Þjóðviljinn - 13.04.1975, Qupperneq 22
22 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. aprll 1975.
m
h V:
Staöa verkfræöings
til að veita forstöðu Framkvæmdadeild
Rafmagnsveitna rikisins er laus til um-
sóknar.
Æskilegt er að umsækjandi sé rafmagns-
verkfræðingur
Umsóknir um stöðuna ásamt upplýsing-
um um aldur, menntun og fyrri störf send-
ist starfsmannadeild fyrir 1. mai n.k.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Laugavegi 116, Reykjavík.
Chile
Framhald af 5. siðu
sjálfsmorði fyrir valdhafana, og
allir með herforingjatign gætu
strax pantað sér flugmiða til
Paraguay eða likkistur.
Fangarnir
Fleiru er skotið á frest I Chile
en stjórnarskrármálinu. Til
dæmis hlutskipti pólitiskra fanga.
í blöðunum er sagt að þeir séu
2000. Diplómötum er sagt að þeir
séu 6000. 1 raun eru þeir kannski
20—30 þúsund. Helst vilja vald-
hafarnir senda þá úr landinu, en
það er hægara sagt en gert af
ýmsum ástæðum. Það viðhorf
breiðist m.a. út meðal stuðnings-
manna vinstriflokkanna sem Al-
lende studdist við, að sem fæstir
þeirra fari úr landi. Vegna þess
að það sé herforingjastjórninni i
hag, að virkustu andstæðingar
hennar séu dreifðir um allan
heim, allt frá Ástraliu til Sviþjóð-
ar. Eða eins og einn af stuðnings-
mönnum Allendes segir: ,,bað er
éinskonar uppgjöf i þvi fólgin að
láta visa sér úr landi”.
Andstaðan
Vorið 1975 sýnir Chile gesti yfir-
borð kyrrðar, strangs eftirlits og
efnahagslegrar stöðnunar. Her-
inn virðist taugaóstyrkur og hers-
höfðingjarnir eru áberandi stór-
yrtir i ræðum sínum. En undir
þessu yfirborði eru flokkar al-
þýðufylkingarinnar að skipu-
leggja sig. Ekki aðeins i flokks-
deildum beinlinis, heldur ekki
siður i formi vinahópa. Menn
koma saman sem knattspyrnu-
unnendur, menn drekka saman
kaffi, ræðast við, skiptast á upp-
lýsingum, hjálpa hver öðrum.
Kommúnistaflokkurinn er tai-
inn hafa besta stöðu. óbreyttir
borgarar telja hinsvegar að bylt-
ingarhreyfingin MIR, sem hefur
reynt að skipuleggja vopnaða
uppreisn, standi nokkuð illa að
vigi. Kannski óttast herforingja-
klikan ekkert meir en hinn stóra
og óskilgreinanlega fjölda ó-
ánægðs fólks, sem ekki hefur á-
kveðið nafn og heimilisfang, en
tekur mánuð hvern við sultar-
launum og horfir upp á það að
herinn sankar að sér forréttind-
um i nafni „Stórchile”. Valda-
kerfi Pinochets verður ekki mikill
akkur i þessu liði, þegar að þvi
kemur að staða stjórnvalda
versnar að mun, og þeir beinir
andstæðingar herforingjanna
geta aftur látið að sér kveða sem
vita vel hvað þeir vilja.
(AB tók saman).
2. umræöa
Framhald af bls. 2
neytið nokkrum félagasamtökum
snemma á þessu ári og bauð þeim
að tilnefna fulltrúa i opinbera
nefnd i tilefni kvennaársins. Á
verkefni nefndarinnar að vera
tviþætt, annars vegar aðgerðir i
sambandi við sjálft árið og hins-
vegar i sambandi við stöðu
kvenna i islensku þjóðfélagi og þá
jafnvel gert ráð fyrir rannsókn-
um og fl. sliku.
En þótt komið sé nú á fjórða
mánuð ársins bólar ekkert á
nefndarskipan. begar jafnréttis-
siðan spurðist fyrir um málið i
ráðuneytinu svaraði Björn
Bjarnason deildarstjóri þvi til, að
það væri i undirbúningi og enn
hefðu ekki verið tilnefndir fulltrú-
ar frá öllum þeim sem boðin var
þátttaka. bá yrði sennilega bætt
við fleiri fulltrúum i nefndina en
þeim sem félagasamtökin til-
nefndu.
