Þjóðviljinn - 29.06.1975, Blaðsíða 19
Sunnudagur 29. júni 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 19
lQI=
(H ]
Þessa skrýtlu sendi Árný Vaka Jónsdóttir, Húsey
1, Hróarstungu, Norður-Múlasýslu. Kompan
I þakkar fyrir og skemmtilegt væri að fá fleiri
I myndaskrýtlur.
VÍSA UM BÍTLANA
10 ‘VIOH ‘HflCTIQ ‘NOf
‘iTOf H IHItfT ‘VT ‘QNO ‘TO ‘TOf ‘HílQOfH uiqjq
Bitlarnir með loðinn lubba
leika bara og æða.
Fólki gaman þykir að þeim
þeir margt pundið græða.
Elli 12 ára.
2.4
DES
FIFFI FÍFILL
Einu sinni, þar sem
margir fíflar voru, var
einn pinu lifill. Smám
saman óx hann og varð
stórfífill. Hann breyttist,
hann fölnaði og fékk á sig
gráa húfu. Þessi gráa
húfa hafði á sér mörg
fræ. Einn daginn kom
stór vindhviða. Hún
þeytti öllum fræjunum í
burtu. Sum lentu i grasi
og þar settust þau. Sum í
mold, en eitt lenti á gang-
stétt og það var Fiff i fíf-
ill. Hann hugsaði með
sjálfum sér: Þessi fræ
eru vitlaus, þau setjast
bara einhvers staðar, en
hann ætlaði að setjast að
á góðum stað.
Hann gekk eftir gang-
stéttinni. Þar sá hann
mörg fræ. Sum kölluðu í
A hvaöa öngli
hangir skiltið?
(|) Cs) (3) (p
Getið þið séð, hvar i stóru myndinni litlu mynd-
irnar fjórar fyrir neðan eiga að vera?
| MYNDASKRÍTLA
| FRÁ ÁRNÝJU
I RMZ.
2 3
í SKÓGINUM
hann: ,,Vertu hér, það er ,,Jahá”, sagði Tumi
svo gott að vera hér". ákafur.
,,Nei", sagði Fiffi fíf-
i11, ,,ég ætla að vera á
góðum stað".
Og hann hélt áfram.
Hann sá einn vera að
reyna að klifra upp í
glugga. Þá kallaði Fiffi
til hans: ,,Ekki vera að
klifra upp í gluggann.
Komdu heldur með mér".
,,Allt í lagi", sagði fræ-
ið og renndi sér niður.
,,Hvað heitir þú?"
spurði Fiffi.
,,Ég heiti Tumi, en
þú?"
,,Ég heiti Fiffi fífill.
Hvert ert þú að fara?"
spurði Fiffi.
,, Ég er að reyna að f ara
þarna upp. En þú?"
,,Ég ætla að finna mér
góða mold, þar ætla ég að
vera", sagði Fiffi mont-
inn.
,,Viltu kannski vera
samferða?"
,,Þá skulum við koma
okkur af stað".
Þeir gengu fram hjá
mörgum fræjum, sem
kölluðu á þá: ,,Verið þið
hér!"
,, Nei, við ætlum að vera
á betri stað".
Þeir gengu inn í port.
Þar voru margir fíflar.
,,Verið hér. Hér er gott
að vera, það er enginn
sem slitur okkur upp".
Fi.ff i ákvað að vera þar
og Tumi líka. Þeir settust
niður í moldina, og þar
festu þeir rætur. Skömmu
eftir þetta, þegar þeir
voru orðnir stórir, komu
mörg börn inn i garðinn,
og þau rifu upp marga
fifla, þar á meðal Fiffa
og Tuma. Þar lauk æfi-
sögu Fiffa.
Ingigerður Slefánsdóttir,
11 ára,
Leifsgötu 10, Reykjavik.
Sendiö Kompunni Ijóð, sögur,
frásagnir, teikningar, Ijósmyndir
og vísur eftir ykkur sjálf.
Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir