Þjóðviljinn - 26.03.1975, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 26.03.1975, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 26. marz 1975. Auglýsing um skoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur Þriðjudagur 1. april R-5401 til R-5700 Miðvikudagur 2. aprll R-5701 til R-6000 Fimmtudagur 3. aprtl R-6001 til R-6300 Föstudagur 4. apríl R-6301 til R-6600 Mánudagur 7. april R-6601 tii R-6900 Þriðjudagur 8. aprll R-6901 til R-7200 Miðvikudagur 9. aprll R-7201 til R-7500 Fimmtudagur 10. aprll R-7501 til R-7800 Föstudagur 11. april R-7801 til R-8100 Mánudagur 14. aprll R-8101 til R-8400 Þriðjudagttr 15. aprli R-8401 til R-8700 Miðvikudagur 16. aprli R-8701 til R-9000 Fimmtudagur 17. april R-9001 til R-9300 Föstudagur 18. aprll R-9301 tii R-9600 Mánudagur 21. aprll R-9601 tll R-9900 Þriðjudagur 22. april R-9901 til R-10200 Miðvikudagur 23. aprll R-10201 til R-10500 Föstudagur 25. april R-10501 til R-10800 Mánudagur 28. april R-10801 til R-11100 Þriðjudagur 29. aprll R-11101 til R-11400 Miðvikudagur 30. april R-11401 til R-11700 Bifreiðaeigendum ber að koma með bif- reiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins, Borg- artúni 7, og verður skoðun framkvæmd þar alla virka daga kl. 8.45 til 16.30. Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardög um. Festivagnar, tengivagnar og far- þegabyrgi skulu fylgja bifreiðum til skoð- unar. Við skoðun skulu ökumenn bifreið- anna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi að bifreiðagjöld hafi verið greidd og lögboðin vátrygging fyrir hverja bifreið sé i gildi. Athygli skal vakin á þvi að skráningar- númer skulu vera læsileg. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar- lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum sem hlut eiga að máli. Lögregiustjórinn í Reykjavík, 24. marz 1975. Sigurjón Sigurðsson. ® ÚTBOÐ Tilboö óskast I lögn hitaveituæöar meöfram Suöurlands- braut I Reykjavlk, fyrir Hitaveitu Reykjavikur. Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3 gegn 10.000.- skilatryggingu. Tilboöin veröa opnuö á sama staö, þriöjudaginn 15. aprll kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYK3AVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Prentsmiðjan ÞRYKK Litprentun — offsetprentun Bergstaðastræti 13 Simi 41048 HVER ER SINNAR ÆFU SMIÐUR t SAMVINNUBANKINN Skrásett vörumerki Hinar velþekktu oliukyntu eldavélar til sjós og lands. Framleiddar i ýms- um stærðum. Með og án miðstöðvarkerfis. Eldavélaverkstæði Jóhanns Fr. Kristjánssonar h.f. Kleppsvegi 62. Simi 33069. Ingmar Bergman og Sven Nykvist (bak viö vélina) I upptöku. Sjónvarpið „TÖFRAFLAUTAN” Hin viðamikla uppfœrsla Ingmars Bergman sýnd á föstudaginn langa Leikstjórinn ásamt leikurum aö tjaldabaki. Sænska sjónvarpiö leggur þvi isienska til buröarásinn i páska- dagskránni að þessu sinni. „Töfraflautan”, hin vinsæla ó- pera Mozarts, veröur sýnd aö kvöldi föstudagsins langa, en Ing- mar Bergman stjornaði upptöku verksins fyrirsænska sjónvarpiö. Þessi uþpfærsla svianna á „Töfraflautunni” er sögð afar vönduð, enda gerð i tilefni af 50 ára afmæli sænska rikisútvarps- ins. Sýning „Töfraflautunnar” tek- ur sem næst tvær klukkustundir, en sviarnir segja aö Ingmar Bergman