Þjóðviljinn - 20.04.1975, Side 12

Þjóðviljinn - 20.04.1975, Side 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 20. apríl 1975. Sunnudagur 20. apríl 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 13 NEYÐARÁSTAND VEGNA VATNSSKORTS Á GRAN CANARIA MARTRÖÐ ÍSTAÐ VELSÆLDAR Bananaplönturnar skrælna á ekrunum. Bananar eru aöalútflutnings- vara eyjarinnar, en útflutningurinn minnkaði um 40% á sl. ári. Þaö sem spánski greif- inn Alejandro de Castillo y Castillo ætlaöi fyrir 10 ár- um að láta verða „2. sköp- unarsögu Kanaríeyja" hefur i staö betri afkomu oröiö íbúunum hreinasta martröð. Á syöri hluta eyj- arinnar Gran Canaria þar sem hann og forfeður hans höföu áöur lifað á tómata- rækt, byggði hann upp, aöallega meðþýsku lánsfé, sumarleyf isparadísina „Costa Canaria". En land- iö, sem var vatnssnautt fyrir, hefur ekki þolað það aukaálag og þá auknu vatnsneyslu sem feröa- mönnunum fylgir, og er nú ekki annað aö sjá en að aII- ur landbúnaður leggist nið- ur á eyjunum og bændur flýi land. Á Kanarieyjum, sem eru eld- fjallaeyjar i Atlantshafi undan vesturströnd Afriku, nánar tiltek- ið á 28. gráðu norðlægrar breidd- ar og 16. gráðu vestlægrar lengd- ar, hefur ævinlega verið litið um vatn. Þar við bætist nú, að ekki hefur korriið deigur dropi úr lofti i samfleytt tvö ár. Eyjarnar til- heyra Spáni, en það var ekki fyrr en nú i vetur eftir að áhrifamiklar ferðaskrifstofur i öðrum Evrópu- löndum, fyrst og fremst Vestur- Þýskalandi, létu frá sér heyra og jafnvel höfðu i hótunum, að spánska stjórnin fór að skipta sér af málunum. Hún lýsti yfir neyð- arástandi án þess þó að hafa nein- ar ráðstafanir á takteinum, og lofaði sambandi þýskra ferða- skrifstofa að ,,láta spánska sjó- herinn sjá um útvegun vatns i neyðartilfelli” að þvi er þýska vikuritið ,,Stern” segir, en þessi grein byggist á frásögu þess. Neyðartilfellið virðist reyndar þegar vera fyrir hendi á eyjunni þar sem Kólumbus og hans menn tóku sér vatn til Ameríkusigling- arinnar forðum daga. 1 þriggja stjörnu hótelunum Trocadero og Brisamar fá hótelgestir vatn að- eins í tvo tima á morgnana og tvo á kvöldin. Á öðrum hótelum einsog t.d. Semiramis og Mamoral er iðulega skrúfað fyrir vatnið án fyrirvara hvað eftir annað dögum saraan. Nokkur kaffi- og veitingahús við strand- götuna i Las Palmas hafa orðið að ioka, en annarsstaðar hefur verið reynt að þrifa ilátin vatnslaust eöa nota pappadiska og krúsir. Eigandi veitingahússins Lusmar, sem varð að loka um lengri tima, lýsti ástandinu með þessum orð- um: í Las Palmas er skiturinn alltaf einhversstaðar stiflaður. Ekki er ástandið betra annars- staðar á Gran Canaria. I bæjun- um San Augustin, Playa del Inglés og Maspalomas fæst iðu- lega ekkert nema loft úr vatns- krönum ferðamannablokkanna. Þetta hafa t.d. þeir mátt reyna sem búið hafa á hótelunum Las Lomas, Los Olas og Los Ficus. Hóteleigendur eru að visu skyld- aðir til samkv. reglugerð að eiga ævinlega lágmarksvaraforða af vatni, en það þykir einsog hver annar lélegur brandari. Dýr „sigur” yfir náttúrunni Eina af ástæðunum fyrir vatns- skortinum á Gran Canaria, öðru nafni „Eyju hins eilifa vors” má lesa i auglýsingabæklingum ferðaiðnaðarins: ,,Þar sem áður var ekkert nema sól, sandur og sjór hefur blómstrandi gróður sigrað náttúruna og garðarnir gefa i engu eftir fegurstu görðum meginlanda Evrópu”. En þessi „sigur” hefur orðið eyjaskeggjum nokkuð dýr. Með hverjum dropa sem notaður er til að vökva grasblettina, sem komnir eru i stað tómatekra Alejandros greifa, lækkar grunn- vatnsyfirborðið. Og fyrir hvern pálma sem fluttur er inn frá ná- grannaeynni Teneriffa og gróður- settur á Gran Canaria verður að dæla eftir vatni djúpt niður i gljúp hraunlög eyjarinnar. Mest er þó vatnsskorturinn að kenna