Þjóðviljinn - 26.03.1975, Page 5

Þjóðviljinn - 26.03.1975, Page 5
Miðvikudagur 26. marz 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Tryggve Bratteli (t.h.) Iltur á borstöð I Norðursjó. Enn sem komið er hafa norðmenn fyrst og fremst haft kostnað og fyrirhöfn upp úr olfufundum sfnum. Norðmenn langtíma Vilja samninga nm olíu Einhver mikilvægasti atburður- inn i orkumálasögu heimsins var fundur Norðursjávaroliunn- ar, en af henni fengu bretar og norðmenn ljónspartinn. Bretar, sem eru á slikum hrakhólum efnahagslega að margir fram- tiðarsérfræðingar telja samfé- lagi þeirra ekki við bjargandi, gera sér vonir um að breska (nánar tiltekið skoska) olian muni ef til vill rétta að ein- hverju marki við hag þessa rlk- is, sem menn nú sem óðast eru að gleyma að hafi nokkru sinni veriö heimsveldi. Frændþjóð vor norðmenn virðist fyrir sitt leyti stefna að þvi að tryggja sér öruggan markað fyrir sina oliu hjá bræðraþjóðunum, svi- um og dönum, sem eru stórum meir þurfandi fyrir oliu en norð- menn sjálfir, sem búa að vatns- orku sinni mikilli. Norðmenn hafa sina ástæður. Þótt þeir eigi mikil auðævi i jarðgasi og oliu undir hafsbotn- inum úti fyrir ströndum sinum, þá er óhemju kostnaður við að koma þessu upp á yfirborðið og gera það að nýtilegri vöru. „Framleiðslukostnaðurinn á hverja oliutunnu hjá aröbunum þarf ekki að vera nema milli 10 og 25 sent, en norðursjávarolian kostar 3 til 6 dollara á tunnu, áð- ur en hún kemur okkur að nokkru gagni,” segir Finn Lied, formaður Statoil, oliufélags norska rikisins. Svipast um eftir föstum viðskiptavinum Fyrir norðmenn borgaði sig þvi varla að vinna oliu fyrr en arabar sprengdu upp oliuverðið af tilefni októberstriðsins við Israel ’73. Fyrir þá sprengingu var heimsmarkaösverðið aðeins þrir dollarar á tunnu, en er nú 10-11 dollarar. Það er verð, sem norðmenn geta verið nokkuð ánægðir með. En þeir gera sér ljóst að ekki er aíveg vist að sú dýrð standi til eilifs nóns. Hinsvegar eru ekki horfur á að úr framleiðslukostnaðinum dragi. Hingað til hefur oliunám ekki verið reynt fyrir norðan 62. breiddargráðu, en vitað er að þar eru einnig efnileg svæði. En þvi miður eru aðstæður þar þannig, að ennþa dýrara yrði að dæla þar upp oliu og gasi en sunnan baugsins. Það er þvi ekkert undur, að norðmenn skuli nú svipast á- kveðið um eftir föstum oliuvið- skiptavinum, sem reiðubúnir séu til þess að kaupa á föstu verði. Föstu háu verði. Meira en nóg handa þremur Noröurlanda- þjóðum Tilboðinu beina þeir sem fyrr er sagt einkum til bræðraþjóð- anna austan við Kjöl og sunnan við Skagerak. Og tilboðið er ginnandi. Vegna vatnsorku sinnar þurfa norðmenn sjálfir ekki nema um átta miljónir smálesta af oliu um árið, en svi- ar, sem hafa að visu einnig mikla vatnsorku en lika þeim mun meiri iðnað, þurfa 33 milj- ónir smálesta um árið og danir aumingjarnir, sem alls enga vatnsorku hafa eða neinar orku- lindir yfirleitt, 21 miljón smá- lesta. En reiknað er með að norðmenn geti á næstunni fram- leitt aö minnsta kosti 90-100 milj. smálesta af oliu árlega, svo þeir hafa sem sagt meira en nóg bæði handa sjálfum sér og þessum nánustu bræðrum sin- um og frændum. Hvort úr þessum viðskiptum verður er þó enn mjög óvist. Vegna mikils framleiðslukostn- aðar og kostnaðar við oliuleit og boranir hafa norðmenn enn sem komið er tapað á oliunni, þegar á allt er litið. Hinsvegar hafa þeir verið óragir við að taka for- skot á sæluna og stofnað til verulegra utanrikisskulda út á komandi oliuauð. Þannig er gert ráð fyrir að greiðsluhallinn á ut- anrikisviðskiptum norðmanna, olian þá ekki reiknuð með, meira en tvöfaldist á þessu ári frá þvi sem var siðastliðið ár, hækki úr 3325 miljón krónum (norskum auðvitað) i 8275 milj- ónir. Svíar áhugasamir — danir tvistígandi eða neikvæðir Efnahagsspekingar norð- manna skilja auðvitá5 að'þann- ig getur það ekki gengið til endalaust, og verði bræðraþjóð- irnar ekki snöggar að ákveða sig er viðbúið að norðmenn verði sér úti um aðra viðskipta- vini fjær, sem reiðubúnir séu að kaupa norska oliu á stöðugu háu verði, alveg sama hvað sveifl- um á heimsmarkaðnum liður, gegn þvi að eiga þessa oliu visa. Trygve Bratteli, forsætisráð- herra Noregs, hefur upplýst að Sviþjóð hafi fyrir löngu sýnt á- huga á nánu samstarfi við Nor- eg um jarðgas- og oliumál. Hins vegar hafi danir fyrst farið að sýna áhuga á norsku oliunni eft- ir að orkukreppan hófst. Ber- lingske Tidende skrifar, að norðmenn séu reiðubúnir að bjóða dönum upp á langtima- samning um að tryggja þeim alla þá oliu, sem þeir þurfa, einnig þótt ný orkukreppa skelli á. En norðmenn setja það skil- yrði að danir láti af sinni núver- andi oliupólitik, að kaupa oliuna þar sem þeir fá hana ódýrasta hverju sinni. Danir eru greini- lega tvistigandi — eða jafnvel fremur neikvæðir — i þessu efni, en Bratteli segir vorkunnlátur að það stafi kannski fyrst og fremst af alhliöa uppausn i dönskum stjórnmálum undan- farið. önnur ástæða til hiks og nei- kvæðrar afstöðu dana i þessu máli gæti verið sú, hve ramm- flæktir þeir eru orðnir i efna- hagskerfi meginlands Vestur- Evrópu gegnum EBE. Ummæli af hálfu Nörgaards, ráðherra þess dansks er fer með utan- rikishlið efnahagsmála og sam- norræn, mál, benda frekar til þess. Nörgaard sagði eitthvað á þá leið að tilboð norðmanna gengi þvert á samning um sam- stöðu i orkumálum, sem mörg vestræn oliuneyslulönd, þar á meðal Danmörk, undirrituðu 18. nóvember s.l. Sá samningur mun miðast fyrst og fremst við arabiska oliu. dþ. Minning Guðmundur Þórarinsson kennari, Hafnarfirði Guðmundur Þórarinsson, kenn- ari i Hafnarfirði er farinn burt úr þessum heimi. Hann hefur kvatt okkur fyrir fullt og allt, okkur, sem höfum átt þvi láni að fagna að fá að starfa með honum um langan aldur að hinum ýmsu sameiginlegu áhugamálum. Við, sem eftir lifum, stöndum hljóð og döpur frammi fyrir þeirri stað- reynd að við höfum misst óvenju- legan, traustan og áhugasaman félaga úr okkar sveit. Það er stundum sagt að maður komi manns i stað. I ýmsum til- vikum má það til sanns vegar færa. En það kemur enginn i stað- inn fyrir Guðmund Þórarinsson. Hann var sérstakur persónuleiki, fullur af áhuga og baráttuvilja fyrir þeim málum, sem hann bar fyrir brjósti. Þrátt fyrir skerta heilsu lengst af, barðist hann ó- trauður fyrir áhugamálum sinum og unni sér ekki hvildar fyrr en úrslit voru fengin hverju sinni. Guðmundur Þórarinsson var vorsins og gróandans maður i tvennum skilningi. Æfistarf hans var barnafræðsla fyrst á Laugar- vatni og Eyrarbakka og siðan i Hafnarfirði. Hann lét sér aldrei nægja að kenna skólabörnum sin- um lestur, skrift og reikning og aðrar skyldunámsgreinar. Hann kenndi þeim miklu meira Hann leiðbeindi þeim og gaf þeim ráð til þess að rata hinn villugjarna veg lifsins. 1 hugi þeirra og hjörtu sáði hann fræjum heiðarleika, mannúðar og reglusemi og hafa mörg þeirra þess notið allt sitt lif. A hinn bóginn var Guðmundur mikill áhugamaður um land- græðslu og skógrækt. Ungur gerðist hann liðsmaður ung- mennafélaganna, en þau höfðu á stefnuskrá sinni að græða upp landið og rækta skóg til nytja og prýðis. Einkunnarorð þeirra voru: Islandi allt. Af þessum anda, af þessum fögru hugsjónum hreifst Guðmundur, þá ungur að árum og mótuðust störf hans og athafnir alla tið við það að gera þennan fagra draum að veru- leika. Til æfiloka entist honum hvatning þessara orða: Islandi allt. Guðmundur