Þjóðviljinn - 10.08.1975, Page 6

Þjóðviljinn - 10.08.1975, Page 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 10. ágúst 1975. / j' Ragnar Arnalds : Þess má vænta, að senn verði stjórnarskráin ofar á dagskrá i isienskum þjóðmálaumræðum en verið hefur seinustu áratugi. Frá stofnun lýðveldisins fyrir rúmum 30 árum hefur litil hreyfing verið á stjórnarskrármálinu. Stjórnar- skránni hefur að visu tvivegis verið breytt á þessu timabili, árið 1959 þegar núgildandi kjördæma- skipan var tekin upp og 1967 þeg- ar kosningaaldur var lækkaður um eitt ár, en að öðru leyti hefur verið trassað að endurskoða stjórnarskrána i ljósi nýrra tima, eins og heitið var af öllum stjórn- málaflokkum við stofnun lýðveld- isins. Á lýðveldisárinu var aðeins hreyft við þeim ákvæðum stjórn- arskrárinnar, sem beinlinis snertu breytinguna úr konungs- riki i lýðveldi. Áður hafði stjórn- arskránni verið breytt sex sinn- um, og voru það stærstu breyting- arnar, er landið fékk innlendan ráðherra 1903, konur öðluðust kosningarétt 1915, breytingarnar 1920 i kjölfar fuliveldis og breyt- ingar á kjördæmaskipun 1934 og 1942. En i flestum atriðum hefur efni stjórnarskrárinnar staðið ó- breytt, siðan Kristján kóngur ni- undi gaf hana islendingum á þús- und ára afmæli lslandsbyggðar. Fyrst eftir lýðveldisstofnun unnu tvær nefndir að endurskoð- un stjórnarskrárinnar, sú fyrri var skipuð 20 mönnum og starfaði i rúm tvö ár, en sú sem við tók var skipuð 7 mönnum, og mun hún hafa starfað i nokkur ár en fengið hægt andlát i byrjun næsta ára- tugs. Siðan liðu rúm 20 ár og var þá kjörin á Alþingi þriðja stjórn- arskrárnefndin voriuð 1972. Nefnd þessi hefur farið hægt af stað en lifir þó enn, og sýnist mér helst, að lifshlaup hennr ætli að verða með öfugum hætti en hinna fyrri nefnda og muni hún fjörg- ast, eftir þvi sem aldurinn færist yfir hana. Fyrstu tvö árin hélt nefndin aðeins fjóra fundi, en nú er hún heldur að herða róðurinn undir forystu formannsins, Hannibals Valdimarssonar. Lýst hefur verið eftir tillögum félaga- samtaka og einstaklinga, ýmissa álitsgerða hefur verið aflað og nefndin hefur ráðið sér starfs- mann, dr. Gunnar G. Schram, prófessor. Vafalaust munu nokkur ár liða cnn, þar til þjóðin greiðir atkvæði um nýja stjórnarskrá. Þvi að jafnvel þótt undirbúningur máls- ins komist á fullan skrið i vetur, er enginn vafi á þvi, að Aiþingi og stjórnmálaflokkarnir munu taka sér langan tima til að afgreiða svo fjölþætt og yfirgripsmikið mál. En þegar sjálf stjórnskipun- in á i hlut, hugsa menn ekki i ár- um heldur áratugum og öidum, og er þvi ekki ofmælt, að ný stjórnarskrá kunni að vera á næsta leyti. Valdið og þjóðin Hvert er hlutverk stjórnar- skrár? Stjórnarskrá þjóðar fjallar um valdið i þjóðfélaginu og dreifingu þess, hverjir séu handhafar valdsins, hvaðan þeir fái sitt vald og hver séu takmörk þess. Góð stjórnarskrá fjallar þvi framar öðru um réttindi fólksins gagn- vart valdhöfunum, um möguleika þess til að stjórna stjórnarherr- unum og láta þá hafa eftirlit hver meö öðrum. Stjórnarskrá