Þjóðviljinn - 17.08.1975, Side 8

Þjóðviljinn - 17.08.1975, Side 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. ágúst 1975 Tel mig sjálfstæðismann enn í dag—án gæsalappa Á morgun, 18. ágúst, verður Guðmundur Finn- bogason járnsmiður sjötiu og fimm ára. Flestir þeir, sem starfað hafa í sósíal- iskum samtökum í Reykja- vík munu þekkja hann vel, því að á þeim vettvangi hef ur hann ekki legið á iiði sínu, heldur lagt af mörkum eftir getu ,,og stundum meira en það," eins og einn kunnugur komst að orði. Jafnvel enn fleiri munu hafa kynnst Guðmundi gegnum atvinnu hans, en hann hefur rekið járnsmíðastofu í Reykja- vík síðan 1927. Enn aðrir þekkja hann sem skemmti- legan ferðafélaga um byggðir og hálendi landsins. Þjóðviljinn hitti Guðmund að máli á Grettisgötu 20B, þar sem hann hefur búið i áratugi og haft járnsmiðjuna i kjallaranum. Guðmundur var að vinna við aflinn, þegar okkur bar að garði, að smiða múrhaka fyrir blikk- smiði. Það annað, sem mest fer fyrir i járnsmiöjunni, er fork- unnar mikill rennibekkur, fram- leiddur i Tékkóslóvakiu. — Héðinn flutti hann inn, sagði Guð- mundur. — Það var einhverntima kringum 1960. Þeir voru mikið með tékkneskar vélar i Héðni. Mig langaöi ekkert sérstaklega i tékkneskan bekk, þótt ég sé talinn róttækur. En þetta eru ágætir bekkir og miklu ódýrari en Köping.sem mig minnir þeir heita.sænsku bekkirnir. Og þetta kostaði ekki nema 85.000 krónur þá, ef það næðist inn áður en við- reisnarstjórnin kæmi á með eina gengislækkunina. Við, sem fylgd- umst með, vissum að það var von á henni. En ég þurfti að borga bekkinn út: það var skilyrði hjá Sveini i Héðni sem ég kynntist nú litillega þegar ég var eitt ár i Héðni 1926, þegar ég flutti i bæ- inn. Þá var hann þar efnilegur -nemi i rennismiði. Ég hafði ekki peninga handbæra, en Sveinn var þar nokkuð framarlega, gott ef hann var ekki formaður banka- ráðs, svo ég hélt nú að þetta væri nokkuð öruggt. Bankastjórinn var Guðmundur Ólafs, og ég lýsti þessu fyrir honum, en það var ekki nokkur leið að fá lán. Það var eins og oft er sagt hjá banka- stjórum: peningar ekki til. Ég skal lána þér 30.000 En nokkuð var það, þegar ég kem heim niðurbrotinn, þá kemur til min góður kunningi minn, frændi Ásgeirs Ásgeirssonar for- seta. Hann var hér heimagangur og ágætur vinur og ég á enn könnu, sem ég alltaf drekk úr til minningar um hann. Hann sagði, þegar hann sá hvað ég var miður min: Ég skal lána þér 30.000. Þá lifnaði ég allur við, og annar kunningi.sem ég leitaði til, visaði mér á bróður sinn, sem spurði bara: Hvað viltu mikið? Þaö fór þvi svo aö ég gat borgað renni- bekkinn út, og það var mikil gæfa, þvi að allir vita hvað þessi viðreisnarstjórn gerði úr peningum manna. Og þessi bekkur hefur reynst mér vei. Ég hafði aldrei áður eignast virki- lega góðan bekk, og mig langaði til að eiga slikan i ellinni, þetta var orðinn gamall draumur. Við ætluðum að ná okkur i rennibekk i Danmörku um það leyti sem striðið skall á. Þá var Einar Malmberg þar úti og sendi okkur skeyti um að við yrðum að ákveða okkur fljótt — ég var þá i félagi við ágætan ihaldsmann — þvi að húast mætti við striði hvern dag. Enda kom striðið, og við fengum ekki bekkinn. Smali á Harrastööum — Hvaðan ert þú upprunninn, Guðmundur? Guðmundur I stofunni heima hjá — Ég er fæddur og uppalinn á Harrastöðum i Dalasýslu, þar sem gengu naut Ólafs Pá. Þar var ég smali meðfram Hauka dalsá og Miðá, það er tveggja tima gangur, niður með annarri og upp með hinni. Þarna ólst ég upp hjá þeim ágætu hjónum, Hildiþór Hjálmtýssyni og Krist- inu Baldvinsdóttur. Ég var ekki hjónabandsbarn. Móðir min var þar vinnukona, ættuð innan úr Laxárdal, frá Svarfhóli, af þeirri