Þórarinsson var hugsjónamaður, sem sá fyrir sér frjálsa islenska þjóð i viðtækustu merkingu, gróið, skógi vaxið Is- land, sem æli um allan aldur frjálsborna og stórhuga þjóð. Guðmundur hafði ákveðnar skoð- anir á öllum helstu málum þjóðar sinnar. Flokksbönd og stundum vafasamur málflutningur stjórn- málamanna gátu ekki leitt hann af leið og lenti hann þar af leið- andi stundum i andstöðu við þá menn, sem hann hafði áður treyst en létu undan siga i stórmálum þjóðarinnar. Þannig var Guðmundur Þórarinsson. Hann var fremur smávaxinn maður, vel vaxinn, kurteis og kom ætið vel fyrir. Málflutningur hans ein- kenndist af heiðarleika og rétt- sýni til manna og málefna. Hann var skáld gott og átti mikið safn ljóða, sem aldrei hafa komist á prent. Þegar honum var bent á nauðsyn þess að gefa út það besta úr ljóðasafni sinu, þá taldi hann alltaf úr i þeim efnum. Hann var litillátur og gerði ekki kröfur til annarra. Þess er áður getið i þessum orð- um, að Guðmundur hafi verið fremur smávaxinn maður. Samt sem áður var hann stór i andan- um, stórhuga og barðist alla sina tið fyrir stórum og afdrifarikum málum. Ekkert sveið honum sárar en að sjá æsku þessa lands spilla heilsu sinni og starfsgetu með áfengis- neyslu og óreglu á ýmsum svið- um. Guðmundur var áratugum saman liðsmaður Góðtemplara- reglunnar, sterkustu og áhrifa- rikustu bindindissamtakanna á landinu. Hann var um skeið æðsti- templar stúkunnar Danielsher nr. 4 og gegndi fleiri embættum i þeirri stúku. Um mörg undanfar- in ár var Guðmundur i fræðslu- nefnd Þingstúku Hafnarfjarðar og er það fyrst og fremst hans verk að stúkurnar hér i Hafnar- firði hafa um nokkur ár staðið fyrir kynningu á verkum margra stórskálda þjóðarinnar. Að þessu sinni var ætlunin að kynna verk ýmissa þekktra kven- skálda og var hafinn undirbún- ingur að þvi. Þegar við hjónin heimsóttum Guðmund á sjúkra- húsið fáum dögum áður en hann lést, hafði hann orð á þvi að nú yrðum við að fara að búa okkur i bardagann og átti hann þar við fyrirhugaða bókmenntakynn- ingu. Þannig vann Guðmundur að á- hugamálum sinum allt til siðustu stundar. Hann var alla tið traust- ur og góður félagi, sérstaklega heilsteyptur og trúr i starfi og leik. I fjöldamörg ár var hann gæslúmaður barnastúkunnar Kærleiksbandið nr. 66 i Hafnar- firði. Þar innti hann af hendi mik- ið starf, sem krafðist umhugsun- ar og natni i hvivetna. I skóginum fyrir ofan Galtalæk á hann mörg ogheillarik spor. Nýgræðlingarn- ir við litla sumarhúsið okkar hafnfirsku templaranna þar upp frá segja sögu hans að nokkru. Ég vil að leiðarlokum þakka Guðmundi Þórarinssyni fyrir samstarfið, þakka honum fyrir alla hans trúmennsku og tryggð við stúkuna okkar og hugsjónir og baráttumál Góðtemplararegl- unnar. Við stúkusystkini hans þökkum honum af alhug fyrir hans góða hug og traustu sam- fylgd um áraraðir og við biðjum honum blessunar á landi lifenda. Stefán H. Halldórsson Norrænt lögreglu- kóramót Samnorrænt lögreglukóramót verður haldið i Kaupmannahöfn dagana 29. mai-2. júni i ár. Slik mót eru haldin til skiptis i höfuð- borgum Norðurlanda á 4-5 ára fresti, og var hið siðasta þaldið i Helsinki árið 1970. Þar áður var það i Reykjavik árið 1966. Þetta mót er hið fimmta i röðinni. Lögreglukórinn hér hefur hafið sölu á happdrættismiðum til styrktar ferðinni til Kaupmanna- hafnar og verður dregið i happ- drætti kórsins þann 15. mai n.k. Vinningar i happdrættinu eru 12, þar á meðal ferð fyrir 2 til Kaup- mannahafnar og einnig öræfaferð fyrir 2 með Úlfari Jacobsen. [tíI sölul ódýrir, vandaðir | I svefnbekkir I og svefnsófar I að öldugötu 33. | * Upplýsingar I í síma 19407

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.