Þjóðviljinn - 01.06.1975, Page 6

Þjóðviljinn - 01.06.1975, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur I. júni 1975 SVAVA JAKOBSDÓTTIR: Rikisstjóm ihalds og framsókn- ar hefur nú setið að völdum i þrjá ársfjórðunga. Fyrir kosningarnar i júni s.l. varaði Alþýðubanda- lagið mjög við þvi að sú staða gæti komið upp að kosningum loknum, að þessir tveir flokkar mynduðu rikisstjórn. Þá þegar voru ýmsar blikur á lofti er bentu til þess að Ólafur Jóhannesson stefndi til hægri með flokk sinn en ætlaði sér ekki i nýja vinstri stjórn. Reynslan hafði kennt mönnum að aldrei væru árásir á kjör launafólks i landinu hat- rammari en þegar fjármagnseig- endur og gróðaöfl framsóknar og fhalds tækju höndum saman. Reynslan af hinum tiltölulega skamma valdatíma þessarar rlkisst jórnar hefur sannað, að að- varanir Alþýðubandalagsins voru á traustum rökum reistar. Stóru orðin gumið eitt Þegár ólafur Jóhannesson hafði afhent Geir Hallgrimssyni lyklavöld að ráðuneyti sinu s.l. haust, var þvi lýst yfir að nú tæki við hin „sterka, ábyrga” stjórn á efnahagsmálum. Reynsla undan- farinna mánuða hefur sannarlega ker.nt launafólki, hvað ihaldsöflin Starfsmenn AburðarverksmiOjunnar og Sementsverksmiöjunnar komu saman til fundar I Lindarbæ i fimmtudaginn. Þar var rætt um þaö gerræöisem rlkisstjórnin haföi I frammi meö setningu bráöabirgöalaga. — IVIynd-- S.dór Hver stofnar framtíð þjóðarinnar í voða? eiga við þegar þannig er talað. Afleiðingamar af hinni „sterku, ábyrgu” stjórn blasa nú við. Launafólk þarf nú minnst 38% kauphækkun til þess að ná sama kaupmætti og eftir samningana I fyrra og enda þótt kaupgjalds: vísitala hafi verið bundin allan þennan tima, hefur verðbólgan vaxið svo mjög að vísitala fram- færslukostnaðar hefur á sama tima hækkað um 70%. Verðlag vöru og þjónustu hefur farið hækkandi dag frá degi. Skammt er slðan leyfð var hækkun á álagningu verslunar um 14% og þegar þetta er skrifað, er ekki annað vitað en von sé á nýjum hækkunum á landbúnaðarvörum. Jafnvel ritari Framsóknar- flokksins hefur opinberlega viðurkennt að rikisstjórnin hafi ekki vald á stjórn efnahagsmála. öll stóru orðin um hina „sterku, ábyrgu” stjórn eru þvi gumið eitt og það er alkunna að mörgum Framsóknarmanninum ofbýður óstjóm og vanmáttur þessarar rlkisstjómar og árásir hennar á launafólk og kjör aldraðra og ör- yrkja. Hver er óþjóðhollur? En það þarf vitaskuld að halda við blekkingunni um hina „sterku, ábyrgu” stjórn i lengstu lög. t þvi skyni skal skuldinni skellt á launafólk. Aróðri hefur verið beint gegn verkalýðs- hreyfingunni og launafólki al- mennt I æ ríkari mæli og af æ meiri óbilgirni. I málgögnum stjórnarflokkanna hefur ásökun- um og hótunum rignt yfir verka- lýðshreyfinguna vikum saman af dæmafárri ósvlfni. Þannig segir t.d. I Morgunblaðinu, málgagni forsætisráðherra, þ. 8. apríl s.l. að kunni menn sér ekki hóf I kröfugerð „getur það haft alvar- legar og örlagaþrungnar af- leiöingar fyrir framtið íslensku þjóðarinnar”. Það er sannarlega nauðsynlegt fyrir allt launafólk i landinu að gefa gaum slikum stóryrðum og þeim anda er að baki býr. Þessi ummæli eru ekki einsdæmi en sjaldan hefur afturhaldið opnað svo berlega inn í hug sinn sem I þessari ásökun. Hér er verið að segja berum orðum að þorri launafólks innan raða ASÍ og BSRB sé óþjóðhollt fólk sem stofni framtlð þjóðarinnar I voða; I þessum ummælum birtist við- horf rlkisstjórnarinnar til þess fólks sem vinnur hagnýt störf I þágu þjóðfélagsins, — þess fólks sem stundar framleiðslustörf og aflar þjóðinni gjaldeyris — þess fólks sem vinnur að kennslumál- um, heilbrigðisstörfum, félags- störfum, svo nokkur dæmi séu tek in. Þessar köldu kveðjur rikis- stjómarinnar varpa nú einnig skugga á hátlðisdag sjómanna. Kjör sjómanna Á þessum vetri voru kjör sjó- manna rýrð allverulega með lög- um um