Þjóðviljinn - 13.04.1975, Side 16

Þjóðviljinn - 13.04.1975, Side 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. apríl 1975. MYNDSTÆRÐ Viö kvikmyndatöku er nauö- synlegt aö ákveöa stærö viö- fangsefnisins f myndramman- um meö þvi að færa tökuvélina nær eöa fjær viöfangsefninu eða meö þvi að velja hentugt sjón- gler. Eftir st'ærö viðfangsefnis- ins i myndrammanum (á tjald- inu) er myndskeiöum skipt i myndstæðrir. Irauninni eru þær óendanlega margar, allt frá t.d. stækkaðri nærmynd af auga manns upp i stækkaða víömynd af landslagi meö sama manni eins og litlu striki úti viö sjón- deildarhringinn. Venjan er sú að tala um þrjár grundvallarmyndstæröir, nær- mynd, millimynd og vlömynd. Maöurinn er til viömiöunar. Nærmynd sýnir höfuö manns og axlir. A henni eru vel grein- anleg svipbrigöi, andlitsdrættir, og augun sjást greinilega. Milli- mynd sýnir mann niöur fyrir mjaömir. Þar er svipurinn og andlitsdrættirnir ekki eins áber- andi og i nærmyndinni, en þó greinanlegir. Hægt er að geta sér til um llkamsbyggingu og stöðu likamans. Viömynd sýnir allan likamann og nánasta um- hverfi. Svipbrigöi og andlits- drættir sjást ekki, en likams- bygging, staða mannsins I um- hverfinu og hreyfingar hans skipta meginmáli. Eftir myndstæröinni fer þaö, hversu mikið áhorfendur sjá af umhverfinu. t nærmynd er það hverfandi, en i viðmynd er um- hverfið eins mikilvægt eða mik- ilvægara en maðurinn. Sé myndefniö annaö en maö- ur, eru myndstæröirnar sam- svarandi. Nærmynd af húsi er mynd.sem sýnir aðeins glugga, dyr eða skorstein o.s.frv. Milli- mynd sýnir hluta hússins, t.d. hluta framhliðar með gluggum og dyrum. Viðmynd er húsiö allt með nánasta umhverfi, t.d. garði. Oftast er maöurinn viöfangs- efni myndarinnar og mynd- stærðin þvi miðuð við hann. Yf- irleitter talað um nærmyndir af litlum hlutum, sem maðurinn er I snertingu viö, t.d. bók, sem hann er aö lesa, þótt I raun og veru sé um aö ræða vlömynd af hlutnum, sé litið á hann sem höfuðviðfangsefni. Hver myndstærð hefur sitt hlutverk. Nærmynd sýnir að- eins einstakt atriöi, hún sýnir aldrei samband eöa afstöðu. Hún sýnir viöbrögð persóna og hluti, sem athygli þeirra beinist aö. Meö nærmynd vekur höfund ur kvikmyndar sérstaka athygli áhorfandans á einhverju ein- stöku atriði eða hlut I myndsvið- inu. Einnig getur það verið til- gangur höfundarins að fela allt hitt, sem er utan myndramm- ans. Á kaflaskiptum eru oft notaðar nærmyndir til aö mýkja endum nóg um, og þegar þeir sáu fyrst nærmynd af byssu, sem skotið var af I átt til áhorf- enda, flýöu þeir margir hverjir á dyr. Þótt áhorfendur séu nú orðiö vanir nærmyndinni og hræöist hana ekki, heldur hún enn mætti sinum. Nærmyndin er ágengari en aðrar myndstærðir enda höföar hún yfirleitt til tilfinn- inga fremur en skynsemi. Viö uppbyggingu myndkafla er stundum notað svokallaö lykilmyndskeið. Þaö stendur lengst myndskeiöa i kaflanum og sýnir höfuðatburöi hans. Onnur myndskeið eru þá til hjálpar og sýna viðbrögð og staðsetningar. Slikt lykilmynd- skeið er oftast millimynd. Það getur verið nokkuð langt og tek- ið miklum breytingum með hreyfingum leikara og töku- vélar. Algengasta tegund milli- mynda er mynd af tveimur per- sónum, hvort sem þær nú eru að tala saman, slást eöa kyssast. Millimynd sýnir fyrst og fremst aðgerð. Hún hefur yfir sér hlut- lægara yfirbragö en nærmynd- in, vegna þess að hún felur ekki I sér áherslu á einstökum atrið- um. Athygli áhorfandans er ekki stýrt á eins afgerandi hátt og I nærmyndinni. Viömynd gegnir þvl hlutverki að sýna aöstæður, staðhætti. Hún sýnir svæðið, sem atburðir gerast á og afstöðu persóna og hluta hvers til annars. Með samspili þessara þriggja myndstærða byggir höfundur kvikmyndar upp myndkafla og segir sögu, þar sem allt er með, staðhættir, afstaða persóna hverrar til annarrar, aðgerðir og einstök mikilsverð atriði, sem höfundur vill leggja á- herslu