Þjóðviljinn - 01.06.1975, Side 4

Þjóðviljinn - 01.06.1975, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 1. júni 1975 DWÐVHHNN MÁLGAGN S-QSÍAUSMA VERKALÝÐSHREYFINGAR ,0G ÞJÖÐFRELSIS tJtgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Kijstjórar: Kjartan Ólafsson, Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón meö sunnudagsblaöi: Vilborg Haröardóttir Ritstjórn, afgreiösla, augiýsingar: Skólavöröust. 19. Slmi 17500 (5 linur) Prentun: Blaöaprent h.f. í FYLLSTU ANDSTÖÐU VIÐ ANDA OG TILGANG STJÓRNARSKRÁRINNAR Morgunblaðið segir i fyrradag, að vald- niðslulögin gegn verklýðshreyfingunni séu sett af löglega kjörinni rikisstjórn með löglegum hætti samkvæmt stjórnarskrár- heimild og þvi beri þegnunum að hlýða möglunarlaust. Svona einfalt er vanda- málið ekki. Islenskt lýðræði er EKKI i þvi fólgið að þegnarnir kjósi þingmenn á fjög- urra ára fresti og siðan geti rikisstjórn sem meirihluti þingsins velur stjórnað að eigin geðþótta án tillits til fólksins i landinu. Alþingi situr að störfum meiri- hluta ársins vegna þess að það á að fjalla um mál og taka ákvarðanir fyrir opnum tjöldum, og meginstörf alþingis eru þau að leggja vandamálin fyrir þjóðina jafnóðum og þau ber að, taka mið af viðhorfum al- mennings og almannasamtaka og ganga siðan frá ákvörðunum i heyranda hljóði. Þessi formlega og óformlega samvinna þjóðar og þings er meginundirstaða lýð- ræðis á íslandi og á rætur sinar allt aftur i þjóðveldistima. Þær rikisstjórnir sem unnið hafa af skynsemi hafa ævinlega gætt þess vandlega að lagasetning um mikilvæg atriði eigi nægilega traustan bakhjarl i almenningsálitinu. Enda hefur reynslan að sjálfsögðu sannað það marg- sinnis að lög sem brjóta i bága við sið- gæðisvitund og réttlætiskennd almennings standast ekki nema skamma stund. Það er vissulega rétt að rikisstjórnir hafa stjórnlagalega heimild til þess að gefa út bráðabirgðalög, þegar alþingi gegnir ekki störfum. En slik lagasetning á að vera alger undantekning og neyðarúr- ræði, ef upp koma alvarleg og ófyrirsjáan- leg vandamál utan þingtima, og þá er sér- staklega mikilvægt að rikisstjórn hafi dómgreind til þess að meta réttilega og á sanngjarnan hátt viðhorf almennings. Þessa grundvallarreglu hefur núverandi rikisstjórn þverbrotið. Þegar hún rak alþingi heim fyrir hálfum mánuði var stöðvun rikisverksmiðjanna hafin og vandamálin fyrirsjáanleg. Rikisstjórnin var margsinnis um það spurð siðustu daga þingsins hvernig hún ætlaði að halda á samningum við verkafólk i verksmiðjun- um, vegna þess að á þeim vinnustöðum var rikisstjórnin beinn samningsaðili. Frá rikisstjórninni fengust hins vegar engin svör. Það er nú ljóst að alþingi var rekið heim til þess að ráðherrarnir hefðu tök á að beita valdi. Með þeim vinnubrögðum hefur rikisstjórnin þverbrotið grund- vallarreglur þingræðis og lýðræðis, þótt hún flíki heimildum stjórnlaga er hún að traðka á raunverulegu inntaki þeirra. Alþýðubandalagið krafðist þess áður en alþingi var rekið heim að rikisstjórnin héti þvi að beita ekki bráðabirgðalögum til þess að reyna að ráða til lykta kjaradeil- um þeim sem hafnar voru eða voru fyrir- sjáanlegar, heldur yrði alþingi kvatt sam- an til aukafunda ef rikisstjómin efndi til öngþveitis með stefnu sinni i efnahags- og atvinnumálum. Rikisstjómin fékkst ekki til þess að gefa nein slik fyrirheit. Alþýðu- bandalagið hefur nú itrekað þessa kröfu formlega með bréfi til rikisstjórnarinnar. Þá hafa stjórnarandstöðuflokkamir þrir tekið upp samvinnu sin á milli til þess að reyna að koma vitinu fyrir rikisstjórnina, fá hana til þess að afturkalla bráðabirgða- lögin og ganga frá samningum á eðlilegan hátt, en þar vantaði aðeins herslumuninn þegar valdinu var beitt. Mun þjóðin að sjálfsögðu fylgjast vandlega með þvi hver viðbrögð rikisstjórnarinnar verða. Sú barátta sem Alþýðusamband íslands og verkafólk við Sementsverksmiðju, Áburðarverksmiðju og Kisiliðju heyja er mjög örlagarik. Hún sker ekki aðeins úr um það hverjum árangri launafólk nær i hinni óhjákvæmilegu sókn sinni fyrir bættum kjörum og auknum réttindum, heldur er hún orðin barátta gegn hroka og valdniðslu stjórnarvalda, fyrir virku lýð- ræði og þingræði á íslandi. Á þvi er enginn vafi að allur þorri islensku þjóðarinnar ætlast til þess að haldnar verði i heiðri hinar fornu meginreglur um lifandi sam- ráð þings og þjóðar, um lög sem sæki bak- hjarl sinn i réttarvitund