Þjóðviljinn - 17.08.1975, Síða 2
2 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. ágúst 1975
Lmsjón:Vilborg Haröardóttir.
Hugmynd um slika aðgerð á
þessu ári, Kvennaári Sþ, hefur
þegar verið rædd og hlotið undir-
tektir meðal islenskra kvenna,
bæði i smáhópum og á fjölmenn-
um ráðstefnum. Skilyrði fyrir
þvi, að hrinda megi henni i fram-
kvæmd er þó sennilega, að hún
hljóti stuðning verklýðssamtak-
anna i landinu eöa a.m.k. þeirra
félaga launþega sem konur eiga
aðild að. 1 næsta mánuði halda
HVAÐ GERIST
DAGINN ÞANN?
Hugmyndin um að konur leggi niður vinnu einn
dag á árinu hefur fengið góðar undirtektir
Hvað gerðist ef allar konur legðu einn góðan veðurdag
frá sér vinnu sína# heimafyrir og á vinnustöðunum, og
gengju út? Jafnvei einn til tveir tímar myndu nægja til
að lama mestallt athafnalíf á fslandi og kannski nægja
til að sýna þjóðinni — bæði körlum og konum sjálfum —
fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna, sýna að vinna
þeirra, jaf nt launað starf sem ólaunuð vinna inni á heim-
ilunum,er þjóðfélaginu jafn nauðsynleg og dýrmæt og
vinna karlanna, þótt langt sé frá að hún sé metin til
jafns.
ASl og BSRB sameiginlega ráð-
stefnu sina i tilefni kvennaársins
og er þess þá að vænta, að þessi
hugmynd verði rædd og ráðstefn-
an taki afstöðu til hennar. En
jafnvel þótt hugmyndin um að
leggja niður vinnu fengi ekki op-
inberan stuðning verklýðshreyf-
ingarinnar gætu konur innan
hennar auðvitað sameinast um að
leggja niður vinnu einn dag eða
hluta úr degi.
Þessi hugmynd var fyrst rædd
á ráðstefnunni um kjör láglauna-
kvenna, sem nokkur verklýðsfé-
lög héldu ásamt Rauðsokkahreyf-
ingunni i janúar i vetur, og lýsti
ráðstefnan yfir stuðningi við
hana. Ráöstefna um kjör kvenna
til sjávar og sveita, sem haldin
var i Neskaupstað i lok april
mælti einnig með þessari aðgerð
og nú siðast var samþykkt álykt-
un um þetta efni á Kvennaársráð-
stefnunni sem haldin var að Hótel
Loftleiðum i júni, svo greinilegt
er, að áhugi á þessu máli er nokk-
uð viðtækur.
Stungið hefur verið upp á á-
kveðnum degi i þessu sambandi,
þ.e. degi Sameinuðu þjóðanna 24.
Framhald á 22.
vikulega
í sumar
Húsnæði rauðsokka og skrif-
stofa að Skólavörðustig 12 hefur i
sumar aðeins verið opin vikulega
i stað daglega i vetur og vor og
verður svo áfram fram i septem-
ber, að þvi er miðstöð rauðsokka
sagði blaðinu. Er nú ,,opið hús” i
Sokkholti á fimmtudögum kl.
6—10 sd. Eru þá allir velkomnir
að lita inn og fá upplýsingar,
kaffibolla, lesa blöð eða rabba
saman.
A ársfjóröungsfundi hreyf-
ingarinnar i sumar var að venju
skipt um einn i miðstöð og tók þá
Þuriður Magnúsdóttir við af Ernu
Egilsdóttur. Auk Þuriðar eru nú i
miðstöð Rauðsokkahreyfingar-
innar Elisabet Gunnarsdóttir,
Helga Steinunn Guðmundsdóttir
og Ingibjörg Rán Guðmundsdótt-
ir.
ORÐ
Móttökunefndir
karla
Eftirfarandi bréf barst blað-
inu meðan jafnréttissiðan lá
niðri á sumarleyfistimanum
og er þvi nokkuð umliðið siðan
atburður sá er „sveitakona”
gerir þarna að umtalsefni
skeði. Én opinberar heim-
sóknir koma jú alltaf fyrir
öðru hverju og er vissulega
réttmæt spurningin, hvort það
sé einhver goðgá að áliti ráða-
manna, að konur skipi mót-
tökunefndir rétt einsog karlar.
