Þjóðviljinn - 13.04.1975, Blaðsíða 24

Þjóðviljinn - 13.04.1975, Blaðsíða 24
Sunnudagur 13. apríl 1975. Það er greinilega að koma vor. Þó+t blásið haf i kalt síðustu daga eru það bara einskonar eftir- hreytur vetrarins, svona rétt áður en hann kveður. Þegar lömb taka að fæðast er vorið að koma og alveg eins þegar kiðlingar taka að fæðast i Sædýrasaf ninu, þá er að koma vor. í síðustu viku fæddust margir kiðlingar i Sædýrasaf ninu og hér til hliðar er einmitt mynd af einum nýfæddum sem starfsmaður safnsins heldur á. Þá var okkur sagt að kindurnar í safninu ættu að fara að bera nú um helgina, þannig að mikið verður af ungviðinu þar á næstunni og búast má við að börnin sæki safnið mikið þessa fyrstu líf- daga kiðlinganna og lambanna. Hvað er nú þetta? r-v ► i i I i i r i L I I t í I ► VoranniríSædýrasafninu Gesturinn skoöaöur Og fyrir utan ungviðið er allt- af margt skemmtilegt að skoða i Sædýrasafninu. Meðan enn er hart á dalnum koma hrafnar mikið aö safninu og heimsækja nafna sina i búrunum. Heima- hrafnarnir skynja fátækt hinna aðkomnu og taka af mat sinum og færa þeim útað netinu að sögn starfsmanna safnsins og sögðu þeir að oft væri gaman að sjá þessar tiltektir þeirra. Ljón, apa, hvitabirni og sæljón, svo eitthvað sé nefnt, er hægt að skoða i safninu eins og flestir vita og er einkar skemmtilegt að skoða hvita- birnina, eftir að þeim var gert nýtt heimili, sem er i alla staði hið vistlegasta og greinilegt að þar fer betur um þá en i gamla staðnum. Myndirnar hér til hliðar segja raunar meira en mörg orð og við skulum bara láta þær tala. —S.dór Einn af starfsmönnum safnsins meö nýfæddan kiöling i l

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.