Þjóðviljinn - 13.07.1975, Qupperneq 22

Þjóðviljinn - 13.07.1975, Qupperneq 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 13. júll 1975. Leikhúspistill Framhald af bls. 9. skípti. Leikararnir nota mjög öfgafulla og stundum æðisgengna likamstilburði og i raddbeitingu virðist þeim ekkert ómögulegt. Fremstur meðal jafningja i þess- um hópi er sá frægi maður Ryszard Cieslak, sem getur talað út um olnbogann á sér. Hann lék Einfeldninginn. Eftir sýninguna sátu nokkrir áhorfendur, ungt fólk, eftir á gólfinu, hreyfingarlausir með lokuð augun. betta voru læri- sveinar Grotowskis aö meditera um reynslu sina. Næturævintýri meö Grotowski Ekki hafði þorstinn slokknað við dvölina inni i heitum og loft- lausum sýningarsalnum. Þegar út var komið upphófst dæmigert pólskt þjark. Það kom sem sé i ljós að það mundi engin rúta fara I fyrramálið en kannski yrði rúta eftir hádegi daginn eftir. Það varð úr að flestir ákváðu að fara aftur til Varsjár um nóttina. Sú saga er raunar af þeirri ferð að klukkan þrjú um nóttina stöðvað- ist rútan og bilstjórinn féll fram á stýrið i yfirliði. Tók alllangan tima að lifga hann viö. Ég varð hins vegar eftir i Varsjá og leiðsögumaður okkar, Kristin, hafði lofað þeim sem eftir urðu, niu manna hópi, að við skyldum fá einhverja hressingu. Nokkur bið varð á henni. Fyrst stóð i þjarki að minnsta kosti i hálftima. Siðan var lagt af stað að hóteli nokkru, þónokkurn spöl frá. Þegar þangað kom settumst við inn i salarkynni þar sem fólk sat og þjóraði, mest kampavin og svoddan dýrar veigar. Kristin hvarf fram i eldhús en við sátum og mændum með lafandi túngur á allt þetta drekkandi fólk i kring- um okkur. Tiu mlnútum seinna kom Kristin og tilkynnti okkur að i þessu hóteli væri ekkert að fá, en hún væri búin að tryggja okkur veitingar á öðru hóteli. Við þrömmuöum aftur af stað út i nóttina og gengum aftur drykk- langa stund þar til við komum að öðru hóteli. Þar var allt i fullu fjöri og fólkið að dansa gömlu dansana. Þar voru drifnar á borðið ótal flöskur af woda mineralna, þ.e. ölkelduvatni, sem eitt vatna er drekkandi i Póllandi, og hvarf það niður kverkar okkar jafnhratt og þjónar náðu að bera það fram. Minnist ég þess ekki að hafa slökkt eins sáran þorsta á ævinni. Þá birtist Grotowski. Hann heilsaði okkur innvirðulega og sagði okkur að klukkan tvö mundi hefjast nokkurs konar æfing á til- raunastofu sinni. Okkur væri vel- komið að taka þátt i þessu ef við vildum. Klukkan var þá rúmlega eitt. Hann sagði að ef við værum þreytt væri auðvitað sjálfsagt að fara að sofa, en ef okkur þætti nóttin spennandi þá ?tæði þetta til boða. Auðvitað slær maður ekki hendinni við sliku boði og við fór- um öll, nema ein miðaldra grisk kona sem fór i háttinn. Þegar komið var á tilrauna- stofuna leiddi Grotowski okkur inn i hús þar sem var aflangur salur, fremur litill og tviskiptur, brúnt trégólf en veggir hvitmál- aðir, lauf hékk úr loftinu. Þarna var fyrir hópur ungmenna sem leiddu okkur i gegnum eitt merki- legt ritúal sem Grotowski kallar ,,a para-theatrical experience” sem mætti kannski útleggjast yfirleikræn reynsla á íslensku. Við yljuðum okkur á tánum á kertalogum, hendur okkar og fæt- ur voru þvegnir með vatni og blómum upp úr stóru keraldi, ég fór þaðan með blóm og gaf næsta manni að borða, siðan var kastað yfir okkur blómum og grasi sem við köstuðum hvort i annað, siðan stigum við dans og stunduðum ýmiss konar snertingu, svo sem að láta kertavax drjúpa i lófann og strjúka þvi um kinn eða háls þess sem næstur var. Allan tim- ann var leikin sefjandi tónlist á gitar og flautu. Og svo kom rúsin- an i pylsuendanum, nefnilega slangan. Við settumst undir lokin saman I hring og svo var komið með slönguna. Hún var svo sem einn og tuttugu á lengd. Hún var nú látin skriða eftir berum hand- leggjum okkar hringinn