er lög- um æðri og verður ekki breytt með einfaldri lagasetningu. Mikilvægustu ákvæði islensku stjórnarskrárinnar eru i fyrsta lagi lýðræðis- og mannréttindaá- kvæöin og i öðru lagi ákvæðin um þriskiptingu valdsins. Stjórnarskráin er byggð á þeirri forsendu, að valdið komi frá þjóðinni. Rétturinn til að stofna félög og stjórnmálaflokka, fundafrelsi, ritfrelsi og prent- frelsi er undirstaða frjálsra skoð- anaskipta, og jafnframt er fólk- inu ætlað að ávisa valdi sinu til ,,! nýja stjórnarskrá þarf að setja ákvæði, sem tekur af öll tvimæli um það, að óbyggðir tslands bæði •álmenningar, afréttir og önnur svæði, sem ekki hafa lengi verið i byggð, svo og öll hveraorka^ vatnsorka )g önnur auðæfi, sem þar eru i jörðu, séu ævinlega eign íslensku þjóðarinnar, en ekki f einkaeign einstakiingt á einmenningskjördæmum og virðist hafa skapast um það nokkv uð sterk eining, að hlutfallskosn- ingar séu sjálfsagðar og óhjá- kvæmilegar hér á landi. Hitt er annað mál, að útbreidd óánægja er með það fyrirkomulag, sem nú rikir, þar eða áhrif útstrikana eru nær engin, og meiri hlúti þingmanna er öruggur um að ná kjöri, áður en kosning fer fram. Lækka þarf kosningaaldur um eitt eða tvö ár og fjölga þing: mönnum i fjölmennustu kjör- dæmunum. Sterkan eða veikan forseta? Á tslandi er Alþingi valdamésta stofnunin og ræður lifi rikis- stjórna, en forsetinn er valdalítill innsiglisvörður, sem aðeins grip- úr inn, ef honum þykir einstök þörf á að stinga við fótum, og get- ur hann þá skotið málum undir þjóðardóm. Vald hans er einna afdrifarikast, þegar hann ákveð- ur, hver skuli fyrstur reyna stjórnarmyndun að kosningum loknum. Þær raddir heyrast öðru hvoru, áð afnema ætti þingræðið og kjósa i staðinn valdamikinn for- seta sem skipaði sér rikisstjórn, likt og er i Bandarikjunum og Frakklandi. Ný stjórnarskrá á næsta leiti? kjörinna fulltrúa í almennum kosningum. tslenska valdakerfið er að sjálfsögðu fjarri þvi að jafngilda fullkomnu lýðræði. í fyrsta lagi er alls ekki vist, að Alþingi spegli þjóðarviljann hverju sinni og kemur þar margt til, m.a. að flokkar og frambjóðendur lofa stundum einu fyrir kosningar og gera svo annað að þeim loknum. Vafalaust er það staðreynd, að ýmsar afdrifarikar ákvarðanir Alþingis hafa verið i andstöðu við þjóðarviljann og má nefna sem dæmi hernámið 1951, sem Alþingi var iátið samþykkja eftir á, en þar var um að ræða ótvirætt stjórnarskrárbrot, sbr. 21. gr. í öðru lagi vantar mikið á, að allir þættir valdsins séu i höndum fólksins. Fjármálavaldið er að stórum hluta i höndum einstakl- inga og þröngra hagsmunahópa, sem ekki sækja vald sitt til þjóðarinnar. En i krafti þeirrar aðstöðu, sem peningaöflin hafa skapað sér, geta fámennir en voldugir hópar haft miklu meiri áhrif á skoðanamyndun og út- breiðslu áróðurs en aðrir þegnar þjóðfélagsins. Raunverulegt lýð- ræði á þannig stöðugt undir högg að sækja, þar sem er svikamylla peningaaflanna, byggð á auðvaldi og yfirgnæfandi áróðursaðstöðu, tengd gamalgrónu embættis- mannavaldi og oft studd