ætt. Ég er svolitið montinn af þvi að geta talið mig til ættar við Jó- hannes skáld úr Kötlum. Pabbi var þarna vinnumaður, rúmlega tvitugur, og það var eins og gekk og gerðist, þar sem baðstofur voru litlar og samgangur þægi- legur. Ég er mjög lukkulegur yfir þvi og hef oft látið i ijós i hópi kunningja minna og bræðra, að það hafi verið mikil gæfa, þvi að ég get ekki annað sagt en að ég hafi haft mikla ánægju af lifinu. Gengu þau á hamar þann er Höfði heitir — Varstu á Harrastöðum til fullorðinsára? — Ekki alveg. Fimmtán ára að ' aldri eða svo fór ég innyfir Haukadalsá, inn að Lækjarskógi, þar sem er höfði, sem nú heitir Gálghamar. Gengu þau fftiamar þann er Höfði heitir og mátti þaðan vítt sjá til mannaferða um héraðið, segir i Laxdæla sögu um Guðrúnu ósvifursdóttur og Snorra goða. Ég var þar hjá Sigurdór bónda, sem var þá gamall maður, orðinn ekkju- maður, og bjó á hálflendunni: uppeldisdóttir hans, Jensina stóð fyrir búi. Á hinni hálflendunni bjuggu systir Jensinu, Arndis, og hennar maður, Magnús frá Gunnarsstöðum. Hann dó úr tær- ingu, minnir mig, og þá tók jörð- ina Guðbrandur frændi minn Guðmundsson. En það var i milli- tiðinni sem Jón Laxdal tók jörð- ina á leigu og fékk hálfsystur sina Lilju Magnúsdóttur fyrir ráðs- sér. konu, hún varð seinna min elsku- leg kona. Við bjuggum saman i tæp fimmtiu ár og eignuðumst sex elskuleg börn, fimm dætur og einn son, sem öll eru nú gift og barnabörnin orðin tuttugu og þrjú. I læri á Hvammstanga — Hvenær fórstu að stunda smiðar? — Mig langaði snemma til að læra smiðar. Hildiþór var ágætur smiður bæði á tré og járn og ég hafði blásið frá barnæsku undir skeifum hans og var sjálfur farinn að smiða skeifur þegar ég fór frá Harrastöðum, fimmtán ára. Það var smiðja lika i Lækjarskógi, þvi að hann var þjóðhagi, gamli maðurinn, Sigur- dór, en það var á öðru sviði. En svo gerðist það að Lilja fór norður á Hvammstanga til þeirra ágætu læknishjóna Ólafs Gunnarssonar og Rögnu Gunnarsdóttur. Þar var hún stofustúlka. Þá vorum við farin að draga okkur saman, þar við bættist að ég frétti af ágætum smið norður á Hvammstanga. Hann hét Guðmundur og var alltaf kallaður smiður, og ég var alltaf kallaður Guðmundur smiður lika. Hann smiðaði skeifur, sykurtangir og fleira, og hjá honum lærði ég. Það var dásamlegur timi. Næsta vetur fór ég aftur að læra til Guðmundar, en þá dó hann skyndilega, var brjóstveikur eins og margir voru i þá daga. Og ég suöur og ætlaði að halda áfram námi, þá vorum við opinberlega trúlofuð. Þegarég kom suður, gat ég fengið tuttugu og fimm aura um timann, og það var mér nú ekki nóg, þvi að ég var algerlega félaus maður. Þetta hefur liklega verið 1920-21. Ég lenti upp að Alafossi sem hálfgildings smiður, til Sigurjóns Péturssonar, sem þá var i Hafnarstrætinu. Hann var þá mikið nafn. Einar bróðir hans var lika frægur maður, fyrir uppsteyt sinn gegn þeim dönsku, með bláhvita fánann. Ég var varaður við Sigurjóni og mér ráð- lagt að gera við hann skriffegan samning. Ef mér likar ekki viö þig, læt ég þig fara — Hvernig fóru leikar með ykkur? — Ég lýsti högum minum og hann réði mig fyrir hundrað og fimmtiu krónur á mánuði og fritt fæði og húsnæði. Það voru tveggja manna herbergi i skála, sem enn stendur. Þegar þetta var klappað og klárt, fór ég að ympra á þvi að gera við hann skriflegan samning. Hann var áður búinn að auglýsa eftir mönnum og enginn vildi fara til hans upp á þessi kjör, menn úr Hamri og með ágæta vinnu, ég held að það hafi þá verið 1,70 krónur um timann hjá járniðnaðarmönnum, sem er áreiðanlega betra kaup en þeir hafa nú. Þú getur gert skriflegan samning, segir Sigurjón, en hann gildir ekki hjá mér. Ef mér likar