Þjóðviljinn - 17.08.1975, Side 3
Sunnudagur 17. ágúst 1975 ÞJÓÐVILJINNj— SIÐA 3
A fæöingarganginum eru sérstök „hriöaherbergi”, þar sem konur
geta veriö fyrir fæöingu, en á þessari mynd sjáum viö nokkur af hinum
nýju fæöingarrúmum. Þessi rúm eru mjög fullkomin, hægt aö snúa
þeim og hreyfa á ýmsa lund, en talin mjög þægiieg fyrir konuna. Þess
má geta aö á deildinni veröur einnig herbergi þar sem feöur geta beöiö.
Fullkomnar skuröstofur ieysa gömlu skuröstofuna af hölmi og eru þær
á sér gangi, þar sem enginn fer inn aö öþörfu. Viö sjáum ljöstækin i loft
inu á þessari mynd, sem eru mjög stör og nýtískuleg.
Hér er gjorgæsla fyrir nýbura, þ.e. börn sem þurfa á sérstakri umönn-
un aö halda, en mjög þýöingarmikiö er aö geta haft þau aöskiiin frá
heilbrigöum mörnum. í tengslum við þessa deild er einnig aögeröar-
stofa fyrir ungabörn.
Þetta tæki gaf Kvenfélagasamband tslands Fæöingardeiidinni, en þaö nefnist Diasonograph og er ultra-
hljööbylgjutæki sem gerir kleift aö fylgjast meö t.d. hjartslætti fösturs þegar I 8.-9. viku meögöngu,
mæla stærö fösturs o.fl. Fleiri þýöingar. mikil tæki hafa verið gefin deildinni af ýmsum samtökum.
Myndir: gsp
Loksins nýFæöingar-
deild og góö aðstaða
Ástand gömlu Fæðingar-
deildarinnar var mjög til
umræðu hér f yrir nokkrum
árum. Var þá dregin fram
i dagsljósið sú ömurlega
aðstaða, sem sjúklingum,
sængurkonum og starfs-
fólki var boðið upp á.
Árangur þessara umræðna
var ákvörðun um byggingu
mikillar viðbyggingar við
deildina, eða í raun nýrrar
Fæðingardeildar. Nú fer
senn að rætast sá draumur
að þessi nýja deild verði
tekin í notkun, en
samkvæmt upphaflegum
áætlunum átti það að vera
gert nú þegar. Göngudeild
hefur að vísu starfað á
neðstu hæð nýbyggingar-
innar í rúmt ár, en þar hef-
ur verið tekið á móti van-
færum konum til skoðunar,
einkum þeim sem eru með
einhverja sjúkdóma, eða
ástæða er til að ætla að séu
i meiri hættu en aðrar í
sambandi við meðgöngu
eða fæðingu. Þar eru einn-
ig gerðar eftirlitsskoðanir,
ráðleggingar veittary
framkvæmd skoðun
sjúklinga á öðrum deildum
spítalans, sem þarfnast
skoðunar á þessu sviði.
Fyrir vorið er áætlað að
búið verði að taka allar
deildir nýju Fæðingar-
deildarinnar í notkun, en
næsti áfangi er kvensjúk-
dómadeild, sem verður
opnuð um næstu mánaða-
mót.
Sigurður S. Magnússon,
prófessor sagði er blaðamaður
skoðaði deildina, að miklar
breytingar yrðu á þjónustu við
sjúklinga með tilkomu nýju
Fæðingardeildarinnar, en þær
verða aðallega á fimm sviðum.
1. Aðstaða fyrir starfsfólk verður
mjög bætt, en hún hefur verið
fyrir neðan allar hellur og sagði
Sigurður að lofsvert væri hve góð
þjónusta hefði verið veitt miðað
við aðstæður.
2. Með tilkomu nýju deildarinnar
skapast betri möguleikar til þess
að safna saman á einn stað
sjúklingum með alvarlega sjúk-
dóma, en til þessa hefur
Fæðingardeildin (frá 1969) fengið
að láni 6 rúm á handlæknisdeild
Landspitalans, og verða sjúkling-
ar þaðan nú fluttir á nýju deild-
ina.
3. Með tilkomu nýju Fæðingar-
deildarinnar skapast vonandi
með timanum aðstaða til þess að
taka við öllum konum með bráða-
sjúkdóma i kvensjúkdómum og
fæðingarhjálp á Reykjavikur-
svæðinu. Er hér átt við konum
með bráðasjúkdóma i móðurlifi,
o.fl. Tekur Fæðingardeildin nú
við öllum bráðum tilfellum i sam-
bandi við seinni hluta meðgöngu-
timans og við fæðingu og væntan-
lega einnig á sviði kvensjúkdóma,
með tilkomu nýju deildarinnar.