Einsog fram kom m.a. i ályktun
láglaunaráðstefnunnar i janúar
er rikjandi óánægja með það, að
stærstu launþegasamtökum
landsins, ASl og BSRB skúli ekki
hafa verið boðin þátttaka i þess-
ari opinberu nefnd, ekki sist með
tilliti til þess, að þessi samtök
settu strax á laggirnar sérstaka
nefnd vegna kvennaársins. Var
skorað á rikisstjórnina að taka
þetta til athugunar og aðspurður
svaraði Björn, að ASI og BSRB
hefðu vakið athygli ráðuneytisins
á þvi, að þau hefðu sýnt þessum
málum áhuga, en ekki taldi hann
sig geta svarað, hvort þeim yrði
boðið að tilnefna fulltrúa i nefnd-
ina.
Október — baráttu-
mánuður
Fyrir utan júni litur út fyrir, að
október verði mikill baráttumán-
uður fyrir bættum kjörum og að-
stöðu kvenna, en þá hafa ASl og
BSRB boðað til ráðstefnu um
þessi mál. Auðvitað er ekki ætl-
unin að aðeins konur ræði jafn-
réttismálin og sitji ráðstefnuna,
en með tilliti til hvernig hlutföllin
hafa verið milli kynjanna á fyrri
ráðstefnum og þingum launþega-
samtakanna er þess óskandi, að
verklýðsfélögin hafi i huga við
fulltrúaval að a.m.k. helmingur
fulltrúa þeirra verði konur.
Mikið hefur verið rætt um að
konur legðu niður vinnu dag eða
dagstund til að leggja áherslu á
vinnuframlag sitt i þjóðfélaginu
innan og utan heimilanna og var
samþykktur stuðningur við þessa
hugmynd á láglaunaráðstefnunni
i janúar. Nú hafa rauðsokkar op-
inberlega stungið uppá, að stefnt
verði að þvi að þetta kvennaverk-
fall verði 24. október, á degi Sam-
einuðu þjóðanna. Verður þessi
hugmynd væntanlega rædd form-
lega við verklýðssamtökin á
næstunni.
Baráttan heldur áfram
bótt gott sé að fá sér til stuðn-
ings yfirlýst alþjóðlegt baráttuár
og margháttaða atburði, fundi og
ráðstefnuhald i tilefni þess,\má
hitt ekki gleymast, að það er hin
daglega barátta sem mestu várð-
ar, —að gefa hvergi eftir og veVa
sifellt á verði gegn misréttinu
hvar og hvenær sem það birtisi.
Sú barátta heldur áfram, lika eft\
ir árið 1975, þótt það sé vissulega
von okkar allra, að starf ársins
beri góðan árangur.
—vh
Skrásett vörumerki
Hinar velþekktu
oliukyntu eldavélar
til sjós og lands.
Framleiddar i ýms-
um stærðum. Með og
án miðstöðvarkerfis.
Eldavélaverkstæði
Jóhanns Fr.
Kristjánssonar h.f.
Kleppsvegi 62. Sími
33069.
SENDIBÍLASrÖÐlN Hf
Þaö borgar sig
aö auglýsa í
sunnudagsblaði
Þjóöviljans —
Útbreiðslan
eykst vikulega
SAMSTARFSNEFND UM REYKINGAVARNIR
LWff
1
Kannanir, sem gerðar hafa verið hér á landi og víða erlendis,
sýna, að reykingar foreldra hafa í flestum
tiivikum þau áhrif, að börn þeirra byrja að reykja.
Þessi hætta er minni ef aðeins annað foreldranna reykir,
’ en minnstar líkur eru á því, að unglingarnir
ánetjist sígarettunni, ef hvorugt foreldra þeirra reykir.
Það er því ábyrgðarhluti að reykja þegar börn *
• sjá til. En foreldrar, sem stunda reykingar,
Cgeta minnkað líkurnar á því, að börn þeirra
fleiðist út á þessa hættubraut,
rheð því að segja skilið við
sígaretturnar.