ráðstafanir I sjávarút- vegi. Hækkaður var sá hlutur sem tekinn er af óskiptum afla og hon um ráðstafað til Stofnfjársjóðs fiskiskipa, þ.e.a.s. þarna var um aö ræða mjög umtalsverða til- færslu á fjármunum frá sjómönn- um til atvinnurekenda. Að undan- fömu hafa sjómenn orðið að standa I löngu verkfalli til þess að koma í veg fyrir að vökulögin verði ógilt I reynd. Af þessum sökum hafa fjölmörg kaupskip einnig stöðyast. En rikisstjórnin heldur að sér höndum. Hún hefur haldið hllfiskildi yfir pappirsút- gerðarmönnum og haldið þannig togurunum bundnum við bryggju vikum saman. Þessari kjaraskerðingu vilja sjómenn vitaskuld ekki una, en vilja sinn hlut bættan. Svarið, sem þeir fá af hálfu ríkisvaldsins, er það, eð þeir séu að stofna framtlð Islensku þjóðarinnar i voða. Þeir munu vist fáir, ef nokkrir, Islendingarnir sem taka undir slíkt með rikisstjórninni. Við samningaborð verkalýðs- félaganna og atvinnurekenda er mörgum talnágögnum veifað I þeirri von að unnt sé að sannfæra verkafólk um að það sé að stofna framtlð íslensku þjóðarinnar i voða með kröfum sinum. En minna er um plögg sem sýna hvað ábyrgðarleysi rikisstjómar- innar kostar þjóðina. Þvi er ekki hampað hvað það kostar þjóðina að hafa togarana bundna við bryggjur vikum saman. Þvf er ekki hampað að þrákelkni rikis- stjórnarinnar við að leysa deilurnar I rikisverksmiðjunum kostar6milj.kr.á dag. Ósvifni og úrræðaleysi rikisstjórnarinnar hefur nú komið I ljós með setn- ingu bráðabirgðalaganna um bann verkfalla I verksmiðjunum. Engin Uttekt hefur heldur verið gerð á því hve mikið atvinnuleysi fólks I frystihUsunum kostar heimili þeirra, en talið er að um 500 manns i Reykjavlk séu at- vinnulausir af völdum togara- verkfallsins. Ríkisstjórnin bakhjarl atvinnurekenda Það er samdóma álit verka- lýðsforustunnar að þjóðarbUIð hafi ekki orðið fyrir þeim áföllum er réttlæti svo stórfellda kjara- skerðingu sem rlkisstjórnin hefur stabið að. 1 þessu sambandi er rétt að minna á, að á s.l. ári skertust þjóðartekjur islendinga aðeins um 1%. Með efnahagsráð- stöfunum sfnum hefur rikis- stjórnin verið að færa til fjármuni frá launafólki til efnamanna og fjárplógsmanna. Rikisstjórnin ber fyrir sig að gjaldeyrissjóður- inn sé tómur, en hún horfði að- gerðarlaus á heildsala og inn- flytjendur tæma hann. Ekki hefur málgagn forsætisráðherra né forustumenn i flokki hans heyrst saka þá um að stofna framtið þjóðarinnar I voða! Þannig voru fluttir inn á s.l. ári 2000 bílar um- fram þörf. í sjónvarpsþætti ný- lega var forsætisráðherra álasað fyrir þessa óstjórn og gjaldeyris- sóun, en hann horfði ráðþrota á viðmælanda sinn og spurði: En hver átti að fá þann siðasta? Þetta var þá hinn stóri vandi sem hinn áhyggjufulli heildsali, forsætisráðherra Islands, átti við að glíma meðan mýmörg alþýðu- heimili lifa á atvinnuleysisbótum og sjá fram á gjaldþrot. Hann gleymdi þvi, forsætisráðherrann, að slðasti bilíinn plús um það bil 1999 aðrir lágu i birgðageymslu innflytjenda, óseljanlegir. Það þarf engan að undra þótt at- vinnurekendur sýni óbilgirni við samningaborðið þegar þeir hafa að bakhjarli rlkisstjórn sem lýst hefur yfir því siðferðilega mati á vinnandi fólki, að það sé með sjálfsögðum og réttmætum kröf- um sínum að stofna framtið is- lensku þjóðarinnar i voða. En vinnandi fólk hefur annað sið- ferðilegt mat á þýðingu og yerð- mæti starfa sinna og til þess mats og sjálfsvitundar mun það sækja styrk I þeim átökum sem virðast óhjákvæmileg, ef það á fá sinn hlut bættan. Félag íslenskra loftskeytamanna sendir meðlimum sinum og sjómönnum öllum sinar bestu kveðjur i tilefni dagsins. «SKODA KR. íoo645.000.- Verö til öryrkja 470.000. TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ Á ÍSLANDI H/F. AUÐBREKKU 44—46 KÓPAVOGI SÍMI 42600

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.