allan. Hefði ég mætt slöngu þessari á förnum vegi undir venjulegum kringumstæðum hefði ég eflaust rekið upp org og tekið til fótanna. En eftir allt sem á undan var gengið var þessi slanga ekki nema eðlileg og sjálfsögð og veruleg ánægja að finna hana skriða eftir handlegg mér og klofna tunguna kitla mig. Tilgangur þessarar ævingar er að sjálfsögðu að upphefja hvers- dagsleikann, brjóta niður múra milli fólks, vikka næmi og skynjun og skapa nýtt samband. Ég er engan veginn dómbær á ágæti þessara meðala, en vist er um að mér leið óvenjuvel þegar ég gekk út i bjartan morguninn um fjögurleytið. Grotowski talar Daginn eftir var ég viðstaddur umræður um endimörk leikhús- þróunar sem fóru fram i háskól- anum i Wroclaw. Grotowski talaði mest. Hann er lágur maður og mjór, snyrtilega klæddur eftir nýjustu tisku og býður af sér óvenju góðan þokka. Hann er málsnjall með afbrigðum og hef- ur uppi skemmtilega dramatisk- ar hreyfingar meðan hann talar. Hann talar frönsku og gerir það svo skýrt að minnstu munar að ég fylgist með. Franska er það mál sem pólskir menntamenn tala helst. Kona er sett við hlið mér til að hvisla i eyra mér ensku ágripi þess sem sagt er. Grotowski talar af miklum sannfæringarkrafti. Hann segir að við verðum að brjóta niður gamla leikhúsið og byrja endur- sköpun frá grunni til að finna nýja aðferð til að lifa. Hann segir að mennirnir kunni að berjast, en þeir kunni ekki að afvopnast hvor gagnvart öðrum, þannig að raun- verulegt samband manneskja sé yfirleitt útilokað. Við göngum öll með innbyggða kvikmynda- upptöku (hann notaði orðið „Videorecording”) sem var spólað inn á okkur i bernsku og sem mótar alla skynjun okkar á lifinu. Við erum auk þess öll alltaf að leika i lífinu. Vandinn er hvernig við getum, amk. um stundarsakir, stöðvað þessa kvik- myndaupptöku, hætt þessum leik og öðlast raunverulegt samband við aðrar manneskjur. Húsdýrin verða að gerast villidýr. Grotowski vill bylta leikhúsinu i þeim tilgangi að gera byltingu i mannlifinu. Hann segir að við verðum að vera við þvi búin að þessi sprenging geti leitt til óskapnaðar, en þá veröum við bara að gera eins og þeir félag- arnir i kvikmyndinni um grikkj- ann Zorba þegar námumanna- virkið hrundi: stíga trylltan dans. dans. Olesnar bækur á góöu veröi Eigum ætíð talsvert úrval af ólesnum og nýlega útgefnum bók- um á hagstæðu verði. Lítið inn og gerið góð kaup. BÓKIN H.F. Skólavörðustíg 6 Sími 10680. Þegar ég hlusta á Grotowski skil ég vel hvers vegna hann er átrúnaðargoð æskunnar i Pól- landi og allir flykkjast til að hlusta á hann tala. Hér er maöur sem augljóslega trúir á það sem hann er að segja, er ótrúlega mælskur, og boðar auk þess bylt- ingu i mannlegum samskiptum. Það eru ekki margir sem boða byltingu i Póllandi þessa dagana. En Grotowski er ósvikinn bylt- ingarmaður, þótt hann boði sina byltingu á tungumáli fagurfræði og sálfræði fremur en stjórnmála. Hann nefnir aldrei orðið kommúnismi — hann talar hins vegar mikið um „communion”. Auðvitað eru hugmyndir Grotowskis ekki frumlegar. Hins vegar eru aðferðir hans það, og þegar þessar hugmyndir tengjast leikhússtarfi hans verður úr þvi eitthvað öldungis nýtt og, að ég held, afar merkilegt. Það er eitt- hvað verulega stórt við Grotowski —• hann stafar frá sér krafti. Að lokum Ég dvaldist aðeins tvo heila daga i Wroclaw. Auk þess sem að framan greinir tók ég þátt I þvi sem kallast almenn tilraunastofa. Það fór fram i sýningarsalnum, þar sem þetta sextiu manns frömdu tryllt hópefli i tvo og hálfan klukkutima samfleytt með dansi, hóphreyfingu, söng og nokkrum einstaklingsatriðum. Þetta var geysilega hressandi og hollt fyrir kyrrsetumann með yfirvigt eins og mig. Annarri til- raunastofu stjórnaði Ryszard Cieslak. Þar var borin kvoða á munn þátttakenda og áttu þeir þá að breytast i svin, eins