hervaldi. Þó má ekki vanmeta hin lýð- ræðislegu réttindi, sem islenska stjórnarskráin veitir. Þrátt fyrir ýmsa alvarlega vankanta þessa kerfis, hefur islensk alþýða unnið merka sigra og áunnið sér dýr- mæt réttindi i skjóli þessarar frjálslyndu stjórnskipunar, sem nú er aldargömul. Hverju þarf aö breyta? öll mikilvægustu ákvæði stjórnarskrárinnar verða að haldast, en mörgu þarf við að bæta. Þvi miöur er þess ekki að vænta, að fjármálavaldið missi vigtennurnar sinar að þessu sinni — það biöur þess tima, að þjóðjn stigi skrefið til sósialismans. En lýðræðisleg réttindi fólksins má þó auka með ýmsum hætti: Setja þarf almenn ákvæði um þjóðaratkvæði, en samkvæmt nú- gildandi stjórnarskrá er það að- eins i undantekningartilvikum, að þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram; þ.e. ef forseti neitar að undirrita lagafrumvarp eða Alþingi sam- þykkir breytingu á kirkjuskipun rikisins. Minnihlutiá Alþingi, t.d. fjórðungur þingmanna, á að geta krafist þess, að samþykkt frum- varp sé borið undir þjóðina til samþykkis eða synjunar. Sama' rétt ætti ákveðinn hluti kosninga- bærra manna að hafa. Eins á minnihluti á Alþingi, t.d. fjórð- ungur þingmanna, að geta krafist þess, að leitað sé álits þjóðarinn- ar um tiltekið málefni, og sama rétt ættu kjósendur að hafa, t.d. fjórðungur kjósenda, en væntan- lega yrði þess háttar atkvæða- greiðsla fyrst og fremst leiðbein- andi fyrir Alþingi. 1 stjórnarskrána vantar alger- lega ákvæði um réttindi og skyld- ur stjórnmálaflokka. Þótt undar- legt kunni að virðast, er það stað- reynd, að liðinn var um þriðjung- ur þessarar aldar, áður en flokk- ar voru nefndir á nafn i stjórnar- skránni og voru þó stjórnmála- flokkarnir þá löngu orðnir undir- staða stjórnkerfisins. Enn i dag eru flokkar aðeins nefndir á nafn i stjórnarskránni i framhjáhlaup.i, þ.e. i tengslum við úthlutun úpp- bótarþingsæta. Símahleranir og tölvunjósnir Ákvæðin um mannréttindi og persónufrelsi þarf nauðsynlega að endurskoða, m.a. með hliðsjón af mannréttindasáttmála Sam- einuðu þjóðanna, sem Island er raunar enn ekki orðið aðili að, mannréttindasáttmála Evrópu- ráðsins, sem islendingar hafa þegar samþykkt. Flest þau á- kvæði, sem jiar koma til álita, eru þó næstum of sjálfsagðir hlutir, til að eiga heima i stjórnarskrá, t.d. bann við þrælahaldi. Af ákvæð- um, sem þar eru ekkinefnd, en ég tel, að beri sérstajtlega að athuga, eru skýrari fyrirmæli um frið- helgi einkalifs og heimilis. Njósn- ir opinberra aðila á að banna, þ.á m. simahleranir, nema beinlinjs sé unnið að uppljóstrun tiltekins- glæpamáls og njósnirnar eigi sér stað samkvæmt rökstuddum skjalfestum dómsúrskurði. Eins verður algerlega að koma i veg fyrir tölvuvæddar njósnir éinka- aðila I formi ýmiss konar upplýs- ingasöfnunar. Þessi mál hafa enn verið litið á dagskrá hérlendis, en fátt ógnar meira persónufrelsi. manna i framtiðinni, ef þessi mál eru ekki strax tekin föstum tökum Fjölmiðlar og einokunar- aðstaða 1 núgildandi stjórnarskrá seg- ir: ,,Ritskoðun og aðrar tálmanir fyrir prentfrclsi