hafi með þessari upp- færslu tekist að sanna, að ópera sé skemmtileg — „Har — i en av svensk televisions största satsn- ingar — bevisar Ingmar Berg- man att opera ar roligt”. Bergman og Mozart 1 kynningarriti frá sænska sjón- varpinu segir, að um tuttugu ára skeið, hafi Ingmar Bergman dreymt um að geta fært „Töfra- flautu” Mozarts i sjónvarpsgerð. Afrakstur vinnu Bergmans og fjölda annarra frábærra lista- manna, söngvara, leikara, sviðs- myndamanna og myndatöku- manna sýndi nú, að hér er ekki á ferðinni þrælalvarlegt einvígi milli tveggja meistara, heldur fremur eitthvað fyndið og róman- tiskt, gáskafullt og spennandi. Mozart skrifaði ekki „Töfra- flautuna” fyrir einhverja kræsna óperuaðdáendur, heldur fyrir venjulegt fólk i Vin, fólk sem sótti skemmtun i leikhúsi einu i út- hverfi Vinarborgar. Og sviarnir segja lika, stoltir mjög: Ingmar Bergman hefur skapaö sjón- varps-óperu fyrir alla: ævintýri handa börnum, músikal handa unglingum og skemmtun til handa fullorðnum. Og þá er að setja sig i stellingar og stilla tækið. „Töfraflautan” sjálf verður á dagskrá mestan hluta föstudagskvöldsins, sýning- in hefst klukkan 20.15, en til að koma mönnum i „Töfraflautu- skap”, þá verður á miðvikudag- inn sýnd mynd um tilurð og vinn- una við „Töfraflautuna”. Það er mynd frá svíunum sem heitir „Töfraflautan i smiðum”, og er heimildamynd um töku óperunn- ar sem vð sjáum á föstudaginn. Sviðsetning óperunnar fyrir sjón- varp var mikið verk og átti sér langan aðdraganda, og i þessari mynd á miðvikudagskvöldið, ræðir Ingmar Bergman um verk- ið og vinnuna við það, fylgst er með æfingum og upptöku. Sænska ríkisútvarpið er 50 ára á þessu ári, en „Töfraflautuna” sáu sænskir sjónvarpsáhorfendur að kvöldi nýjársdag s.l. óperan nær 200 ára „Töfraflautan” var frumsýnd fyrir nær 200 árum. Það var 30. september 1791 að Teater auf der Wieden sýndi hana fyrst. Mozart skrifaði tónlistina vorið og snemmsumars það sama ár, en það var leikhússtjórinn Ema- nuel Sehikaneder sem fékk hug- myndina að óperunni eftir að hafa lesið sagnabálk einn eftir Wie- iand. „Töfraflautan” hefur alla tið verið afar vinsæl, og Bergman segir um hana: „1 Töfraflautinni er það allt þarna, skáldskapur, saga, draumur. Þessi atriði snú- ast hvert um annað, vaxa saman af undraverðum léttleika...” Frægir listamenn Þeir eru ekki af verri endanum, listamennirnir sem Bergman hef- ur fengið til liðs við sig. Söngvar- arnir eru allir frægir úr virðuleg- um óperuhúsum Evrópu og Ame- riku og þeir sem eitthvað þekkja til sönglistar, taka strax við sér þegar nefnd eru nöfn eins og Josef Köstlinger, Imra Urrila, Hákán Hagegard, Elisabeth Erikson, Birgit Nordian og Ragnar Ulfung. Myndatökunni stýrir sá gamal- reyndi Sven Nykvist, en hann og Bergman virðast óaðskiljanlegir ef eitthvað stendur til með kvik- myndavél. —GG. ÚTBOÐ Tilboð óskast I lögn hitaveituæðar frá Alfhólsvegi að Urð- arbraut I Kópavogi, fyrir Hitaveitu Reykjavlkur. (Kópa- vogur 10. áfangi). Ctboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frlkirkjuvegi 3. gegn 10.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 10. aprll kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sírni 25800

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.