almennings. Ef svo óliklega færi að núverandi rikisstjórn tækist að halda valdniðslu sinni til streitu, gæti eftirleikurinn orðið óvandaðri og hroki ráðherra birst á æ fleiri sviðum. Þvi getur það skipt miklum sköpum að þjóðin beiti öllum tiltækum ráðum til þess að hnekkja þeim bráðabirgðalögum sem sett voru 29. maí i fullkominni andstöðu við anda og tilgang stjórnarskrárinnar og is- lenska Iýðræðishefð. —m. JÓHANNES EIRÍKSSON SKRIFAR UM ÚTILÍF Að baki Esju 1 slðasta þætti gengum við um Hvalfjarðarfjörur. Nú langar mig að vekja athygli bilafjölskyldna á skemmtilegri ökuleiðsem tilvalið er að fara á góðviðrisdegi. Bæði vegarins vegna og sakir fegurðar, gerir þessi leið þær kröfur til bil- stjóra að þeir aki hægt mjög hægt, með hreinar rúður, and- skotist ekki á flautunni, og taki helst ekki framúr. Skömmu eftir að komið er yfir Tiðasskarð verður fyrir okkur vegur á hægri hönd, merktur Eyrarfjallsvegur. Við skulum fara þennan veg sem liggur bak Esju sem er tröllslega hrikaleg þama i mótsögn við heidur hvers- dagsleg örnefni, flest nema Eilifsdalur, sem er skuggaleg hömrum girt kvos i Esjuna. Þegar komið er fyrir Eyrafjallið opnast dágóð sýn yfir vesturhluta Kjósarinnar, sem er svipfrið vel. Siðan fylgir vegurinn fjallinu og brátt erum við aftur á þjóðvegin- um inn Hvalfjörð. Þetta var eins og stutt aukamynd í bió. Við tök- um næsta þverveg og ökum aftur til hægri, en nú uppmeð Meðal- felli sunnanverðu, milli þess og vatnsins. Meðalfellsvatn er undurfallegt, þótt nú orðið sé varla hægt að drepa niður fæti við norðurbakka þess fyrir sumarbú- stööum. Mér er I barnsminni að ég dvaldi 5 ára patti nokkra daga i sumarbústað vinafólks þarna við vatnið. Þetta var ævintýra- heimur reykjavikurbarni. Einn daginn gengum við krakkarnir upp á Meðalfell. Með mér var stúlka jafngömul og önnur litiðeitt eldri sem hafði forystu. Ég man ekki annað en okkur hafi gengið prilið vel og ekki verið svimagjarnt. En þegar maður ek- ur þarna hjá i dag skilur maður ekki hvernig svo ungir krakkar hafi komist þarna upp brattar skriður og kletta, og yrði sjálfsagt ekki um sel að horfa á eftir sinum krökkum þarna upp. Afram förum við, upp fyrir Meðalfell, og brátt blasir við veg- legur skáli og kirkja i brekku handan við ána. Þetta er Vindás- hlið, þar sem KFUK rekur sumarbúðir fyrir stúikur á sumr- in. Þarna var konan i dvöl, og Möðruvellir, Laxá, Sandfell og aOdragandi Kjalar. þangað fara dæturnar eftir þvi sem aldurinn leyfir, enda hlýtur þetta að vera skemmtilegur stað- ur fyrir börn. Hliðin er vaxin kjarri i skjóli fyrir norðanáttinni og um grundirnar fyrir neðan liðast áin, en ákaflega svipfagurt og reglulega lagað fjall er fyrir ofan staðinn, Sandfellið um 400 metra hátt. Af Sandfellinu hlýtur að vera fagurt um að litast og ekki nema hæfilegur gangur fyrir stelpurnar i Vindáshlið. Við kom- um að vegamótum og getum ann- að af tvennu, lokið hringleið um Kjósina og ekið niður með Laxá handan Meðalfells og undir Brött- um hliðum Reynivallaháls eða haldið áfram upp i Kjósarskarð. Og það gerum við. Handan við Vindáshlið, en dálitið ofar er bær- inn Irafell undir samnefndu felli, og trafellsmóra þekkja allir af þjdösögnum. Skammt austar eru ásar tveir rétt við veginn með lyngbrekkum, Langiás og Stelpu- ás. Þar er gott að á og taka upp slna nestistösku, þvi að fegurðin þama i kring um mann örvar matarlystina, og sú ró sem fylgir þvi að matast i fögru umhverfi hjálpar manni að komast i snert- inu við það. Nú, þegar við höfum snætt nægju okkar, höldum við áfram. Æ, ég gleymdi Svinaskarðinu. Rétt áður en við komum móts við Irafell blasir við talsverður dalur milli Esju og Skálafells. Það er Svina- dalur. Ýmsir hlutar þess fjall- garðs sem við köllum Esju, hafa séstök nöfn. Austast eru Mó- skarðshnjúkar og milli þeirra og Skálafells er Svinaskarð, gömul þjóðleið milli Mosfellssveitar og Kjósar, auðfarin leið. Handan Skálafells er svo Kjósarskarð, þar sem við erum nú stödd. Á vinstri hönd eru viðlend heiðar- lönd, Kjölur, en hálendisbrúnin brött með kletta og djúpskorna hamra og gil uns heiðin breiðir úr sér ofan Stiflisdalsvatns og leiðin styttist að Þingvallavegi. Alla þessa leið hefur vegurinn verið frekar mjór kannski, en þó mjög góður af malarvegi að vera. Lik- lega er óhætt að skilja við lesand- ann hér á Þingvallavegi. Héðan rata allir heim.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.