Þjóðviljinn - 26.03.1975, Qupperneq 14

Þjóðviljinn - 26.03.1975, Qupperneq 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 26. marz 1975. Alþýðubandalagið ARSHATÍÐ Arshátið Alþýðubandalagsins I Reykjavik verður að Hótel Borg i kvöld. Sjá frétt á baksíðu. Viðtalstimi borgarfulltrúa Frá klukkan 5 tii 6 verður Adda Bára Sigfúsdóttir til viðtals að Grettisgötu 3. Ný stjórn Framhald af bls. 1 asta, þvi að til þess eru lögð æðstu völd i efnahagsmálum. Murteira er sagður hlynntur Portúgölsku lýðræðishreyfingunni. Einhverjir aðilar dreifðu i dag i Portúgal áróðursriti gegn núver- andi valdhöfum. Var dreifibréfið undirritað af svokallaðri „lýð- ræðislegri herjahreyfingu", sem segir sig hafa fylgi 750 hærri og lægri liðsforingja. Er hér greini- lega um ihaldshreyfingu að ræða, en aðeins tveir dagar eru siðari portúgölsk yfirvöld lýstu þvi yfir, að hægri sinnuð leynihreyfing, sem hefði i huga valdarán i Portúgal, hefði bækistöð á Spáni. S-Víetnam Framhald af bls. 1 Danang, mikilvæga hafnarborg suðaustur af Hué og aðra mestu borg Suður-Vietnams. Er talið að allar samgönguleiðir til borgarinnar á landi verði senn rofnar, ef þá er ekki búið að þvi nú þegar. Mesti ósigur Saigon- manna siðastliðinn sólarhring var missir borgarinnar Tam Ky við aðalveginn suður af Danang. tbúar i Danang eru um miljón talsins. 1 Saigon söfnuðust mörg hundruð skólanemar saman við miðskóla nokkurn og mótmæltu þeirri ákvörðun stjórnarinnar að kalla seytján ára unglinga i herinn. Herskyldualdurinn var nýlega færður niður og þykir það augljóst dæmi um dvinandi styrk Saigon-hersins. t frétt frá Saigon segir að Thieu hafi fyrirskipað forsætis- ráðherra sinum að mynda sérstakt „striðsráðuneyti” til að stappa einhverju stáli i vörnina. Ýmisfegt bendir til að samkomulag fari versnandi i innsta hring Saigon-stjórnar, meðal annars fregn af morðtil- ræði við Thieu. Ósvífni Framhald af 7. siðu. Þannig er vitað, að ef ekki verður að gert, mun skerðing kaupmáttar, hinn 1. mai nk„ verða orðin um a.m.k. 30—40% svo kaupgjald þyrfti þá að hækka um 50—60% til að halda kaup- mætti samninganna frá 28. febrú- ar 1974. Þrátt fyrir þessa gifurlega kjaraskerðingu og siendurteknar árási- á lifskjörin, hafa samn- ingaviðræður i 2 og 1/2 mánuð engan árangur borið. Fjölmenn ráðstefna ASt sá sig þvi tilknúða að hvetja öll verka- lýðsfélög til að afla sér verkfalls- heimildar og vera með þvi móti tilbúin til baráttu. Aðalfundurinn lýsir stuðningi við ályktanir kjaramálaráðstefnu ASt og sambandsstjórnarfundar Sambands byggingamanna og samþykkir heimild til stjórnar og trúnaðarmannaráðs félagsins til verkfallsboðunar i fullu samráði við heildarsamtökin. Akvörðun Framhald af 7. siðu. sögn annarra: og túlkun hans á lagaheimildum háð persónulegum viðhorfum hans. Þeir læknar sem af siðferðisástæðum eru and- vígir fóstureyðingum eiga ekki að þurfa að fram- kvæma þær, en endanleg ákvörðun um löglega fóstureyðingu á fyrstu 12 vikum meðgöngutímans á að vera i höndum hinnar vanfæru konu. Óeðlileg Framhald af bls. 6. vildi láta fresta ákvörðun um uppsögn. Sigurjón Pétursson og hinn framsóknarmaðurinn i borgar- stjórn Kristján Benediktsson létu bóka eftirfarandi: „Upplýst er, að á undanförnum árum hefur