straumi yfir miljón ferða- manna sem árlega flýtur yfir eyj- una. t hverri hinna 60 þúsund ferðamannaibúða eða hótelher- bergja, sem nú eru á eynni, eru salerni, baðker og sturtur. Grun- lausir nota gestirnir salerni og bað mun oftar en heima hjá sér, en aðeins örsmár hluti afrennslis- ins er hreinsaður á bfólógiskan hátt og notaður aftur. Allt hitt flýtur gagnslaust út i Atlantshaf- ið. Innihald sundlauganna og gervitjarnanna sem eru við nær hvert hótel gufar fljótt upp af völdum sólarinnar og hlýs stað- vindar sem stöðugt leikur um eyna. Framað þessu hefur 18-holu golfvelli i Las Palmas verið hald- ið friskum og grænum með stans- lausri vökvun. Það var ekki fyrr en fyrir örfáum vikum að þvi var hætt. i Maspalomas á mörkum eyði- merkursandsins, sem heiti sji- rokkóvindurinn hefur feykt yfir 200 kilómetrana frá Sahara, eru golfvellirnir hinsvegar enn vökv- aðir með sjálfvirku vökvunar- kerfi sem gengur dag og nótt. Fyrir tveimur og hálfu ári var hér stórt stöDuvatn. Eftir tveggja ára þurrk litur botn þess svona út og bananabóndinn á myndinni, Georgio Bautista Moralis, óttast um afkomu fjölskyldu sinnar. Okur.veröið, sem brunneigendur setja upp fyrir vatnið, treystir hann sér ekki til að borga. Meðan bændur geta ekki borgað vatnið er golfvöllurinn i Maspalomas vökvaður dag og nótt. Sól, sjór og sandströnd. Og i baksýn enn meiri sandur, sem vindurinn hefur boriöyfir hafið frá Saharaeyöimörkinni Túrisminn aö drepa niður landbúnaöinn — Bændur flosna upp og geta ekki keppt viö hóteleigendur um vatnsveröiö A aðra milljón ferðamanna baöa sig árlega við strönd Gran Canaria Niðurgreiðslur duga ekki til Bændurnir uppi hæðum eyjar- innar verða æ reiðari yfir vatns- sóuninni við ströndina. Tómat- garðar þeirra bera litinn ávöxt þar sem þá vantar peninga til nauðsynlegrar vökvunar. Bananaekrurnar þorna upp. Bananarnir verða svo smávaxnir að ekki er hægt að selja þá til út- flutnings. Strax i fyrra minnkaði útflutningurinn um 40%. Rikið hjálpar litillega til með niðurgreiðslum, þvi á Kanarieyj- um kostar vatnið peninga. Him- inninn veitir ekkert og flestar uppsprettur og brunnar á Gran Canaria eru i einkaeign. Fyrir tveim árum þurftu guanchar, einsog frumbyggjarnir nefnast, að borga 10 peseta (um 27 kr. is- lenskar) fyrir rúmmetrann af vatninu. Nú borga þeir 36 peseta (97 kr.) Á bananaræktarsvæðinu San Lorenzo kostar rúmmetrinn 450 peseta (1215 kr.) og er þó rikið þá þegar búið að greiða niður hvern rúmmetra með 64 pes. (172 kr.). Bændur eru þegar farnir að gripa til þess ráðs að leiða vatnið, sem á að fara til San Augustin og Las Palmas óleyfilega á akra sina á nóttunni. Eigendur brunn- anna, vatnssjeikarnir einsog al- menningur nefnir þá, verja sig vatnsstuldi með þykkum múrum og læstum hliðum. Af 2000 brunnum á eynni eru aðeins 900 virkir nú. Hinir eru annaðhvort uppþornaðir eða það borgar sig ekki lengur að dæla eftir vatninu 300 metra niðri jörðu. 1 samkeppninni um vatnið sigrar aðeins sá, sem greitt getur það verð sem sjeikarnir setja upp. Og það eru ekki fátækir bændur, heldur hóteleigendur. Til að halda gestunum borga þeir orðið 600 peseta (1520 kr.) fyrir rúmmetrann. Þjóðnýtingar krafist Efnahags- og félagsmálamið- stöð bankanna á Gran Canaria og verkalýðssamtökin hafa opinber- lega krafist þjóðnýtingar allra vatnsbirgða og brunna á eynni. Miðað við pólitiskar aðstæður á Spáni hlýtur slik krafa að teljast byltingarkennd. En landbúnaðar- ráðið, sem að mestu er skipað stórlandeigendum og vatnseig- endum, kemur i veg fyrir réttláta skiptingu vatnsins. Don Pedro Moralis, margfaldur miljónari og eigandi vatnsmestu uppsprettanna á norðurhluta eyj- arinnar, þykist sjá lausn vandans á himnum: — Það hlýtur bráð- lega að rigna! En i tvö ár samfleytt hefur ekki rignt. öll stöðuvötn i hæðum Gran Canaria eru annaðhvort horfin með öllu eða orðin að vesældar- legum leirpollum. Danielo Ortega Rodrigues, eft- irlitsmaður stöðuvatnsins i Aya- gauredalnum, sem áður var met- ið um 2,7 milj. rúmmetrar, getur nú aðeins miðlað tómatbændum örfáum rúmmetrum. Hann óttast að þúsundir tómatbænda flosni upp og neyðist til að yfirgefa landið þar sem þeir geta ekki fengið neina aðra vinnu á eynni. 