Þjóðviljinn - 13.04.1975, Page 9
Sunnudagur 13. apríl 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 9
Andrés Gestsson bólstrari Jakob Kristjánsson rekur körfugerð i húsinu
blindir vinna við vélar sem upp-
haflega eru smiðaðar fyrir sjá-
andi fólk. Fjórir blindir einstak-
lingar hafa þarna lika sjálfstæðan
atvinnurekstrar: bólstrun, körfu-
gerð. nuddstofu og hljóðfærastill-
ingu.
Þurftu aö læra
að elda.
Bæði sjáandi og blindir búa i -i -
búðum hússins.sem eru ýmist fjöl-
skyldu ibúðir eða einstaklings-
ibúðir og i nýja húsnæðinu eru
einnig mörg einstaklingsherbergi
með sérsnyrtingu og eldunarað-
stöðu, þám. gestaherbergi til af-
nota fyrir blinda og fjölskyldur
þeirra utan af landi. Eldunarað-
staðan sem fæstir einstakling-
anna höfðu haft áður kallaði á
nýja þörf, sem Námsflokkarnir
hjálpuðu til að uppfylla: kennslu i
matreiðslu. Hefur matreiðslu-
námskeið fyrir blinda verið hald-
ið i vetur i HUsmæðrakennara-
skólanum við miklar vinsældir.
Þriðja námskeiðið sem haldið
hefur verið i samvinnu við Náms-
flokkana er vélritunarnámskeið
og voru þeir sem ég átti tal við
þarna um kvöldið mjög þakklátir
fyrirgreiðslu Námsflokkanna.
Annars hafa fræðslumál blindra
þvi miður verið heldur vanrækt af
opinberum aðilum, þannig er
Blindraskólinn td. formlega i um-
sjá Blindravinafélags tslands en
ekki starfræktur af rikinu og
sagði Arnþór Helgason, sem mik-
il afskipti hefur haft af fræðslu-
málunum áf hálfu blindra, að i
rauninni væri þetta stjórnar-
skrárbrot, þar sem i stjórnar-
skránni væri gert ráð fyrir jöfn-
um rétti allra landsmanna til
menntunar og i fr^ðslulögum, að
rikið annaðist skólahald, amk. á
Helgi Gunnarsson frá Fossvöllum
viö burstagerð
skyldunámsstiginu. Eru enda all-
irsem til þekkja sammála um að
endurskipuleggja þurfi blindra-
kennsluna i landinu, en þótt lofað
væri af hálfu menntamálaráðu-
neytisins að skipuð yrði nefnd til
að gera reglugerð fyrir Blindra-
skólann og að frá og með haustinu
1974 yrði skólinn tekinn i rikisum-
sjá situr allt við hið sama og er
aðgerða enn beðið með óþreyju.
Það er tómstundanefnd
Blindrafélagsins sem kom nám-
skeiðunum til leiðar, en auk henn-
ar er starfandi á vegum félagsins
skemmtinefnd, sem sér um árleg
þorrablót. árshátið, jólagleði fyr-
ir börn og fleira og hefur i vetur
tekið upp nýbreytni, svokallað
,,Opið hús” öðru hverju, þar sem
ýmsir aðilar eru fengnir til að
koma fram og flytja erindi.
Einsog ein stór
f jölskylda
Margs fleira varð ég fróðari um
málefni blindra þessa kvöldstund
sem ég eyddi með ibúunum i
Hamrahlið 17, þótt ekki sé hægt
að telja allt upp i einni blaða-
grein. Mikils um verður fannst
mér sá samhugur og greinilegi
vilji til samhjálpar um að standa
á eigin l'ótum sem fram kom hjá
þeim sem ég talaði við, en mest
um vert kannski, að þetta fólk er
ekki endilega sifellt að hugsa eða
tala um vandamál sin, ekki að
vorkenna sjálfu sér, heldur nýtur
lifsins, jafnvel betur en ýmsir
sem alheilir eru. Svo hef ég alltaf
öfundað þá sem eiga stóra
fjölskyldu og þótt allir hafi jafn-
framt sinar eigin vistarverur i
Hamrahlið 17 rikir þar sannur
heimilisandi þegar hópurinn situr
saman yfir kaffinu.
—vh
LAUSAR
STÖÐUR
Málmiönaðarmenn
íslenska Álfélagið óskar eftir að ráða
nokkra járniðnaðarmenn og rafsuðumenn
nú þegar.
Nánari upplýsingar gefur ráðningarstjóri,
simi 52365.
Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar, Reykjavik og
bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar sem fyrst i póst-
hólf 244, Hafnarfirði.
íslenska Álfélagið h.f.,
Straumsvik.
Véltæknifræöingur
íslenska Álfélagið óskar eftir að ráða vél-
tæknifræðing til starfa á teiknistofu.
Ráðning nú þegar eða eftir samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur ráðningarstjóri,
simi 52365.
Umsóknareyðublöð fást hjá bókaverslun
Sigfúsar Eymundssonar, Reykjavik og
bókabúð Olivers Steins, Hafnarfirði.
Umsóknir óskast sendar sem fyrst i póst-
hólf 244, Hafnarfirði.
íslenska Álfélagið h.f.
Straumsvik.
Tilkynning frá
Hjúkrunarskóla
íslands Eiríksgötu 34
Umsóknareyðublöð verða afhent frá og
með 14. april kl. 9 til 18. Undirbúnings-
menntun skal helst vera 2 vetur i mennta-
skóla, framhaldsdeild gagnfræðaskól-
anna, hliðstæð menntun eða meiri.
Frestur til að skila umsóknum er til 15.
júni.
Skólinn hefst 15. september.
Skólastjóri
briójudaginn 15. april kl- 20
fimmtudaginn 17,: apríl kl. 20
miðaverð:
Sæti_kr. 600,
Stæói.kr. 4oo,
Börn_kr. 2oo,
Þeirra ó meðai sumt of besta
fimleikofótki heims,
Tveir bestu ^ókróbatar” heims
FORSALA AÐGÖNGUMIÐA í DAG, SUNNUDAG
FIMLEIKASAMBANDIÐ