það viðgengist hjá Áhaldahúsi Reykjavikurborgar, að einstakir starfsmenn og aðrir fengu verkfæri að láni til einka- afnota. Ekkert liggur fyrir um, hvernig skil hafa orðið á þessum lánsverkfærum, en augljóst er hins vegar, að rýrnun á verkfærum Ahaldahússins hefur oröið óeðlilega mikil. Þá er upplýst, að einstakir borgarstarfsmenn hafa notið óeðlilegrar fyrirgreiðslu hjá Áhaldahúsinu og fengið þar unnin verk fyrir sig persónulega. Jafn- vel finnast þess dæmi, að yfir- menn hafi gefið út verkbeiðnir á Áhaldahúsið á vinnu i eigin þágu. Ekki er upplýst, hvort efni og vinna, sem Ahaldahúsið lét i té fyrir þessa aðila hefur verið greidd að fullu. Við litum það mjög alvarlegum augum, að einstakir embættis menn borgarinnar skuli hafa mis notað aðstöðu sina á þennan hátt og teljum, að hér sé um svo veigamikið brot i starfi að ræða, að ekki verði komist hjá að taka það til sérstakrar athugunar, svo og viðskipti Áhaldahússins við ýmsa aðra aðila en borgarstarfs- menn.” Ragnar Júliusson, borgarfull- trúi Sjálfstæðisfokksins lét færa til bókar, að úrskurður sak- sóknara hefði verið sá, að ekki hefði verið ástæða til opinberrar málssóknar. Yfirverkstjórinn. hefði ekki fengið fyrirmæli um breytt vinnubrögö og þvi væri ekki réttlætanlegt að vikja honum úr starfi. Þá fólst og i þessari bók- un, að um væri að ræða hættulegt fordæmi með hliðsjón af réttar- stöðu starfsmanna borgarinnar. Borgarstjóri, Birgir ísleifur Gunnarsson, lét og færa sitt álit til bókar. Sú bókun er svohljóð- andi: ,,t bréfi, sem borgarráð sam- þykkti, þegar það veitti yfirverk- stjóra lausn frá störfum, eru til- greindar ávirðingar, sem að mati borgarráðs eru fullnægjandi ástæður til þeirrar málsmeðferð- ar. Upplýst er, að yfirverkstjóri Áhaldahúss skýrði endur- skoðunardeild, borgarráði og borgarstjóra rangt frá um veiga- mikla þætti málsins. Það eitt er að minum dómi full ástæða til lausnar úr stöðu.” —úþ 50 mílur Framhald af bls. 1. mönnum. Þeir eru lika harðir á þvi að ekki komi til greina að veita nokkrum erlendum rikjum undanþágu til fiskveiða innan hinnar útfærðu landhelgi, ekki heldur EBE-rikjum. Fulltrúar fiskimanna munu i dag ræða við Fred Peart, land- búnaðar- og fiskimálaráðherra, og leggja kröfur sinar fyrir hann. — Flutningamálaráð bresku skipakvinna hefur hótað fiski- mönnum málsókn út af lokun tveggja hafnanna, en fiskiskip- stjórar hóta þvi á móti að girða fyrir Temsárósa á sama hátt, það er að segja með þvi að leggja tog- urum þvert i innsiglinguna. Fiskimennirnir reyna nú ákaft að fá stéttarbræður sina i Skotlandi i lið með sér, en upphaflega hófust þessar aðgerðir i mótmælaskyni vegna innflutnings á ódýrum fiski frystum frá tslandi, Noregi og Póllandi. — Reuter. Simi 1C444 Makleg málagjöld Cold Sweat Afar spennandi og viðburðarik ný frönsk-bandarisk litmynd, um spennandi og hörkulegt uppgjör milli gamalla kunn- ingja. Chartes Bronson, Liv Uilman, James Mason. Leikstjóri: Terence Young. ÍSLENZKUR TEXTI. Bönnuð börnum innan 14 ára. Sýnd ki. 3, 5, 7, 9 og 11,15. 