En hér er bréfið:
,,Nú rétt i þessu var ég að
horfa á sjónvarpsfréttirnar og
þar með á móttökuathöfnina
er sviakonungur kom til
landsins. Forsetinn heilsaði
honum fyrst, siðan forsetafrú-
in, litil stúlka hneigði sig og
rétti konungi blómvönd, þjóð-
lög landanna voru leikin og
siðan þurfti veslings konung-
urinn að heilsa hverjum karl-
hróknum af öðrum misjafn-
lega valdsmannslegum á svip-
inn — svei mér þá, ég hélt að
strollan tæki aldrei enda. Jú,
allt i einu birtist brosandi
gestrisnislegt konuandlit og
þá hélt ég að komið væri að
konunum i móttökunefndinni,
en nei, það komu æ fleiri karl-
ar og restina rak svo ein kona
og þar með var upptalið.
Siðan var gengið að nýja
forsetabilnum og tekið fram,
að hann hafi komið til landsins
fyrir örfáum dögum. Konung-
ur og forseti stungu sér inn i
hann, en hvað varð um for-
setafrúna okkar? Mér fannst
seinna sem ég sæi hana á
planinu langt fyrir aftan fina,
nýja forsetabilinn, — þurfti
hún ef til vill að panta 25050
sem flytur allt.eða álika? Þótt
ég þykist vita, að i bila hafi
verið raðað eftir einhverri
hefð þarna sem endranær,
finnst mér, að i þessu tilfelli
hefðu sáttir mátt sitja þröngt
og forsetinn geta boðið konu
sinni sæti meðal þeirra höfð-
ingjanna, þar sem konungur-
inn á ekki konu einsog vitað
er. En forsetabillinn er ef til
vill ekki gerður fyrir þrjá aft-
ur i einsog flestir venjulegir
bilar, — eða eru islensku lögin
virkilega svo ströng og hefðin
svo órjúfanleg i lýðveldinu Is-
landi að jafnvel á ári konunn-
ar geti forsetafrúin gleymst
vegna þess að gesturinn átti
ekki konu?
Að siðustu: Var verið að
samhryggjast konunginum
með þvi að stilla upp við mót-
tökuna öllum þessum körlum
án kvenna — eiginkvenna
sinna eða annarra, — þar sem
hann á sér enga frú, eða erum
við konurnar óþarfar með öllu
nema til að fullkomna innrétt-
inguna i eldhúsinu og fylla upp
i hjónarúmið? Einhvernveg-
inn finnst mér, að á kvennaár-
inu margumtalaða eigi is-
lenskar konur ekki eftir að
rétta hlut sinn að ráði þegar
jafn litið tillit er tekið m.a.s.
til okkar myndarlegu og
elskulegu forsetafrúar.
Ég vonast svo til, að enginn
misvirði þessar linur minar.
Virðingarfyllst
Sveitakona”.
Til sveitastjórna
pótentáta
Þá er hér stutt „orðsending
til Páls Lindals og annarra
sveitastjórnapótentáta” i til-
efni skrifa Páls i belginn fyrir
nokkrum vikum (15. júni), þar
sem hann segir fæð kvenna i
sveitastjórnum m.a. stafa af
takmörkuðum áhuga þeirra á
almennum sveitastjórnamál-
um þrátt fyrir tilraunir stjórn-
málaflokka til að fá konur i
„örugg sæti” á framboðslist-
um- (sic'), en af þessu leiði
aftur, að nauðafáar konur séu
kjörgengar til setu á lands-
fundum, i fulltrúaráði og i
stjórn Sambands isl. sveitafé-
laga og þykist Páll þar með
gera hreint fyrir sinum dyr-
um, segir bréfritarinn, sem
kallar sig „Siggu”. Orðsend-
ing hennar er svohljóðandi:
„Aðeins stutt ábending til
Páls Lindals og annarra
sveitastjórnarpótentáta með-
an ég bið eftir að einhver taki
sig til og svari grein Páls svo
sem verðugt er:
Hafið þið nokkurntima reynt
að skyggnast undir yfirborðið
og reynt að gera ykkur grein
fyrir raunverulegum ástæðum
fyrir þátttökuleysi kvenna i
stjórnmálum? Reynið þið
nokkurntima að gera ykkur
grein fyrir áhrifum uppeldis
og umhverfis, þar á meðal frá
mönnum eins og ykkur? Hafið
þið heyrt um tvöfalt vinnuálag
kvenna? Hafið þið heyrt um
lægri laun kvenna? Hafið þið
litast um á venjulegu islensku
heimili og athugað hver það er
sem þar vinnur verkin að
meirihluta? Eð hvor aðili
hjónabandsins sem sjálfsagt
þykir að sitji heima yfir börn-
um á kvöldin meðan hinn fer á
fundi — kannski i stjórnmála-
flokknum sinum eða karla-
klúbbnum? Hver er verka-
skiptingin heima hjá ykkur
sjálfum?