á. Myndstærðir eru mjög mikil- vægar við klippingu kvikmynd- ar og hafa afgerandi áhrif á það, hver myndskeið er hægt að skeyta eðlilega saman og hver ekki. skiptinguna frá einum stað til annars eða einu timaskeiði til annars. Með röð nærmynda get- ur höfundur vakið forvitni á- horfandans um atburðinn og umhverfið I heild sinni. Með millimyndinni eða viðmyndinni, sem á eftir kemur,- fær áhorf- andinn nýjan eða aukinn skiln- ing á efni nærmyndanna á und- an. Stundum er röð nærmynda notuð til að byggja upp „nýtt” umhverfiúr einingum frá ýms- um stöðum. Nærmyndir voru aldrei notað- ar i byrjun kvikmyndagerðar. Þá voru notaðar vlðmyndir svipað og áhorfendur sjá leik- ara á sviði leikhúss. Þegar farið var að nota nærmyndir og stór andlit fylltu tjaldið I kvik- myndahúsunum, varð áhorf- FRÉT' Þegar bandarikjamenn börð- ust sem djarflegast I Viet-Nam og köstuðu meira magni af sprengjum en nokkru sinni hef- ur verið kastað á eina þjóð, fengu þeir listræna kvikmynda- gerðarmenn til að kvikmynda sprengjuköstin, glæsilegar flug- vélar á sveimi, tignarlegar hel- sprengjur á leið til jarðar, gor- kúlur og blossa og allt skrautið þegar sprengjurnar sprungu á yfirborði jarðar. Sprengjuflug- vélafréttamyndum rigndi yfir hinn vestræna heim, en grátur- inn á jorðu niðri heyrðist ekki upp I háloftin. Það var ekki fyrr en banda- menn þessarar vammlausu þjóðar urðu fyrir sprengjum, að hinir listrænu kvikmyndarar beindu vélum sinum að fólkinu. Grátandi móðir að gefa deyj- andi barni mjólk. Nærmyndirn- ar verka sterkt. Hvilik illmenni eru ekki þessir skotmenn. Á meðan vestrænar frétta- stofur eru að reyna að ná sam- bandi við listræna kvikmyndara þjóðfrelsishersins og norður- vietnama og fá frá þeim myndir af eldflaugum, sprengjum og fallbyssum á ferð og flugi, þá hafa þessar vandamála- og grátmyndir borist til sjónvarps- ins okkar og sem geta má nærri fá fréttaþulirnir kökk i hálsinn nýbúnir að lesa fréttir um þaö að listrænu myndirnar, sem þeir fengu frá sömu fréttastofu um sama her fyrir ári, hafi ver- ið uppspuni og engar fréttir. En máttur myndanna er miskunn- arlaus. Með þvi að velja rétt myndefni á réttum tima verða fréttakvikmyndirnar að áhrifa- miklum áróðri, ekki til að segja okkur fréttir af striðinu heldur til þess að vekja samúð með öðrum aöila átakanna.Kvik- myndin verkar fyrst og fremst á tilfinningarnar. Það ruglar stundum áhorfandann I riminu, þegar hann beitir sinni köldu skynsemi til að skilja frétta- kvikmyndirnar. Þorsteinn Jónsson. —0— — Mamma, eigum við að koma i dýragarðsleik? — Já, elskan min- Hvernig er hann? — Ég er stóri fillinn, en þú ert áhorfandinn, sem gefur honum smákökur. — Það vantar örlitið meira viski! —0— Móðirin talaði mildilega við Ni- els litla. — Nú förum við bráðum að eignast iitið barn. Ifvort viltu heldur litinn bröður eða litla syst- ur? — Mér er alveg sama, bara ef það er eins og Andrés önd. Þrir prófessorar sátu og ræddu um mestu stórmenrti sögunnar. — Ég vildi helst láta grafa mig hjá Plató. sagði einn þeirra. — Ég hjá Michelangelo, sagði annar. — Og ég hjá Brigitte Bardot, sagði sá þriðji. — En hún er ekki dáin. — Það er ég ekki heldur. Hann kom inn i kvenfata- verslunina til að kaupa brjóst- haldara handa konunni sinni. — Stærðin? var spurt. — 116. — Jesús minn! Eruð þér vissir um það? — Já, ég nota hatt númer 58 og það kemst eitt i hann. 1 bókabúð einni i Prag hékk svohijóðandi skilti i gluggan- um: Langar þig að faðma að þér allan heiminn — kauptu þér þá hnattlikan! Tveir tilræðismenn liggja i leyni og biða einvaldsins á stað sem hann er vanur að ganga framhjá daglega. En þeir biða og biða og ekki kemur fórnardýrið. Annar þeirra áhyggjufullúr: — Það hefur þó vonandi ekkert komið fyrir hann! Það er aöeins eitt verra en að )áta tala um sig, og það er eí ekki er talað um mann. VVilde

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.