má aldrei i lög leiða”. Mér er til efs, að margar aðrar stjórnarskrár verndi prent- frelsið með svo afdráttarlausum hætti. En fjölmiðlar hafa þróast ekki litið á eitt hundrað árum. Eg nefni dæmi. Morgunblaðið stund- ar það svo til daglega að ljúga upp á pólitiska andstæðjnga sina ýmsum skoðunum, seni þeir hafa aldrei haldið fram. Blaðið fær stóran hluta þjóðarinnar til að trúa slikum fullyrðingum i krafti aðstöðu sinnar, sem byggð hefur verið upp með stuðningi peninga- aflanna. Spurningin er ekki sú, hvernig stöðva eigi þessi lævisu áróðursbrögð Morgunblaðsins, heldur varðar það mestu, hvernig unnið verði gegn vaxandi einok- unaraðstöðu peningaaflanna i blaðaútgáfu og komið i veg fyrir einhliða notkun útvarps og sjón- varps i þágu sérstakra skoðana- hópa. Endurskoða þarf kosningaá- kyæðin, einkum I þeim tilgangi að auka rétt kjósenda til að velja milli manna.um leið og þeir velja milli flokka. Ekki er að sjá, að nf»in hrpvfiní? sá unni fil nfS koma Ég tel þó, að núgildandi vald- skipting sé i aðalatriðum gæfu- legust fyrir islendinga. Ef nokkuð ■ ér, þá þarf Alþingi að verða valdameira og sjá til þess, qið völdin dragist ekki enn frekar I hendur embættismannakerfinu. Störf Alþingis þarf að skipuleggja betur m.a. með þvi að leggja aukna áherslu á þingnefndastörf, óg i þvi skyni virðist heppilegra, að deildir þingsins verði sameln- aðar i eina málstofu. Bæði sviar og danir hafa horfið frá deilda- skiptingu á þingum sinum, og i báðum iöndum virðist sú skoðun rikjandi hjá þeim, sem til þekkja, áð breytingin hafi verið til batn- aðar. % Hugsanlegt er að auka vald og viðfangsefni forseta lýðveldisins, ; án þess að þingræðið sé skért. Ég. hef lengi álitið, að forsetinn ætti' að vera verndari fólksips gagn- vart ofriki valdamanna, ekki.að- eins að forminu til heldur og 'i daglegum störfum sinum, og hef þá m.a. haft i huga verksvið um- boðsmanns cða ármanns,eins og sumir nefna þetta embætti, sem fyrst var komið á hjá hinum Norðurlandaþjóðunum. Nýlega heyrði ég Gunnlaug Þórðarson halda fram svipaðri skoðun i út- varpserindi, og er ekki óliklegt,. að þess háttar breyting á forseta- embættinu gæti fengið góðan hljórhgrunn. BráðabirgðalÖg - fjölþjóða- stofnanir Endurskoða þarf ákvæði úm setningu bráðabirgðalaga og veita minnihíuta alþingismanná, t.d. þriðjungi þingmanna rétt til að krefjast þess, að Alþingi sé kvatt saman til aukafundar i til- efni af útgáfu bráðabirgðalaga. Jafnframt þarf að búa svoúra hnútana i stjórnarskránni, að réttindi islenska rikisins verði ekki seld i hendur álþjóðlegri stofnun að einu eða neinu leýti, nema fyrir liggi verufega aukinn meirihluti á Alþingi, t.d. sam'- þykki fimm sjöttu hluta þing- manna. Framsal rikjsvalds til fjölþjóðastofnanna er nú mjög á dagskrá pg' er stundum óhjá-' kvæmilegt en oft varhugavert. Þjóðin verður að tryggja sig sér- staklega gegn vanhugsuðu feigð- arflani i sjálfstæðismálum með þvi að krefjast viðtækrár sam- stöðu á Alþingl um hvert. slikt skref.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.