Þjóðviljinn - 13.04.1975, Page 8

Þjóðviljinn - 13.04.1975, Page 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. aprll 1975. Gömlu dansarnir eru vinsæiir. Þarna er þaO masúrka. KVOLDSTUND Á HEIMILI BLINDRA Um daginn fór ég á danssam- komu. Kkki er það svosem i frá- sögur færandi útaf fyrir sig, en þessi var dálitið óvenjuleg. Meiri- hlutinn á gólfinu var blindur og þetta var lokaball dansnámskeiös sem Klindrafélagiö hefur haldið i vetur i samvinnu við N'ámsfiokka Keýkjavikur og meö aðstoð félaga i Þjóðdansaféiaginu. Anægja dansfólksins var ótviræð og á eftir var veglegt kaffisam- sæti þar scm danskennaranum, Helgu Þórarinsdóttur, og skóla- stjóra Námsflokkanna, Guðrúnu Halldórsdóttur, voru færðar þakkir og blóm og sungið var við raust framundir miðnætti. Siðan lokið var siðari áfanga húsakynna Blindrafélagsins að Hamrahlið 17 i fyrra hefur öll að- staða til tómstunda- og fræðslu- starísemi blindra gjörbreyst. Með viöbótinni hafa einnig mun fleiri félagsmenn getað eignast þarna heimili og á aðalhæð húss- ins rúmast nú bæði vinnustofur, matsalur og vel búið eldhús þar sem nú er mötuneyti fyrir ibúana, — sameiginleg stór dagstofa, skrifstofa, bókasafn og fleira og nú siðast er verið að innrétta upp- tökuherbergi til notkunar fyrir hljóðbókasafnið sem félagið hefur komið sér upp og á að stækka i samvinnu við Borgarbókasafnið og nýta þá fyrir fleiri en blinda. Hún er greinilega og með réttu stolt af bókasafninu og þeim breytingum sem þar eru að verða, hún Kósa Guðmundsdóttir, formaður Blindrafélagsins. Ilennar aðalstarf er þarna á safn- inu, þar sem hún fjölritar bækur og blöð á blindraletri, en mikið af Irumritunum setur hún sjálf á rit- vélina sina. Þetta er mikið verk og seinlegt og bækur á braille eins og alþjóðlega blindraletrið heitir verða býsna fyrirferðarmiklar. Fyrir utan bækur á islensku eru á safninu bækur á útlendum mál- um, bæði fræðibækur og fagur- bókmenntir, og hægt hefur verið að fá lánað frá erlendum blindra- bókasöfnum lika. Lesarar óskast Þvi rriiður geta þó ekki allir blindir notfært sér blindraletrið, sagði Itósa, einkum getur það oft reynst erfitt eldra fólki sem ekki er lengur eins næmt i íingur- gómunum og þeir sem yngri eru. Og margir þeirra sem verða blindir á efri árum ná heldur aldrei virkilegum hraða við lest- urinn þótt þeir geti vel lært letrið. Þvi er nú lögð mikil áherslaá hljóðbókasafnið og er þegar tals- vert til af bókum, lesnum inná segulbandsspólur. Fram að þessu hafa blindir fengið spólurnar sjálfar lánaðar, en nú stendur til að taka efnið uppá kassettur til útláns, en geyma frumupp- tökurnar. t þessu sambandi er rétt að geta þess, að m jög vel yrði þegin hjálp góðra upplesara sem vildu lesa i sjálfboðavinnu bók inná segulband. Blindravinnustofan er til húsa I Hamrahlið 17, en þar er fram- leiddur burstavarningur margs- konar. Eru burstarnir handhnýtt- ir i vinnustofu á miðhæð, en i kjallara er vélasalur, þar sem ttr Blindravinnustofunni. Þarna sjást frá vinstri: Kristján Jónasson frá Vestmannaeyjum, Guömundur Jóhannesson og Marta Glsladóttir Þaö var fjör viö veisluboröiö eftir dansinn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.