30 þúsund eru þegar atvinnulaus- ir, en það eru um 14% alls vinn- andi fólks. Telesforo Bravo, jarðfræðipróf- esson við háskólann La Laguna á Teneriffa, hefur gert rannsóknir á Gran Canaria og komist að þeirri niðurstöðu, að vatnsforðinn i jörðu sé á þrotum: Eftir tólf ár með þessari gifurlegu vatns- neyslu verður grunnvatnsyfir- borðið sokkið um yfir 100 metra, spáir hann. Það eina sem gæti bjargað og bætt upp horfnar birgðir náttúr- unnar væri regn, sem stæði mán- uðum saman. En slikur regntimi hefur aldrei komið á eyjunum. Á syðri hluta Gran Canaria hefur svotil aldrei komið dropi úr lofti, en á norðurhlutanum komu stundum regnskúrir áður fyrr. Tilraun var gerð með verksmiðju til að taka salt úr sjávarvatni i námunda við Las Palmas, en hún tókst illa, og þar fékkst aðeins tæpur helmingur þeirra 6 miljón rúmmetra neysluvatns sem átti að framleiða á ári, m.a. vegna þess að aðalvélarnar tvær voru alltaf I ólagi til skiptist. Spánska stjórnin lofar ár eftir ár að koma upp öðru sliku fyrir- tæki. En framkvæmdir hafa eng- ar orðið. Vatnsvinnsluáætlun átti að vera tilbúin i Madrid þegar ár- ið 1965. Ekkert hefur sést af henni enn. Heimastjórn eyjarinnar hefur mánuðum saman staðið fyrir rannsóknum sem miða að þvi að framleiða regn, en árangurs- laust. Tilraunir með að dreifa silfurjoðryki i skýjamyndanir hafa enn ekki gefið einn einasta regndropa. Það eina sem kemur úr lofti eru ferðamenn. Á þessu ári verður tala þeirra enn á aðra miljón. (Endursagt úr „Stern” — vh) EDDA HÁKONARDÓTTIR: UM BARÁTTU KVENNA Jú svo sannarlega vil ég ríkja ég vil jafnvel geta sagt við karlmann farðu heim og þvoðu fötin mín og notað hann kynferðislega þegar mér sýnist! ég vil ráða ríkjum og lofum bara til að geta klekkt á karlmanninum EN SAMVELDI ER nokkuð sem þarf til að leikurinn skapi ekki ójafnrétti, ranglæti t.d. af hverju get ég ekki gert það sem ég vil, og notið sama kynferðisréttar og karlmenn? af hverju þarf ég alltaf að spyrja karlmann? af hverju eru karl- menn alltaf á toppnum í poppinu, sem öðrum greinum? jú af þvi að það er karlaveldi. ég ætla að berjast. Karlmenn hafa boðið baráttu kvenna heim með karlaveldi, kúgun þeir hafa leyft sér að kúga konuna af því að hún gerði sér ekki grein fyrir aðstöðu sinni Þeir voru ekki réttlátir eins og svo oft vill verða þeir notuðu sér aðstöðu sina þið eigið eftir að þola kúgun i hef ndarskyni, það er baráttuhugur í hálfum heimi karlmenn eiga að ala börn sín upp til jafns við konur karlmenn eiga að taka pilluna (þar sem konan getur af sér nýtt líf til að halda kynstofninum við, getur hún ekki tekið þá áhættu að taka pillu sem ekki er vitað um afleiðingarnar af). ef maður barnar konu án þess að hún æski þess, skal sú hin sama skera af honum tippið. Karlmaður getur gert allt sem kona getur gert nema að fæða börn þessvegna á konan að fá sérstaka umönnun á meðan hún gengur með og hefur barn á brjósti einnig skal blæðingum kvenna sýnd sérstök virðing þar sem það lætur i Ijós frjósemi konunnar og ætlunarverk hennar i blóð borið konan er móðir öll likamsstarfsemi hennar byggist á því að skapa annað líf hún skal höfð í hávegum og lögð rækt við hana besti akuryrkjumaðurinn mun best upp skera hafa skal í huga að engin manneskja væri til ef móðirin væri ekki til.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.