Þjóðviljinn - 11.05.1975, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 11.05.1975, Qupperneq 15
Sunnadagur 11. mai 1975. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 15 Hjördís Bergsdóttir velur gítargrip við vinsæl lög Tökum lagið Halló þió! Þakka bréfin. 1 dag ætla ég að verða að ósk Bjarkar óskarsdóttur Reykjavik og önnu, Ellu og Disu Reyðarfirði. Ljóðið heitir VETRARNÓTT. Það er flutt af Ríó-trióinu á LP-plötunni Rló. Lag og ljóð eru eftir Agúst Atlason. VETRARNÓTT a G I örmum vetrarnætur C E litli bærinn sefur rótt. a G Unga barnið grætur, C E a en móðir þess það huggar skjótt. í baksýn f jöllin há snæviþaktir tindar risa fögur sjón að sjá og norðurljósin allt upplýsa D b Fögrum skrúða landið skrýðist (f (is) b slikum vetrarnóttum á. D b Flækingsgrey eitt úti hýrist E a vosbúðina hann kveður þá. Er birta fer af degi litli bærinn vaknar skjótt. Hvildar nýtur eigi lengur þessa vetrarnótt. 3. og 4. visa endurtekin. hljómar: C, G, a, E, D, f(is) b blhjmoU. 7 éé> 0 f *,», moU X ©ffl© G-hljómur. D-hljómur C~hljómur 0 Q ) Q ) c D ci- V\l ^\Y|OoT E-h ijómur I ©@ © Húsavík Húsavik Leiguíbúðir Bæjarsjóður Húsavikur auglýsir hér með eftir umsóknum um leigu á 6 ibúðum að Garðarsbraut 69, sem nú eru i byggingu og byggðar eru samkvæmt reglugerð um út- hlutun lána og byggingu 1000 leiguibúða sveitarfélaga. Jafnframt eru boðin út skuldabréf fyrir 20% af kostnaðarverði hverrar ibúðar. Umsóknir skulu hafa borist til bæjarritara fyrir 1. júni n.k., á þar til gerðum eyðu- blöðum sem liggja frammi á bæjarskrif- stofunni og eru þar veittar allar frekari upplýsingar. Húsavik 5. mai, 195, Bæjarsjóður Húsavikur. SITT ÚR HVERRI ÁTTINNI Spara, spara Ekki er ofsögum sagt af sparnaðaröldinni sem nú geng- ur yfir meginlandið. Þannig hefur ma. lögreglunni i Austur- riki verið fyrirskipað á öllum sviðum og samkvæmt þvi létu lögregluyfirvöld i norðurhluta landsins það boð út ganga að hér eftir yrðu lögregluþjónar sjálfir að leggja sér til þann klósett- pappir sem þeir þörfnuðust i vinnunni. Eruö þiö stressuö? Satt að segja veröur maður langþreyttastur af að hugsa um það sem maður þarf að gera. Verkin sem ekki er enn byrjað á tekur lengstan tima að klára. Reiöur, reiöari.. Og svo var það feröamaður- inn sem kom úr Evrópureisunni og sagði frá: ..og frakkarnir eru eigin- lega alveg eins og italarnir, nema enn reiðari.... VISNA- ÞÁTTUR S.dór. Allt sem þjóöin átti og naut... Mættir á staðinn Það gerðist nýlega I námunda við Le Mans i Frakklandi: Brunabill og lögreglubill lentu i árekstri. Rétt á eftir kom sjúkrabill á miklum hraða og lenti á þessum tveim. Hann skemmdist þó óverulega og gat flutt tvo slasaða úr árekstrinum á spitala. Brunaliðsmennirnir hjálpuðu til að rétta lögreglubil- inn við og lögregluþjonarnir skrifuðu skýrslu um umferðaró- happið. Þá ertu miðaldra... ef siminn hringir heima hjá þér á laugardagskvöldi og þú vonar af öllu hjarta að það sé ekki til þin! Tvíkvartett? I dönsku þorpsblaði gat að lesa um daginn: „Tveir Jen- sensþriburanna ætla á sjóinn, einn vinnur viö verslun föður sins og sá fjórði ætlar nú að flytjast til Suður-Ameriku” Ætli honum finnist hann hálf- gert fimmta hjól undir vagni? Biðstofuhjal Kvensjúkdómalæknir nokkur I Milanó hefur hengt svohljóð- andi áminningu upp i biðstofu sinni: „Dömur minar. Skiptist ekki á sjúkdómslýsingum meðan þið biðið. Annars lendi ég i mestu vandræðum við að sortéra þær i sundur aftur.” Með visnasöfnun sinni og sið- ar útgáfu á Visnasafni eitt og tvö hefur Sigurður Jónsson frá Haukagili unnið ómetanlegt starf sem visnavinir fá aldrei fullþakkað. Nú á timum, þegar hagmælska virðist á undanhaldi eða það þykir ekki lengur fint að yrkja stöku i stað atómljóða, þá er það dýrmætara en. menn kannski grunar að safna þeim visum sem enn eru ortar, hvað þá þegar slik drift fylgir að gefa safnið út i bók. Sigurður hefur