Þjóðviljinn - 10.08.1975, Side 14

Þjóðviljinn - 10.08.1975, Side 14
14 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 10. ágúst 1975. DJÚPIVOGUR: „Unga fólkið flýr ekki, öðru nær” Við fengum okkur is i kaupfélagssjoppunni og biðum þess að Már Karlsson, gjald- keri, kæmi úr kaffi. Okkur virt- ist þetta vinalegur staður. ,,Já, unga fólkið flýr ekki héðan, öðru nær”, sagði Már. „Það hefur mikið verið byggt hérna, en samt er sár húsnæðis- skortur. Atvinna er nóg, hér er rækjuverksmiðja, saltfiskverk- un, frysting, humarvinnsla og vonandi bráðum sildarvinnsla. Hér er samvinna i verki, það er Búlandstindur h.f. sem rekur alla útgerð, en hluthafar eru hreppsfélagið, kaupfélagið. Segja má að hver einasti ibúi á staðnum sé hluthafi, þar sem hvert einasta heimili keypti hlutabréf. Djúpivogur verður senn 400 ára gamall verslunar- staður. Um siðastliðin áramót voru ibúar 353 og hefur fjölgað um 45 á sl. 15 árum. Sögulega og land- fræðilega séð hefði Djúpivogur átt að verða langstærsti byggðakjarni á Austurlandi og það er til háborinnar skammar að slikir staðir, sem hafa uppá stórkostlega atvinnumöguleika að bjóða, skuli vera sveltir markvisst af fjárfestingarsjóð um meðan ausið er fjármagni til annarra staða. Hér er nýtt frystihús i smiðum og búið að verja til byggingar þess 50 miljónum króna. Nú hef- ur allt verið neglt fast af ráða- mönnum fjárfestingarsjóða i Reykjavik — þokkaleg byggða- stefna það. Það er hálf kald- ranalegt að koma inn i fyrstihús á öðrum stöðum og sjá, að kaffi- stofurnar þar eru stærri en fisk- móttakan i gamla húsinu ókkar. Það er ekki nóg með að gamla frystihúsið sé löngu orðið of litið heldur verðum við árlega að loka og hætta að frysta fisk i þrjá mánuði meðan sláturtiðin stendur. Þegar svo nýja frystihúsið Már Karlsson: Sögulcga og land- fræðilega hefði Djúpivogur átt að verða langstærsti byggðakjarni á Austfjörðum. Frá Djúpavogi. Lengst til vinstri eru kaupfélagsbyggingar, en i framhaldi af þeim er fiskmót- takan, sem áður var söltunarstöð. Húsin cru byggð yfir bryggjuna. i baksýn er nýja fyrstihúsið að risa af grunni. verður komið i gagnið, þá er næsta skrefið að fá skuttogara, þar sem afkastageta frystihúss- ins fer úr 7 tonnum i 40 tonn á 10 tima vinnudegi. Már sagði að opnun hring- vegarins hefði þýtt stóraukin umsvif hjá kaupfélaginu, vöru- sala jókst um 57,7% á sl. ári, og nú er hótelpláss allt upppantað yfir sumarmánuðina, en hótelið er opið allt árið og þar býr m.a. vertiðarfólk á vetrum. Nú stendur yfir bygging barnaskólahúss og siðar i sumar verður reist við skólann sundlaug úr plasti. Heitt vatn úr kerfi barnaskólans verður notað i laugina. Við kveðjum og tökum undir með Má að stað eins og Djúpa- vogáaðefla. sj Fáir nota sér hringflugið Hann sat út við glugga .hallaði sér á skjön þannig að hann horfði inn i flugvélina en ekki á hrikalegt og fagurt landslagið sem flugvélin flaug yfir og hann söng ,,Er ég kem heim I Búðar- dal...”, og stundum staupaði hann sig úr gulum visklpela. Undirritaður sáröfundaði manninn af sætinu við glugg- ann. þvl að við flugum yfir Lónsöræfi á leiðinui frá Egils- stöðum til Hornafjarðar. i næsta sæti fyrir aftan sat ein- hver dani, og sá hafði lent við glugga, það heyrðist Ijóslega af hrifningarópum mannsins: Aidrig har jeg set noget sá storartet...! og þá tók vélin dýfu, maginn þrýsti að neðrikjálkanum og yfir öxl þess fulla sýndist mér væugbroddur vélarinnar snerta rauðleita, snarbratta fjallshllð, en sá fulli söng áfram ,,... bfður mln brúðarval...”, en útlendingarn- ir, danir og fransmenn, bröltu I sætum slnum, reyndu aö festa ægilegt landslagið á filmu og einn maður með stráhatt var með kvikmyndavél. Þjóðviljamenn notfærðu sér hringflug Flugfélagsins á