Þjóðviljinn - 17.08.1975, Page 5

Þjóðviljinn - 17.08.1975, Page 5
Sunnudagur 17. ágúst 1975 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 5 Sjá Ifst jórna rsósía I ism i kostir hans og gallar 1 fyrri grein um Júgóslaviu var sagt frá þeirri þróun „sjálf- stjórnarsósialisma” sem nú hefur náð nýjum áfanga. Þýðing hans á að vera sú, að tryggja sem mest raunveruleg völd verkamanna- ráðum, án þess að hleypa lausu valdi og auðsöfnun forstjóra og sérfræðinga, og án þess að sleppa lausum skriffinnum rikisvalds- ins. Við höldum áfram að greina frá athugun Gerts Petersens, for- manns Sósialiska alþýðuflokksins danska á þessum málum. Samtök á vinnustað Kjarni hinna nýju umbóta, sem Tito og hans menn hafa gengist fyrir er tengdur starfi og réttind- um „grunnsamtaka sameinaðra verkamanna.” t hverju meiri- háttar fyrirtæki erunokkur „grunnsamtök” með oft 400—500 meðlimum. Vettvangur hverrar grunneiningar er tiltekin verk- smiðjudeild, eða söludeildin osfrv. Hver grunneining hefur sitt eig- ið bókhald. Þær semja hver við aðra um samstarf, og hvert fyrir- tæki starfar á grundvelli þessa samstarfs. 1 sameiningu reka þær og launa samstjórn fyrirtækisins, en hún hefur ekki réttindi grunn- samtáka. Hver grunnsamtök kjósa verkamannaráð og einn forstjóra, ásamt fulltrúum i miöverka- mannaráð fyrirtækisins, sem út- nefnir aðalforstjóra og nokkra aðra aðalstjórnendur. Almennur fundur verkamanna fer með æðsta vald i grunn- einingu. Enginn samningur um kjör eða samstarf við aðrar grunneiningar er gildur nema 2/3 meðlima undirriti hann. Grunneiningin ræður sjálf yfir tekjum sinum og skiptingu þeirra. En hún verður að standa sig efnahagslega og er þvi ekki „frjáls sem fuglinn”. Skipting arðsins Brúttótekjurnar skiptast á þessa leið (skv. athugun Gerts Petersens i fjórum fyrirtækjum). Fyrst eru dregin frá 4% i verð- jöfnunarsjóð og júgóslavneskan þróunarsjóð — þetta er skylda. (Skattheimtan er annars að mestu byggð á persónusköttum). Afgangi brúttótekna er skipt i þrjá hluta a) i laun, hráefni og af- skriftir. b) i fjárfestingu. c) til al- mennra sameiginlegra verkefna — ibúða, fræðslumála, mennta- mála, orlofsmála osfrv. . Skipting milli þessara liða fer fram á almennum verkamanna- fundi eftir tillögum verkamanna- ráðs og forstjóra. Aður hefur ver- ið rætt við miðverkamannaráðið og borgar- eða bæjarstjórn. Bæjarstjórn er með i myndinni vegna þess að hún fer með hluta af sameiginlegum verkefnum. T.d. hafa öll fyrirtæki i Króatiu gert samning við bæjarfélögin um 1,5% framlag af brúttótekjum i fræðslumálasjóð og 1% i hús- næðissjóð og um mismunandi fúlgur i viðlagasjóði. Eftir getu og vilja leggja grunneiningarnar og fram upp- hæðir, oft allmiklar, til félags- legra verkefna fyrir fyrirtækið sjálft (orlofsheimili, ibúðir osfrv). Talið er að hin almennu sameiginlegu verkefni taki 4—8 % af brúttótekjum. Þá eru eftir um 90% af brúttó- tekjunum; sem verkamanna- fundurinn skiptir i laun, fjár- festingu, kaup á hráefnum osfrv. Fundurinn er þó bundinn af ákvæðum laga. um orlof, uppsagnir, lágmarkslaun osfrv. En mismunurinn á útkomunni frá einu fyrirtæki til annars bendir til þess að ramminn sem verka- mannaráðin hafa sé furðu viður. Sendinefndakerfi Pólitiskt hlutverk grunnsam- takanna kemur fram i svonefndu sendinefndakerfi sem kveðið er á um i hinni nýju stjórnarskrá Júgóslaviu. . Hver grunnsamtök kjósa i leynilegum kosningum fasta- sendinefnd. 