Þjóðviljinn - 10.08.1975, Side 22

Þjóðviljinn - 10.08.1975, Side 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 10. ágúst 1975. Ragnar Framhald af bls. 7. Herskylda eða friðlýst land t 75. gr. stjórnarskrárinnar frá 1874 er sérhver vopnfær maður skyldaður að taka sjálfur þátt i vörn landsins. Þessi grein var ein af mörgum, sem Jón Sigurðsson forseti gagnrýndi og óttaðist að yrði notuð til að draga islendinga utan til landvarna i Noregi og Danmörku. tslendingar voru frá öndverðu andvigir herskylduhug- myndum, og er þetta ákvæði aö- skotahlutur i stjórnarskránni, sem á að hverfa, enda skoplegt að skipta islendingum i vopnfæra og óvopnfæra menn. Seinasta greinin i frumvarpi okkar Einars Olgeirssonar hljóð- aði svo: „lsland er friðlýst land. Herskyldu má aldreí i lög leiða”. Úr þvi að islendingar báru gæfu til þess að lögbjóða aldrei her- skyldu i landinu, meðan stríð voru háð með hersveitum upp á gamla móðinn, ættu þeir að geta afsalað sér herkvaðningu úr þvi sem komið er, enda aldrei íráleit- ara en nú, þegar engar varnir eru til gegn nútimavopnum. Friðlýsing tslands væri sið- ferðilegur stuðningur við friðar- öflin i heiminum. Staðreyndin er sú, að viða um heim er eigin her þjóðanna mesta hætta lýðræðis- ins; sbr. ótal dæmi, m.a. frá Grikklandi, Chile og ttaliu. Her- inn breytist i lögreglu landvörnin i fasisma. I Portúgal er atburðarrásin önnur. Þó sé ég ekki betur en of- trú hins staliniska kommúnista- flokks Portúgals á leiðsögn hers- höfðingja, sem fyrir nokkrum ár- um tóku fullan þátt i viðbjóðslegu nýlendustriði i Afriku, sé á góðri leið með að kalla fasismann aftur yfir þessa hrjáðu þjóð. En það er önnur saga. Við eig- um að afneita herskylduog veita með þvi öðrum þjóðum hollt for- dæmi. Og við eigum að afneita hvers konar hernaðarundirbún- ingi á íslandi i eitt skipti fyrir öll með yfirlýsingu um friðlýst Is- land. m Júgóslavía Framhald af 5. slðu. Verkalýðsstéttin er enn á ný gerð ómyndug. Aðalmarkmið umbótanna er þvi það, að tryggja, að sjálfstjórn verkafólks geti þróast i alvöru óhindruð bæði af rikisskriffinnum og forstjóraveldi (teknókrötum). Aðalmarkmiðið með að herða á flokksaganum, eins og Tito boð- aði, er þá að tryggja að til sé þroskaður hópur sem sé skuld- bundinn að vinna gegn sundrung samfélagsins, sérgæsku ákveð- inna hópa, gegn miðstjórnarofriki leiðtoga einnig — gegn öllu þvi, sem getur tafið þróun sjálf- stjórnar verkamanna. Þvi var um leið (með löggjöf og kjarasamningum) reynt að auka hlut áætlanagerðar innan markaðskerfisins, skerða sjálf- stæði peningastofnana, koma i veg fyrir að upp hlaðist auður sem ekki er ávöxtur af eigin starfi ‘ og minnka tekjumun. í seinni grein um þessi mál, sem birtist á sunnudaginn kemur verður reynt að gera grein fyrir þvi, hvernig þetta virkar i reynd. (ÁB. endursagöi). Van Lundbye Framhald af bls 8. Danmerkúr i Efnahagsbanda- lagið, „2. október 1972” gefur skýra hugmynd um þýðingu þjóð- legrar og alþýðlegrar hefðar fyrir Vagn Lundbye. í bók þessari finna menn lýsingu á þjóðarat- kvæðagreiðslunni og atvikum kvöldsins annars október eins og þau komu fram i sjónvarpi, og eru bókmenntatilvitnanir flétt- aðar inn i textann, og sumpart gamlar myndir frá Rudköbing, þar sem Vagn Lundbye býr. Myndirnar eru lagðar yfir texta bókarinnar svo að það er ekki hægt að lesa hann: fólkið og barátta þess þröngvar sér með. áþreifanlegum hætti inn yfir veruleika samtiðarinnar. Og enda þótt þetta virðist við fyrstu sýn heldur ruglingslegt allt saman, þá er þetta samt túlkun á von, von um að hægt sé að hafa það gamla með i för i pólitiskri baráttu samtiðarinnar. (áb þýddi) SENDIBÍíASrÖm Hf TfTTTTfTTTITTTFTTTTTtTTTTTTTTTTT HÓTEL HOF ^^ffffjl^Rauðarárstía 18 Nýtthótel sími í Reykjavík 2-88-66 llillllllllllllllllAllllllllllll PPHAF AUÐS CUDO-I IGLERHF. ”VIÐERUM . REYNSLUNNIRIKARI ” Skúlagötu 26 Sími 26866 í þessu liggur munurínn Þess vegna borgardu heldur meira fyrir Cudogler — þú ert aó fjárfesta tilframbúðar. AÐRIR Yfirleitt mun minna af þéttiefni, vegna rúm- frekari ramma úr þynnra áli. Aðeins 2 hliðar rammans fylltar með einni gerð rakavamar- efnis. Minni viðloðun þéttiefnis, sem þarf að verja sérstaklega gegn utanaðkomandi efna- fræðilegum áhrifum. Við trúum því, að verðmæti húseignar aukist með tvöföldu Cudogleri. Hvort sem þú byggir fyrir sjálfan þig, aðra eða byggir til að selja, þá hækkar verðgildi byggingarinnar við ísetningu glers frá framleiðanda, sem aðeins notar Terostat þéttiefni, sparar hvergi til við samsetningu glersins, og gefur 10 ára ábyrgð á framleiðslunni. CUDO Mun meira af þéttiefni — þrælsterku Terostat, sem ekki þarf að verja sérstaklega. T erostaí hefur, skv. prófunum, mestu viðloðun og togkraft, sem þekkist. Álramminn er efnismeiri og geró hans hindrar að ryk úr rakavamarefnum falli inn á milli glerja. Álrammamir ero fylltir rakavarnarefnum allan hringinn — bæði fljótvirkandi rakavamarefni fyrir samsetningu og langvarandi, sem dregur í sig raka, sem getur myndast við hitabreytingar.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.