4. Með stækkun deildarinnar og
mjög svo auknum tækjakosti
skapast betri aðstaða til kennslu
og starfsþjálfunar heilbrigðis-
stétta. Sagði Sigurður að honum
fyndist stundum talsvert skorta á
að bæði stjornmálamenn og al-
menningur gerði sér grein fyrir
þýðingu þess að auka og bæta
menntun þessara stétta, þar sem
framtið heilbrigðisþjónustunnar i
landinu er að verulegu leyti undir
þvi komin, hvernig tekst að
mennta þetta fólk. „Það er skilj-
a'nlegt að konur, sem koma inn á
þessa deild eigi erfitt með að
sætta sig við þann fjölda nem
enda sem oft eru viðstaddir fæð -
ingar eða aðrar aðgerðir, en það
er alveg óhjákvæmilegt, ef við
ætlum að mennta þetta fólk að
veita nemendum aðgang að
sjúklingum. Mér finnst flestar
konur sætta sig furðanlega við
það ónæði og þá truflun, sem nær-
vera nemenda hlýtur óhjákvæmi-
lega oft á tiðum að hafa. Rétt er
að benda á að með þvi að sætta
sig við þetta, eru sjúklingarnir að
stuðla að betri þjónustu við þá
sjálfa og aðrar konur i framtið-
inni. Hins vegar vil ég taka það
fram að það er okkar stefna að
reyna að taka fullt tillit til óska
sjúklinga, að svo mikly leyti sem
hægt er,” sagði Sigurður.
5. Deildin hefur nú þegar, vegna
nýbyggingarinnar, fengið og tek-
ið i notkun ýmis tæki.sem skapa
möguleika til þess að fylgjast
með ástandi fósturs i fæðingu og á
meðgöngutimanum, og þannig
aukið öryggi fyrir konuna og
fóstrið. „Sem dæmi um þetta vil
ég minnast sérstaklega á mjög
dýrt tæki, sem gefið var af Kven-
félagasambandi lslands og nefn-
ist Diasonograph og var tekið i
notkun fyrir nokkrum mánuðum.
Hér er um að ræða ultra-hljóð-
bylgjutæki, seiji gefur okkur
möguleika á að skrá hjartslátt
fósturs i 8.-9. viku meðgöngu,
mæla nákvæmlega stærð fósturs
og þá .um leið lengd meðgöngu-
tima, staðsetja fylgjuna og
fleira” sagði Sigurður ennfrem-
ur. Jón Hannesson sérfræðingur
við Fæðingardeildina hefur kynnt
sér notkun þessa tækis og unnið
mjög ötullega aö notkun þess.
Meðal þeirra nýmæla, sem ef tii
vill vekja mesta athygli, þegar
gengið er um hina nýju Fæðingar
deild er t.d. gerbreytt aðstaða
fyrir starfsfólk. Geymslurými er
fyrir löngu orðið of litið, en nú
verða tekin i notkun mjög full-
komin sótthreinsunartæki,
geymsluherbergi og öll aðstaða
fyrir starfsfólk batnar. Það sem
að sjúklingunum snýr og sængur-
konum eru t.d. miklar framfarir
frá gömlu leguherbergjunum á
sviði hreinlætisaðstöðu. Einnig er
þarna svokallað „rooming-in”
kerfi sem mjög hefur rutt sér til
rúms erlendis, en það gerir kon-
um kleift að hafa börnin hjá sér
eftir vild á daginn, læra að
meðhöndla þau og kynnast þeim.
sem er mjög þýðingarmikið, ekki
sist fyrir frumbyrjur. öli aðstaða
fyrir lækna er að sjálfsögðu
gerbreytt, ekki sist með tilkomu
hinna fullkomnuskurðstofa. Mjög
mikið hefur verið gefið af tækjum
til Fæðingardeildarinnar af ýms-
um samtökum. Það sem þó er
þýðingarmest i dag, eigi að ljúka
við Nýju Fæðingardeildina, er að
fjárveitingavaldið veiti það fé,
sem nauðsynlegt er til þess að
ljúka öllum framkvæmdum á
áformuöum tima og til að ráða
starfsfólk á hinar ýmsu deildir.
þs
Þetta herbergi er með sérstakri
einangrun i veggjum, en það er
ætlað fyrir konur i geislameðferð.
Upptökutæki fyrir ofan rúmið er i
tengslum við sjónvarp hjá
hjúkrunarkonu, sem þannig getur
fyigst meö sjúklingnum.