og i Odys- seifskviðu, skriða um gólfið og rýta. Wroclaw er mjög frábrugðin Varsjá. Varsjá er heimsborg, Wroclaw er útkjálkastaöur. Hún er fremur ljót og lyktar af vondri sápu. A laugardagskvöldum eru allir fullir eins og á Islandi, og manni finnst vera Þórscafé i öðru hverju húsi. Þeir eru mikið fyrir böllin. Á sunnudögum fara svo allir út að spásséra i sparifötun- um. í Wroclaw var ég næstum lent- ur i ræningjahöndum. Ég var á leið á hótel mitt seint um kvöld og ætlaði að ganga inn á knæpu að fá mér bjór undir svefninn. En þar var þá ball og kostaöi offjár að komast inn. Ég sneri frá, gekk framhjá dauðum manni i tröpp- unum og varðhugsað heim,enþá gengu fram á mig tveir ungir menn og spurðu mig um þjóðerni. Ég veitti þeim upplýsingar þar að lútandi og þeir spurðu þá hvort ég væri með vegabréf. Ég játti þvi. Þá spurðu þeir hvort ég væri ekki til i að koma með þeim i parti. Fullt af brennivini, sögðu þeir, og nóg af sætum stelpum. Þá rann upp fyrir mér ljós. Nú átti að tæla mig I parti, hella mig fullan, og siðan átti einhver gála að forfæra mig og ræna af mér passanum. Vegabréf eru auðvitað gulls igildi I þessu lokaða landi. En blessaðir ræningjarnir vildu hafa vaðið fyrir neðan sig og vera vissir um að ég væri raunverulega með passann á mér áður en þeir spandéruðu á mig brennivini og kvenfólki. Ég afþakkaði boðið kurteislega og gekk heim i háttinn. Árla morguninn eftir tók ég lestina til Varsjár. Sverrir Hólmarsson Leirvinnsla í Búðardal: Mögu- leikar athugaöir Stöðugt er unnið að rannsókn- um á þvi hvort unnt er að koma á fót leirvinnslu i Búðardal. Geysimikið af leir er að finna við innanverðan Hvammsfjörö, vestan við ána Laxá og meðal annars á þvi svæði sem byggðin stendur á. Sænskt fyrirtæki gerir tilraunir með vinnsluhæfni leirsins m.a. á þvi hvort hægt sé að nota hann i byggingarefni. Rannsóknin fer fram á vegum Rannsóknarráðs rikisins og upplýsingar eiga að liggja fyrir með haustinu. Reynist þær vera jákvæðar verður fenginn sérfræðingur frá SÞ og I samráði við hann ákveðið hvað gera skuli. Plast- pokar fyrir rusl Næstu 2—3 helgar munu vegaþjónustubilar FÍB i sam- vinnu við Náttúruverndarráð og Landvernd dreifa plastpokum ásamt tilheyrandi festingum til akandi ferðamanna. Er ætlast til þess að ferðamenn safni rusli I poka þessa og losi sig siðan við þá i sorptunnur i stað þess að henda rusli út úr bifreiðunum. Bak viö Hótel Esju sími 35300 Til sölu: Escort 73 Escort 74 ek. 10.000. km. Escort 74 station Cortina XI 1600 72 Cortina Gt 1600 72 Comet Custom 74 Fiat 127 74 Fiat 127 73 Peuget 404 '68 B.M.W. 1800.'68 Bronco 74 6 cyl ek. 19.000.00 Bronco '74 8cyl nýr. Saab95'72 (góðar greiðslur) Volvo 145 '72 Volvo 145 '74 (skipti) Datsun 120 Station '74 Ford Fairlane '70 8 cyl Ford Torino '70 8 cyl Mercury Cougar '68 8 cyl Mustang Mach 1. '72 8 cyl Pontiac Firebird '70 8 cyl. Bens 220 '70 580 725 740 700 680 1.450 530 380 400 400 1.400 1.520 870 1.350 1.800 1.100 725 750 625 1.100 950 1.250 000.00 000.00 .000.00 .000.00 .000.00 .000.00 .000.00 .000.00 .000.00 000.00 000.00 .000.00 .000.00 000.00 000.00 ,000.00 000.00 000.00 000.00 000.00 000.00 000.00 Ath: Við höfum opið á laugardögum, 10—4. frá kl. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður VÍFILSSTAÐASPÍ TALI: RAFVIRKI óskast til starfa við spit- alann nú þegar eða eftir samkomu- lagi. Upplýsingar veitir umsjónar- maðurinn, simi 42800 KLEPPSSPÍTALINN: HJÚKRUNARKONUR óskast til af- leysinga og i fast starf nú þegar eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir forstöðukonan, simi 38160. FóSTRA óskast á dagheimili spital- ans nú þegar eða eftir samkomu- lagi. Upplýsingar veitir forstöðu- konan, simi 38160. Reykjavik 11.7. 1975 SKRIFSTOFA R í KISSPÍTALANN A ElRÍKSGÖTU 5.SÍM111765

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.