir kr. 1.400.000,— i
skattgjaldstekjur á siðasta ári.
Hafi slikar tekjur hins vegar
verið 1.500.000,— verða þau að
borga kr. 5000,— I skyldusparn-
að samkvæmt frumvarpinu..
Áætlað er, að skyldusparnað-
urinn færi rikinu 200—250
miljónir króna I ár samkvæmt
þessu.
Búist er við, að frumvarpið
komi til 1. umræðu á alþingi i
dag.