1 vefnaðarverk- smiðjunni BEKO i Belgrad voru 10 menn i sendinefnd hverrar grunneiningar og 140 i sendi- nefnd alls fyrirtækisins. Þessar „sendinefndir” velja úr sinum hópi fulltrúa i bæjarstjórn og i ráð (þing) hvers lýðveldis. BEKO átti t.d. 6 fulltrúa i hverfastjórnum og einn i borgarstjórn Stór-Belgrad. Þessir fulltrúar eru skuldbundnir til að hafa reglulega samráð við sinar fastasendinefndir og fasta- nefndirnar geta skipt um fulltrúa hvenær sem þeim best sýnist. Það skal tekið fram, að stjórnendur og sérfræðingar fyrirtækisins hafa JÚGÓSLAVÍA SÍÐARI GREIN hvorki kosningarétt né kjörgengi til þessara fastasendinefnda (ein af ráðstöfunum til að skera niður vald forstjóra og teknókrata). Sendinefndirnar kjósa fuiltrúa i sérstakar deildir bæjarstjórna og þinga lýðvelda, og heita þær „deild sameinaðra verka- manna”. (Aðrar tvær deildir eru kosnar af almenningi og almannasamtökum). Þessi deild hefur sérstakt neitunarvald (sem aðrar deildir hafa ekki) um allar útgjaldatillögur og úrslitavald i deilum um samninga milli fyrir- tækja og annarra aðila (t.d. borgastjórna). Hagsmunaráö Sérstöku hlutverki i þessu kerfi hafa svokallaðir pólitiskir hags- munafundir að gegna. Dæmi: bæjarstjórn (sem er i þrem deild- um sem fyrr segir) ákveður þá fyrst útgjöld ársins til fræðslu- mála þegar hún hefur ráðgast við Hagsmunafund um fræðslumál. Þegar upphæðin hefur verið ákveðin, er sv.o þessi „hags munafundur” látinn skipta henni. Sama gildir um félags- heilbrigðis- og menningarmál. Annað dæmi: i Zagreb sendir Hagsmunahópur um menningar- mál (skipaður fulltrúum fvrir- tækja, listamanna, leikhúsa öfl.á jafnréttisgrundvelli neytenda og „framkvæmenda” þ.e. lista- manna) frá sér langan óskalista um menningarmál. Hann (288 bls bók) liggur fyrst frammi til opin- berrar umræðu. Tveim mánuðum siðar gerir hagsmunahópurinn upp sina afstöðu og tekur upp samninga við borgarstjórn. Þegar fjárveiting hefur verið ákveðin tekur hagsmunahópur. inn svo að sér skiptingu fjárins. Allt ber þetta að sama brunni. Það átti að vinna gegn þvi, sem reynslan hafði sýnt, að þeir sem eru i stjórnunarstöðu hafa ávallt bestu möguleika á að sölsa undir sig áhrifavald og ákveða sjálfir hvað þeir bera úr býtum. Það er ekki nóg að breyta ákvæðum um Götumynd frá Makedóniu; aukin framlög til fátækari héraða og lýð- velda. Leyniiegar kosningar til verkamannaráöa — myndin er frá verksmiöj- unni ZMAJ I Zamun, sem framleiöir landbúnaðarvélar. eignarrétt til að breyta þessu. Þess vegna er haldið áfram að gera tilraunir með sjálfstjórnar- sósialismann. Og i sömu átt ganga röksemdirnar fyrir „sendinefndakerfinu”. Þaö á að fela það i sér, segja júgóslavar, að fulltrúi fólksins sé ekki tengd- ur „afstrakt” kjósendamassa, heldur ákveðnum hópi manna, sem tengdur er framleiðslunni, hópi sem menn i stjórnarstöðum eru þar að auki útilokaðir frá. Ágóðasjónarmið En að sjálfsögðu er þetta kerfi ekki einfalt i framkvæmd og margur vandi sem upp kemur. Eins og sagt var frá i fyrri grein gerðist i Júgóslaviu á siðasta ára- tug ör þróun i átt til markaðs- búskapar, og hafa ýmsir sósialistar haft áhyggjur af. Vegna þess, að þar með varð það sterk freisting einstökum fyrir- tækjum að nota vélvæðingu og hagræðingu til að auðga sjálft sig og starfsmenn um leið og heildin var látin lönd og leið og eldri starfsmenn og lakari starfs- kraftur sömuleiðis. Fyrirtæki sem stóðu i upphafi þessarar þró- unar illa að vigi dróust aftur úr. Þá hófst samkeppni milli fyrir- tækja um „hæfa stjórnendur” sem hleypti launum sérfræðinga himinhátt. Allt þetta jók á efna- hagslegt misrétti i landinu, enda þótt það tryggði einnig aukna framleiðslu. Einnig leiddi það til uppsagna, atvinnuleysis og land- flótta — hundruð þúsunda leituðu sér vinnu i Vestur-Evrópu. Það voru þessar hliðar þróunarinnar sem Tito forseti réðist einkum gegn i ræðum sinum og greinum urh og eftir 1970. Samt vilja júgóslavar ekki gefa markaðskerfið upp