Þjóðviljinn - 07.08.1975, Page 9
Fimmtudagur 7. ágúst 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Danir hafa eignað sér vlkinganafnbót á Nordjamb. Þeir spranga um f
vikingaklæðum með orgum og óhljóðum eins og forfeður þeirra forð-
um.
Ótti við
hermdarverk
„Fimm fingur — ein hönd” er slagorð mótsins og við setningarathöfnina mynduðu skátarnlr þetta
merki yfir geysistóra grasflöt.
á alheimsskátamótinu
Allt hefur þó gengið með ró og spekt hjá skátunum
sem eru um tuttugu þúsund
Á alheimsmóti skáta
sem haldið er i Noregi um
þessar mundir eru fulltrú-
ar tæplega hundrað þjóða.
Mótið var sett á miðviku-
dag f síðustu viku í hlýju og
fögru veðri sem haldist
hefur alla mótsdagana.
Það eru norðurlandaþjóð-
irnar sem sjá um mótið að
þessu sinni og þar á meðal
eru íslenskir skátar. Er um
350 manna hópur íslend-
inga i Lillehammer þar
sem mótið fer fram. Tölu-
verður kvíði hefur verið í
norskum lögregluyfirvöld-
um vegna ótta um hugsan-
leg hermdarverk. Á
Nordjamb eru skátar frá
öllum miðausturlöndum og
er lögreglan með fjöl-
mennt lið á mótssvæðinu
sem virðist að sögn ólafs
Haukssonar, sem sendi
Þjóðviljanum fréttir af
mótinu, alltaf vera á
sveimi i öllum hornum og
afkimum mótssvæðisins.
Daginn sem Nordjamb var sett
var önnur mikil samkoma sett i
Helsinki — öryggisráðstefna
Evrópu. bar koma menn saman
til að finna leiðir til að halda frið-
inn og er mikið fylgst með þeim
tilraunum. í Noregi koma hins
vegar saman fulltrúar tæplega
100 þjóða og lifa þar saman i
mesta bróðerni án nokkurra sanl-
búðarvandamála. Var bent á
þetta atriði i heillaóskaskeyti sem
skátarnir sendu til ráðstefnunnar
i Helsinki.
Á Nordjamb er fyrst og fremst
stefnt að þvi að hver einasti skáti
hafi nóg fyrir stafni alla móts-
dagana. Ekkert er lagt upp úr
sýningaratriðum en áhersla er
lögð á að kynna menningu og lýð-
ræði Norðurlandanna á mótinu.
Sýndar eru kvikmyndir og haldn-
ir fyrirlestrar um þetta efni sem
okkur hér heima finnst e.t .v. ekki
nema sjálfsagður og auðskilinn
hlutur, en stór hluti skátanna á
þessu móti hefur aldrei heyrt
þetta orð nefnt, hvað þá að hafa
kynnst hugtakinu af eigin raun.
Þótt Nordjamb hafi verið slitið
formlega sl. miðvikudag er mót-
inu ekki lokið fyrir nema litinn
hluta þátttakenda. Eftir mótið
fara skátarnir viða um Norður
lönd og gista hjá einstökum fjöl
skyldum i u.þ.b. eina viku áður en
þeir halda til sins heima. Kallast
þessi liður mótsins „Home
Hospitality”. Við hér á tslandi fá-
um þó ekki skáta i heimsókn þar
eð það er of kostnaðarsamt fyrir
pyngju gestanna á Nordjamb.
-gsp
Við lofum ykkur aðeins
því að komast til Noregs
sögðu indversku skátarnir þrír
við félaga sína og þeir stóðu
við heit sitt þrátt fyrir erfiðleika
Eftir átta vikna ferðalag á reið-
hjólum náðu indversku skátarnir
Susanta Bose og Shiba Mittra á
Vinnuhagræðing og timasparnað-
ur við hárgreiðsluna er i hámarki
hjá þessum skátastúlkum.
alheimsmót skáta sem haldið er I
Noregi um þessar mundir. Þeir
höfðu þá lagt að baki um 10.500
kilómetra vegalengd frá Caicutta
i Indlandi, gegnum átta riki, til
þess eins að ná til Nordjamb 75,
en það er heiti mótsins.
í upphafi voru ferðalangarnir
þrir. Einn þeirra heltist þó úr
lestinni i Þýskalandi vegna um-
ferðarslyss. Þeir höfðu litla sem
enga peninga með sér i ferðina,
lifðu á örlæti og góðsemd skáta i
hverju landi sem báru þá á örm-
um sér og aðstoðuðu hina fátæku
indversku skátahreyfingu til þess
að koma fulltrúum á alheims-
mótið. Aðeins eitt loforð gáfu
ferðalangarnir indverskum
bræðrum sinum: ,,Við munum ná
til Noregs”. Þeir stóðu við heit
sitt þvi sá sem slasaðist i Þýska-
landi birtist á mótssvæðinu dag-
inn eftir setningarathöfnina og
höfðu þýskir skátar þá slegið
saman i flugfar handa honum, er
hann varð heill sára sinna. —gsp
Skátarnir sendu heillaóskaskeyti
til Friðarráðstefnunnar i Helsinki
sem sett var sama dag og þeir
hófu sitt mótshald.
Þessir tveir indverjar hafa lik-
lega haft mest fyrir þvi að komast
á Nordjamb. Þeir hjóluðu alla
leið frá Kalkútta i Indlandi. rúm-
lega tiu þúsund km. Þeir voru tvo
mánuði á teiðinni, og lifðu aðal-
lega á örlæti fólks. ásamt þvi sem
þeir unnu fvrir sér.
coníerence on security and cooperatior, in europe
hetsinkl
eighteen thousand scouts from one hunöred countries assembled
in norden for 14th world scout Jamboree to buitd lnternationat
brotherhood, cooperation and peace convey best wishes tor
successfut conference
nordjamb -75