dög- unum, þegar þurfti að fara i ýmsa landshluta I efnisleit. Eftir vangaveltur yfir flóknum ferðaáætlunum, fólum við flug- félagsmönnum að skipuleggja tiu daga ferð. Og það var ekkert auðveldara: Reykjavik — Isa- fjörður og þriggjadaga stans á tsafirði. Siðan Isafjörður — Akureyri, og á Akureyri aftur þriggja daga viðdvöl. Siðan Akureyri — Egilsstaðir, og fjögurra daga viðdvöl á Héraði. Og loks Egilsstaðir — Horna- fjörður og þar höfðum við einnig nær þriggja daga viðdvöl áður en við flugum til Reykjavikur. „Hringflugið hefur verið á sumaráætlun mörg undanfarin ár, en mér virðist nú að fáir not- færi sér það, amk. fáir islend- ingar”, sagði Vignir Þorbergs- son, afgreiðslumaður flug- félagsins á Höfn, Hornafirði. ,,t fyrstu var það ein vél sem flaug allan hringinn, en nú er þetta allt samtengt og samvirkt, og ferðaskrifstofur eru farnar að selja hringflugið sem skoð- þótt það hafi opnað marga nýja möguleika á ferðum um landið unarferð. Það er hægt að fljúga hringinn t.d. á tiu eða tólf dög- um eins og pið gerðuð, en einnig á fimm dögum. Fimm daga ferðirnar ganga þannig fyrir sig: 1. dagur Reykjavik — tsa- fjörður, tsafjörður og umhverfi skoðað, en um kvöldið haldið til Akureyrar. 2. dagur: eftir gist- ingu á hóteli á Akureyri er farið i skoðunarferð til Mývatns og Goðafoss, aftur hótelgisting á Akureyri. Áþriðja degi er Akur- eyri skoðuð, en um hádegi flogið til Egilsstaða. Egilsstaðir og nágrenni skoðað, gist á hóteli, og siðdegis daginn eftir er flogið til Hafnar þar sem gist er á hóteli. Áfimmtadegi er Höfn skoðuð en siðan hádegisflug til Reykjavikur. Heildarverð: 33.069 kr.”. Vignir Þorbergsson á Höfn sagði okkur að áður hefðu ferða- menn tiðum notfært sér dags- flugið til Hafnar. Þá var tvisvar i viku flogið til Hafnar, en dag- urinn siðan notaður i skoðunar- ferðir i Skaftafell og upp að jökl- unum. Um kvöldið var flogið frá Fagurhólsmýri til Reykjavikur. Nú hafa menn gjarna annan hátt á. Þeir koma með flugvél til Hafnar að morgni, kanna svæð- ið áður en þeir taka áætlunarbil- inn daginn eftir eða siðar til Reykjavikur. Áætlunarbillinn fer hægt yfir, og einnig er hægt að fara úr honum hvar sem er á leiðinni, fá sér gistingu t.d. á Skógum, eða liggja i tjaldi og vera siðan i vegi fyrir næsta áætlunarbil þegar maður kærir sig um. Einnig er hægt að snúa dæminu við, fara með áætl- unarbilnum austur á þeim hraða sem maður sjálfur kýs, en fljúga siðan frá Höfn til Reykjavikur. t tengslum við flugið til Hafnar, aka svo áætl- unarbilar austur á Djúpavog þrisvar i viku, og þegar þangað er komið er farið að styttast til Egilsstaða og Héraðs, og kannski er þessi ferðamáti lika hentugur fyrir þá sem vilja halda hringinn um landið. Nýlega. hefur orðið þónokkuð róttæk breyting á þeim mögu- leikum sem austfirðingar og aðrir landsmenn hafa á að komast til útlanda. Hingað til hafa allir þeir sem til útlanda hafa farið orðið að fara um Reykjavik eða Keflavik.Flugfar frá Egilsstöðum eða Höfn er ekki gefið, og þannig hafa aust- firðingar orðið að borga meira fyrir utanlandsferðir sinar en ibúarnir á Faxaflóasvæðinu. Reyndar var sá aðstöðumunur I samhengi við annað: Flutnings- kostnaðurinn austur veldur þvi að allar vörur eru dýrari þar en syðra. En nú geta austfirðingar komist hjá þvi að greiða þennan aukakostnað. Flugfélagið flýgur nú vikulega til Færeyja I tengsl- um við Færeyjaflugið. Flogið er til Voga I Færeyjum á sunnu- dögum ; og frá Færeyjum til tslands á fimmtudögum. Flugfar til Færeyja og heim kostar með flugvallaskatti, ef miðað er við að farið sé frá Egilsstöðum, 19.920, en á þess- ari leið gildir siðan allur venju- legur afsláttur, svo sem fjöl- skylduafsláttur og fleira. —GG.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.