31182 i leyniþjónustu Hennar Hátignar On Her Majesty's Secret Service. Ný, spennandi og skemmtileg, bandarisk kvikmynd um leynilögregluhetjuna James Bond.sem I þessari kvikmynd er leikin af George Lazenby. Myndin er mjög iburðarmikil og tekin i skemmtilegu um- hverfi. önnur hlutverk: Diana Rigg, Telly Savalas. ISLENZKUR TEXTI. Sýnd kl. 5 og 9. Bönnuð börnum. MUNIÐ Ibúðarhappdrætti HSÍ, 2ja herbergja ibúð að verðmæti kr. 3.500.000 Verð miða kr. 250.00 Dregið 1. mai VIPPU - BlLSKÚRSHURÐIN I-lcaraur Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm 210 - x - 270sm Aðrar stærðlr.smlðaðar eftir beiðni. GLUGGASMIÐJAN Síðumúlfl' 12 - S'mi 38220 k&ÞJÓÐLEIKHÓSIÐ ' HVAÐ VARSTU AÐ GERA 1 NÓTT? i kvöld kl. 20 Næst síðasta sinn. KAUPMAÐUR t FENEYJUM miðvikudag kl. 20 KARDEMOMMUBÆRINN skirdag kl. 15. 2. I páskum kl. 15. HVERNIG ER HEILSAN skirdag kl. 20 COPPELIA 2. I páskum kl. 20 Fáar sýningar eftir. Leikhúskjallarinn: HERBERGI 213 miðvikudag kl. 20,30 LÚKAS 2. I páskum kl. 20,30. Miðasala 13,15—20. Simi 1-1200 Slmi 41Ó85 Soldier Blue Candice Bergen, Peter Strauss, Donald Pieasence, Bob Carraway. Bönnuð innan 16 ára. ISLENSKUR TEXTI Sýnd kl. 6 og 8. List og losti Hin magnaða mynd Ken Russel um ævi Tchaikoskys. Aðalhlutverk: Glenda Jack- son, Richard Chamberlain. ÍSLENZKUR TEXTI Bönnuð innan 16 ára. Sýnd kl. 10. OJO LEIKFtlAG REYKjAVÍKUR Voi DAUÐADANS i kvöld kl. 20,30. FLÓ A SKINNI skirdag kl. 15. SELURINN HEFUR MANNSAUGU skirdag kl. 20,30. Fáar sýningar eftir. FJÖLSKYLDAN annan páskadag kl. 20,30. 5. sýning. — Blá kort gilda. FLÓ A SKINNI þriðjudag kl. 20,30. 249. sýning. — Fáar sýningar eftir. Austurbæjarbíó ÍSLENDINGASPJÖLL miðnætursýning I kvöld kl. 20,30. Siðasta sinn. Aðgöngumiðasalan i Austur- bæjarbiói er opin frá kl. 16. Simi 1-13-84. Aðgöngumiðasalan i Iðnó er opin frá kl. 14. Sfmi 1-66-20. Oscarsverðlaunakvikmyndin Brúin yfir Kwai-f Ijótið ISLENSKUR TEXTI Heimsfræg verðlaunakvik- mynd i litum og Cinema Scope. Myndin hefur hlotið sjöföld Oscars-verðlaun. Þar á meðal. 1) Sem besta mynd ársins 1958. 2) Mynd með besta leikara ársins (Alec Guinness). 3) Mynd með besta leikstjóra ársins (David Lean). Mynd þessi var sýnd i Stjörnu- biói árið 1958 án islensks texta með met aðsókn. Bióið hefur aftur keypt sýningarréttinn á þessari kvikmynd og fengið nýja kópiu og er nú sýnd með islenskum texta. Aðalhlut- verk: Alec Guinness, Wiliiam Ilolden, Jack Ilawkins. Sýnd kl. 4, 7 og 10. Bönnuð innan 12 ára. HVER ER SINNAR ÆFU SMIÐUR 0 SAMVINNUBAN^INN Alþýðubandatagið Kvöldvaka i Kópavogi. Bæjarmálaráð Alþýðubandalagsins I Kópavogi heldur kvöld- vöku á skfrdag fimmtudaginn 27. mars kl. 20.30 I Þinghól Álfhólsvegi 11. Á kvöldvökunni verður fjölbreytt dagskrá til fróðleiks og < skemmtunar; ávarp, upplestur, söngur og stutt kvikmynd. Sam- eiginleg kaffidrykkja án endurgjalds tii tiibreytingar f dýrtið- inni. Þeir stuðningsmenn Alþýðubandalagsins sem lengi hafa búið I Kópavogi eru sérstaklega velkomnir. Bæjarmálaráö. Aðalfundur kjördæmisráðs Reykjaness Aðalfundur kjördæmisráðs Alþýðubanda- lagsins i Reykjaneskjördæmi verður haldinn þriðjudaginn 1. april I Góðtemplarahúsinu I Hafnarfirði og hefst kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Magnús Kjartansson ræðir stjórnmálavið- horfið og svarar fyrirspurnum Fulltrúar I kjördæmisráðinu eru hvattir til að koma. — Stjórnin. Magnús

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.