gefið okkur leyfi til að birta nokkrar visur úr visnasafni sinu,og munu vis- ur úr safni hans að mestu leyti bera uppi þennan þátt. t Visnasafni 1 hefur Sigurður notað visu skáldsnillingsins Steingrims Baldvinssonar frá Nesi sem einkunarorð.en hún er svona: Allt sem þjóðin átti og naut, allt sem hana dreymir, allt sem hún þráði og aldrei hlaut alþýðustakan geymir. Það er mikill sannleikur i þessari visu Steingrims, ekki siður en þessum visum Stefáns G. Undarleg er isiensk þjóð allt sem hefur lifað, hugsun sina og hag i ljóð hefur hún sett og skrifað. Hlustir þú og sé þér sögð samankveðna bagan þér er uppi lófa lögð landið, þjóðin, sagan. Og þeir voru fleiri vestur-is- lendingarnir sem höfðu taugar til visunnar eins og alkunna er. Þessi visa er eftir Þorstein Þ. Þorsteinsson: Finnst mér lýsa um brjóst og bak bjartra disa geislahringur, hvar sem islenskt tungutak týnda visu aftur syngur. Einar Þorgrimsson, annar vesturislendingur yrkir i von- leysi: Eg er blauður orðinn þræll og mun trauður gleyma, nú væri auður vinur sæll að vera snauður heima. Jónas Jóhannsson frá öxney á Breiðafirði yrkir: Hlátur brestur, grátur grær, gæfa sést á reiki. Sá hlær best er siðast hlær svo er um flesta leiki. Þórarinn Sveinsson i Kilakoti yrkir á góðri stund: Hornasjórinn hressir geð hylli sór ég veigum. Ilýran bjórinn drósum með drekk i stórum teygum. Sigurður Jónsson frá Kalda- dal var nýgiftur og kom til kirkju. Heilsaði hann karlmönn- um með kossi en konum með handarbandi. Þetta þótti mönn- um skrýtið en Sigurður svaraði: Ekki kyssa mey ég má, mér er skylda að baki. Aðcins finna ylinn frá einu handartaki. I annað sinn leit Sigurður i ung og heit meyjaraugu og sagði: Böl er sveinum bið og hik best i Ieynum gengur. Þetta eina augnablik ætti að treinast lengur. Haraldur Hjálmarsson frá Kambi, sem við höfum oft birt visur eftir, yrkir til konu: Mikið ertu f jölluð, frú, fjörið mun þvi valda. Kvakaðu til min þegar þú þarf á manni að halda. Um konu eina sem þótti aðsjál orti Sigurbjörn Jóhanns- son frá Fótaskinni: Auö þótt hálan hangi við harðlynd fálan bauga. Þrengra sál mun himins hlið en hesti nálarauga. « Jakob Ö. Pétursson frá Hranastöðum yrkir: Lcitt er karlsins kjótl og tutl, káf i pilsum betl og fitl. Sifelt nudd og rjátl og rutl, ráp og tritl og dútl og kitl. Tómas Jónsson og Skarphéð- inn Einarsson báðir á Blöndu- ósi, sambýlingar og vinir hafa oft kveöist á sér og öðrum til ánægju | Eitt sinn kvað Tómas: Ég hef séð þess vlsan vott á vorum kjaftafundum, að Skarphéðinn vill gera gott, en gleymir þvl bara stundum. Skarphéðinn svaraði: Viða brotinn veit ég pott vil sem dæmi taka, aö Tómas mörgum gerir gott en gripur sumt til baka. Lifshlaupi sómamanns lýsir Stefán Stefánsson frá Móskóg- um þannig: Labbar fullur lifsins slóð meö litla fyrirhyggju, út og suður eltir fljóð og endar á Kviabryggju. Stina og ástin fá þessa viöur- kenningu frá Stefáni: Astin kyndir elda sina ásamt girndinni. Ég hef yndi af þér Stina eins og syndinni Þorsteinn frá Gilhaga orti um mann sem giftist aldraðri ekkju: Kalt er ástarþelið þitt þó ei framar vonum. Þaö er illt að eiga sitt undir haustveðronum. A alþingi 1958-1959 sótti Björgvin Jónsson þingmaður seyðfirðinga allfast á rikisfram- lög ýmisskonar, seyðfirðingum til handa: þá orti Karl Kristjánsson: Held ég að Björgvin hiröi helminginn rikisfjár. Sólin á Seyðisfirði sest ekki þetta ár. Þetta látum við nægja i bili úr visnasafni Sigurðar frá Hauka- gili. Næstu tvær visur bárust okkur fyrir skömmu. S.E. yrkir þá fyrri: 1 minni skúffu vildi ég gjarn- an aö ég ætti og engan skattinn af þvi sætti alla landsins visnaþætti. „Járnharður” sendir okkur þessa visu i tilefni forsiðu- myndar Þjóðviljans 27.4. sl. Þá lærastautinn lita vann lyftist brún að vonuin. Lengi endast ætti harin inni rauðsokkunum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.