ekki við þig, læt ég þig fara, og ef þér likar ekki við mig, geturðu farið. Nú, ég fór vestur i Dali þegar timi var til kominn og gifti mig minni ágætu konu. Sá sem gaf okkur saman var séra Jón Guðnason, sem nú er nýlátinn, prestur þá á Kvennabrekku. Brúðarbekkurinn var heldur stuttur, en ég vildi vera til- hliðrunarsamur i hjónabandinu frá upphafi og sat ekki á nema hálfum bakhlutanum svo að brúðurin gæti setið þægilega. En það dugði ákaflega vel, þetta hjónaband, sem hófst þarna i eld- húsinu á Kvennabrekku. Nú líkar mér ekki við þig Lilja fór svo að vinna i verksmiðjunni á Álafossi, fékk þar vinnu við lóskurðarvélina. Við bjuggum fyrst i einu herbergi aðeins, en þegar okkur fæddist fyrsta barnið, að tiu mánuðum liðnum, var svo komið að ég gat ekki lengur lifað á þessu kaupi hjá honum Sigurjóni minum, þvi að nú var ég farinn að fæða mig sjálfur. Og um áramótin 1924-25 segi ég honum að nú ætli ég að fara. Þú getur það ekki, þú ert ráðinn til vors, segir hann. Þá minnti ég hann á hvað hann hefði sagt, þegar ég kom til hans fyrst, og nú likar mér ekki við þig, segi ég. Þá brosti hann svo gleitt að ég hélt að það ætlaði að rifna út úr munnvikjunum á honum. En þetta var afbragösmaður, hann kenndi okkur iþróttir og skaffaði okkur tæki. Ég var hjá honum sem staðarins smiður, bæði á tré og járn. Það var talsvert að gera við viðhald á vélum og öðru á Ála- fossr, þetta voru gamlar vélar. Smiöaði 400 ganga — Hvert lá svo leiðin frá Ála- fossi? — Svo kemst maður til Reykja- vikur og var ráðinn hjá Héðni, sem þá var þar sem Morgun- blaðshöllin stendur nú. Þar var þá mikið að gera. Þá voru Hala veðrin miklu ég vann við að spengja mastrið á Hilmi. Þá var rafsuðan fyrst að koma til landins, danskur maður, Andersen, kom með hana. En svo varð ég atvinnulaus og það endaði með þvi að ég gerðist sjálfstæður atvinnurekandi. Eftir að hafa fengist við sitt af hverju um skeið frétti ég, að það væri borguð króna á ganginn fyrir að smiða skeifur fyrir landssjóð. Þeir sköffuðu járn og kol. En þá var að kaupa sér steðja og lausasmiðju. Þetta gat ég ekki nema að fá lán og leitaði til dalamanns, sem var sterkefnaður. og hann vildi ekkert hjálpa mér. Þá datt mér i hug fátæk saumakona, sem var mikil kunningjakona konunnar minnar frá æsku hennar, og hún lánaði mér fjögur hundruð krón- ur. Þetta dugði til þess að ég gat keypt átta linu lampa og fékk svo skúr leigðan upp á Bergþórugötu. Þar sté ég smiðjuna af hörku og smiðaði fjögur hundruð ganga. Þá var komið upp i lánið. Siðan hef ég verið sjálfs min, vann aðeins eitt ár i millitiðinni hjá öðrum og leigði verkfærin, en kunni ekki við það, var orðinn svo vanur hinu. — Hverskonar verkefni hefurðu Helst verið með? — Ég lifði mest af bilavið- gerðum og bilabreytingum, þegar menn voru að gera við sina gömlu bila. Mér kom það þvi ákaflega spánskt fyrir sjónir um daginn, þegar menn fengu ekki skoðaða millibilsstöng, sem ég hafði soðið saman, en þetta er ég búinn að gera i áratugi. Ég hringdi i eftir- litið og þeir sögðu mér að reglu- gerðin bannaði að sjóða nokkuð saman i stýri. Guð hjálpi þá öllum þeim, sem hafa verið með stýri soðin saman eftir mig i öll þessi ár, sagði ég. Hef verið pólitiskur alla ævi — Þú hefur lengi verið áhuga- maður um stjórnmál. — 1 æsku var ég eldheitur sjálf- stæðismaður, og þá er það að sjálfsögðu Sjálfstæðisflokkurinn gamli, sem ég á við. Ég hef ekki vitaö glæsilegri foringja en Bjarna Jónsson frá Vogi. Og ég tel mig sjálfstæðismann enn i dag — án gæsalappa. Konan min var ákaflega reið út i Sigurð Eggerz fyrir að hann skyldi skaffa Rætt við Guðmund Finnbogason járnsmið

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.