á bátinn eins og ýmsir vinstrisinnar (Praxishópurinn) hafa lagt til, þvi forystan segist þá óttast að niðurstaðan verði ný ofstjórn rikisvaldsins. Hins vegar vilja þeir temja markaðslöginálin. Það á að gera með auknum um- svifum flokksins, með starfi grunneininganna og „sendi- nefnda sameinaðra verka- manna”. Gróðasjónarmiðið er látið hopa á hæli fyrir nauðsyn samstöðu, fyrir félagslegri sjónarmiðum Sumpart með lög- gjöf, sumpart eru tekin upp ný ákvæði i samningum verklýðs- félaga. Þessi viðleitni skal nú rakin að nokkru. Félagsleg sjónarmið 1 fyrsta lagi hefur það verið bannað með lögum að segja mönnum upp vinnunema að hægt sé að útvega viðkomandi annað starf með hliðstæðum launum. Þetta á að skapa samábyrgð gegn atvinnuleysi og stuðla að þvi, að fleiri farandverkamenn snúi heim. t öðru lagi ber að fá verka- mönnum, sem ekki geta lengur skilað fullum afköstum vegna aldurs eða heilsubrests, léttari störf (og fylgir stundum styttri vinnutimi), en fyrir þau störf eiga þeir að fá sömu laun og þeir höfðu áður. Fyrirtækið (m.ö.o. félagar þeirra i sameiningu) greiða mis- muninn. 1 fyrirtækinu NIK i Zagreb höfðu t.d. verið stofnuð sérstök grunnsamtök fyrir þessa menn (150 af 2000 starfsmönn- um), til að þeir gætu beint annast hagsmuni sina sjálfir. Þessi grunnsamtök „stóðust ekki” fjár- hagslega og hlutu styrk frá öðrum grunnsamtökum verksmiðjunn- ar. (Það skal tekið fram að þessar ráðstafanir koma ekki i staðinn fyrir eftirlaun eða . sjúkra- tryggingar, en eftirlaunaaldur er 60 ár fyrir karla og 55 ár fyrir konur ef vill) I þriðja lagi hafa fyrirtækin farið að tilmælum Titos og sam- þykkt að veita ákveðnum hundraðshluta af tekjum sinum til ibúðaby gginga á vegum sveitafélaga. Sem fyrr eru það mest fyrirtækin sjálf sem reisa ibúðir fyrir starfsfólk sitt, en þessi sameiginlegi bygginga- sjóður á að draga úr mismun á húsnæðiskjörum. Aðstoð við fyrirtæki 1 fjórða lagi hafa menn eflt þann sjóð sem aðstoðar fyrirtæki sem illa vegnar. Hér þarf vist nokkurrar skýringar við. Sjálfsstjórn fyrirtækja þýðir, að menn verða að basla upp á eig in spýtur. Menn hafa ekki kapital ista til að varpa sökinni á ef illa gengur, menn geta heldur ekki sótt að einhverju stóru ópersónu- legu. kerfi sem dragi óþekktar upphæðir út úr fyrirtækinu. I prentsmiðju i Zagreb var á hverj- um mánuði gefið út fréttabréf með upplýsingum um það, hvað hver einstakur, sópari sem for- stjóri, hafði fengið útborgað i mánuðinum. Útborgunin er i reynd fyrirframgreiðsla. Við ára- mót er endanlega gert upp. Ef til vill var of litið borgað út, þá fá menn uppbót. Ef til vill of mikið — þá verður að draga nokkuð af mönnum næstu mánuði. En það getur verið svo litið til skiptanna, að það verði að kalla á lögin um lágmarkstekjur starfs- fólki til bjargar. Þá launajöfnun kosta önnur fyrirtæki i borg og lýðveldi. Á móti kemur að fyrir tækið verður að sætta sig við að rekstur þess sé tekinn til ná- kvæms eftirlits og þvi jafnvel skipuð stjórn að utan. t fimmta og sjötta lið koma ráð- stafanir sem lúta að þvi að draga úr óstjórn samkeppninnar. Fyrir- tæki eru skylduð til að gera lang- timasamninga við önnur fyrir- tæki og staðaryfirvöld, sem i heild verða einskonar áætlunar- rammi. Aætianagerð er þar með efld. Þá erog skert að mun sjálf- ræði peningastofnana með það fyrir augum að þær breytist ekki i sérstakt skriffinskuvald. Launamunur og vinnuálag I sjöunda lagi er rekin sú stefna, andstæð gróðasjónar- miðum, að draga úr launamis- mun. Eru enn uppi miklar deilur um, hvort hann sé of mikill eða of litill. t þeim fyrirtækjum fjórum sem Gert Petersen heimsótti Framhald á 22. siðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.