Þjóðviljinn - 04.07.1975, Blaðsíða 1
ÞluÐVIUINN
Föstudagur4. júli 1975 — 40. árg. —147. tbl.
Þar var sparað!
A þessu ári er varið 20 miljón-
um til byggingar húss fyrir aldr-
aða i Furugerði. A fjárhagsáætl-
un þessa árs voru þó veittar 85
milj. kr. til þessa verks, en þar
sem borgarstjórnarihaldið var að
spara, var það látið koma niður á
framkvæmdum vegna aldraðra.
Myndina tók AK i Furugerði i
gær. Á auðu lóðinni milli húsanna
á húsið fyrir aldraða aö byggjast.
Þetta mál gerði Sigurjón Péturs-
son að umtalsefni meðal annars á
fundi borgarstjórnar i gærkvöld,
þar sem fjallað var um borgar-
reikningana fyrir sl. ár. Flestir
liðir reikninganna fóru langt
framúr áætlun — nema féð til
byggingar húss fyrir aldraða.
Fundur í landhelgisnefnd i gær:
Landhelgis-
staðan rædd
1 gær var haldinn fundur i land-
heigisnefnd þingflokkanna. Þar
var staðan i iandhelgismálinu
rædd og meðalannarshvenærráð-
istskuii I útfærslu landhelginnar i
200 sjómilur. Var ákvörðun um
dagsetningu ekki tekin á þessum
fundi, en gert mun vera ráð fyrir
að útfærsla taki gildi með tveggja
til þriggja mánaða fyrirvara.
Þannig má þvi gera ráð fyrir að
útfærsla landheiginnar taki gildi
um miðjan október til 13. nóvem-
ber.
Rikisstjórnin mun nú þessa
dagana fjalla um landhelgismál-
ið. Þá hafa stjórnarflokkarnir
rætt málið sérstaklega: mun
þingflokkur Framsóknarflokks-
ins hafa gert sérstaka samþykkt i
málinu. Sem kunnugt er hefur Al-
þýðubandalagið þegar fyrir
nokkru markað þá stefnu, að
jafnhliða útfærslunni i 200 sjómil-
ur skuli mörkuð sú heildarstefna i
landhelgismálinu, að undanþágu-
veiðar útlendinga innan fiskveiði-
lögsögunnar komi ekki til greina.
Næsti fundur i landhelgisnefnd-
inni er ráðgerður i næstu viku.
Framsókn-
armaður
misbeitir
húsbónda-
valdi
— sjá 3. siðu
m
Húseining-
ar byggja
í Garða-
hreppi
— sjá 2. síðu
Beiðni Air
Yiking
hafnað í
flugráði
— sjá 12. síðu
r
Utvarps-
stjóri kynnti
sér lita-
sjónvarp
sjá 3. siðu
Hvað líður ókeypis símaafnotum fyrir ellilífeyrisþega?
Þingsályktunin ekki
komin í ráðuneytið!
Á siðasta þingi flutti
Magnús Kjartansson
þingsályktunartillögu,
sem var samþykkt, þar
sem samgönguráðherra
er veitt heimild til að
veita leyfi fyrir ókeypis
sima handa ellilifeyris-
þegum, sem hafa aðeins
tekjutryggingu. Ennþá
hefur ekkert bólað á að
samgönguráðherra not-
færi sér þessa heimild,
en fjöldamargir ellilif-
eyrisþegar binda miklar
vonir við að þetta komist
i gegn hið fyrsta.
Við höfðum samband við Ölaf
Steinar Valdimarsson skrifstofu-
stjóra i samgönguráðuneytinu, og
sagði hann, að ennþá hefði ekki
verið fjallað um þetta mál. —
„Eftir þvi sem ég best veit, hefur
þingsályktunartillagan ekki enn-
þá borist formlega hingaö i ráðu-
neytið. Við erum nú að fá þessar
tillögur smátt og smátt, en ég á
von á að málið verði tekið upp áð-
ur en langt um liður”, sagði Ólaf-
ur. Þess má geta i framhaldi af
þessu, að simagjöld hafa hækkað
mjög á undanförnum árum. Sið-
asta hækkun varð 13. desember
sl., og samkvæmt upplýsingum,
sem Ivar Helgason á innheimtu
bæjarsimans gaf blaðinu, nam
hækkun á stofngjaldi án sölu-
skatts 3.600 krónum, og fór gjald-
ið þá i 13.600 krónur. Um leið
hækkaði ársfjórðungsgjaldið úr
1500 krónum i 2000 og skrefum i
lágmarksgjaldi fækkaði jafn-
framt úr 400 i 300. Er þvi um
verulega hækkun á afnotagjöld-
um að ræða. tvar sagði ennfrem-
ur, að mikið bæri á að gamalt fólk
kæmi i stofnunina og spyrðist fyr-
ir um ókeypis sima. — „Meðan
mest var um þetta rætt i vetur
komu hér fleiri manns daglega að um þetta mál og vonandi er þess þýðingarmikið það er fyrir ellilif-
spyrjast fyrir um þetta”, sagði ekki langt að biða að gengið verði eyrisþega.
Ivar. Þar er einnig mikið spurt frá þvi. Enda er augljóst hversu þs
Hafrannsóknarstofnunin:
Rcuinsakar afla
togaranna í
Reykjafjarðarál
Ólafur Karvel Pálsson fiski-
fræðingur er um þessar inundir á
vegum Hafrannsóknarstofnunar
mcð einu varðskipanna i Reykja-
fjarðarál að rannsaka afla tog-
ara, sem þar cru, bæði ísienskra
og enskra. Hafrannsóknarstofnun
hefur öðru hverju sent mann um
borð i togarana til að rannsaka
fiskastærðina I afla þeirra, og
menn muna efiaust þann hveli,
sem varð i vor, þegar stofnunin
uppiýsti um smáfiskadráp togar-
ánna hér við land.
Jón Jónsson forstöðumaður
Hafrannsóknarstofnunarinnar,
sagði i gær, að þarna væri aðeins
um að ræða eina af þessum
venjulegu könnunum stofnunar-
innar og að hún væri ekki tilkom-
in vegna kæru.
— Við skoðuðum afla fyrir
skömmu úr bát, sem var á veið-
um á þessum slóðum, og sá afli
kom að visu þokkalega út, en
samt töldum við rétt aö gera
þarna nánari könnun, sagði Jón
Jónsson.
Hann taldi að niðurstaða könn-
unar ólafs myndi ekki liggja fyrir
fyrr en eftir helgina, en ólafur
verður þarna i tvo eða þrjá daga.
í Þjóðviljanum i dag er grein
eftir Guðna Þorsteinsson fiski-
fræðing um smáfiskadráp togar-
anna hér við land.
—S.dór.
Líst ekki á að
salta sild um borð
— sjá viðtal við Einar Guð-
mundsson skipstjóra á 10. síðu