Auðvitað er ástandið ekki
alhlitt sem betur fer. En of al-
gengt. Og reyndar getið þið
gert ykkar til að bæta úr — ef
þið .viljið. Hvernig væri að
leggja sitt af mörkum til
kvennaársins (þrátt fyrir
andúð ykkar) og koma t.d. upp
kvennaársnefndum i sveitafé-
lögunum, nefndum sem
reyndu að gera sér grein fyrir
jafnréttisstöðu kynjanna á
hverjum stað og gerðu siðan
tillögur til úrbóta. Þetta hafa
norðmenn gert, að þvi er Eva
Kolstad sagði frá á kvenna-
ársfundinum i Háskólabiói i
júni, og kvennaársráðstefnan
sem haldin var i Reykjavik
stuttu siðar stakk lika uppá,
að kosnar yrðu jafnréttis-
nefndir i öllum bæjar- og
sveitaféiögum. Ég hef ekki
heyrt neitt frá ykkur sveita-
stjórnamönnum siðan.
Sigga”.
Lát heyra
Fleira kemst ekki i belginn i
dag, en látið endilega frá ykk-
ur heyra þegar þið reynið,
heyrið, sjáið eða dettur eitt-
hvað i hug, sem varðar jafn-
réttismálin. Að gefnu tilefni
eru bæði bréfritarar og þeir
sem hringja (simi umsjónar-
manns: 20482) beðnir að láta
uppi fullt nafn sitt, annars get-
um við ekki birt efnið. Auðvit-
að ræður svo fólk sjálft hvort
nafnið birtist eða aðeins
fangamark eða dulnefni.
—vh
Þróuö lönd og vanþróuð
SAMAN
BURÐUR
Á
ALÞJÓÐLEGU
KVENNA-
ÁRI
Þróuð
Þróunar
kvenna
Hlutfall kvenna við nám:
Grunnskólastig
Miðskölastig
Háskólastig.
Hlutfall kvenna iatvinnu
svæði Evrópa N.:Amerika 4,7% 1,9% svæði Afrika 83,7% Asia 56,7% Róm.Amerika 27,3%
Afkonum iatvinnulifi vinna Ilandbúnaði Evrópa N.-Amerika 23,0% 2,5% Afrfka 49,0% Asia 52,0% Róm.Amerika 12,0%
Evrópa 87,8% Afrika 32,9% Hlutfall kvenna á aidrinum Evrópa 6,7% Afrika 40,7%
N.-Amerika 88,2% Asia 45,2% 15—19ára sem eru giftar, N.-Amerika 9,9% Asia 27,9%
Róm.Amerika 66,3% fráskildar eða ekkjur Róm. Amerika 15,2%
Evrópa 32,4% Afrika 19,0% Meðal barna Evrópa 2-4 Afrika
N.-Amerika 61,5% Asia 27,9% N.-Amerika Asia 5—7
Róm.Amerika 25,6% Róm. Amerika
Evrópa 5,0% Afrika 2,0% Meðalaldur Evrópa 74 ára Afrika
N.-Amerika 8,0% Asia 3,3% N.-Amerika Asia 55ára
Róm.Amerika 4,5% Róm. Amerika
Evrópa 29,4% Afrika 26,3% Hlutfall kvenna á þingi Danmörk 17,0% Egyptaland 2,0%
N.-Amerika 25,0% Asia 21,5% — nokkur dæmi: Finnland 21,5% Trinidad og
Itóm.Amerika 17,1% Sovétrikin 38,0% Tobago 7,0%
Island 5,0% Indland 2,3%